Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Blaðsíða 11
MIÐVKUDAGUR 6. MARS 2002 11 r>v Fréttir Eiríkur Tómasson um þá stöðu að dómþolar séu ekki lengur boðaðir í afplánun: Óviðunandi og ekki í sam- ræmi við mannréttindi - en alvarlegast, mannréttindabrot, að vista gæslufanga með afplánunarföngum Eiríkur Tómasson lagaprófessor segir þaö algjörlega óviðundi ástand í réttarríki eins og íslandi að dóm- þolar verði að bíða fram á haust til að verða boðaðir í afplánun eins og Fangelsismálastofnun hefur boðað vegna lokunar Hegningarhússins og deildar á Litla-Hrauni vegna spam- aðar. Þannig geti dómþolar ekki lok- ið að gjalda keisaranum sem keisar- ans er, jafnvel eftir langa og stranga málsmeðferð hjá lögreglu, síðan ákæruvaldi og einu til tveimur dómstigum. Eirikur segir þetta sennilega ekki brjóta i bága við ákvæði mannréttindasáttmála, hins vegar gildi lög um fymingu en slíkt gerist ekki fyrr en eftir langan tíma. Á hinn bóginn segir Eiríkur það hreint og klárt mannréttindabrot að saklaust fólk, það er þeir sem eru grunaðir um afbrot og hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, skuli vistað á Litla-Hrauni með afplánun- arfóngum. Réttur til hraða og sanngirni Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttarlögmaður bendir á að í dóms- málum hérlendis hafi gjaman komið fyrir að sakamenn hafi fengið vægari dóma en ella ef mál þeirra hafi tekið langan tíma. Raunar er það svo að í sumum tilvikum hefur mönnum ekki verið gerð refsing. Eiríkur tekur undir þetta en segir að þegar dómsmálum ljúki þá gildi ekki sömu ákvæði um hina hrööu málsmeðferð. „Þannig er, til dæmis með mann- réttindasáttmála Evrópu, þá er ein- ungis átt við hraða málsmeðferð fyrir lögreglu, ákæruvaldi og dómstólum," segir Eiríkur. „Eftir að dómur er fall- inn þá gildir ákvæðið ekki lengur. Auðvitað eru það mannréttindi að af- plánun verði lokið sem fyrst. En ég held ég kannist ekki við neitt mann- réttindaákvæði sem mælir fyrir um að það skuli gerast með skjótum hætti. Hins vegar er lagt bann við vanvirðandi refsingum og það eru fymingarákvæði í lögunum. En þar er um nokkuð langan tíma aö ræöa,“ segir Eiríkur. Enginn „afsláttur" - Er ekki bagalegt, á árinu 2002, að dómþolar þurfi að bíða jafnvel mun meira en hálft ár eftir að fá að hefja sína afplánun? „Jú, mér fmnst þetta algjörlega óviðunandi ástand i réttarríki," segir Eiríkur. - Gefur þetta tOefni tO að breyta eða lagfæra lög í þessum efnum? „Það má kannski segja aö aldrei verði hægt að girða fyrir að þetta komi fyrir, jafnvel mikd alda, ein stök sem menn ráða engan veginn við.“ - Er það þá ekki orðið íþyngjandi fyrir aðra? „Það er vissulega íþyngjandi fyrir skattborgarana. En það má segja að það séu mannréttindi að menn taki út sína refsingu sem fyrst. Þannig að þetta er óviðunandi ástand." - Nú hafa margir dómar gengið í málum þar sem málsmeðferð lög- reglu/ákæruvalds tók of langan tima þar sem sakbomingi var af þeirri ástæðu jafnvel ekki gerð refsing eða hún stytt? „Já, það em mörg dæmi um það, bæði hér hjá okkur og eins hefur mannréttindadómstódinn beitt fram- angreindri reglu.“ Okkur til vansa - Er niðurstaðan þá að dómþolar fá ekki „afslátt" af refsingu ef þeir þurfa að bíða fram eftir ári eftir að fá pláss hjá Fangelsismálastofnun? „Nei, en það er víða pottur brotinn Utla-Hraun Þar verður einni deild lokað í sumar. Þar er rými fyrir 22 fanga. Fangelsið á Skólavöröustíg Boðað hefur verið að því verði tokaö. Heimildir DV herma að unnið sé að því að koma í veg fyrir lokun í sumar. Þar eru 14-16 pláss fyrir fanga. Sólveig Pétursdóttlr. Jón Steinar Gunnlaugsson. í þessum fangelsismálum. Það er al- gjörlega óviðunandi að hér skuli ekki vera td sérstakt gæsluvarðhaldsfang- elsi. Það er mannréttindabrot. Það er brot á mannréttindasáttmála Samein- uðu þjóðanna um borgaraleg og stjómmálaleg réttindi. Gæslufangar eiga ekki að þurfa að una því að vera í sama fangelsi og þeir sem hafa ver- ið dæmdir. Það skeröir þeirra rétt- indi. Á meðan maður er í gæsluvarð- haldi hefur hann ekki verið dæmdur sekur. Það þarf því að hyggja að ýmsu. Því miður hafa fangelsismál hér á landi legið í láginni. Þetta