Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2001, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2001, Page 28
Aðeins kr. 1.050. > o °o Útiljós Rafkaup Ármúla 24 • S. 585 2800 Lokun Samvinnuferða-Landsýnar áfall fyrir ferðaþjónustu: Einstætt gjaldþrot - neytendur munu að fullu fá skaðann bættan „Ég man ekki að það hafi gerst i seinni tíð að aðili sem stundar innflutning á ferða- mönnum hafl lent i svona hremmingum," sagði Magn- ús Oddsson ferðamálastjóri í samtali við DV í morgun vegna gjaldþrots Samvinnu- ferða-Landsýnar. „Það sem nú skiptir mestu máli er að þessi viðskiptasambönd glat- ist ekki sem fyrirtækið hefur stofnað til,“ sagði Magnús. 70 manns missa vinnuna í gjald- þroti Samvinnuferða-Landsýnar en Héraðsdómur mun væntanlega skipa skiptastjóra í þrotabúinu í dag. Að sögn Guðjóns Auðunssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, var enginn rekstrargrundvöllur lengur fyrir hendi. Röð ófyrirséðra atburða hafi valdið gjaldþrotinu þótt róttæk endurskipulagning hafi verið farin að skila mikifli hagræð- ingu. ■ Jóhannes Gunnarsson Ljóst er að stöðvun SL hefur slæm áhrif á íslensk- an ferðaiðnað í heild þar sem fyrirtækið hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt og gott samstarf við innlenda og erlenda ferðaþjónustuaðila. Fyrir- tækið er rúmlega 20 ára gamalt og næststærsta ferðaskrifstofa landsins. Magnús Oddsson segir að ekki séu mjög margir á þessum markaði og þegar einn hverfi af sviðinu sé geysilega mikilvægt að aðrir nái samböndunum þannig að markaðurinn glatist ekki. Hundruð íslendinga áttu bókað far með Samvinnuferðum á morgun til Dyflinnar en ekkert verður af þeirri ferð. Þeir sem skaðast vegna gjaldþrotsins og þurfa að leita réttar síns eiga að hafa samband við sam- gönguráðuneytið til að fá endur- greiðslu á farmiðum en tryggingar ferðaskrifstofunnar munu að óbreyttu bæta tjón viðskiptavina fyrirtækisins, að mati formanns Neytendasamtakanna, Jóhannesar Gunnarssonar. „Það er lán í óláni að þessi stóra ferðaskrifstofa verði gjaldþrota á þessum árstíma en ekki að sumri til. Það hefði getið kaflað á aukin eftirmál en mér sýnist að samgönguráðuneytið sé sammála Neytendasamtökunum um að þetta verði bætt að fullu. Neytendur skað- ast ekki,“ segir Jóhannes. DV náði í Hafþór Hafsteinsson, for- stjóra Atlanta, í Zúrich í morgun en Atlanta hefur flogið fyrir Samvinnu- ferðir frá árinu 1992. Hafþór sagði að beint tjón félagsins væri 31 milljón króna vegna gjaldþrots Samvinnu- ferða og þar af næmu flugvallarskatt- ar fyrir nóvembermánuð 5,8 milljón- um. Hafþór sagði að Flugfélagið hefði fyrst frétt af gjaldþrotinu í gær en vél frá Atlanta átti að flytja farþegana til Dublin á morgun. -BÞ Nýjar skýringar Níelsar Ársælssonar á Bjarma BA: Segir brottkastið selbitið - sviptur veiðileyfi af Fiskistofu Fiskistofa hefur svipt bátinn Bjarma frá Tálknafirði veiðileyfl frá 1. desember og til 25. janúar vegna brottkasts. Ákvörðun um sviptingu byggist meðal annars á því að Níels Ársælsson hafi viður- kennt í DV 12. nóvember að myndir af brottkasti sem sýndar voru í Sjónvarpinu 10. nóvember hafi verið teknar um borð í Bjarma. í viðtölum við fjölmiðla hefur Níels geflð margar og misvísandi yfirlýsingar um hvort hann hafi hent afla eða ekki. í skýringum til Fiskistofu segir hann að fiskur- inn sem hent var í veiðiferðinni, þegar sjónvarpsmenn voru með í för, hafi verið selbitinn. Skv. lög- um má henda skemmdum fiski. Með þeirri skýringu fer Níels enn einn hringinn f yfirlýsingum sín- um. Þetta er einnig í mótsögn við það sem Örn Sigurðsson, skip- verji á Bjarmanum, sagði í DV i fyrri viku; að menn hefðu verið að henda gæðafiski. Níels tjáði DV í gær að í ferð- ínni sem sjonvarpsmenmmir voru með hafi þeir á Bjarmanum verið á veiðum á Kópanesrifjum. „Það em margra alda þekkt sela- látur út af Kópnum sem er milli Tálknafjarðar og Arnarfjarðar," sagði Níels. Aðspurður hvort mik- ið hefði verið af sel á þeim slóðum í vetur sagðist Níels ekki vita það. „Ég stunda ekki dráp á svoleiðis dýrum. En það kemur fyrir að við ifáum selbitinn fisk í veiðarfær- in,“ sagði hann. -sbs Biðlistana burt Fjölmörg launþegasamtök, stéttar- félög og aðildarfélög Þroskahjálpar hafa tekið sig saman og berjast fyrir þvi að biðlistum fatlaðra eftir búsetu verði eytt. Talið er að um 800 milljón- ir þurfi til að leysa vandann varð- andi þá. í Reykjavík eru um 114 manns á biðlistum eftir búsetu