Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002
9
DV
Fréttir
Flugfélagið breytir fyrirvaralaust sumaráætlun vestur á firði:
Verið að eyðileggja margra
ára uppbyggingarstarf
- segja ferðaþjónustuaðilar - áætlun ekki haggað, segja Flugfélagsmenn
DV-MYND HKR.
Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar
Hafsteinn Ingólfsson, Guörún Kristjana Kristjánsdóttir (Kiddý) og sonur
þeirra, Stefán Þór, gera út tvo stóra farþegabáta frá ísafirði. Þau segjast eiga
mikið undir aö áætlunarflug Flugfélagsins riðlist ekki frá því sem verið hefur
undanfarin ár.
Mikil óánægja er meðal rekstrar-
aðila í ferðaþjónustu vegna breyt-
inga á tímaáætlun í flugi Flugfélags
íslands til ísafjarðar í sumar. Hefur
fluginu verið flýtt verulega, bæði á
morgnana og á kvöldin, frá því sem
verið hefur. Dæmi eru um að áætl-
anir sem feröaþjónustuaðilar hafi
verið að byggja upp síðustu ár
riðlist algjörlega.
Guðrún Kristjana Kristjánsdóttir,
sem rekur ásamt eiginmanni sín-
um, Hafsteini Ingólfssyni, Sjóferðir
Hafsteins og Kiddýjar ehf., segir
þessa breytingu á áætlun Flugfé-
lagsins mjög alvarlegt mál.
„Það er búið að byggja upp ýmsa
ferðamöguleika hér við Djúp á und-
anfomum árum sem miða við flug
til og frá ísaflrði. Með breyttri áætl-
un, sér í lagi á kvöldvélinni, riðlast
þetta allt saman. Farþegar sem sigla
t.d. með okkur inn í Vigur ná ekki
kvöldvélinni. Þetta skiptir miklu
Ferðamenn í Vigri
Breytingar á áætlunarflugi eru taldar
geta skaðaö ferðaþjónustu vestra.
máli, ekki síst hvað varðar útlend-
inga sem koma hingað vestur í eins
dags ferðir. Það er bókstaflega verið
að eyðileggja margra ára uppbygg-
ingarstarf í greininni." Kiddý segist
hafa rætt þetta við Flugfélagsmenn
en þar reki hún sig á vegg. Þeir séu
ófáanlegir til að taka tillit til sjónar-
miða ferðaþjónustunnar.
Inga Rósa Þórðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags íslands í
Reykjavík, segir að breytt áætlun
Flugfélagsins hafi komiö þeim veru-
lega á óvart. Hún segir að þau bjóði
upp á gönguferðir m.a. um Horn-
strandir og SnæfjaOaströnd. Við
höfum stillt inn á það að ferðum
lyki þannig að fólk gæti náð kvöld-
flugi frá ísafrrði og það er nú útilok-
aö.“
Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, hjá
Vesturferðum á ísafirði, segir breyt-
ingamar, sérstaklega á kvöldflug-
inu í sumar hafa komið mönnum í
opna skjöldu. „Þetta kemur sér illa
fyrir dagsferðafarþega sem koma
við í Vigur og ná ekki kvöldfluginu
suður samkvæmt nýju áætluninni."
Kvöldflugið hefur undanfarin
sumur verið frá ísaflrði kl. 19.40 en
verður samkvæmt nýju áætluninni
kl. 17.20. Sigríður segir málið baga-
legt í ljósi þess að Flugfélagið er eitt
á markaðnum í fluginu vestur. Þá
sé slæmt að fá að vita af slíkri breyt-
ingu svona seint, þar sem ferðaþjón-
ustuaðilar em fyrir löngu búnir að
gefa út sínar áætlanir miðað við
flugáætlunina í fyrra.
Ámi Gunnarsson, sölu- og mark-
aðsstjóri Flugfélags íslands, segir að
ekki standi til að breyta útgeflnni
sumaráætlun félagsins. Hann viður-
kennir að þeir hafi orðið varir við
nokkra gagnrýni vegna þessa. „Við
teljum hins vegar að í þessari tíma-
setningu felist ákveðin tækifæri.
Við höfum verið að fækka vélum
hjá okkur og munar þar um heila
ATR-vél sem við vorum með í leigu.
Við getum því ekki sett upp jafn
rúma áætlun og á undanfomum
árum.“ Ámi segir að suma daga
muni Flugfélagið þó geta boðið upp
á kvöldflug i leiguflugi, en ekki sem
áætlunarflug. -HKr.
Brú í Hrútafirði:
Nýr kokkur
tók við eftir
áramótin
Enn sér ekki fyrir endann á deilu-
málum í kringum fyrrverandi veit-
ingamann í veitingaskálanum Brú í
Hrútafirði sem rekinn var fyrir ára-
mót. Skýrt skal tekið fram að málið
tengist á engan hátt núverandi veit-
ingamanni sem hóf þar störf í byrjun
janúar. Hann segist þó hafa orðið fyrir
því að lenda á milli tannanna á fólki
vegna umræðu um mál forvera síns.
Er nú reynt að lægja öldur í sveitinni
en íbúar hafa skipst í tvær fylkingar í
málinu.
í DV á laugardag var greint frá því
að tvær kærur hefðu borist vegna lík-
amsárásar Bjama Rafiis Ingvasonar á
stjómarformann Kaupfélags Hrútflrð-
inga og heilbrigðisfúlltrúann í Skaga-
firði. Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu á Hólmavík fyrir helgi var síðar-
nefnda málið sagt frágengið en það er
mun eldra. Það mun þó ekki vera rétt,
því heilbrigðisfulltrúinn, Sigurjón
Þórðarson, sem kærði fyrrverandi
veitingamann í júlí 2000, segist ekki
vita til að málinu sé lokið. Það mun
hafa snúist um að veitingamaðurinn
reyndi að koma í veg fyrir lögbundið
eftirlit og sló þá m.a. myndavél úr
höndum heilbrigðisfúlltrúans og hafði
í hótunum við hann. -HKr.
Smáauglýsingar
DV
550 5000
IC.US
Úrslit verða tilkynnt í helgarblaði DV,
laugardaginn 16. mars næstkomandi.
ICEIAND
rumlegasta
bónorðið
Baðstu hennar á undarlegum stað?
Baðst þú hans kannski á óvenjulegum tíma?
Bað hann þín með furðulegum hætti?
Kanntu skemmtilega sögu af frumlegu bónorði?
Taktu þátt í Brúðkaupsleik DV
á Brúðkaupssýningunni Já
í Smáralind helgina 8.-10. mars.
Skrifaðu bónorðssöguna niður, komdu við f DV-básnum
í Smáratind og settu hana f brúðkaupskassann, merkta
„Brúðkaupsteikur DV” og þú gætir unnið mat og dekur
íBláa lóninu ásamt gistingu á Suðurnesjum.