Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002
Landið
DV
Hornfirðingar sjá byggðaáætlun Valgerðar í öðru ljósi en margir aðrir:
Sjáum marga punkta
sem hægt er að nota
- segir Halldóra B. Jónsdóttir, formaður bæjarráðs í Hornafirði
DV-MYND SIGURDUR HJÁLMARSSON
F]öifygii
Þaö er góö aðsókn aö gnægtaborði
Þóru í Vík, fuglar á þakinu og snjó-
skaflinn krökkur. Innfellda myndin er
af Þóru Þorbergsdóttur.
„Við erum ekki eins grimm út í
þessa byggðaáætlun og víða hefur
verið og við sjáum marga punkta í
þessu sem hægt er að nota,“ sagði
Halldóra B. Jónsdóttir, formaður
bæjarráðs í Homafirði, í samtali við
DV í gær.
Byggðaáætlunin,
sem Valgerður
Sverrisdóttir iön-
aðarráðherra
lagði fram, kom
til umræðu á
fundi bæjar-
stjórnar Horna-
fjarðar. Halldóra
sagði að sam-
þykkt hefði verið
ályktun á fundinum um skoðun
bæjarstjórnar á þessari byggðaáætl-
un. I henni er að finna ýmis sömu
áhersluatriði og komu fram í álykt-
un frá fundi bæjarráðs í nóvember á
síðasta ári og má þar nefna eflingu
sveitarstjómarstigsins og fækkun
og stækkun sveitarfélaga, aukna
áherslu á uppbyggingu framhalds-
og símenntunar um land allt, sam-
göngubætur og hvemig megi jafna
aðstöðu fyrirtækja og íbúa í land-
Halldóra B.
Jónsdóttlr
í ályktun bæjarráðs segir: „Bæj-
arráð fagnar allri viðleitni sem
beinist að styrkingu atvinnulífs og
eflingu mannlífs á landsbyggðinni
og telur mörg atriði jákvæð í fram-
kominni byggðaáætlun. Bæjarráð
fagnar þeim áformum að ríkissjóð-
ur leggi 1000 milljónir kr. til ný-
sköpunarverkefna á landsbyggðinni
á árunum 2002-2005 og sérstaklega
minnt á uppbyggingu aðstöðu fyrir
frumkvöðlasetur í Nýheimum í
Hornafirði, þannig að hér hafa nú
DV-MYND EINAR ÓLAFSSON
Gæöastjórnun í skólum
Skólastjórnendur á Ströndum áttu
góöan fund og fengu ágæta ráögjöf,
ættaöa frá Skotlandi. Hér nærir
mannskapurinn sig milli funda.
Skólarnir á Ströndum:
Stefna að
öflugu sam-
starfi
í lögum um grunnskóla frá 1996
segir: Sérhver grunnskóli innleið-
ir aðferðir til að meta skólastarfið,
þar á meðal kennslu og stjórnun-
arhætti, samskipti innan skólans
og tengsl við aðila utan skólans.
Með þessi lög ráðuneytisins í
farteskinu funduðu skólastjórar og
kennarar grunnskólans á Hólma-
vík, Drangsnesi og Broddanesi um
sjálfsmat eða innra mat eins og
sumir vilja kalla það. Eða eins og
segir í Aðalnámskrá 1999: í sjálfs-
mati skal koma fram stefna og
markmið skóla, skilgreining á
leiðum til þess að ná þeim, grein-
ing á sterkum og veikum hliðum
skólastarfs og áætlun um úrbætur.
Var gerður góður rómur að
framsetningu Þóru Bjarkar Jóns-
dóttur frá skólaskrifstofu Skaga-
fjarðar og Rúnars Sigþórssonar frá
Háskólanum á Akureyri og ákveð-
ið að þetta litla skref sem stigið
var í liðinni viku yrði vísir að öfl-
ugu samstarfi skólanna í Stranda-
sýslu. -EÓ
DV-MYND JÚLÍA IMSLAND
Jákvæöir Homfiröingar
Hornfirðingar hafa ekki allt á hornum sér í garö verka Valgeröar Sverrisdóttur eins og gerst hefur annars staöar á
landinu. Myndin sýnirgóöa veöriö í Hornafirði í síöustu viku, minnismerkiö á Óslandi, rétt utan viö bæinn,
þar sem vel sést til skipaferöa.
þegar verið skapaðar aðstæður til
þátttöku í þessu verkefni."
Tekið er undir áherslur um efl-
ingu sveitarstjómarstigsins og
flutning verkefna. Þessar tillögur
falla vel að þeirri þróun sem átt hef-
ur sér stað í Austur-Skaftafellssýslu
með sameiningu sveitarfélaganna
reynsluverkefnum og þjónustu-
samningum og er mikill áhugi
sveitastjórnarmanna á Hornafirði
að halda áfram á þeirri braut.
Af sérstökum tillögum til aðgerða
lýsir bæjarráð áhuga sínum á þátt-
töku í verkefhum, svo sem eflingu
fiskeldis, en slíkt verkefni er í undir-
búningi af hálfu áhugamanna heima í
héraði. Áhugi er á verkefninu raf-
rænt samfélag en í því hefur talsverð
undirbúningsvinna farið fram undan-
farin ár, einnig verkefninu aukið
verðmæti sjávarfangs-líftækni. Skil-
yrði til þátttöku í því eru góð. Þátt-
taka í uppbyggingu ferðaþjónustu í
dreifbýli verður áfram á verkefna-
skrá. Bæjarráð Homafjarðar leggur
áherslu á að framkvæmd þeirra til-
lagna sem gerðar eru og eftirfylgni
með áætluninni sé þaö sem máli
skiptir varðandi árangur. -JI
Skátastarfsemi í Hornafirði endurvakin:
Skátar vígðir í fund-
arhúsinu í Lóni
DV-MYNDIR JÚLlA IMSUND
Frumbyggjar í fundarhúsi
Skátarnir í Frumbyggjum ásamt foringjunum Stefáni Loga og Margréti Völu.
