Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2001, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001
DV
Fréttir
Skolp og saur verða
áfram í fjöruborðinu
- ekki staðið við markmið R-lista, segir minnihlutinn
Byggingu dælustöðvar 1 Grafarvogi frestað:
Byggingu dælustöövar hefur veriö frestaö
Sjálfstæðismenn gagnrýna ákvörðun borgarstjórnar um að fresta byggingu
dælustöðvar í Grafarvogi um eitt ár. Hrannar B. Arnarsson segir fyrirhugaðar
breytingar á skipulagi Gufunesslandsins ástæðu frestunarinnar.
Umhverfis- og
heilbrigðisnefnd
Reykjavikur hefur
samþykkt að
fresta fyrirhuguð-
um úrbótum í
skólpmálum Graf-
arvogs um eitt ár
eða til 2004. Á
meðan mun þvi
mannasaur og
annar úrgangur
hverfisins falla í Grafarvoginn fyrir
allra augum, skammt undan landi.
Minnihluti borgarstjórnar hefur
gagnrýnt þetta harkalega og segir
ljóst að stórhækkuð holræsagjöld
dugi hvergi til að koma þessu í lag.
Meirihluti borgarstjómar vísar
hins vegar til þess að taka þurfi með
í reikninginn nýjar hugmyndir um
byggingu íbúðahverfis í Gufunesi.
„Byggingu dælustöðvarinnar hef-
ur verið frestað vegna breytinga
sem fyrirhugaö er að gera á skipu-
lagi Gufunesslandsins. í kjölfar at-
burðanna í Áburðarverksmiðjunni
var ekkert annað í stöðunni en að
endurskoða skipulag og finna dælu-
stöðinni nýjan stað,“ segir Hrannar
B. Amarsson, formaður Umhverfis-
og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur.
Minnihlutinn vísar í fjórða lið
svonefndrar umhverfisstefnu
Reykjavíkur við upphaf þessa kjör-
tímabils. Þar segir að það sé stefna
Reykjavíkurborgar aö allir borgar-
búar lifi og hrærist í heilnæmu um-
hverfi og úti sem inni verði loft
hreint og heilsusamlegt. Strendur
borgarinnar verði aftur hreinar og
ómengaöar og tryggt verði að meng-
un berist ekki í ár og vötn. Þá segir
einnig að mengun í borginni sé
fyrst og fremst vegna samgangna og
frárennslis. Gert var ráð fyrir að
ljúka frárennslismálum á fáum
árum.
Guðlaugur Þór
Þórðarson, borg-
arfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins,
segir augljóst að
R-listinn ætli ekki
að standa við
þessi markmið
sín. „Það hefði
verið nær að drífa
þetta áfram, sér-
staklega í ljósi
þess að veiði í Elliðaánum hefur
aldrei verið minni en í sumar. Fyr-
ir um 15 árum voru endurheimtur
fiska yfir 2000 á hverju sumri. 1 ár
er talan 400 fiskar. Um hundrað af
þeim er vegna seiðasleppinga. Nátt-
úrulegi stofninn, sem skilar sér í
árnar, er því ekki nema 300 fiskar.
Svo eru menn að tala um að það
þurfi að gera eitthvað fyrir Elliða-
árnar.“ Guðlaugur segir að vissu-
lega kosti skolphreinsun peninga,
en allt sé þetta spurning um for-
gangsröðun.
Að sögn Hrannars hefur umrætt
ástand varað í Grafarvogi um nokk-
urra ára skeið. „Eitt ár til eða frá
ætti ekki að skipta svo miklu máli.
Það er ekki hægt að reisa dælustöð-
ina fyrr en endanlegt skipulag
svæðisins liggur fyrir,“ segir
Hrannar B. Arnarsson. -HKr/aþ
T ónlistarkennarar:
Árangurslaust
Fundur samn-
inganefnda tón-
listarkennara og
sveitarfélaga, sem
haldinn var í gær,
reyndist árang-
urslaus, að sögn
Sigrúnar Grendal
Jóhannesdóttur,
formanns Félags
tónlistarkennara.
Næsti fundur hef-
ur verið boöaður á morgun kl. 14.
Deiluaðilar leita nú leiða til að þoka
viðræðunum áfram.
Að sögn Sigrúnar miöa tónlistar-
kennarar kröfur sínar við laun
grunnskóla- og framhaldsskóla-
kennara. Miðað við tilboð sem sveit-
arfélögin hafa lagt fram munar
30-40 þúsund krónum á því sem þau
bjóða og launakröfum tónlistar-
kennara. -JSS
Sigrún
Grendal.
Guðni Ágústsson segist fara að lögum og vera þingræðissinni:
Ég hef ekkert að fela
- embættismenn að kanna hvort birta megi upplýsingar um jarðasölu
„Já, það mál er
komið í vinnslu.
