Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2001, Síða 24
36
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001
Tilvera I>V
1 í f 1 Ö
■ MANNAKORN A GAUKNUM
Mannakorn mætir á Gauk á Stöng í
kvöld.
■ PÁLL RÓSINKRANS í
BORGARLEIKHUSI Páll Rósinkrans
heldur útgáfutónleika í kvöld í
Borgarleikhúsinu og kynnir Your
song, kl. 20. Meö honum spila
margir af fremstu hljóöfæraleikurum
landsins, alls 9 manna hljómsveit.
■ GRAS Á VÍDALÍN Hliómsveitin
Gras heldur tónleika á Vídalín í
★ kvöld. Hana skipa: Tena Palmer,
söngur, Dan Cassidy, fiöla, raddir,
Guömundur Pétursson, gitar, KK,
gítar og söngur, Magnús Einarsson,
mandólín, gítar, raddir, og Jón
Skuggi, bassi
Lelkhús
■ VIRGINIA WOOLF I kvöld sýnir
Þjóöleikhúsiö Hver er hræddur viö
Vlrginíu Woolf? kl. 20.
Síðustu forvöð
■ MYNDIR UR BARNABOKUM
Sýningu á myndum úr barnabókum
lýkur i dag. í Norræna húsinu eru
sýndar 15 frumteikningar úr þekkt-
ustu barnabókum Svía (bækur sem
einnig eru til í íslenskri útgáfu). I
Borgarbókasafni Reykjavíkur, Gróf-
arhúsi, er hins vegar aö finna teikn-
ingar úr íslenskum barnabókum.
Fyrirlestrar
■ BJARGRAÐ UNGLINGA
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, lektor í
HA, heldur fyrirlestur í stofu 24 í
Þingvallastræti 23, Akureyri, sem
ber yfirskriftina Bjargráö unglinga í
blíöu og striöu.
■ LYKILUNN AÐ VELGENGNI
Fundur um efniö Lykillinn aö
velgengni á vinnumarkaði veröur I
Hátíöasal Háskólans kl. 16 í dag.
■ ERU KÚABÆNDUR SKILVIRKIR
Svelnn Agnarsson hagfræðingur
kynnir athugun sína á skilvirkni í
mjólkurframleiöslu á Aragötu 14 í
dag, kl. 16.00.
■ ÞRETTÁN PAGAR Á ÖRÆFUM
Feröafélag Islands heldur kvöldvöku
í FÍ-salnum í kvöld kl. 20.30. Grétar
Eiríksson og Tómas Einarsson rekja
sögu í máli og myndum frá ferö
1944 þvert yfir hálendi íslands.
Einnig veröur myndagetraun.
Sýningar
■ SÝNING UM BJÖRGU C. Maöur,
lærðu aö skapa sjálfan þlg heitir
sýning um Björgu C. Þorláksson í
Þjóðarbókhlóöunni. Hún er á vegum
Kvennasögusafnsins.
■ MÁLVERK í UNIQUE Eva Dögg
Þorsteinsdóttlr sýnir málverk í Hár
og sýningarhúsinu Unique,
Laugavegi 168. í þeim er bæöi
mannlíf og landslag.
■ HÖR, PERLUR OG KAFFI Hór,
perlur og kaffl er heiti nýrrar
textíllínu sem sýnd er á Kaffitári á
1. hæð KriQglunnar. Þaö er
Arnþrúöur Ósp Karlsdóttir sem
hefur hannaö hana.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Það er vitað að hægt er aö gera
ódýrar kvikmyndir á Islandi meö
digitaltækni og áhugaleikurum og
þar sem nokkrir aðrir aðilar gera
allt annaö sem þarf. Hvort eigi að
sýna slíkar myndir í stærsta kvik-
myndahúsi landsins er aftur á móti
vafasamt. Kvikmynd Böðvars
Bjarka Péturssonar, Gæsapartí, er
kvikmynd sem gerð er eins ódýrt og
hægt er og ber þess rherki, þó ekki
eingöngu á neikvæðan hátt. Hún er
sambland af spuna og æföum leik
sem í einstaka atriðum er vel
heppnuð blanda. 1 sannleika sagt
kom mér á óvart hversu vel hefur
tekist meö að láta atburðarásina
ganga upp því ekki er myndin
„klippt" að neinu marki.
Á undanförnum árum hafa
steggja- og gæsapartí færst í vöxt
þar sem vinir eða vinkonur halda
parti fyrir eitt úr hópnum sem er að
fara að gifta sig. Hafa gengið ýmsar
sögum um fáránleikann í þessum
samkvæmum eða uppákomum. Það
er eins og skylt sé að koma viðkom-
andi persónu í sem frumlegast um-
hverfi og gera saklaust (að mati
þeirra sem að uppákomunni standa)
grín að viðkomandi. Þetta er í raun
ágæt hugmynd fyrir kvikmynd,
Freyja
Hefur hér orðið fyrir prakkaraskap vinkvenna sinna.
kannski ekki i fullri lengd, en góð
hugmynd samt.
