Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Side 22
26
íslendingaþættir
iJmsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára__________________________
Svanhvít Guðmundsdóttir,
Skothúsvegi 15, Reykjavík.
Sigurlín Guðmundsdóttir,
Furugerði 1, Reykjavík.
85 ára__________________________
Kristín Siguröardóttir,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Ástfinna Pálsdóttir,
Eyrargötu 22, Siglufiröi.
80 ára__________________________
Gunnar Pétursson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Halldór Siguröur Haraldsson,
Starmýri 23, Neskaupstað.
75 ára_________________________
Guðrún Sumarliðadóttir,
Vesturbergi 143, Reykjavík.
Ingiberg Benediktsson,
Stóra-Múla 1, Búöardalur.
70 ára_________________________
Helga Henrysdóttir,
Efstaleiti 10, Reykjavík.
Guömundur Halldórsson,
Logafold 5, Reykjavík.
Sveinberg Hannesson,
Kirkjustétt 7, Reykjavík.
Hann er að heiman.
Sveinsína Frímannsdóttir,
Suðurgötu 12, Keflavík.
Védís Bjarnadóttir,
Höfðabrekku 14, Húsavík.
Ingvar Kárason,
Árlandi, Húsavík.
60 ára_________________________
Huginn Sveinbjörnsson,
Efstahjalla la, Kópavogi.
3ára Ólafsdóttir,
Eyrarholti 6, Hafnarfirði.
30 ára_________________________
v/alborg María Stefánsdóttir,
Stigahllð 48, Reykjavík.
Margrét Óskarsdóttir,
Fiskakvísl 3, Reykjavík.
Siguröur Valtýsson,
Reyrengi 33, Reykjavík.
Helga Guðsteinsdóttir,
Blikanesi 21, Garðabæ.
Ragnhildur Freyja Sverrisdóttir,
Bæjargili 11, Garðabæ.
Eiður Arnarson,
Fagrahvammi 3, Hafnarfirði.
Jónas Hallgríms Jónasson,
Geldingalæk, Hella.
40 ára_________________________
Arnaldur Sigurðsson,
Ljósvallagötu 18, Reykjavík.
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir,
Sjafnargötu 9, Reykjavík.
Gréta Ösp Jóhannesdóttir,
Laugarnesvegi 92, Reykjavík.
Ólöf Brynja Jónsdóttir,
Hafnardal, Hólmavík.
Birkir Björnsson,
Aðalstræti 10, Akureyri.
Lára Ósk Garöarsdóttir,
Lerkilundi 15, Akureyri.
Svanlaug Inga Skúladóttir,
Þórunnarstræti 81, Akureyri.
Smáauglýsingar
Allt til alls
►I550 5000
Andlát
Anna Gísladóttir, Álfabyggð 3, Súðavík,
lést á Heilbrigðisstofnun ísafjarðarbæjar
að morgni fimmtud. 11.10. Jarðarförin
veröur auglýst síöar.
Úlfar Einar Kristmundsson, Huldulandi
4, lést á Landspltala Fossvogi fimmtud.
11.10.
Sigurbjörg P. Sigurhannesdóttir, Stór-
holti 24, Reykjavík, lést á elli- og hjúkr-
unarheimilinu Grund sunnud. 7.10. sl.
Jarðarförin hefur farið fram I kyrrþey aö
ósk hinnar látnu.
Guölaugur Halldórsson frá Hvammi, síð-
ast til heimilis á Ægisgötu 4, Akureyri,
lést á heimili sínu laugard. 6.10. sl. Út-
förin hefur fariö fram I kyrrþey aö ósk
hins látna.
Gísii Ingimundarson, Grettisgötu 52,
Reykjavík, andaðist á líknardeild Land-
spítalans I Kópavogi föstud. 12.10.
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001
DV
Helgi Ágústsson
sendiherra íslands í Kaupmannahöfn
Helgi Ágústsson, sendiherra ís-
lands í Kaupmannahöfn, er sextug-
ur í dag.
Starfsferill
Helgi fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
1958, stúdentsprófi frá VÍ 1963 og
embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1970.
Helgi var fulltrúi í utanríkisráðu-
neytinu 1970-73, sendiráðsritari og
sendiráðunautur í sendiráði íslands
í London 1973-77, deildarstjóri í ut-
anríkisráðuneytinu 1977-78, deildar-
stjóri og formaður varnarmála-
nefndar 1979-83, sendifulltrúi i
sendiráðinu í Washington 1983-87,
skrifstofustjóri í utanríkisráðuneyt-
inu 1987-89, sendiherra í London
1989-95, ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráðuneytisins 1995-99 og hefur verið
sendiherra í Kaupmannahöfn frá
1999.