Gamla fundarhúsið í Lóni fékk
nýtt hlutverk á fóstudaginn þegar
þar fór fram skátavígsla krakka í 4.
til 7. bekk Hafnarskóla. Engin
skátastarfsemi hefur verið á Höfn
síðan 1993 þar til í haust að þrír
ungir kennarar við Hafnar- og
Heppuskóla hafa endurvakið skáta-
félagið Frumbyggja og starfað með
krökkunum í vetur.
„Við erum með um 45 krakka í
heildina í 9 flokkum og það er mik-
ill áhugi hjá þeim,“ segir Stefán
Logi Sigurðsson skátaforingi, „og
við höfum skátafundi einu sinni í
viku. Einu sinni í mánuði er útivist-
ardagur og þá er ólmast úti í nokkra
klukkutíma og farið í leiðangra eða
útilegur og svo erum við farin að
undirbúa þátttöku á Landsmóti
skáta sem verður 16. júlí á Akur-
eyri. Mikill kostnaður fylgir því að
fara á landsmótið og það er búið að
skipuleggja fjáröflunarleiðir með
þátttöku krakkanna og aðstoð for-
eldranna. Einnig styrkja Menning-
arsjóður A-Skaftafellssýslu og bæj-
arfélagið okkur,“ segir Stefán Logi.
Þegar fréttaritari DV leit inn tU
nývígðu skátanna, sem gistu eina
nótt í fundarhúsinu, leyndi sér ekki
að þar var óskaplega gaman og
skátaforingjamir Stefán Logi og
Margrét Vala Gylfadóttir höföu
góða stjóm á sínu liði. Þriðji skáta-
foringinn, Heiðbjört Kristjánsdóttir,
var ekki á staðnum. -JI
Gefið smáfuglunum:
Með aragrúa
fugla og eina
mús í fæði
„Já, það er margt á fóðrum þessa
dagana," sagði Þóra Þorbergsdóttir í
Vík í Mýrdal þegar fréttaritari DV
tók þessa mynd í gærmorgun. Þóra
segist alltaf gefa fuglunum einu
sinni á dag þegar svona viðrar og
stundum tvisvar ef það er mjög kalt
í veðri. Þetta eru mest snjótittling-
ar, nokkrir skógarþrestir og stund-
um aUt upp í sex starrar. Svo er ég
með eina mús á fóðrum, hún kemur
á nóttunni og hirðir mola sem eftir
eru, hún er með holu hér undir hús-
veggnum hjá mér en hún var greini-
lega ekkert farin að hreyfa sig í
morgun, það var enn fennt fyrir hol-
una,“ sagði Þóra. Ástæða er tU að
hvetja almenning að fara að for-
dæmi Þóru og gefa smáfuglunum í
bjargarleysinu. -SKH
Næsta landsmót UMFÍ:
Bæjarstjórn
óttast kostn-
aðinn
Frjálsíþróttasamband íslands hefur
gengið i lið með Ungmennasambandi
Skagfirðinga og styður það heUshugar
að næsta Landsmót UMFÍ verði haldið
á Sauðárkróki. Boltinn er hins vegar
hjá sveitarstjóm Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, sem hefur ekki enn sem
komið er tekið máliö tU formlegrar
meðferðar. Svo virðist sem þar á bæ sé
ekki mikUl áhugi fýrir landsmótinu.
Gísli Sigurðsson fijálsiþróttafröm-
uður segir að menn viðurkenni ekki
áæUanir UMSS-manna um gerð frjáls-
íþróttavaUarins, eina mannvirkisins
sem vanti tU að halda landsmót. Hann
eigi að kosta innan við 60 mUljónir og
þar af komi 45 mUljónir frá ríkinu.
ísafjarðarbær sagði sig frá því að
halda landsmót. Ein gUd umsókn hefúr
borist í landsmótið 2004, frá Kópavogs-
bæ fyrir hönd UMSK. Skagfirðingar
hafa lagt inn umsókn, en hún öðlast
ekki gUdi fyrr en samþykkt liggur fyr-
ir frá sveitarstjóm. Landsmótsstaður
verður væntanlega ákveðinn á fundi
UMFÍ seint í þessum mánuði. -ÞÁ
DV-MYND JÚLÍA
Gamll-Hali
Hér veröur Þórbergssafn. Húsiö
þarfnast mikilla viögeröa og er unn-
iö aö undirbúningi þeirra.
Þórbergssetur
áHala
Hafinn er á fuUu undirbúningur að
stofnun Þórbergsseturs á Hala í Suður-
sveit, æskuheimUi Þórbergs Þórðar-
sonar. Þorbjörg Amórsdóttir á Hala
segir að gert sé ráð fyrir að stofna
sjálfseignarstofnun um setrið. Þama
verður sýningaraðstaða ásamt aðstöðu
fyrir fræðimenn sem þangað vUja
koma. Þórbergssetur verður tU húsa í
„Gamla-Hala“, húsinu sem Steinþór,
bóndi á Hala, bróðir Þórbergs, byggði.
Þar dvaldi Þórbergur gjarnan þegar
hann kom því viö sín seinni ár. -JI