Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002 Fréttir DV Uppljóstranir starfsmanna BYKO urðu upphaf að falli Árna Johnsens: Alþingismaður á vörubílspalli - viku eftir að frétt DV birtist sagði alþingismaðurinn af sér fátt annað talað í BYKO en alþingis- manninn á vörubílspallinum. Brandar- ar á borð við þann að Þjóðleikhúsið hefði verið flutt til Eyja voru á hvers manns vörum. Maðurinn sem tók til- tektarseðilinn til handargagns geymdi hann vandlega. Honum var stórlega misboðið vegna þess sem hann varð vitni að. Hann spurðist fyrir um það hjá sölumanninum hvað ætti að gera í mál- inu. Sá vissi ekki svarið en sagði að boð- in hefðu borist yfírmönnum fyrirtækis- ins sem væntanlega hefðu gert eitthvað. Nokkrir dagar liðu þangað til hann fékk það svar að málið væri allt byggt á mis- skiiningi. En maðurinn með tiltektar- seðilinn var ekki ánægður með málalok- in. Hann taldi víst að um þjófnað væri að ræða og hann íhugaði hvemig hægt væri að upplýsa málið. Hann taldi lík- legast að DV myndi fara i málið ef hann næði sambandi við blaðamann þar. Tvisvar ók hann að höfuðstöðvum blaðsins við Þverholt 11 og lagði bifreið- inni í bílastæði. I bæði skiptin brast honum kjarkur og hann hugsaði með sér að aldrei yrði sögð frétt af þjófóttum alþingismanni. Þama væri einfaldlega of stór fiskur á ferð til að hægt væri að landa honum. Nokkrir starfsmenn BYKO ákváðu að senda DV fréttaskot en þeir höfðu ekki kjark til að láta nafn sitt með. Málið var lauslega kannað en ekki fékkst staðfesting þess að afbrot hefði verið framið. Þann 10. júlí, átta dögum eftir úttektina, var allt með kyrr- um klörum að öðra leyti en því að á gólfinu í BYKO héldu sögumar áfram að ganga milii manna. Þá spurðist út að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem Ámi Johnsen hefði tekið út vörur í nafhi Þjóðleikhússins. Það sama hefði gerst í mánuðinum á undan þegar hann hefði Reynir Traustason ritstjórnarfulltrúi Innlent fréttaljós Starfsmenn BYKO í Breiddinni í Kópavogi áttu ekki von á neinum stórat- burðum í byrjun júlímánuöar síðasta sumar. 2. júlí var eins og aðrir sumar- dagar og viðskiptavinir streymdu að til að kaupa efni í sumarbústaði, sólpalla eða hvaðeina sem tilheyrði árstíðinni og sumarfríi að fást við. Það vakti enga sér- staka athygli þegar alþingismaðurinn Ámi Johnsen birtist til að sækja bygg- ingarefni. Hann var þekktur af atorku og mönnum kom ekki óvart þegar hann birtist í eigin persónu til að sækja grind- arefni, einangrunarefni og fleira sem pantað hafði verið símleiðis í nafni leik- munageymslu Þjóðleikhússins. Afgreiðslumennimir í skýli 3 tóku til byggingarefnið samkvæmt tiltektarseðli sem sölumaður hafði útfyllt og merktu Þjóðleikhúsinu. Efninu var komið á vörabíl frá Vörabílastöðinni Þrótti. Al- þingismaðurinn sagði mönnum til og síðan vippaði hann sér upp á pallinn. Starfsmennimir horfðu á hann án undr- unar. Þeim var eins og öðrum lands- mönnum kunnugt um að Ámi var dugn- aðarforkur sem stóð ekki aðgerðalaus hjá þar sem verk var að vinna. Þá var vitað að hann var formaður byggingar- nefndar Þjóðleikhússins og var sem slík- ur að vasast í ýmsum málum. Þingmaður klagaður En svo rak menn í rogastans þegar þingmaðurinn hófst handa við að breyta merkingum. Merkingamar sem gerðu ráð fyrir að efnið færi