Helgi sat í stjórn körfuknattleiks-
deildar KR 1959-73 og 1977-80, var
formaður körfuknattleiksdeildar
1966-70 og 1977-79, sat í stjórn
Körfuknattleikssambands íslands
1966-67 og 1972-73 og var formaður
KKÍ 1982-83.
Fjjölskylda
Helgi kvæntist 7.12. 1963 Hervöru
Jónasdóttur, f. 18.9.1943, húsmóður.
Hún er dóttir Jónasar Björgvins
Jónssonar, f. 29.6. 1907, d. 10.9. 1996,
og Guðbjargar Hallgrímsdóttur, f.
24.6. 1906, d. 1.5. 1980.
Börn Helga og Hervarar eru
Jónas Ragnar, f. 3.10. 1963, lögreglu-
maður í Reykjavík, en eiginkona
hans er Jóna Bára Jónsdóttir, f.
16.10. 1968, innheimtustjóri Ferða-
skrifstofu íslands, og eiga þau sam-
an þrjú börn auk þess sem Jónas á
eitt fósturbarn; Guðmundur Björg-
vin, f. 3.12. 1964, ráðuneytisstjóri í
Reykjavík, en eiginkona hans er
Helga Jóna Benediktsdóttir, f. 13.12.
1960, lögfræðingur og á Guðmundur
eina dóttur frá fyrra hjónabandi en
Guðmundur og Helga Jóna eiga
saman tvo syni; Helgi Gunnar, f.
19.11. 1971, BA í sálfræði, búsettur í
Reykjavík, en eiginkona hans er
Fríða Ingibjörg Pálsdóttir, f. 30.6.
1972, hjúkrunarfræðingur og eiga
þau einn son; Oddfríður Steinunn, f.
28.5.1977, nemi, búsett í Hafnarfirði,
og á hún þrjú börn.
Alsystir Helga: Kristjana Ágústs-
dóttir, f. 27.3. 1938, d. 28.1. 1994.
Hálfsystkini Helga eru Emil Pét-
ur Ágústsson, f. 7.7. 1944, stýrimað-
ur í Keflavík; Ásgerður Ágústsdótt-
ir, f. 14.4. 1946, hárgreiðslumeistari
á Akureyri; Ásthildur Ágústsdóttir,
f. 24.12. 1955, skrifstofumaður, bú-
sett í Búðardal.
Foreldrar Helga voru Ágúst Her-
bert Pétursson, f. 14.9. 1916, d. 1.3.
1996, bakarameistari, sveitarstjóri
og oddviti Patreksfjarðar, og Helga
Jóhannesdóttir, f. 20.10. 1915, d.
16.10. 1941, húsmóðir.
Fósturforeldrar Helga voru Guð-
mundur R. Oddsson, f. 6.6. 1896, d.
1.2. 1984, forstjóri Alþýðubrauðgerð-
arinnar, og Oddfríður S. Jóhanns-
dóttir, f. 6.6. 1896, d. 6.8. 1976, hús-
móðir.
Ætt
Ágúst var sonur Péturs Jóns,
skipstjóra í Bolungarvík, Sigurðs-
sonar, b. á Meiribakka, Péturs-
sonar, og Friðrikku Elíasdóttur.
Móðir Ágústs var Kristjana Þór-
unn, systir Mariu Bjargeyjar, móð-
ur Þorvalds Garðars Kristjánsson-
ar, fyrrv. alþingisforseta. Kristjana
Þórunn var dóttir Einars, sjómanns
í Bolungarvík, bróður Elínar,
langömmu Böðvars Bragasonar lög-
reglustjóra. Einar var sonur Jó-
hannesar, b. á Blámýrum, Jónsson-
ar. Móðir Jóhannesar var Þóra
Jónsdóttir yngra, b. á Laugabóli
Bárðarsonar, ættföður Arnardals-
ættar, Illugasonar.
Helga var dóttir Jóhannesar,
verkamanns í Súgandafirði, bróður
Kristínar, langömmu Gylfa Guð-
munssonar skólastjóra, Óttars Felix
framkvæmdastjóra og Sveins Rún-
ars læknis Haukssona. Jóhannes
var sonur Friðberts, hreppstjóra í
Vatnadal, Guðmundssonar og Sig-
mundínu Sigmundsdóttur frá Botni.
