Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2001, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2001
Fréttir
DV
DV^YND KO
Logandi jólaskreyting
Slökkvilið höfuðborgarsvæöisins var kallað út vegna elds íjólaskreytingu á Barónsstígnum. Þetta var ekki eina útkallið þar sem kviknaði í slíkum skreytingum.
Slökkviliðið bendir fólki á aö kíkja á heimasíðu sína, www.shs.is, þar sem góð ráð varðandi öruggt jólahald er að finna.
Jólahald í höfuðborginni:
Skortur á jólatrjám,
stelsýki og þreyta
- mikið um innbrot og eldsvoða
DVWIYND KO
Undarlegur jólapóstur
Þessum hamstri var troðið inn um bréfalúgu á húsi við Hlíðarveg í Kóþavogi aðfaranótt Þorláksmessu. Húsráðendur
könnuðust ekkert við sendinguna og því tók lögreglan í Kópavogi hamsturinn í sína vörstu og hefur fætt hann og hýst.
Það má segja að jólin í höfuðborg-
inni hafi ekki farið vel af stað því að
á Þorláksmessu voru jólatré í borg-
inni uppseld og urðu því margir höf-
uðborgarbúar að grípa til örþrifaráða.
Einhverjir fóru og hjuggu sér tré á
skógræktarsvæðunum í Hveragerði
og Mosfellsdal en ekki nenntu allir að
leggja svo mikið á sig eins og fjöl-
skylda ein við Kastalagerði í Kópa-
vogi komst að á Þorláksmessu. Ein-
hver, sem greinilega hafði ekki tekist
að kaupa sér jólatré áður en þau seld-
ust upp, hafði læðst inn í garðinn hjá
þeim og höggvið niður eitt af
grenitjránum í garðinum. Jólatrés-
þjófurinn er ófundinn.
Sofnaði yfir jólamatnum
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
hafði einnig í nógu að snúast um há-
tiðirnar. Á Þorláksmessukvöld var
kveikt í Hagkaupi í Skeifunni og varð
að loka versluninni í hálftima á með-
an Slökkviliðið reykræsti verslunina.
Kveikt hafði verið í fatnaði í ung-
bamadeild og barnadeild og eyðilagð-
ist nokkuð af fótum en starfsfólki
tókst að slökkva eldinn áður en lög-
regla og slökkvilið kom á staðinn.
Mikið af fólki var í verslunni á þess-
um tíma og var þvi skipað að yfirgefa
hálffullar kerrur sínar á meðan
Slökkviliðið athafnaði sig. Fæstir
nenntu að bíða eftir þvi að þeir fengju
að halda innkaupunum áfram þannig
að starfsfólkið hafði í nógu að snúast
við að tæma kerrurnar og ganga frá .
Brennuvarganna er enn leitað.
Reykvíkingur
lamdi Akureyring
22 ára Reykvíkingur hefur verið
dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðs-
bundiö og greiðslu sektar upp á
tæpar 100.000 krónur eftir líkams-
árás á Akureyri í júlí sl. Maðurinn
veittist að Akureyringi að nætur-
lagi, sló hann eitt högg í andlitið og
sparkaði í hann, þannig aö hann
rotaðist og féll í götuna með þeim
afleiðingum að fómarlambið slasað-
ist m.a. á öxl.
Ákærði viðurkenndi skýlaust
brotið fyrir Héraðsdómi Norður-
lands eystra en hann hefur áður
komist í kast við lögin. -BÞ
Á aðfangadagsmorgun þurfti
slökkviliöið að hafa afskipti af versl-
un við Laugaveg en þar hafði gleymst
að slökkva á kertaskreytingum, lik-
lega kvöldið áður. Þetta var ekki eina
útkallið vegna elds í jólaskreytingu
því að á aðfangadagskvöld kviknaði í
mannlausri íbúð á Barónsstígnum og
á jóladag vora tvö jólaskreytingaút-
köll. Fyrra atvikið var í Rjúpufelli en
hitt í Hafnarfírði þar sem nágranni
hafði heyrt í reykskynjara og gert
slökkviliði viðvart en íbúðin var
mannlaus. Það var þó ekki bara kæra-
leysi sem olli brunum um jólin heldur
sagði þreyta einnig til sín. Á aðfanga-
dagskvöld var slökkviliðið kallað að
Tryggvagötu til að slökkva eld sem
kviknað hafði út frá eldavél. Þar hafði
maður verið að sjóða sér bjúgu en
sofnað út frá eldamennskunni.