er okkur tO vansa," segir Eirikur Tómasson. Nauðsynlegt að finna lausn Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra hefur lýst því yfir að stefnt sé aö því að reisa gæsluvarð- haldsfangelsi á höfuðborgarsvæð- inu. Hún sagði við DV í gær að hún telji að dómþolar á hinn bóg- inn eigi að geta tekið út afplánun eins fljótt og verða má. „Þetta er mikilvægt atriði og nauðsynlegt að við finnum lausn á þessu sem fyrst,“ sagði hún og benti á að verið væri að skoða hvemig hægt væri að grípa til vægari aðgerða. Samkvæmt heimddum DV hefur það verið rætt að halda Hegningarhúsinu opnu en loka einni dedd á Litla- Hrauni. Ottar Sveinsson blaðamaður Innlent fréttaljós „Það er ljóst að í ríkisrekstrin- um er víða við erfiðleika að etja,“ segir ráðherra. „í fangelsismálum hafa viðfangsefnin aukist mikið, meðal annars vegna þeirra sem hafa verið handsamaðir og dæmd- ir fyrir brot á flkniefnalöggjöfinni. Þetta er auðvitað þróun, það er þekkt að sveiflur verði með meiri fiölda fanga í fangelsum landsins. Þama er líka um að ræða gæslu- varðhaldsfanga sem þarf að vista. Því miöur er ekki búið að reisa nýtt gæsluvarðhaldsfangelsi á höf- uðborgarsvæðinu sem ég tel brýnt að verði gert. Það er mjög mikil- vægt að menn geti afþlánað sinn dóm eins fljótt og hægt er þannig að þeir geti hafið nýtt líf.“ - Er það hreinlega mögulegt án stóráfalla að boða ekki fanga í af- plánun í hálft ár? „Nei, þess vegna er ég að bregð- ast við þessu máli. Ég hef kynnt það sérstaklega í fjármálaráðu- neytinu þar sem það er í skoðun.“ 244 ára fangelsi En hvers vegna er svo komið að Fangelsismálastofnun fór 46 mOlj- ónir króna fram úr heimildum? Ein af meginástæðunum er sú að um 70 prósent af útgjöldum stofn- unarinnar er launakostnaður en hann jókst mjög á síðasta ári vegna kjarasamninga og sértekjur skiluðu sér ekki eins og skyldi. Einnig er ástæðan sú að meðal- talstala fanga var rúmlega 120 á síð- asta ári og hafði því aukist um 15 því um 106 fangar voru í fangelsum landsins dag hvem að meðaltali árið áður. Þau mál sem Fangelsismála- stofnun tók tO fullnustu á síðasta ári varðaði einstaklinga sem hlutu sam- tals 244,4 ára fangelsi miðað við 202 ár árið áður og 142 ár árið 1999. Þarna er greinOeg fjölgun á ferð. Eins og fram hefur komið eykst hlutfaO erlendra brotamanna á ís- landi - ekki síst i tengslum við fikni- efnamál og dómar sem kveðnir hafa verið upp í þehn málaflokki hafa þyngst. Svo örfá dæmi séu tekin er Hollendingur að afplána 9 ára dóm, Austurríkismaöur 12 ár og Breti er að afplána 7 ára dóm - aOir fyrir flkni- efnamál. Þrír austantjaldsmenn taka út styttri dóma fyrir auðgunarbrot og Nígeríumaður fyrir peningaþvætti þannig að flóra afbrotamanna stækk- ar inni á LiOa-Hrauni. Annað dæmi tO viðbótar þessu er að þónokkrir sitja inni í fangelsum landsins, ís- lendingar, með langa manndráps- dóma á bakinu. Aðeins þetta ætti að gefa einhverja mynd af því mynstri sem hefur verið að skapast í ís- lenskum afbrotaheimi - fleiri fang- ar með langtímadóma í fangelsum þar sem kröfur samfélagsins verða æ meiri. Og gleymum því ekki að síðustu tvö og hálft ár hafa 8 mann- dráp verið framin hér á landi þar sem fikniefni voru tengd ofbeldinu í 4 skipti. I tveimur þessara mála eiga þungir dómar eftir að ganga, jafnvel upp á samtals meira en 30 fangelsis- ár. Suzuki Baleno Wagon, ssk., skr. 6/99, ek. 26 þús. Verð kr. 1270 þús. Suzuki Baleno G, 4 d., bsk., skr. 7/97, ek. 51 þús. Verð kr. 740 þús. Subaru Legacy st. 2,0, ssk., skr. 5/97, ék. 94 þús. Verð kr. 1270 þús. Suzuki Jimmy JLX, 4x4, skr. 6/99, ek. 49 þús. Verð kr. 1040 þús. Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk., skr. 3/99, ek. 44 þús. Verð kr. 1290 þús. Suzuki Vitara JLX, 3d„ ssk., skr. 2/96, ek. 92 þús. Verð kr. 790 þús. Suzuki Wagon R+, 5 d., 4x4, skr. 5/00, ek. 8 þús. Verð kr. 1140 þús. Suzuki Swift GX 5 d. bsk., skr. 9/96, ek. 63 þús. Verð kr. 530 þús. VW Polo, 3 d„ ssk., skr. 1/99, ek. 79 þús. Verð kr. 790 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---✓///------------- SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, sími 568-5100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.