Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2001, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001
Fréttir 1>V
Keflavíkurlögreglan telur rannsókn í Leirfinnsmáli beint gegn sér:
Styttan vakti slúðrið
- öruggt að Keflavíkurlögreglan tengdi mig málinu, segir Magnús Leópoldsson
þetta sama kvöld og Leir-
finnur varð gestur á hverju
heimili landsins.
Slúðrið fór á fulla
ferð. Valtýr
||jk segir aö Lög-
leyti og Geir-
fmnur svaraði
í símann
Lögreglumenn í Keflavík, sem
unnu að upphafsrannsókn vegna
hvarfs Geirfinns Einarssonar í nóv-
ember 1974, telja að sérstakur sak-
sóknari í máli Magnúsar Leópoldsson-
ar, sem sat saklaus í Síðumúlafangelsi
105 daga, beini rannsókninni sérstak-
lega gegn sér. Eins og DV greindi frá
í gær hefur Haukur Guðmundsson,
sem stjórnaði Keflavíkurrannsókn-
inni, ákveðið að hlíta ekki því boði að
mæta sem vitni fyrir rannsóknardóm-
arann. Hann rökstyður það með því
að hann og félagar hans frá árinu 1974
liggi undir grun um að vera sekir í
málinu og þess vegna mæti hann ekki
sem vitni. Brynjar Nielsson, lögmaður
Hauks, hefur ritað Láru V. Júlíusdótt-
ur bréf vegna þessa þar sem hann ger-
varpað geti ljósi á staðreyndir þessa
máls, magnast fremur framangreind-
ur orðrómur, m.a. af frásögnum blaða
og löggæslumanna sem komið hafa
fram í fjölmiðlum ..." segir í bréfi
Magnúsar og Sigurbjörns. Þeir hvöttu
ráðuneytið til þess að láta fara fram
rannsókn á umræddum sögusögnum,
sannleiksgildi þeirra og uppruna. Því
er lýst í bókinni að af óskiljanlegum
ástæðum virðist svo sem mynd af
Magnúsi Leópoldssyni hafi verið not-
uð þegar útbúin var lýsing á
manninnum sem kom 1 Hafnarbúðina
örlagakvöldið. Þar með hafi útlit
Magnúsar Leópoldssonar verið lagt til
grundvallar alræmdri styttu af Leir-
finni sem allar götur síðan hefur ver-
ið táknmynd ráðgátunnar um hvarf
Geirfinns.
Reynir
Traustason
ritstjórnarfulltrúi
ir grein fyrir afstöðu skjólstæðings
síns. Afstaða lögreglumannanna í
Keflavík er sú að Magnús Leópoldsson
fasteignasali, sem er fórnarlamb
þeirra mistaka sem áttu sér stað og
leiddu til rúmlega þriggja mánaða
fangavistar, segist ekki vera í neinum
vafa um að Lögreglan í Keflavík hafi í
nóvember árið 1974 tengt nafn sitt
málinu með þeim afleiðingum að
seinna varð jarðvegur frjór til að að
hneppa hann 1 gæsluvarðhald.
Orðrómur breiðist út
Eftir hvarf Geirfinns breiddist út
orðrómur um að Magnús Leópolds-
son, framkvæmdastjóri Klúbbsins,
tengdist málinu ásamt Sigurbirni Ei-
rikssyni, eiganda veitingahússins.
Sögusagnirnar voru sprottnar vegna
þess að sunnudagskvöldið áður en
Geirfinnur hvarf var hann að
skemmta sér í Klúbbnum og sást þar
á tali við menn sem talið var að gætu
verið Magnús og fleiri. Magnús sagði
sögu sína í bókinni Saklaus í klóm
réttvísinnar sem Jónas Jónasson
skráði. Þar lýsir hann því að sögu-
sagnirnar hafl orðið svo magnaðar að
hann og Sigurbjörn hafl fundið sig
knúna til þess að rita dómsmálaráð-
herra bréf, dagsett 3. febrúar 1975. Þar
er því lýst að orðrómur hafi verið um
að lík Geirfmns væri að finna á Álfs-
nesi, jörð Sigurbjöms. Sögur hermdu
að líkið hefði verið flutt í bifreið í
eigu Klúbbsins eða þeirra persónu-
lega og skipt hefði verið um lit á bíln-
um til að fela slóð.
