Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002 Fréttir I>V Forystumenn í stjórnmálum um niðurstöðu lögreglunnar: Umfangsmeira en nokkurn grunaði DV leitaði í gærkvöld viðbragða for- ystumanna úr íslenskum stjómmálum við niðurstöðu ríkislögreglustjóra í máli Áma Johnsens og eftirmálum þess. Spurt var hvort ætla mætti af umfangi þess að spillingin væri víð- tækari í þjóðfélaginu en almennt er talið. Hvorki náðist í formann né vara- formann Sjálfstæðisilokksins. „Þetta er verulega vont mál og hefur undið upp á sig meira en mig hefði órað fyrir,“ segir Guðni Ágústsson, varafor- maður Framsóknarflokksins. Guðni tel- ur hins vegar ekki að niðurstaðan um fjölda brota og grunaðra manna eigi að gefa almenningi tilefni til að draga víð- tækar ályktanir um spiilingu i þjóðfé- laginu. „Það hvarflar ekki að mér að mönnum detti það í hug,“ segir Guðni. „Þetta er einstakt mál og ég hef enga trú á því að það grasseri spilling í kerfinu. Það kemur öllum mönnum í opna skjöldu að svona lagað skuli hafa getað þrifist svona lengi,“ segir Guðni og bæt- ir við að þetta sé mikill mannlegur harmleikur. Guðni Margrét Ágústsson. Frímannsdóttir. „Ég vil trúa því að þetta sé ekki dæmigert fyrir það sem er að gerast í ís- lensku þjóðfélagi og ég hef enga ástæðu til að ætla að fleiri mál hliðstæð þessu geti komið upp,“ segir Margrét Fri- mannsdóttir, varaformaður Samfylking- arinnar. „Hins vegar hefur það komið mér á óvart hve mörg mál hafa komið upp á undanfómum vikum og mánuð- um sem má á einn eða annan hátt tengja spillingu. Annars vegar má hugsa sér að eftirlitskerfið sé farið að virka, maður vill gjaman trúa þvi. En á móti kemur að það er ekki eftirlitskerf- Tólf grunaðir um lögbrot í máli Árna Johnsens: Fyrsta mútumál alþingismanns Rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjórans á málum Áma Johnsens, fyrrverandi alþingis- manns, og annarra aðila sem þeim tengjast er lokið. Niðurstaða rann- sóknarinnar er að ætluö refsiverð háttsemi hafl átt sér stað í þrjátíu og tveimur tilvikum. Sjötíu og fjórir ein- staklingar voru yfirheyrðir og hafa tólf þeirra fengið réttarstöðu sakaðra manna. Það þýðir með öðram orðum að tólf menn era grunaðir um lögbrot og hafa sem slíkir notið þess réttar að svara ekki spumingum um refsi- verða hegðun sem þeim er gefin að sök. Þessa réttarstöðu geta menn öðl- ast hvort sem er við upphaf rann- sóknar eða hvenær sem lögreglan tel- ur að framvinda rannsóknarinnar gefi tilefni til og grunsemdir vakna um sekt viðkomandi. Meðal þeirra brota sem ríkislög- reglustjóri telur að hafi verið framin era brot sem varða við ákvæði laga um mútur. Örsjaldan hefur reynt á ákvæði laga um mútur og þetta er í fyrsta sinn sem rannsókn lögreglu leiðir í ljós grunsemdir um að þingmaður hafi gerst brotlegur við þau. Ríkislögreglustjóri telur að tvær lagagreinar um mútur hafi verið brotnar. Annars vegar 109. grein, þar sem segir að hver sem gefúr, lofar eða býður opinberum starfsmanni gjöf eða annan ávinning til að fá hann tO að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert sem tengist opinberum skyldum hans skuli sæta fangelsi allt að þremur árum eða sektum ef málsbætur era fyrir hendi. í öðra lagi er um að ræða 128. grein, en þar segir að opinber starfsmaður, sem heimtar eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfúm eða öðrum ávinningi, sem hann á ekki tilkall til í sambandi við framkvæmd starfa síns, skuli sæta fangelsi allt að sex árum, eða sektum ef málsbætur era. Af þessu er ljóst að hvorir tveggju gerast brotlegir viö lög: opinber starfs- maður sem þiggur mútur og hinn, sem býður honum þær. Enn fremur er ljóst að rannsókn ríkislögreglustjórans bendir til að þessi brot hafi verið fram- in. Önnur brot sem ríkislögreglustjóri gerir grein fyrir í niðurstöðu sinni varða við ákvæði laga um brot í opin- beru starfi, fjárdrátt, fjársvik, umboðs- svik og bókhald. Rétt er að árétt að það er ríkissaksóknari sem ákveður hvort ákært verður í málinu. -ÓTG Steingrímur J. Sverrir Sigfússon. Hermannsson. ið sem á frumkvæði að því að mál eru rannsökuð heldur eru það í flestum til- vikum fjölmiöiar. Ég held að við þurfum að setja skýrari reglur um stjómsýsl- una, eins og Samfylkingin hefur lagt til.