Böðvar Bjarki Pétursson, sem er
framleiðandi og leikstjóri Gæsa-
partís, hefur séð húmorinn í þess-
um partíum og með smáblöndu af
trúarofstæki er hann kominn með
skondinn söguþráð. Aðeins einn at-
vinnuleikari er til staðar, Magnús
Jónsson, sem leikur bróður tilvon-
andi brúöar, mann sem um leið og
hann reynir að telja systur sína á að
fara heim og vera ekki í slagtogi
með þessum „dræsum“, kvikmynd-
ar alla atburði og fellur svo fyrir
holdsins freistingum við fyrsta
tækifæri. Þá erum við komnir að
vinkonuhópnum sem tekur á leigu
Módel Venus við Borgarnes og held-
ur heljarinnár partí þar sem
skemmtiatriðin eru tveir
karldansarar, sem fækka fótum þeg-
ar gleðin stendur sem hæst.
Stúlkurnar eru allar að því ég
best veit áhugaleikarar og hafa sjálf-
sagt ekki leikið í kvikmynd áður.
Þær komast samt ótrúlega vel frá
sínu og er ekki laust við að upp í
huga manns komi að sýningu lok-
inni sú spurning hvort þær hafi
„verið í glasi“ meðan á partíinu
stóð. Hvað sem því líður þá er þetta
hinn fjörugasti hópur sem klæmist
eins og verstu sjómenn og þegar líða
fer á nóttina saknar þess að ekki
eru til staðar karlmenn til að taka
með sér í rúmið. Freyja, sú sem er
að fara að gifta sig, sveiflast á milli
þess að hætta við giftinguna og
hlakka til hennar og tekur afdrifa-
ríka ákvörðun i lokin.
Þetta er fyrsta kvikmynd Böðvars
Bjarka í þessu formi sem hann ætl-
ar að gera og þó allt sé ekki eins og
það á að vera og tónlist sem notuð
er fellur illa að mynd þá er þetta
merkilegt framtak hjá honum og
aldrei að vita nema hann detti nið-
ur á hugmynd sem síðan blómstrar
í þeim þrönga stakki sem hann sníð-
ur sér.
Ný mynd
um Megas
Ný heimildarmynd um Megas
verður sýnd í kvöld í
Nýlistasafninu að Vatnsstlg 3b.
Myndin er sýnd í tengslum við
sýninguna Omdúrman
Margmiðlaður Megas í Nýló sem
stendur yfir í safninu um þessar
mundir en lýkur 30. nóvember.
Sýning heimildarmyndarinnar
hefst kl. 21.00.
* Tónlist
Vil leyfa fólki aö
kynnast mér aðeins
- segir Diddú sem er bæði komin út á bók og nýjum diski
K
„Það er ekkert aðgerðaleysi þannig
að maður sitji og nagi á sér neglum-
ar,“ segir Diddú hlæjandi þegar hún
er spurð um helstu viðfangsefnin
þessa dagana. „Ég var að syngja á
tvennum lokuðum tónleikum nú um
helgina og svo verða Kaldalónstón-
leikar í Salnum á fullveldisdaginn, 1.
des. Það er siður i Salnum að tileinka
einu íslensku tónskáldi þann dag og
Sigvalda Kaldalóns verða gerð skil nú
í ár. Við rétt náum að ljúka þessu
áður en aðventan brestur á en þá
hefst tónleikahald mikið. Ég verð til
dæmis með Söngsveitinni Fílharmón-
íu í Langholtskirkju og svo er árviss
viðburður að syngja jólatengt pró-
gramm með blásarasextett hér í sveit-
inni minni, Mosfellsdal."
Ágætt að taka
til í hugskotinu
- Er svo ekki nýkomin út ævisagan
þín þótt þú sért enn komung?
„Jú, ég er að leyfa fólki að kynnast
mér aðeins og vona að ævin sé ekki
öll þótt maður tappi aðeins af því sem
á dagana hefur drifið. Það er ágætt að
taka til í hugskotinu stundum. Mér
finnst fólk hafa fengið dálítið yfir-
borðskennda mynd af mér en þarna
fær það að vita úr hvaða jarðvegi ég
er sprottin, hvað það er sem hefur
mótað mig og gert mig að þvi sem ég
er. Svo er sagt frá ýmsu sem ég hef
upplifað því ég er auðvitað búin að
lenda í ýmsum ótrúlegum ævintýrum
það sem af er. Ævisaga er ekki alveg
rétta orðið. Oft eru skrifaðar bækur
um fólk í blóma lífsins og lífslistina."
- Já, listina segirðu - er ekki kom-
inn út nýr diskur með þér líka?