„Við höfum hingað til beðið og von-
ast til að mál þessi upplýstust þannig
að sannleikurinn kæmi opinberlega
fram en eftir því sem lengra líður og
ekkert kemur fram
Upphaf Leirfinns
Leirfinnur varð til í upphafi 23.
nóvember þegar búin var til mynd af
andliti mannsins í samráði við tækni-
deild Lögreglunnar i Reykjavík. Af-
greiðslustúlkurnar tvær, sem séð
höfðu manninn í Hafnarbúðinni, voru
ekki sáttar við útkomuna og ákveðið
var að birta ekki myndina að sinni.
Magnús Gíslason frístundateiknari,
sem gerði myndir af manninum dular-
fulla, sem lagðar voru til grundvallar
styttunni af fuilsköpuðu höfði Leir-
finns, sagði seinna frá því að hann
hefði fengið myndir af Magnúsi Leó-
poldssyni sem hann hefði haft hlið-
sjón af. Ríkey Ingimundardóttir lista-
kona gerði styttuna frægu sem kom
öllu á annan endann. Valtýr Sigurðs-
son, héraðsdómari við Héraðsdóm
Reykjavíkur, skrifaði blaðagrein um
málið fyrir skömmu. Hann var sýslu-
fulltrúi í Keflavik þegar frumrann-
Magnús
Leopóldsson.
Haukur
Guömundsson.
Leitaö aó Geirfinni
Mikil leit var gerö aö Geirfinni Einarssyni sem hvarf sporlaust 19. nóvember
1974. Hér er veriö aö leita í höfninni í Keflavík skömmu eftir hvarf manns-
ins. Ekkert hefur enn komiö fram um máliö.
sókn málsins stóð yfir og bar stjórn-
unarlega ábyrgð á málinu. í grein Val-
týs kemur fram að Ríkey hafi átt
frumkvæði að því að gera leirhaus-
inn. Þriðjudaginn 29. október 1974,10
dögum eftir hvarf Geirfinns, átti Val-
týr fund með fulltrúum dómsmála-
ráðuneytis, Sakadóms Reykjavíkur og
Lögreglunnar í Reykjavík þar sem
leirhausinn var sýndur. Valtýr segir í
grein sinni að fram hafl komið á fund-
inum að leirstyttan væri ólík frum-
myndum sem gerðar hefðu verið.
Menn hefðu rætt það atriði og komist
að þeirri niðurstöðu að þar sem ekki
væri líklegt að vitnin gætu lýst mann-
inum nánar „væri það áhættu-
laust að birta myndina".
CíÁMTrotmíA CTmrii rmmrHíio
unni í Keflavík hefðu borist upplýs-
ingar hvaðanæva af landinu um að
Leirfinnur væri fundinn. Hann vitnar
til þess að í blöðum daginn eftir hafi
komið fram að 30 til 40 ábendingar
hafi borist um það hver Leirflnnur
væri og sumir voru nefndir oftar en
einu sinni.
Nokkrir voru yfirheyrðir og haft er
eftir John Hill rannsóknarlögreglu-
manni að „sumir hafi verið ansi líkir
styttunni".
Haukur yfirheyrði ekki
Meðal þeirra sem yfirheyrðir voru
á þessum tíma var Jón Grímsson. í
frumskýrslu, sem DV hefur undir
höndum, kemur ekkert fram um það
hvar Jón var yfirheyrður en undir
skýrsluna er vélritað „þannig gjört.