“ ,Jíg held að við eigum nú að varast að draga allt of víðtækar ályktanir af þessu máli þó að þetta virðist við fyrstu sýn miklu umfangsmeira en það leit í upphafi út fyrir að vera,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfmgarinnar - græns fram- boðs. „Þetta er ekki endilega til marks um að sambærilegir hlutir eigi sér stað víðar heldur frekar um það hversu djúptækt þetta tiltekna mál var. Ég held enn í þá trú mína að al- mennt sé íslenskt stjómkerfi og stjóm- málamenn ekki spilltir. En auðvitað er það ískyggilegt hve umfangsmikið þetta virðist ætla að verða þegar spilin era lögð á borðið." „Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir að umfang málsins sé meira en hann hafði vonað: „Þetta er skelfilegt. Svo þykist stjóm- sýslan enga ábyrgð bera og ríkisendur- skoðandi reigir sig hvar sem upp koma misfellumar og haim er búinn að skrifa upp á árum saman. Það þyrfti nú betri athugunar við. En ég vil ekki hafa nein orð um þetta, þetta á eftir að ganga sinn veg. En þessi snjóbolti hef- ur vaxið sorglega mikið að því er manni virðist." Sverrir óttast að niður- staðan sé vísbending um að víða leyn- ist spilling: „Það er mikil hætta á því og enginn getur álasað fólki fyrir að álykta á þann veg.“ -ÓTG Hrelnsaö til Saltausturinn situr frosinn á gluggum verslana og ekkert annað við því að gera en að taka fram kúst sinn og sápu. Myndin er frá Laugavegi. Samkeppnisyfirvöld með reglur um hugsanlegar sektir olíufélaganna Sá fyrsti fær mestan afslátt - sektarákvæði hljóða upp á allt að 40 milljónir eða meira samkvæmt lögum Olíufélagið Esso getur gert sér vonir um að fá lækkaðar þær hugsanlegu sektir sem lagðar verða á fyrirtækið vegna brota á samkeppnislögum svo framarlega sem ákveðnum skilyrðum sé fúllnægt. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svarbréfi Samkeppnis- stofnunar til Olíufélagsins við erindi þess um samstarf við að upplýsa um hugsanleg brot á samkeppnislögum. í bréfmu kemur hins vegar einnig fram að ekki komi til greina að fella niður sektir ef meint brot era sönnuð og upp- lýst er að stofnunin hefur undir hönd- um margvísleg gögn sem benda til margvíslegs ólöglegs samráðs félag- anna. Til að sektir fáist lækkaðar þarf 01- iufélagið að koma með ný gögn sem samkeppnisyfirvöld meta sem mikil- væga viðbót við þau sönnunargögn sem þau hafa þegar undir höndum og yrðu nýju gögnin að stuðla beint að því að upplýsa staðreyndir málsins. Þá kemur fram að ákveðinn hvati er fyrir fyrirtækin að ríða á vaðið um upplýsingagjöf af þessu tagi því sektar- afslátturinn er mestur fyrir þau fyrir- tæki sem fyrst koma með nýjar upplýs- ingar. Þannig gæti sá fýrsti fengið 30-50% afslátt og sá næsti i röðinni gæti fengið allt að 20% afslátt. Við mat á þessum afslætti yrði tekið tillit till þess hvenær gögnin eru lögð fram, hver samstarfsvilji fyrirtækisins væri og hversu mikilvæg gögnin eru fyrir rannsókn málsins. Nýjar upplýsingar sem fást með þessum hætti munu ekki virka til hækkunar sektarinnar. Þessi viðbrögð Samkeppnisstofnun- ar byggja á 52. gr. samkeppnislaga, en þessum ákvæðum var einmitt breytt við endurskoðun laganna árið 2000. Viðeigandi lagaákvæði segir sektir