Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2001, Side 20
40
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001
Kvikmyndir_______________________________________________________________________________________________x>'Vr
Training Day
Þegarlöggan
fór yfir strikið
Training Day, sem frumsýnd verður
á morgun í Sam-bíóunum, er spennu-
mynd sem gerist á einum sólarhring.
Hefur hún fengið góðar viðtökur og
var um tíma mest sótta kvikmyndin í
Bandaríkjunum. Þegar er farið að tala
um Denzel Washington sem líklegan
óskarsverðlaunahafa. Þessi ágæti leik-
ari hefur alltaf leikið hetjur og persón-
ur sem eru réttu megin við lögin. Nú
bregður svo við að hann leikur sann-
kallaðan óþverra þó hann skarti lög-
regluskiltinu.
Myndin hefst árla morguns. Hinn
ungi lögreglumaður Jake Hoyt (Ethan
Hawke) er að fara
á sína fyrstu
vakt án ein-
kennisbún- >- _ it, .
ings. Leið-
beinandi ’■»
hans er M :
gamall jaxl í lögreglunni, Alonzo Harr-
is (Denzel Washinton), sem virðist í
fyrstu vera ákveðinn og heiðarlegur.
Fljótt kemur þó í ljós að Harris fer
ekki samkvæmt bókinni og gerir lítið
úr heiðarleika Hoyts. Ef Harris hefur
hagað sér einkennilega fyrir hádegi þá
á Hoyt samt eftir að kynnast honum
fyrir alvöru þegar líður á daginn og sú
viðkynning er ekki góð til afspumar.
Auk Washingtons og Hawkes leika í
myndinni Scott Glen, sem leikur
spiilta löggu sem sest er í heigan stein,
Tom Berenger, eina lögguna í viðbót,
Harris Yulin, Dr. Dre og Snoop Dog og
söngkonan fræga Macy Gray. Leik-
stjóri er Anthony Fuqua sem fékk upp-
eldi hjá Sigurjóni Sighvatssyni í
Propaganda. Er þetta þriðja myndin
sem hann leikstýrir og sú fyrsta sem
slær í gegn. Áður hafði hann sent frá sér
The Replacement Killers og Bait. -HK
Lærlingurinn og kennarinn
Ethan Hawke og Denzel Washington í hlutverkum sínum. Innfellda
myndin er af Denzel Washington í hlutverki lögreglumannsins
Alonzos Harris. Hefur Washington fengiö mikiö lof fyrir leik sinn.
Bræðralag úlfsins
Skrímsli drepur konur og börn
Háskólabíó frumsýnir á morg-
un eftirtektarverða franska kvik-
mynd, Le Pacte des loups eða
Bræðralag úlfsins, eins og hún
myndi kallast á íslensku. Um er að
ræða einhverja umfangsmestu kvik-
mynd sem Frakkar hafa gert og var
ekkert sparað til að gera hana aö
stórmynd sem gæti keppt við þær
bandarísku. Fékk hún góða aðsókn
í Frakklandi. Sagan býður upp á
miklar tæknibrellur þar sem meðal
annars dýr koma við sögu. Leitað
var vestur um haf til Jim Henson
Workshop til að sjá um þann hluta
myndarinnar. Þá er myndin uppfull
af mögnuðum átakaatriðum þar
sem bardagalistir eru útfærðar með
fullkomnustu kvikmyndatækni.
Bræðralag úlfsins er byggð á
sönnum atburðum sem áttu sér stað
í Frakklandi á 18. öld. Gerist árið
1766 og fjallar um tvo útsendara
Lúðvíks 15. sem sendir eru til hér-
aðs þar sem skrímsli hefur ógnað
íbúum og þegar banað eitt hundrað
manns. Fórnarlömbin hafa aðallega
verið konur og böm. Ekki hafa þeir
erindi sem erfiði í fyrstu tilraun.
Leikarar eru margir af vinsæl-
ustu leikurum Frakka. Má þar
nefna Samuel Le Bihan, Mark
Dacascos, Emilie Dequenne,
Vincent Cassel og Monicu Bellucci.
Handritshöfundur og leikstjóri
myndarinnar er Christophe Gans.
-HK
Grégorie de Fronsac
Útsendari konungs í leit aö
skrímsli. Samuel LeBihan í
hlutverki sínu.
Blondínan mætt
Elle Woods (Reese Witherspoon)
er öryggiö uppmálaö.
Legally Blonde:
Stelpa sem
veit hvað
Bálför Sagan í myndinni er byggð á sönnum atburöum.
Bíógagnrýni
Sam-bíóin - Hver er Corky Romano?; i
Ófrumlegur og marg-
stolinn karakter
Klaufinn Corky
Það er ósjaldan sem hann veröur f/ölskyldu sinni til skammar.
Ari
Eldjárn
skrífar gagnrýni
um kvikmyndir.
hún vill
Það hefur alltaf verið vitað að
Reese Witherspoon ætti eftir að fá
hlutverk sem hún myndi brillera i.
Allt frá því hún sló í gegn í Man on
the Moon fyrir tíu árum, þá fimmt-
án ára gömul, hefur hún verið að fá
frábæra dóma fyrir mörg hlutverk
og meö Legally Blonde skipar hún
sér í hóp bestu leikkvenna í
Hollywood.
