Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2001, Page 23
43
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001_____________
I>v Tilvera
BMI
Sam Waterston 61 árs
Bandaríski leikarinn
Sam Waterston á afmæli
í dag. Waterston, sem
jöfnum höndum leikur í
kvikmyndum, sjónvarpi
og leikhúsum, lék meðal
annars aðalhlutverkið í
Killing Fields og var til-
nefndur til óskarsverðlauna. Water-
ston útskrifaðist með BA í sögu frá
Yale-háskólanum og hafði þá einnig
verið við nám í Sorbonne-háskólanum
1 París þar sem hann fékk áhuga á
leiklist. Waterston hefur meðal ann-
ars leikið í nokkrum kvikmynda
Woody Allens og þessa dagana má sjá
hann í Law and Order á Skjá einum.
Stjörmispá
Gildir fyrir föstudaginn 16. nóvember
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
I k Fjölskyldan skipar
á~~M stóran sess hjá þér um
g*3 I þessar mundir og ef til
vill verður eitthvað
um að vera á næstunni hjá
þínum nánustu.
Flskarnir (19. febr.-20. mars);
\ Sýndu vini þínum til-
litssemi og hafðu gát á
þvi sem þú segir. Ekki
gefa ráð nema að þú
sért viss í þinni sök. Kvöldið
verður ánægjulegt.
Hrúturinn (21. mars-19. apríll:
Þú ert dálitið utan við
/■yl'* þig í dag og tekur ekki
Ir'w vel eftir því sem fer
fram í kringum þig.
Láttu krefjandi verkefni bíða þar
til þú ert betur upplagður.
Nautið (20. april-20. maíl:
/ Félagslifið hefur ekki
verið upp á marga
fiska tmdanfarið en nú
fer að lifha yfir því.
Vinir þinir eru þér mikilvægir
þessa dagana.
Tvíburarnir (21. mat-21. iúní):
Þú hefur ef til vill gert
’ þér ákveðna mynd af
atburði sem þú bíður
eftir. Þú ættir að
hætta'öllu slíku þvi annars
verður þú fyrir vonbrigðum.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi:
Eitthvað óvænt kemur
1 upp á í byrjun dagsins
og þú sérð fram á að
það raski öllum
degtium. Það er þó engin
ástæða til að örvænta.
Tvíburarnir 12
$
Lionið (23. iúlí- 22. áeústl:
Vertu þolinmóður við
þá sem þú umgengst í
vinnunni í dag. Það
borgar sig þvi að þú
gætir þurft á hjálp að halda síðar
við að leysa þín verkefhi.
Mevian (23. áeúst-22. seot.):
A- Þú verður að hafa
stjóm á örlæti þínu og
mátt ekki láta aðra
^ f komast upp með að
nota sér hjálpsemi þína þannig
að það skaði þig.
Vogln (23. sept.-23. oKt.):
J Dagurinn einkennist
Oy af seinkunum og ein-
V f hverri spennu. Það
/p slaknar þó á spenn-
unni er kvöldar og kvöldið
verður ánægjulegt.
Soorðdrekinn (?4 nw.-?l. nnv >:
Þú ert ef til viU hald-
inn dáUtiUi ævintýra-
1 þrá í dag og það kann
að koma fram í vinnu
þinni. Ekki skipuleggja daginn
í smáatriðum fyrir fram.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l:
. Þér gengur ekki nógu
' vel að komast yfir
verkefni þin fýrri
hluta dags og verður
fyrir sífeUdum töfum. Það gengur
aUt betur er Uður á daginn.
Steingeltin (22. des.-19. ian.l:
^ . Þú finnur fyrir mikl-
um stuðningi og áhuga
rr Jr\ á hugmyndum þínum.
Þér tekst að vinna
upp eitthvað sem hefur lengi
setið á hakanum.
Britney stakk af
frá reikningi
Táningastjarnan Britney Spears,
kærastinn hennar, Justin Timber-
lake, nokkrir vinir þeirra og lífverðir
höguðu sér víst eins og dólgar á veit-
ingastað í Los Angeles um daginn og
áður en yfir lauk strunsaöi hersingin
á dyr án þess að greiða fyrir drykkina
sem þjónninn hafði borið á borðið.
Fregnir herma að Britney og félag-
ar hafi ekki fyrr verið sest niður þeg-
ar einhver úr hópnum tók aö heimta
þjónustu þegar í stað. Einn hinna
sjálfumglöðu gesta krafðist þess meira
að segja að þjónninn sæi ekki um
aðra gesti á meðan poppstjaman og
fylgdarlið hennar væri á staðnum.
En þannig gengiu' það ekki fyrir sig
og liðiö fór út skömmu síðar, frá
ógreiddum reikningi.
Jerry Hall náði
sér í kvennabósa
Jerry Hall,
fyrrum eigin-
kona Rollings-
ins, Mick Jag-
ger, mun búinn
að ná sér i nýjan
kærasta og er sá
hinn 35 ára
gamli milljóna-
mæringur, Tim
Attias. Hall, sem
er 45 ára og sagði nýlega skilið við
kvikmyndaframleiðandann George
Waud, brá sér 1 safaríferð með nýja
kærastanum til Suður-Afríku í síð-
ustu viku og segja fréttir að ástin hafa
þar blómstrað innan um villidýrin í
frumskóginum. Eftir heimkomuna
var boðið til mikillar veislu í millj-
ónavillu Wauds í Notting Hill I
London, þar sem sambandið var opin-
berað. Waud, sem er frægur kvenna-
bósi og hefur sjaldan látið sér eina
nægja í einu, virðist yfir sig hrifinn af
Jerry, en spuming hvort hann getur
slitið sig frá fyrri lifnaði. Eins og
kunnugt er lætur Jerry karla sína
ekki komast upp með neitt múður og
má þar minna á skilnað hennar við
Mick Jagger eftir að karlinn hafði
misstígið sig í löngu hjónabandi og
gert brasilísku sýningarstúlkuna
Luciönu Morad, ólétta.