geta numið frá 50 þús. kr. til 40 millj. kr. eða meira en sektin skal þó ekki vera hærri en sem nemur 10% af veltu síðasta almanaksárs hjá hverju fyrir- tæki. „Við ákvörðun fjárhæðar sektar getur samkeppnisráð m.a. haft hlið- sjón af samstarfsvilja hins brotlega fyr- irtækis," segfr i lögunum. í greinar- gerð með frumvarpinu kemur fram að verið sé að miða viö tilkynningu frá ESA um að fýrirtækjum verði umbun- að ef þau gefa sig fram og upplýsa um þátttöku sina í ólögmætu samráði og afhenda sönnunargögn. „Sams konar fyrirkomulag hefúr gilt í bandarískum samkeppnisrétti frá árinu 1978. Hefúr það skilað umtalsverðum árangri og t.d. leitt til þess að fjöldi fyrirtækja hef- ur tilkynnt bandarískum samkeppnis- yfirvöldum um þátttöku sína í samráði til að komast undan viðurlögum," seg- ir í greinargerðinni. Olís hefúr einnig óskað eftir fúndi með Samkeppnisstofnun. -BG EISIM Afsökunarbréf Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingar, hefur sent Jóhannesi Jónssyni, stjómar- manni Baugs, og Jóni Scheving Thor- steinssyni fram- kvæmdastjóra af- sökunarbréf vegna tölvubréfsins sem hann sendi sömu mönnum á dögun- um. í fyrra bréfinu gagnrýndi Össur, sem kunnugt er, mjög harðlega upp- sögn á samningi við ræstingarfyrir- tæki bróður hans. Jóhannes Jónsson segir innihald síðara bréfsins trúnað- armál og málinu sé nú lokið. Perlan óseljanleg Engin formleg tilboð hafa borist í Perluna þrátt fyrir að hún hafi verið til sölu í fjóra mánuði. í fréttum RÚV kom fram í gær að Perlan sé ekki til sem fasteign í lagalegum skilningi. Að mati sérfræðinga sé hún óseljan- leg miðað við þau gögn sem liggja hjá sýslumanni. Byggt í Skuggahverfi Fyrirhugað er að hefja framvæmd- ir á svokölluðum Eimskipafélagsreit í Skuggahverfi Reykjavíkur næst- komandi haust. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri kynnti þetta á fimdi með íbúum miðborgar á mánudagskvöld. Borgarstjóri sagði fyrirhugað að reistar yrðu 250 íbúðir á svæðinu og áætlað að fólk gæti flutt inn árið 2004. Kaupmáttur rýrnar Dagvinnulaun hækkuðu að meðal- tali um 5,9% á fjórða ársfjórðungi ársins 2001 miðað við sama tíma árs- ins á undan. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs inn 8,4% sem þýðir að kaupmáttur rýmaði um 2,3%.« Launahækkun flestra starf- stétta var á bilinu 4,4% til 8,2%. Laun á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu meira en laun á landsbyggðinni. Þetta kemur fram i nýrri launakönn- un kjararannsóknamefndar. Árni í fyrsta sæti Ámi Sigfússon mun skipa fyrsta sæti framboðslista Sjálfstæðisflokks til bæjarstjómarkosn- inga í Reykjanesbæ í vor. Böðvar Jóns- son skipar annað sætið, Björk Guð- jónsdóttir þriðja, Steinþór Jónsson fjórða, Þorsteinn Erlingsson fimmta og í sjötta sæti verður Sigríður Jóna Jóhannesdóttir. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur fimm fulltrúa í bæjarstjóm og myndar meirihluta með Fram- sóknarflokki. Ellert Eiríksson, odd- viti Sjálfstæðisflokks og núverandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Bilun í Flugleiðavél Vökvaþrýstibúnaður bilaði í einni af Boeing-þotum Flugleiða sem kom til landsins frá Minneapolis fyrir síð- ustu helgi. Að sögn talsmanns Flug- leiða var ekki talin hætta á ferðum og gekk lending með ágætum. Við- gerð vélarinnar er lokið. Andvigur uppstokkun Formaður þing- flokks Framsóknar- flokksins, Kristinn H. Gunnarsson, tal- ui- vanda Landssím- ans ekki verða leyst- an með skipan nýrr- ar stjómar. Kristinn telur að fulltrúar Framsóknarflokks í stjóm Símans, Magnús Stefánsson og Jónína Bjart- marz, beri ekki ábyrgð á þeim mis- tökum sem helst hafa verið gagnrýnd í rekstri fyrirtækisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.