Móðir Helgu var Sigrún, dóttir
Benedikts Gabríels, formanns í Bol-
ungarvík, Jónssonar, bróður Mar-
grétar, langömmu Valdimars Örn-
ólfssonar menntaskólakennara. Jón
var sonur Jóns, húsmanns á Ósi,
Sumarliðasonar. Móðir Benedikts
Gabríels var Sigríður Friðriksdótt-
ir, b. á Látrum, Halldórssonar. Móð-
ir Sigrúnar var Valgerður Þórarins-
dóttir, b. á Látrum, Þórarinssonar,
b. á Látrum, Sigurðssonar.
Helgi og Hervör taka á móti gest-
um í KR-heimilinu á afmælisdaginn
kl. 17.00.
Fímrntugur 1 Attræð
Valdimar Reynir Björnsson
Filippía Kristjánsdóttir
nemi viö Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki
húsmóðir í Kópavogi
Valdimar Reynir
Bjömsson, nemi við Fjöl-
brautaskólann á Sauðár-
króki, til heimilis á sam-
býli fatlaðra á Sauðár-
króki, varð fimmtugur i
gær.
Starfsferill
Valdimar fæddist á
Sauðárkróki en ólst upp í
Framnesi í Blönduhlíð. Þá átti hann
heima i Varmahlíð um skeið hjá
Sigurlaugu systur sinni.
Valdimar flutti í sambýli fatlaðra
á Sauðárkróki 1998. Hann stundar
nú nám við Fjölbrautaskóla Norður-
lands á Sauðárkróki.
Fjölskylda
Systkini Valdimars eru Sigtrygg-
ur Jón, f. 4.1.1938, kennari á Hvann-
eyri; Broddi Skagfjörð, f. 19.7. 1939,
oddviti í Framnesi; Sigurður
Hreinn, f. 16.5. 1941, kennari við
Nesjaskóla; Sigurlaug Una, f. 25.2.
1943, húsmóðir og verkakona í
Varmahlíð; Helga Björk, f. 7.11.1944,
forstjóri í Hveragerði; Gísli, f. 16.4.
1947, húsasmíðameistari á Sauðár-
króki; Ingimar Birgis, f.
1.3. 1950, húsasmíða-
meistari á Sauðárkróki.
Foreldrar Valdimars:
Björn Sigtryggsson, f.
14.5. 1901, fyrrv. bóndi á
Framnesi í Blönduhlíð,
nú á Sauðárkróki, og
k.h., Þuríður Jónsdóttir,
f. 10.3. 1907, fyrrv. hús-
freyja á Framnesi.
Ætt
Bjöm er sonur Sigtryggs, b. í
Framnesi, Jónatanssonar, b. í Litla-
Árskógi og á Reykjahóli í Fljótum,
Ögmundssonar, b. á Efri-Vindheim-
um í Eyjafirði, Ólafssonar. Móðir
Sigtryggs var Hólmfríður Gunn-
laugsdóttir frá Gröf.
Móðir Bjöms var Sigurlaug Jó-
hannesdóttir, hreppstjóra á Dýr-
finnustöðum, Þorkelssonar og Krist-
ínar Jónsdóttur, b. í Framnesi,
Jónssonar.
Þuríður er dóttir Jóns ríka á
Flugumýri Jónassonar og Sigríðar
Guðmundsdóttur frá Gröf í Laxár-
dal í Dalasýslu.
Filippía Kristjánsdóttir
húsmóðir, EfstahjaUa 21,
Kópavogi, er áttræð í dag.
Starfsferill
FUippía fæddist á Flat-
eyri og ólst þar upp. Hún
var búsett á Flateyri til
haustsins 1970 er hún
flutti með fjölskyldu sinni
í Kópavoginn þar sem
hún hefur átt heima síðan.
FUippía starfaði að mestu sem
húsmóðir en eftir að hún Uutti suð-
ur vann hún töluvert við sauma-
skap að ýmsu tagi.
Fjölskylda
FUippía giftist 16.10. 1943 Einari
Jóhannessyni frá Hlíð í Álftafirði, f.
23.6. 1923, d. 5.5. 1988, vélstjóra. For-
eldrar hans: Jóhannes Gunnlaugs-
son og Málfríður Sigurðardóttir en
þau stunduðu lengst af búskap að
Hlíð í Álftafirði.