Hraðbanka stolið
Nokkuð var um það að þjófar væru
á ferli um hátíðirnar, sérstaklega á
jóladag, en þá var m.a brotist inn i
fyrirtæki í Kópavoginum og stolið
þaðan farsímum og tölvum. Á jóladag
var einnig brotist inn í söluturn Olís
við Sundagarða. Ekki virtist neinu
hafa verið stolið. Talið er að sömu að-
ilar hafi rótað í skúffum og skápum
Húsasmiðjunnar í sömu götu en ekki
var ljóst hvort einhverju hafði verið
stolið. Á jóladag var hraðbanka stolið
úr Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Þjófurinn, eða þjófamir, reyndi fyrst
að brjóta hraðbankann upp í anddyri
skólans en þegar það tókst ekki var
bíll notaður til þess að draga bankann
úr andyrinu. Ekki var þessi ferð til
fjár fyrir þjófana en lögreglan virðist
vera búin að upplýsa málið. Brotist
var inn í myndbandaleigu í Eddufelli
annan í jólum. Maður sem var að
skila spólu sá að rúða var brotin í vid-
eoleigunni og sá mann á hlaupum.
Maðurinn sem hafði tekið búðarkass-
ann með sér náðist ekki. Þá var brot-
ist inn í sjoppu við Ofanleiti og í versl-
un í Ártúnshöfða og skiptimynt stolið
á báðum stöðum. Einkaheimili fengu
einnig heimsóknir frá þjófum því að á
jóladagskvöld var brotist inn á heim-
ili við Laugaveg og einhverjum verð-
mætum stolið á meðan húsráðendur
vora í jólaboði. Einnig hafði lögreglan
hendur í hári tveggja manna sem
brotið höfðu sér leið inn í stigagang
við Laugaveg en ekki er vitað hvað
þeim gekk til með þvl.
Heimilislaus hamstur
Það er þó fleira en innbrot og óeirð-
ir sem komið hafa inn á borð lögregl-
unnar þessi jólin. Lögreglan i Kópa-
vogi hefur t.d hýst hamstur yfir hátíð-
irnar sem enginn veit nein deili á.
Hamstrinum var troðið inn um
bréfalúgu á húsi einu við Hlíðarveg
aðfaranótt Þorláksmessu. Ekki er vit-
aö hver var þar að verki. Húsráðend-
ur könnuðust ekkert við þennan
óvenjulega jólapóst og höfðu því sam-
band við lögregluna. Óvíst er hvað
gert verður við hamsturinn en eitt er
vist að á lögreglustöðinni verður
hann ekki mikið lengur. -snæ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 15.36
Sólarupprás á morgun 11.22
Síödegisflóö 16.26
Árdegisflóö á morgun 04.52
14.53
11.35
20.59
09.25
In
Léttir til sunnanlands
Norðan 10 tll 15 m/s en vaxandi
norövestanátt norðaustan til. Él á
noröanveröu landinu en léttirtil sunn-
anlands. Frost 2 til 8 stig en víða
talsvert frost inn til landsins.
Snjókoma fyrir norðan
Norðan 10 til 20 m/s, hvassast
austan til. Snjókoma eða él á norð-
anverðu landinu en skýjað með köfl-
um og þurrt syðra. Frost 2 til 10
stig.
i Veöríön;
Laugardagur Sunnudagur Mánudagur
° °e°©
Hiti -2“ Hiti -2“ Hiti -2'
til -8° tii -8" tii -8“
Vindur: Vindur: Vindur:
5-8 5-8 5-8 m/8
4- * St
Minnkandi Noröaustanátt Noröaustanátt
noröanátt. Él og víöa él. og vföa él.
noröaustanland Talsvert frost. Talsvert frost.
s en léttskýjaö
sunnan- og
vestanlands.
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
J 'iý/ÞÍ
AKUREYRI léttskýjaö -9
BERGSSTAÐIR léttskýjaö -5
BOLUNGARVÍK skýjaö -1
EGILSSTAÐIR hálfskýjað -7
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö -2
KEFLAVÍK alskýjað 0
RAUFARHÖFN alskýjaö -9
REYKJAVÍK snjóél -1
STÓRHÖFÐI snjókoma 0
BERGEN skýjaö 0
HELSINKI snjókoma -13
KAUPMANNAHÖFN skýjaö -3
ÓSLÓ skýjaö -10
STOKKHÓLMUR rigning -4
ÞÓRSHÖFN snjóél -3
ÞRÁNDHEIMUR snjóél •6
ALGARVE léttskýjaö 8
AMSTERDAM haglél 3
BARCELONA heiöskírt -2
BERLÍN rigning 2
CHICAGO léttskýjaö -11
DUBLIN léttskýjaö -2
HALIFAX léttskýjaö -1
FRANKFURT léttskýjaö 1
HAMBORG rigning 1
JAN MAYEN skafrenningur -10
LONDON heiöskírt -2
LÚXEMBORG hálfskýjaö 0
MALLORCA léttskýjaö 6
MONTREAL alskýjaö 0
NARSSARSSUAQ alskýjaö 0
NEW YORK skýjaö 2
ORLANDO alskýjaö 9
PARÍS alskýjaö 2
VÍN skýjaö 1
WASHINGTON alskýjað ■6
WINNiPEG skýjaö -1