Haukur Guömundsson." Ólíkt sumum
þeirra frumskýrslna sem DV skoðaði
er þessi ekki undirrituð af Jóni og
ekki er tekið fram að hún sé upplesin
fyrir hann. í bókinni Ameríska
draumnum segir Jón Grímsson frá
tveimur yfirheyrslum sem hann hafi
verið kallaður til. Önnur yfirheyrslan
fór, að sögn Jóns, fram í Sigöldu. Þar
lýsti hann för sinni til Keflavíkur ör-
lagakvöldið 19. nóvember. Þangað fór
hann i leigubíl til að sækja bíl kunn-
ingja síns. Hann var bláókunnugur í
Keflavík en sagði frá því að hann
hefði farið inn á veitingastað til að
hringja. í skýrslunni er sagt að hann
hafi farið á Aðalstöðina en síðan geng-
ið þaðan að húsinu þar sem bíll vinar-
ins stóð. Þetta segir Jón Grímsson al-
rangt því leigubíllinn hafi beðið hans
fyrir utan og bílstjórinn hafi ekið hon-
um á áfangastað. Seinna þegar Jón
fékk lýsingu á Hafnarbúðinni taldi
hann víst að þangað hefði hann farið
til að hringja og
hó fn
heima hjá sér og gekk síðan út í opinn
dauðann. Öðru sinni var Jón Gríms-
son yfirheyrður af Nirði Snæhólm í
heimahúsi við Sogaveg. Jón fór í leð-
urjakkann brúna sem hann var í að
kveldi 19. nóvember. Jakkinn var með
utanáliggjandi belti, rétt eins og
starfsstúlkurnar í Hafnarbúðinni
lýstu klæðnaði Leirfinns. Njörður var
að sögn Jóns óánægður með litinn á
jakkanum og síðan heyrði Jón ekkert
af rannsókninni en hefur oft hugsað
til þess að hann hljóti að vera fyrir-
mynd Leirfinns. DV spurði Hauk Guð-
mundsson hvort hann hefði tekið um-
rædda skýrslu en hann gat ekki svar-
að því. Hann staðfesti þó að hann
hefði aldrei farið upp í Sigöldu sjálfur
til að yfirheyra menn en taldi líklegt
að Skarphéðinn Njálsson hefði verið
þar við yfirheyrslur, auk þess sem
lögreglan hefði um tíma verið með
menn þar upp frá. Enn hefur engin
skýrsla fundist um yfirheyrslurnar á
Sogaveginum. Ámælisvert þykir af
lögreglunni að klára ekki mál Jóns
Grímssonar með því að ræða við
leigubílstjórann og heimafólk þar sem
bill kunningjans stóð. Þá var Jóni
aldrei stefnt til fundar við stúlkurnar
í Hafnarbúðinni til þess að þær gætu
vitnað um það hvort Leirfinnur væri
Annar hluti
Leirfinnur og félagar
Hér má sjá rannsóknaraöila Geirfinnsmálsins ásamt leirstyttunni sem veriö hefur sem rauöur þráöur í gegnum allt
máliö. Lengst til hægri er þýski lögreglumaöurinn Karl Schultz sem reyndi meö ýmsum aöferöum aö fmna týnda
manninn. Viö hliö hans er Halldór Þorbjörnsson sakadómari og til vinstri við hann er Örn Höskuldsson.
einfaldlega Vestfirðingur á villigötum
sem ekkert hefði með hvarf Geirfinns
að gera. Þarna er augljóslega um al-
varlega misfellu að ræða því Leirfinn-
ur hefur allar götur síðan verið rauð-
m- þráður í rannsókninni og enda-
laust tilefni fólks í slúður. Sjálfur
mætir Jón Grímsson fyrir rannsókn-
arrétt Láru V. Júlíusdóttur fyrir
helgi.
Gloppótt rannsókn
Annar þáttur rannsóknarinnar,
sem var vanræktur, er heimilisástand
Geirfinns. Eiginkona hans var í fóstu
ástarsambandi við mann og annan en
lítil áhersla er lögð á að rekja þá
þræði. Þá kemur fram í skýrslu kon-
unnar að Geirfinnur hafi verið dag-
farslega lokaður persónuleiki en und-
ir áhrifum víns hafi hann verið opinn
og glaðvær. Þetta þykir benda til þess
að hugsanlega hafi hann fyrirfarið
sér. Öskrið sem Geirfinnur heyrði, að
sögn konunnar upp úr þurru,
skömmu áöur en hann hvarf þykir ýta
enn frekar undir að hann hafi ekki
gengið heill til skógar. Haukur Guð-
mundsson telur fráleitt að hann og fé-
lagar hans hafi leynt gögnum til að
koma sök á Magnús Leópoldsson.