Böm Filippíu: Ásbjörg, f. 1939,
skrifstofumaður, búsett í Kópavogi;
Agnes, f. 1943, hárgreiöslumeistari,
búsett í Reykjavík; Erna, f. 1945,
skrifstofumaður, búsett í Kópavogi;
Kristján, f. 1950,
rafveitustjóri, búsettur á
Flateyri; Jóhannes, f.
1953, vélstjóri, búsettur í
Hafnarfirði; Reynir, f.
1956, húsasmíðameistari,
búsettur í Reykjavík.
Barnabörn Filippíu eru
nú fimmtán talsins en
langömmubörnin eru tíu
talsins.
Systkini Filippíu eru öll látin.
Þau voru Ragnheiður, húsmóðir á
Flateyri; Ásgeir, fórst ungur maður,
var búsettur á Flateyri; Hjálmar,
lengst af verkamaður og síðan
húsvörður, búsettur á Flateyri og
síðan í Reykjavik.
Foreldrar Filippíu voru Kristján
Guðnason og Rögnvaldína Hjálm-
arsdóttir, bæði fædd og uppalin í
Langadal við Djúp.
Filippía verður að heiman á af-
mælisdaginn en hún tekur á móti
vinum og vandamönnum að Skógar-
hlíð 8, Reykjavík, (húsi Krabba-
meinsfélagsins), á 4. hæð, laugard.
20.10. milli kl. 15.00 og 18.00.
Merkír Islendingar
Stefán frá Hvítadal
Stefán frá Hvltadal fæddist á Hólmavík
16. október 1887, sonur Sigurðar Sig-
urðssonar, kirkjusmiðs á Hólmavík og
víðar, og k.h., Guðrúnar Jónsdóttur.
Stefán ólst upp á Stóra-Ejarðarhomi
við Kollafjörð og í Hvítadal í Saurbæ.
Hann lærði prentnám á ísafirði og í
Reykjavík, var í Noregi 1912-1915, m.a.
á heilsuhælum sökum tæringar, stofn-
aði heimili á Ballará, var á Krossi á
Skarðsströnd en bóndi í Bessatungu í
Saurbæ frá 1925 og til æviloka. Stefán
gerðist ungur kaþólskrar trúar.
Ljóðabækur Stefáns: Söngvar föru-
mannsins, 1918; Óöur einyrkjans, 1921;
Heilög kirkja, 1924; Helsingjar, 1927, og Anno
Domini, 1930. Söngvar förumannsins er lang-
besta ljóðabók Stefáns og tímamótaverk í ís-
lenskri ljóðlist. Hún gerir hann að einu
fremsta skáldi nýrómantísku stefnunnar,
og ásamt Davíð Stefánssyni, (Svartar
fjaðrir, 1919), að helsta boðbera hinnar
hinnar lífsglöðu, kraftmiklu og
rómantísku aldamótakynslóðar.
Stefán var rómantískt lífsnautna-
skáld en ástarljóð hans eru áleitnari,
berorðari og holdlegri en áður
tiðkaðist. Ýmis höfuðskáld hafa skrifað
um Stefán og dásamað skáldskap hans,
s.s. Tómas Guðmundsson sem gaf út
heildarljóðasafn hans, meistari Þórberg-
ur sem brallaði með honum í Unuhúsi og
víðar, Halldór Laxness í bókinni Af skáldum
og Hannes Pétursson í Eimreiðina 1972.
Jarðarfarir
Pétur Sigurjónsson, húsasmiðameistari
frá Þingeyri, verður jarösunginn frá Há-
teigskirkju þriðjud. 16.10. kl. 13.30.
Útför Guðbjargar Pálsdóttur, Furugeröi
1, fer'fram frá kirkju Óháða safnaðarins
fimmtud. 18.10. kl. 15.00.
Útför Bergþórs N. Jónssonar sjómanns,
Ránargötu 13, fer fram frá Fossvogs-
kirkju, fimmtud. 18.10. kl. 13.30.
Útför Jóhannesar Jónssonar, fýrrv. raf-
verktaka, Stóragerði 9, Reykjavík, fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjud. 16.10.
kl. 13.30.
Ólafur Sigurður Jóeisson skipstjóri verð-
ur jarðsunginn frá Hallgrimskirkju
þriðjud. 16.10. kl. 15.00.
Þórhallur Hálfdánarson skipstjóri, Vita-
stíg 2, Hafnarfirði, veröur jarðsunginn
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjud. 16.10.
kl. 13.30.