í leikhúsið viku og alþingismaðurinn merkti sjálfum sér efnið: „Ámi Johnsen, Vestmannaeyj- um“ var hin nýja merking, Menn pískr- uðu sín í milli um það hvað væri að ger- ast fyrir augum þeirra. Venjan var sú að þeir sem tóku við vöra kvittuðu á þar til gert eyðublað. Þegar afgreiðslu- maður bað Áma Johnsen að kvitta benti hann á bílstjórann. Sá vék sér undan því: „Láttu helvítið kvitta sjálf- an,“ sagði hann við sölumanninn án þess þó að þingmaðurinn heyrði. Og Ámi Johnsen kvittaði fyrir móttökuna og hirðusamur starfsmaður stakk á sig tiltektar- seðlinum svo lítið bar á. Ámi John- sen sagði bíl- stjór- anum að aka vör- unni á flutn- ingamið- stöð og síð- an hurfu þeir á brott BYKO- mennim- ir Fyrsta fréttln Föstudaginn 13. júlí fór allt á annan endann þegar DV sagöi frá viöskipt- um Árna Johnsens alþingismanns í byggingavörudeild BYKO. Reikningur- inn var sendur á Þjóöleikhúsiö en vörurnar fóru til Eyja. tekið út byggingarefni til einkanota en sent reikninginn á Þjóðleikhúsið. Kennitölum svissað Þá loksins fór eitthvað að gerast. DV hringdi í sölumanninn sem afgreiddi þingmanninn og hann sagði sögu sína umbúðalaust og að reikningurinn hefði farið frá sér á kennitölu Þjóðleikhúss- ins. Fleiri staðfestu sögu sölumannsins og lýstu atburðum í portinu. Yfirmenn BYKO þrættu aftur á móti hver um annan þveran þegar blaðið hafði samband við þá og sögðu að um væri að ræða tómt þvaður. Forstöðu- maður byggingadeildar BYKO og fjár- málastjóri fyrirtækisins vora sammála um að ekkert hefði gerst i þá vera sem blaðið taldi sig hafa hebnildir fyrir. Stef- i Baldursson þjóðleikhússtjóri tók í sama streng og hann bauð DV að kikja í bókhaldið hjá BYKO. Þar kæmist blaðamaður að því að viðskipti Þjóðleikhússins frá áramótum næmu aðeins rétt rúmlega 50 þúsund krónum. DV samþykkti að skoða bók- haldið í samráði við Þjóð- leikhússtjóra og yfirmenn BYKO. En þá kom babb í bátinn þvi blaðið óskaði eftir að fá að sjá sögu reikninga sem útgefhir höfðu verið á Þjóðleik- húsið. Boðið um opið bókhald var snarlega afturkallað. Heimildar- maður blaðins af gólfinu í BYKO hafði nefnilega upplýst Falllnn Sléttri viku eftir aö fréttir af úttekt- um í BYKO birtust tilkynnti Árni Johnsen um væntanlega afsögn sína. stóðu undrandi eftir og litu hver á ann- an. Seinna sama dag kom eitt vitnanna úr portinu til sölumannsins og sagði honum af því sem hann varð vitni að. Sölumaðurinn horfði hissa á manninn og sá granur læddist að honum að ekki væri allt með felldu. Hann bókaði við- skiptin eins og Ámi hafði sagt fyrir um og tiltektarseðillinn varð að reikningi undir kennitölu Þjóðleikhússins. En hann lét ekki nægja að bóka vörumar og upphæðir heldur lét hann fylgja með athugasemd um að vörumar hefðu líklega farið til Eyja en ekki í Þjóðleikhúsið, Lindargötu 7, eins og pöntunin gerði ráð fyrir. Upphæð reiknings- ins var á aðra milljón króna. Jafnframt fylgdi sölu- maðurinn eftir athuga- semd sinni með því að láta yfirmann vita af grunsemdum sínum og því sem hann sá ger- ast í portinu. Næstu dag- ana var um Vbnast til að þurfa ekld að segja af sér Erfiö helgl Árni Johnsen sagöi ástandið vera grábölvaö en hann myndi ekki segja af sér. Sönnunargagniö Tiltektarseöillinn sem komiö var á ritstjórn DV. að svissað hefði verið kennitölum og óskað var eftir að