Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002
37
ÐV
Tilvera
DV-MYNDIR OLGEIR
Nemendur og leikendur
Flosi Ólafsson, fyrir miöri mynd, ásamt aöstoöarfólki og ungum leikurum.
Lftagle&l
Mikiö var vandaö til búninga sem eru hinir skrautlegustu.
Danskur söngleikur um goðin settur upp í Reykholtsdal:
Sakleysið og leik-
gleðin í fyrirrúmi
- segir Flosi Ólafsson, leikstjóri og þýðandi
Kleppjárnsreykjaskóli, grunn-
skóli í Reykholtsdal í Borgarfiröi,
heldur upp á fertugsafmæli skólans
með ef til vill svolítið óhefðbundn-
um en sannarlega veglegum hætti
um þessar mundir. Nemendur og
kennarar skólans hafa ráðist í það
stórvirki að setja upp söngleik, sem
þýddur var úr dönsku af þessu til-
efni, Æsi og þursa. Við þetta njóta
þeir dyggrar aðstoðar Leikdeildar
Umf. Reykdæla sem býr yfir ríkri
reynslu á sviði áhugamannaleiklist-
ar og ekki síður hins góðkunna
Flosa Ólafssonar, leikara og leik-
stjóra. Flosa má auðvitað alveg eins
og ekki síður kynna til sögunnar
sem rithöfund, leikskáld, þýðanda,
skemmtikraft og hestamann - og,
eins og alþjóð veit, þá er stutt í
prakkarann þótt leikarinn sé „löngu
kominn á eftirlaun".
Flosi og eiginkona hans, Lilja,
fluttu búferlum úr Reykjavík og upp
í Borgarfjörð árið 1989 og settust að
í Reykholtsdal. Flosi á að verulegu
leyti ættir að rekja í Borgarfjörð.
Föðuramma Flosa, Guðlaug Þórólfs-
dóttir, var Borgfirðingur og sömu-
leiðis móðurafi hans, Oddur Bjarna-
son, einn af Hælsbræðrum, en það
má geta þess að Oddur var fæddur á
Hömrum í Reykholtsdal, næsta bæ
við Kleppjámsreyki, þar sem skól-
inn fertugi er. í móðurættina er
Flosi af Bergsætt og presthögna-
kyni.
Danskur söngleikur
Flosi og Lilja búa aö Bergi í Reyk-
holtsdal en eftir að þau fluttust
þangað hefur býliö löngum verið
nefnt Stóra-Aðalberg og í hlaðvarp-
anum hjá þeim, hinum megin þjóð-
vegarins, er félagsheimili Reyk-
dæla, Logaland, en þar verður söng-
leikurinn Æsir og þursar frumsýnd-
ur 7. mars nk.
Æsir og þursar er þýðing Flosa
Ólafssonar á dönskum söngleik, De
nordiske guder, eftir Bent
Kvæmdrup og er byggt á norrænu
goðafræðinni. Leikritið fjallar um
það þegar Freyr læðist upp i hásæti
Óðins, Hliðskjálf, þar sem hann sér
yflr allan heiminn. Afleiðingar þess
eru ósætti milli guða og þursa og
hefur það ófyrirsjáanlegar afleiðing-
ar í för með sér.
Guðlaugur Óskarsson, skólastjóri
Kleppjámsreykjaskóla, sá söngleik-
inn í Danmörku og fékk þá hug-
myndina að því að setja hann upp i
tilefni af afmæli skólans og fór þess
á leit við Flosa að hann þýddi söng-
leikinn og vélaði hann að auki til að
setja þetta upp líka, eins og Flosi
orðar það, en DV leit við á æfingu á
Ásum og þursum á dögunum.
Merkileg lífsreynsia
Þrátt fyrir langan feril á leik-
sviðinu er þetta í fyrsta sinn sem
Flosi vinnur með börnum. „Þetta
er einhver merkilegasta lífs-
reynsla sem ég hef farið í gegnum
á ævi minni! Það er gersamlega
heillandi að vinna með bömun-
um, mjög ólíkt því sem maður á
að venjast. Þama situr sakleysið
og leikgleðin í fyrirrúmi," segir
hann hátíðlega.
Um það hvemig gangi að stýra
hópnum svarar Flosi af sinni al-
kunnu hógværð að það þýði ekki
annað en spyrja að leikslokum en
prakkarinn á erfitt með að sitja á
sér: „Hvað er sagt um þá sem
slasast? „Líður vel eftir atvikum",
er það ekki?“ bætir hann við og
hlær sínum einstaka hrossahlátri.