Ríkisendurskoð-
andi, ríkislögmað-
ur og formaður
upplýsinganefndar
eru að fara yfir
þetta, en það verð-
ur að fást á því
skýring hvaða mis-
ræmi er þarna á
ferðinni," segir
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra. Hann hefur verið sakaður um
á þingi að leyna upplýsingum um
sölu ríkisjarða, en svarað því til að
samkvæmt skilningi ráðuneytisins sé
honum óheimilt að veita þessar upp-
lýsingar. Á þingi í fyrradag sagði ráð-
Guöni
Ágústsson.
herrann það hins vegar stinga í augu
að þessar upplýsingar kæmu fram í
ríkisreikningi, og því væri um mis-
ræmi að ræða milli þess og þess sem
kvæði á um í upplýsingalögum og á
því þyrfti að fást skýring. Landbúnað-
arráðuneytið styðst við úrskurði sem
upplýsinganefnd hefur fellt um að
það sé óheimilt að gefa upp verð á
ríkisjörð sem seld hefur verið þar
sem hún sé þá komin í einkaeign sem
ekki sé hægt að upplýsa um verð á,
ekki þá fyrr en búið sé að þinglýsa
eigninni. „Almennt um þetta mál vil
ég segja - vegna þess að ég hef verið
borinn hinum þyngstu sökum af
nokkrum þingmönnum um að ég
væri að fela eitthvað - að ég er fyrsti
landbúnaðarráðherrann í íslandssög-
unni sem sel ríkisjarðir samkvæmt
fastmótuðum reglum sem ríkisendur-
skoðandi hefur tekið þátt í að móta.
Það er hlutlaus aðili, Ríkiskaup, sem
verðleggur jarðirnar. Þannig að það
er ekki fyrr en kemur að undirritun
sölunnar á lokastigi sem mín
fingrafor ein tengjast þessum við-
skiptum. Ég hef ekkert að fela, en tel
mér skylt að fara að lögum og upplýs-
ingalög eins og mitt ráðuneyti full-
yrðir og aðrir lögfræðingar banna
mér að birta þessar tölur. Ég vona að
það skýrist sem allra fyrst hvort þetta
er í raun svo, og um leið og það er
komið í ljós mun ég birta þinginu
þær upplýsingar. Ég er þingræðis-
sinni og vil svara þinginu öllu sem
því ber,“ segir Guðni Ágústsson. -BG
Eldur í jeppa
Eldur kom upp í jeppa-
bifreið á athafnasvæði
’Strætisvagna Reykja-
víkur skömmu fyrir
miðnætti í gærkvöld.
Þegar aðstoð barst
hafði eigandanum tekist
að slökkva eldinn í bifreið-
inni með handslökkvitæki. Bifreiðin
virtist ekki mikið skemmd að utan, en
menn töldu að hún gæti verið nokkuð
mikið skemmd í vélarhúsi.
Varað við fósturvísum
Margrét Guðnadóttir veirufræðing-
ur sagði í RÚV að umræðan undanfar-
ið um innflutning fósturvísa úr norsk-
um kúm væri gáleysisleg og ekkert
einkamál kúabænda. Maigrét varar við
kúariðu og hvítblæði í kúm sem hugs-
anlega geti borist til landsins og valdið
Sjúkraliðar aftur til vinnu
Þriggja daga allsherjarverkfalli
sjúkraliða lauk á miðnætti. Sjúkraliðar
snúa því aftur til vinnu í dag en verk-
fallið náði til 1200 sjúkraliða. Lítt hefur
gengið í viöræðum sjúkraiiða og samn-
inganefndar ríkisins að undanfórnu en
fundur hefur verið boðaður klukkan 14
í dag.
Sáttir með samningana
Framhaldsskólakennarar munu sátt-
ir með kjör sín en dagvinnulaun þeirra
voru 51% hærri fyrstu níu mánuði árs-
ins en á saman tima í fyrra. Launin
voru að meðaltali 69 þúsund krónum
hærri fyrstu níu mánuði ársins en á
sama tíma í fyrra.
Ánægð með niðurstöðu
Ráðherrafundi Al-
þjóðaviðskiptastofn-
unarinnar, WTO,
lauk í Katar í gær.
Valgerður Sverris-
dóttir iðnaöarráð-
herra, sem fór fyrir
íslensku sendinefnd-
inni, kvaðst afar
ánægð með niðurstöðu fundai'ins. Hún
sagði það sigur fyrir íslenska utanrík-
isþjónustu að tekist hefði að halda inni
tillögu um afhám rikisstyrkja í sjávar-
útvegi. Mbl. greindi frá.