Hins vegar viðurkenndi hann að
rannsóknin hefði verið barn sins tíma
og henni hafi háð fámenni lögreglunn-
ar og reynsluleysi.
Umsjön: Btrgir Guömundsson
netfang: birgir@dv.is
Frjálslega fariö með
Fréttablaðið hefur á undanförn-
um mánuðum farið mikinn og
reynt að telja auglýsendum jafnt
sem lesendum trú um mikinn lest-
ur
blaðs-1
ins.
ÍTABLAÐIÐ
Þessu til stuðnings hefur nær dag-
lega verið vitnað til könnunar
PriceWaterhouseCoopers frá þvi í
september siðastliðnum. Blaðið hef-
ur haldið því fram að 79,3% fólks á
aldrinum 25 til 59 ára læsu blaðið
að meðaltali. Viðamikil fiölmiðla-
könnun Gallups leiðir hins vegar
nokkuð annað í ljós. Aðeins 40,2%
fólks á aldrinum 25-67 ára lesa
blaðið og 53,5% sé litið á höfuð-
borgarsvæðið. Nú velta pottverjar
því fyrir sér hvernig PriceWater-
houseCoopers skýrir muninn sem
skiptir auglýsendur augljóslega
verulegu máli!...
Heitir og kaldir
Á Kreml.is er að finna dálk þar
sem stjórnmálamönnum er skipt
upp eftir því hvort þeir eru „heit-
ir“ eða „kaldir". Ýmsir eru þar í
kalda flokkn-
um, m.a. Davíð
Oddsson og
Inga Jóna
Þórðardóttir.
Þarna er að
finna mjög
meinlegar at-
hugasemdir og
eins og sjá má á
skýringunni á því hvers vegna
Inga Jóna telst til „kaldra póli-
tíkusa": Inga Jóna - verður borgar-
stjóri þegar síðasti Reykvíkingur-
inn deyr úr miltisbrandi. Ef sjálf-
stæðismenn ætla að vinna borgina
þá verða þeir að skipta henni út
fyrir bara einhvern annan, t.d. Al-
bert Jensen velvakanda."
Spjótin standa á Ingu Jónu
Og talandi um Ingu Jónu og
framboðsmál sjálfstæðismanna í
Reykjavík. í pottinum heyra menn
nú að þrýstingur sé vaxandi á að
skipt verði um ,
oddvita í borg-1
inni og eru
menn enn að
gæla við að
Bjöm Bjama-
son komi inn á
listann. Ein
kenningin er að
Ingu Jónu verði
boðin staða útvarpsstjóra en Mark-
ús Öm Antonsson er sagður hvort
sem er vera að hugsa sér til hreyf-
ings. Sú saga þykir þó í meðallagi
trúleg í pottinum en þar þora
menn þó ekki að afskrifa fléttu af
þessu tagi og minnast langrar sögu
djarfrar taflmennsku sjálfstæðis-
manna á þessum vettvangi. Einnig
er fullyrt að ýmsir stuðningsmenn
Júliusar Vífils Ingvarssonar séu
ekki tilbúnir að sjá sinn mann yfir-
höfuð á lista sem leiddur er af Ingu
Jónu og helst vilji þeir að hann
leiði listann sjálfur. Er þetta nefnt
sem dæmi um að mörg spjót standi
á Ingu Jónu þessa dagana...
Fellur á Silfrið
Umræðuþáttur Egils Helgason-
ar ber að mati pottverja höfuð og
herðar yfir flesta umræðuþætti í ís-
lensku sjónvarpi en greinilegt er
að þátturinn er
heldur að dala
í ákveðnum
kreðsum.
Þannig hafa
framsóknar-
menn iðulega
talað um að
sjaldan séu kall-
aðir til fram-
sóknarmenn í þáttinn og hvort sem
það er vegna þess eða einhvers
annars þá setti Hrifla.is, vefur
reykvískra framsóknarmanna,
spumingu á síðu sína um hvað
mönnum þætti um þáttinn. Svörin
voru þessi: 30% sögðu þáttinn vera
frábæran; 33% sögðu að þátturinn
hefði dalað og 37% sögðu að þáttur-
inn væri orðinn leiðinlegur ...