„Jú, þetta em lög sem ég hef aldrei
gert almennilega skil fyrr, íslensk ein-
söngslög. Anna Guðný Guðmunds-
dóttir er undirleikari minn á diskin-
um, ásamt fleirum. Sum lögin eru í
öðruvísi búningi en þau hafa áður
verið. Tónskáldin okkar hafa samið
falleg einsöngslög en á ákveðnum
tíma var undirspilið ekki eins úthugs-
að. Við erum aðeins að fylla upp i þær
eyður.“
- Hvar er þessi diskur í röðinni hjá
þér?
„Bíddu, nú þarf ég að telja. Jú,
hann er númer sex í röð einsöngs-
diska. Þeir hafa verið mjög ólíkir,
vægast sagt.“
Bíogagnryni
Söngfuglinn Diddú
„Nú fær fólk að vita úr hvaða jarövegi ég er sprottin. “
DV-MYND E.ÓL.
Líkast því að vera
á popptónleikum
- Heyrðu, þú varst í Kína um dag-
inn. Hvernig var?
„Það var ótrúlegt ævintýri. Þetta
var í tengslum við tónlistarhátíð í
Peking og líka 30 ára vináttuafmæli
landanna, Kína og íslands. Við Anna
Guðný fengum þama að koma fram í
tónleikasal Forboðnu borgarinnar i
Peking sem er heimur út af fyrir sig
og það var stórkostlegt að syngja fyrir
Kínverja. Þeir eru miklir óperuaðdá-
endur og þá þyrstir í músík frá Vest-
urlöndum enda létu þeir ánægju sína
óspart í ljós. Það var gífurleg stemn-
ing. Líkast því að vera á popptónleik-
um.“
- Fórstu á kínverska tónleika?
„Nei, en ég heyrði hóp kínverskra
listamanna spila á þjóðleg hljóðfæri
og syngja lög á sinn hátt. Kínversk
tónlistarhefð er svo ólík okkar en mér
finnst hún mjög heillandi. Ég er svo
hrifm af arfleifð Kínverja og mig
þyrstir í kínverskar bókmenntir,
kvikmyndir og tónlist. Þetta land er
magnað. Auðvitað upplifði ég bara
smáögn af því sem það hefur upp á að
bjóða en það var frábært fá að
minnsta kosti þefinn af því.“
Piparkökurnar æ skrautlegri
- Heim aftur. Er nokkuð kominn
smákökuþefur í Mosfellsdal?
„Nei, en ég er farin að gramsa í
uppskriftunum! Mér finnst tilheyra að
fá bökunarilm í húsið um það leyti
sem aðventan byrjar. Við bökum tvær
sortir hér. Leggjum mikinn metnað í
piparkökurnar enda verða þær
skrautlegri með hverju árinu."
Þess má geta að hin sortin sem
Diddú bakar eru ekta ítalskar
anískökur og við fáum að sjá upp-
skriftina í blaðinu Föndur og bakstur
sem fylgir DV í dag.
-Gun
Rússíbanar - Gullregnið ★ ★
Leitað
fanga í
austri
Það kennir ýmissa grasa á hinum
nýja geisladiski Rússibana. Eins og
áður, og kannski dálítið meira en
áður, er leitað nokkuð fanga í aust-
urátt. Yfirbragð tónlistarinnar er
austur-evrópskt að miklu leyti og
komið við í Miðausturlöndum. Ekki
er laust við að kenni takta frá
dönsku hljómsveitinni Baazar og
jafnvel dettur manni í hug Ivo Papa-
sov og hljómsveit hans. Og í sumum
tilvikum er eins og hlustandinn sé
næstum því kominn inn í kvikmynd
eftir Emir Kusturica. Rúmbulagið
Brejero er líka með austrænum svip
enda eftir Nazareth. Ungverskur
dans eftir Brahms og La danza eftir
Rossini falla vel að öðru efni sem og
hið nokkuð útjaskaða Hava nagela.
Annað gamalkunnugt lag er Aldrei
á sunnudögum eftir Hadjidakis
hinn griska. Þessari músík fylgir
mikil lífsgleði og fjör þrátt fyrir
molltóntegundir. Tregann er helst
að finna í lagi númer 8, Nigu, og
kaflaskiptu lokanúmeri en þó
gægist hann líka aðeins inn i öðrum
ópusum.
Einar Kristján Einarsson leikur á
gítar, Guðni Franzson á klarínettu,
sax og didgeridoo, Jón Skuggi á
kontrabassa, Tatu Kantona á harm-
oniku og Matthías Hemstock hefur
tekið sess Kjartans Finnssonar sem
trommu- og slagverksleikari. Þeir
eru allir hæfileikamenn í meira en
meðallagi og fara létt með að koma
hinum flnustu blæbrigðum
dansanna listavel til skila. Það er
ekki á allra færi. Eyþór Gunnarsson
stjórnaði upptökum og hljóðbland-
aði með Jóni Skugga.
Ingvi Þór Kormáksson
Háskölabíó - Gæsapartí ★ *
Hressar stelpur
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.