Uppsagnir standa
Jón Bjamason, þingmaöur VG,
gagnrýndi áform Landsbanka íslands
um að segja upp starfsmönnum og
draga úr þjónustu á Raufarhöfn og á
Kópaskeri. Jón sagði þetta dapurleg
skilaboð tO íbúa sveitarfélagsins en
fólksfækkun hefur verið mikil á svæð-
inu að undanfömu, og á árinu hafa 52
flutt burt.
„Það sem kem-
ur helst á óvart er
að það komi
mönnum á óvart
að brottkast sé
stundað á íslands-
miðum,“ segir
Einar K. Guð-
finnsson, formað-
ur sjávarútvegs-
nefndar Alþingis,
um umræðuna
um brottkast sem komið hefur upp í
kjölfar sýninga Sjónvarpsins og
brottkasts tveggja báta. Einar bend-
ir á að í minnst þremur sjálfstæðum
athugunum hafi þetta komið fram: í
rannsókn Hafrannsóknastofnunar, í
merkri könnun á vegum Kristins
Péturssonar á Bakkafirði og í skoö-
anakönnun sem gerð var á vegnum
nefndar undir forustu Gunnars
Birgissonar.
„Það sem
hins vegar
virðist vekja
umræðuna
núna er að
menn sjá
þetta á mynd-
um í gegnum
sjónvarpið.
Við getum
ekki horft
fram hjá því
að það er inn-
byggður
hvati til
brottkasts í
aflamarks-
kerfinu og ekki ber að gera lítið úr
því. Hins vegar má almennt segja
að jafnvel innan þessa aflamarks-
kerfis þá eru ýmsar leiðir til að
draga úr brottkastinu, en ég vara
aftur á móti mjög eindregið við öll-
um hug-
myndum um
að stórauka
eftirlit og
lögreglu-
rannsóknir í
þessu sam-
bandi. Að-
gerðir af því
tagi koma
iðulega verst
niður á þeim
sem eru að
vinna af
heiðarleika í
kerfinu og
torvelda
þeirra störf. Auk þess er eftirlits-
iðnaðurinn orðinn nógur í sjávar-
útveginum. Aðrar leiðir eru væn-
legri, s.s. svæöalokanir, og sjómenn
hafa sjálfir bent á að t.d. geti aukin
veiðarfærastýring dregið úr brott-
kasti og þar er ég að tala um hluti
eins og stærri möskvastærð i snur-
voð o.þ.h. Slíkar aðgerðir eru mun
líklegri til að skila árangri en
auknar lögregluaðgerðir," segir
Einar. Hann bætir því við að jafn-
framt sé nauðsynlegt að kvótaút-
hlutun í tegundum eins og t.d. ufsa
og kola séu raunhæfar þannig að
heimildimar dugi fyrir þeim með-
afla sem óhjákvæmilega berst á
land. Aðspurður hvort hann sé með
þessu að gagnrýna áherslur Árna
Mathiesens sjávarútvegsráðherra í
málinu segir Einar að snúið hafi
verið út úr orðum ráðherra um lög-
regluaðgerðir. „Hann hefur verið
að benda á að það sé búið að grípa
til alls konar aðgerða sem fela í sér
aukið eftirlit en ég er einfaldlega
þeirrar skoðunar að nú sé nóg
komið af þess konar aðgerðum,"
segir Einar. -BG
Dæmdur fyrir barnaklám
Þrítugur karlmaður var dæmdur í
Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir að
hafa haft 120 myndir með bamaklámi í
fórum sínum. Húsleit var gerð hjá
manninum í Kópavogi og lagði lögregla
hald á tölvu, myndavélar, farsíma og
174 geisladiska og 120 skjámyndir með
bamaklámi. Maðurinn var dæmdur til
að greiða 100 þúsund króna sekt.
Séra Bolli biðst lausnar
Séra Bolli Gústavs-
son, vígslubiskup á
Hólum, hefur beðist
lausnar frá næstu
áramótum vegna
heilsufarsástæðna.
Séra Bolli hefur
gegnt embætti vígslu-
biskups á Hólum frá
1991 en þar á undan var hann sóknar-
prestur í Laufási í Eyjafirði.
Sala tóbaks dregst saman
Sala á reyktóbaki dróst saman um
tæp sex prósent á fyrstu 9 mánuðum
ársins. Hins vegar hefur sala munntó-
baks aukist um 9,8%. Á sama tíma
jókst sala á bjór og léttvínum um tæp
20%. -aþ/-gk
Einar K. Guðfinnsson um brottkastið:
Nóg er komið af lögregluaðgerðum
- vill svæðalokanir og veiðarfærastýringu
Sjómannabænln!
Menn lögðust á bæn á þingpöllum í gær við
utandagskrárumræðu um brottkast, en þar
varýmist kerfmu eða köllunum kennt um.