Vetrardagskrá Hljómalindar heldur áfram með Low:
Islendingar eru
rólegir áheyrendur
Nágrannarnir eru
hræddir viö Stellu
Tískudrottningin Stella McCartn-
ey hefur skotið nýjum nágrönnum
sínum í Worcesterskíri skelk í
bringu. Þannig er nefnilega að Stella
er grænmetisæta og baráttukona fyr-
ir réttindum dýra en nágrannar
hennar eru hinir mestu veiðimenn.
Bölsýnir grannar óttast það mest
að Stella muni reyna að gera þeim líf-
ið leitt með því að meina þeim að
fara yfir viðáttumikla landareign
hennar á leið til veiðanna og frá
þeim.
„Áður fengum við alltaf að ríða
gegnum landareignina og fyrri eig-
endur höfðu ekkert á móti því. Stella
McCartney mun án nokkurs vafa
banna okkur að veiða á landareigin
sinni. Núna verðum við að fara eftir
stígunum með fram landareigninni,"
segir John Firkins, forystumaður
veiðimanna.
REUTER-MYND
Dunaway á Grikklandi
Bandaríska stórleikkonan Faye Dunaway ræddi vid fréttamenn í Þessa-
lóníku á Grikklandi um helgina þar sem hún var sérstakur gestur á kvik-
myndahátíö borgarinnar. Faye kynnti þar meöal annars fyrstu stuttmynd-
ina sem hún hefur stjórnaö. Myndina kallar leikkonan og leikstýran ein-
faldlega Gulan fugl.
í kvöld spilar bandaríska jaðar-
trióið Low á tónleikum á nýja
skemmtistaðnum Nasa við Austur-
völl ásamt hljómsveitunum Nátt-
fara og Lúnu. Húsið verður opnað
kl. 21 og kostar 2000 krónur inn við
innganginn sem og í forsölu í
Hljómalind á homi Laugavegar og
Klapparstígs. Hljómsveitina skipa
hjónin Alan Sparhawk, gítarleikari
og söngvari, og Mimi Parker,
trommuleikari og söngur, auk
bassaleikarans Zak Sally. Tónleik-
amir eru hluti af vetrardagskrá
Hljómalindar sem staðið hefur yfir
síðan í byrjun október. Low er ekki
alveg ókunn Klakanum. Hljómsveit-
in kom hingaö til lands fyrir tveim-
ur árum og spilaði við góðar undir-
tektir fyrir fullum sal í Háskólabíói
ásamt Sigur Rós og hljómsveitinni
Immense.
Dóttirin meö í för
Alan segir að þremenningamir
hlakki mikið til að koma aftur til
landsins. „Seinast höfðum við lítinn
tíma og náðum ekkert að skoða okk-
ur um. Núna verðum hins vegar
yfir helgi og ætlum að reyna að
skoða okkúr um dálítið. Bláa lónið
er á listanum og eitthvað meira af
landinu sem allir verða að sjá og
svo sjáum viö vonandi eitthvað
meira ofan á það.“ Aðspurður um
hvernig upplifun það hafi verið að
spila hér seinast svarar Alan að það
hafi verið ánægjulegt. „Við rennd-
um blint í sjóinn með það þar sem
við höfðum aldrei komið hingað
áður. En viðtökumar voru góðar.“
Alan og Mimi eiga litla dóttur,
Hollis, sem ferðast með þeim í allar
tónleikaferðir. „Það er aðeins erfið-
ara að skipuleggja hlutina núna,“
jánkar Alan, „en það væri líka erf-
Meðlimir Low
Hlakka til aö spila aftur fyrir íslendinga og skoöa að auki landiö í þetta
skiptiö.
iðara ef við værum í einhverri
annarri vinnu. Við erum með bam-
fóstru með okkur sem passar á með-
an hljóðprufur og tónleikar fara
fram.“
Gott tónleikahúsnæði
Hvernig eru íslenskir úheyrendur?
“Tónleikagestir eru jafn misjafnir
á milli landa og þau eru mörg. Sum-
ar þjóðir dansa og láta öllum illum
látum á á tónleikum á meðan önnur
þjóðerni eru rólegri og sitja og
hlusta. íslendingar falla í seinni
flokkinn. Það gerir það þó hvorki að
verri né betri áhorfendum. Fólk
bara lætur ánægju sína í ljós á mis-
munandi hátt.“
Tónlist Low er í rólegri kantinum
og Ijúfar melódíur, lágvær söngur
og léttur hljóðfæraásláttur er aðall
sveitarinnar. Að sögn Alans verður
aö mestu spilað efni af nýjustu plötu
sveitarinnar, Things We Lost in the
Fire, með smáblöndu af eldra og
glænýju efni inn á milli.
Tónleikarnir í Nasa í kvöld eru
þeir fyrstu í litlum tveggja vikna
túr þar sem þau spila m.a. á
Englandi, í Frakklandi og Belgíu.
Þetta eru einnig fyrstu tónleikarnir
sem haldnir eru í Nasa, sem er í
gamla Sigtúni, og ku staðurinn
henta einkar vel til tónleikahalds
með stóru dans/standgólfi og sæt-
um á pöllum með fram.
Ý-
*
*