Witherspoon leikur Elle Woods
sem gengur allt í haginn. Hún
stundar nám í frábærum skóla á
vesturströnd Bandaríkjanna þar
sem sólin skín allan daginn, hún er
forseti systrafélags, lenti í öðru sæti
í fegurðarsamkeppni, birtist í Ricky
Martin-myndbandi og mikilvægast
af öllu, hún er ljóska af guðs náð.
Elle er yfir sig ástfangin af
kærastanum sínum, Warner Hunt-
ington III (Matthew Davis). Wamer
tilheyrir vellauðugri fjölskyldu af
austurströndinni og stundar lög-
fræðinám í hinum virta Harvard-
háskóla. Þegar hann kallar Elle á
fund til sín telur hún hann ætla
biðja sín. Það reynist alrangt. Wam-
er ákveður nefnilega að sparka
henni og ástæðan: Hann er hræddur
um að ljóskuímynd Elle muni eyði-
leggja fyrirhugaðan stjómmálaferil
sinn.
Elle er að sjálfsögðu niðurbrotin,
en jafnframt- staðráðin í að næla í
Warner aftur. Hún þarf að sanna
fyrir honum að hún sé ekki ein-
göngu heimsk ljóska og ákveður í
framhaldinu að sækja sjálf um inn-
göngu í Harvard.
Grínmyndin Hver er Corky Roma-
no? fjallar um samnefnda söguhetju
sem er svarti sauðurinn í Romano-
glæpaíjölskyldunni og í upphafl mynd-
arinnar hefur honum löngu verið út-
hýst úr fjölskyldunni vegna þess hvað
hann passar illa inn í maííu-umhverf-
ið. Jebb, Corky er kveif sem elskar dýr
og vinnur sem „aðstoðardýralæknir" á
gæiudýraspítalanum Poodles and
Pussies (hahaha, hvað ætli það þýði á
ensku?) og auðvitað er hann líka ótta-
legur klaufi því það er svo fyndið. Þeg-
ar fjölskylda Corkys sér fram á lög-
sókn á hendur sér er hann fenginn til
að ganga í Alríkislögregluna undir
fólskum formerkjum svo hann geti
haft uppi á sönnunargögnunum og eytt
þeim. Einnig þarf hann að eltast við
geðsjúkan morðingja.
Jæja. Chris Kattan er gömul kempa
sem hefur helst unnið það sér til
frægðar að leika í hinum misgóðu
grínþáttum Saturday Night Live. Nú
er drengurinn hins vegar kominn í að-
alhlutverk og tekst því miður ekki
nógu vel upp í þetta skiptið. Reyndar
er ekki við sjálfan leikarann að sakast
enda hefur hann oft áður farið á kost-
um í gamanhlutverkum. Málið er ein-
faldlega það að Kattan er með sáralítið
efni til að vinna úr. Karakter Corkys
er hvorki fugl né fiskur og myndin
virðist ekki geta gert það upp við sig
hvort hann sé fífl eða snillingur. Fyrir
rest hagar hún bara seglum eftir vindi
og lætur Corky bjarga öllu. Sjálfur er
Corky eins ófrumlegur og margstolinn
karakter og hugsast getur; hann elskar
dýr (Ace Ventm-a), hann er klaufi
(Bleiki pardusinn), hann er líflegur og
litrikur (aftur Ace Ventura) og svo
lendir hann í hlutum eins og að fá raf-
straum (frumleikinn í fyrirrúmi) og að
gefa hundi „munn við munn“ (Somet-
hing about Mary). Einnig gefur hann
hundi óvart örvandi eiturlyf (Somet-
hing about Mary!) Það er ekkert nýtt á
ferðinni hér enda draga höfundamir
svo kröftuglega dám af Farrely-bræðr-
um að á stundum fmnst manni sem
myndin ætti að heita „Thereis
something about Corky: A dumb and
dumber Pet Detective.“ Það væri mun
betri og augljósari titill og gæfi manni
skýrari mynd af þvi sem er i vændum.
Óþarfí er að minnast neitt sérstak-
lega á handritshöfunda eða leikstjóra -
þeir mega allir fá falleinkunn fyrir
mér. Kattan fær háifa stjömu fyrir að
reyna að hrista þessa eldsúru súpu
upp og hann má eiga það að hann er
sturidum svolítið fýndinn þótt ekki
vari það lengi. Spumingunni sem
klunnalegur titill myndarinnar vísar í
er þó enn ósvarað: Hver er Corky
Romano? Ég fæ ekki betur séð en Cor-
ky Romano sé bastarður af Ace
Ventura og Clouseau varðstjóra sem
þrátt fyrir að hafa erft ýmsa eiginleika
frá kómískum fyrirmyndum sínum er
því miður ekki nógu fyndinn.
Leikstjóri: Rob Pritts. Handrit: David Garrett
og Jason Ward. Kvikmyndataka: Steven Bern-
stein. Tónlist: Randy Edelman. Leikarar: Chris
Kattan, Vanessa Shaw, Peter Falk og Ferd
Ward.