sjá söguna frá upp- hafi. Reikningar sem lögðu af stað á kennitölu Þjóðleikhússins vora nú komnir á nafn þingmannsins. Þá komst blaðið i samband við mann- inn sem geymdi tiltektarseðilinn. Hann sagði sína sögu en bætti þvi við að hann byggist ekki við að blaðið fremur en aðrir fjölmiðlar birti frétt um málið. Hann sendi millilið með plaggið á rit- stjómina og sönnunargagnið um upp- hafsviðskiptin var komið í hendur rit- stjómar. Fimmtudaginn 12. júlí var rit- stjóm DV orðin sannfærð um að málið væri þannig vaxið að það ætti erindi til almennings. Daginn eftir, fostudaginn 13. júlí, birtist svo frétt um málið, sem bar fyrirsögnina „Starfsmaður BYKO klagaði þingmann". Fréttin hratt af stað atburðarás sem á ekki sinn líka í stjóm- málasögu Islands. Neðar á sömu síðu, þennan örlaga- ríka fóstudag, var frétt þar sem Ámi Johnsen alþingismaður sagði að allt þetta væri misskilningur en dálítið klaufalegt. Allt fór á annan endann við fréttina og fjölmiðlar kepptust við að ræða við Áma Johnsen um málið. Gísh S. Einars- son fór fram á það á laugardeginum að Ríkisendurskoðun kannaði málefni byggingamefndar Þjóðleikhússins. Erfið helgi Helgin sem fór í garð varð Áma erfið því hvert málið rak annað og fréttastofa Útvarpsins króaði hann á endanum af. Hann varð uppvís að því að taka út Óð- alskansteina hjá BM-Vallá og dúk hjá Garðheimum og láta skrifa hjá Þjóðleik- húsinu. Um miðja viku tilkynnti hann um afsögn sína sem formaður bygging- amefhdar Þjóðleikhússins en það dugði ekki til. Viku eftir að fyrsta frétt birtist í DV, fóstudaginn 20 júlí, lýsti Ámi Johnsen alþingismaður því yfir að hann myndi segja af sér þingmennsku vegna ávirðinganna. Hann er fyrsti alþingis- maðurinn í sögu lýðveldisins sem segir af sér vegna spillingarmála. Sjö dagar sumarið 2001 föstudagur 13. júií PV birtir frétt um efniskaup Arna í BYKO. Skrifað á Þjóðleikhúsið. Gísli S. Einarsson alþingis- maður óskar eftif stjornsýslu- úttekt á störfum Arna. Laugardagur 14. júií Ríkisútvarpið se^ir frá steinakaupum Arna í BYKO. Skrifað á Þjóðleikhúsið. Þingmaðurinn þrætir og segir steinana vera i geymslu. sunnudagur 15. júií Kantsteinarnir ú; BYKO finn- ast við heimili Arna i Breið- holti. Þingmaðurinn viður- kennjr verknaðinn í samtali við Utvarpið oq að hafa logið að þjóðinni. mánudagur 16. júlí Davíð Oddsson seaist rjiyndu hafa sagt ar sér í Arna sporum. Framkvæmdastjóri Fram- kvæmdasýslu seair mennta- málaráðuneytið nafa heimil- að að Arni skrifaði upp á reikninga. þriðjudagur 17. júlí BYKO léjtir leynd af við- skiptum Arna í nafni Þjóð- leikhússins. Tvær úttektir Dúksmálið kemur gpp. Bylgjan segir að Arni hafi keypt jarðvegsdúk i Garð- heimum og látið skrifa á Þjóðleikhúsið. Arni Johnsen sepir dúkinn vera í geymslu í Reykjavík. miövikudagur 18. júlí Morgunblaðið upplýsir að dúkurinn hafi al drei farið til Eyja. Bylgjan segir dúkinn vist hafa farið til Eyja. fimmtudagur 19. júlí Morcjunblaðið birtir mynd af duknum i geymslu í Gufunesi. DV upplýsir að dúkurinn hafi fario til Eyja en verið laumað til Reykjavikur. aftur. Arni Johnsen tilkynnir Davíð Oddssyni forsætisráðherra að hann muni segja af sér þingmennsku. Starfsmaður Þjóðleikhús- kjallarans sem aðstoðaði Arna í dúksmálinu, látinn hætta störfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.