sam- kvæmt nýlegri samantekt. Umrædd samtök munu auglýsa í flölmiðlum þar sem þau hvetja til að biðlistunum verði eytt. Auglýsingamar munu w* birtast næstu daga eða a.m.k. fram til 3. desember næstkomandi en þá er alþjóðadagur fatlaðra. -JSS Barðaströnd: Skólastjóri á músaveiðum - á skrifborðinu „Ég hef sett fellur á skrifborðið mitt og að jafnaði lenda um fjórar mýs í þeim á sólarhring. Músagang- urinn er mikill um alla sveit,“ segir Torfi Steinsson, skólastjóri Birki- melsskóla á Barðaströnd, en hann ásamt nemendum og kennurum er orðinn leiður á músaganginum í skólanum. Torfi kveður hátt í hund- rað mýs hafa endað í fellunum á borði sínu. „Ég vinn stundum á kvöldin og þarf ekki annað en að skreppa fram til að þær skjótist upp á borðið," segir Torfi. í skólanum eru átján nemendur og taka þeir að sögn Torfa fullan þátt í að berjast gegn músafaraldr- inum. „Þau eru dugleg að smíða afls kyns gildrur og eru ekki vitund hrædd við mýs. Þetta er hins vegar farið að verða svolítið hvimleitt og við vonum að þessu fari að linna,“ segir Torfl. Músagangur þykir með mesta móti á Vestfjörðum þennan veturinn og rekja menn ástæðurnar einkum til snjólétts vetrar í fyrra og hlýindasumars í kjölfarið. -aþ / / / / Landspítali - Háskólasjúkrahús: biðlistar - hefur sigið a ogæfuhliðina í tvö ar „Á skurðsviði Landspítalans hafa biðlistar lengst i bæklunarlækning- um, almennum skurðlækningum og augnlækningum," sagði Jónas Magn- ússon, yfirlæknir og sviðsstjóri á skurðsviði spítalans, aðspurður um stöðu biðlista nú. Hann kvaðst ekki hafa nýjustu töl- ur handbærar en samkvæmt saman- tekt Landspítalans voru 470 á biðlista eftir almennum skurðlækningum í september sl„ 707 biðu eftir augnað- gerðum og 668 eftir bæklunarlækning- * um. Jónas sagði ástæðu þessa tví- þætta. „Við höfum verið að sameina deild- imar, færa þær til og byggja upp nýj- ar aðgerðalínur sem ekki eru komnar alveg í gang. Hins vegar setti sjúkra- liðaverkfallið þá framleiðslu sem fyr- irhuguð var alveg út.“ Jónas sagði að hægt og rólega hefði verið að síga á ógæfuhliðina á biðlist- unum síðastliðin tvö ár. „Við gerum ekki eins margar að- gerðir eins og beðið er um að við ger- um,“ sagði hann. „Spítalinn fær fasta tölu í fjárveitingar. Þjóðin eldist eins og lög gera ráð fyrir og við höfum fleirum að sinna. Þá koma fleiri bráð- veikir sjúklingar. Þetta segir tölfræð- in, svo ekki verður um villst. Hins vegar hækkar lyfjaverðið um 10-15 prósent á ári. Nánast allt sem við notum hér á spítalanum er keypt frá útlöndum sem þýðir að við erum að kaupa dýrari aðfóng heldur en flestir. Núna hefir veiking krónunnar farið afar illa með spítalann því 30 prósent af fjárveitingunni fara til kaupa á aðfóngum. Þau hafa hækkað miklu meira nú heldur en áður.“ Jónas sagði að samkomulag væri í þjóðfélaginu um að bráðaþjónusta gengi fyrir. Vegna aukins kostnaðar við innkaup lyíja og launagreiðslur yrði því alltaf minna og minna eftir til að kosta valþjónustuna. Þess vegna væru lækningastöðvar að spretta upp eins og gorkúlur fyrir utan spítalann. Þær byggðust allar á handlækningum, litlum skurðaðgerðum sem kæmust ekki inn hjá Landspítalanum, því hann hefði ekki svigrúm til að sinna meiru en stærri aðgerðum. Hinu mætti ekki gleyma að ríkið borgaði allar aðgerðir, hvort sem þær væru gerðar á Landspítalanum eða á stofu úti i bæ. -JSS MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001 Eldgos á hreinu „Það mun verða eldgos á Reykja- nesskaganum, það er alveg á hreinu. Það sem bæði jarðfræðingar og leik- menn hafa síðan áhuga á að vita er hvar og hvenær slíkt gos verður," seg- ir jarðeðlisfræðingurinn Ari Trausti Guðmundsson. „Ljóst er að sumar byggðir á þétt- býlasta svæði landsins eru óþægilega nálægt virkum skjálftasprungnum eldstöðvakerfum gosbeltanna fjögurra á Reykjanesskaga, eða nálægt mis- gömlum gossprungum í þeim. - Sjá nánar fréttaljós bls. 8 og 9. -HKr. / / / / / / / / / / / Snjókarlinn fullbúinn Snjórinn í höfuöborginni gleöur yngstu kynslóöina og snjókarlar algeng sjón í göröum. Lilna Björg, sem er ættuö frá Æ Eistlandi, bjó til þennan myndarlega snjókarl sem stendur viö Reynimel í vesturbænum. SLIND ER BÓKLAUS MÚS! FRJALST, O H A Ð DAGBLAÐ FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 JÓLAKQRTf DAGAT0L 0G LJ0SMYNDAB US FRA 12 • 16 A LAUGARDÖGUM í NÓV-DE YJARVIDDIR.IS LAUGARNESVEGI 11 Enn lengjast

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.