Ögn alvarlegri bætir hann við: „Mér
fmnst að til hafi tekist furðu vel og
þó finnst mér einkanlega ástæða til
að geta þess að búningamir era al-
veg stórkostlegir. Það hefur
ekki
sést jafn heillandi litadýrð á leik-
sviði á íslandi fyrr eða síðar!“
Fetað í fótspor Wagners
Það fer ekki á milli mála að mik-
il vinna hefur verið lögð í leikmuni
og búninga. Þar hafa margir nem-
endur lagt hönd á plóginn en um-
sjón með þessum þætti hefur verið i
höndum Elísabetar Halldórsdóttur,
Guðrúnar Þórðardóttur og Sveins
Víkings. Við búningaliönnunina
voru guðimir aðgreindir með því að
hver fjölskylda fékk sinn lit. Þessir
skrautlegu búningar eru uppistaðan
í sviðsmynd
verksins. Ólaf-
ur Flosa-
son og Pét-
ur Hjalte-
sted sáu a
útsetn-
ingar og
upptökur á
tónlistinni
Leikstjorinn lel&beinlr
Fiosi Ólafsson, sem ei
þýöandi söngleiksins
og leikstjóri, sést hér
leiðbeina einum nem-
enda grunnskólans.
sem tekin var upp á geisladisk í
stúdíói Péturs.
„Það má geta þess að hér er fetað
í fótspor Ríkharðs Wagners með
efnisval. Þetta er úr fomnorrænu
goðafræðinni að efni til, um átökin
milli góðs og ills og hinar spaugi-
legu hliðar málsatvika í Ásgarði og
Jötunheimum." Flosi lýsir vinn-
unni með leikarahópnum þannig að
hún hafi í rauninni verið nákvæm-
lega eins og við mátti búast. „Þetta
er mjög erfitt vegna þess að maður
þarf að taka ýmsa hluti frá grunni
sem annars eru byggðir á reynslu,
þekkingu eða kunnáttu. Þetta eru
litlir krakkar sem eru með mismun-
andi einbeitingarhæfileika," segir
Flosi og prakkarinn situr á sér.
„Maður verður að spyrja að
leikslokum en að mínum dómi er
það alveg undravert hvað hefur ver-
ið hægt að gera úr þessu.“
Leikarar tæplega sextíu
Um eitt hundrað manns
koma að sýningunni í heild,
en leikararnir em um 60
talsins og allir nemendur
á Kleppjárnsreykjum.
„Állir sem vettlingi
geta valdið era í þessu.
Þetta er í sambandi
við 40 ára afmæli
skólans og það var
ákveðið að gera
þarna stórátak
sem á sér liklega
engin fordæmi í
allri íslenskri
skólasögu, að
ryðja upp stórum
söngleik um Æsi
og þursa úr goða-.
fræðinni. Ég á eft-
ir að sjá einhverja
feta í þessi fótspor.
Þetta er stórmerki-
legt átak hjá Gulla
skólastjóra," lýsir Flosi
yfir og segir að lokum:
„Eiginlega fannst mér í
upphafi að þetta væri
varla vinnandi vegur en
það hefur tekist og verð-
ur frumsýnt á morgun,
fimmtudaginn 7. mars.“
-OHR
wmý.'. m
•'í 8iff
m má
1 SS \ jfivwrm ww
MIÓV. 6. MARS. ! Z^UG. 9. IV IARS
Baab Uídalín BUTTERCUP Breiðinni
FlM 7 ENGLAR
Dægurlagahljómsv. & PLAST Sjallanum Akureyri
Stefáns Henryssonar Uídalín PAPAR Höllinni
| rCIS i „ cl. MARS ÍRAFÁR Sjáuarperlunni
BUFF Uídalín BUFF Uídaiín .
BSG -V Kaffi Reykjauík BSG íijorg.- ' Kaffi Reykjauík
HUNANG Players HUNANG Players ^ .
w w v/. p r o
fWSl !, 1X mnKíi.
PÁlt RÓS. ÍStórsýningin Af íífi 6 Sáf)
Hollmni
WSIÐNfS Uidalin
PftPAR Kaffi Reykjasík
HfttFl i HUQRU Players •
SSSól f|r R S, Sjallanum
KftRMft Sjáxarperlunstí
MIDNfS Uidalin
PftPftR Kaili Reykjavík
HÁlfT í HUORti Players :
aflfc