Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2002, Qupperneq 22
26
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2002
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_________________________________
Gíslíana Bjarnveig Bjarnadóttir,
Skjólvangi Hrafnistu, Hafnarfiröi.
85 ára_________________________________
Guöbjörg Andrésdóttir,
Gunnarsbraut 8, Búöardal.
80 ára_________________________________
Ingvar Guömundsson,
Ásabyggö 17, Akureyri.
75 ára_________________________________
Guörún Haraldsdóttir,
Álfhólsvegi 49, Kópavogi.
Jakobína Björg Jónasdóttir,
Túngötu 7, Hvanneyri, Borgarnesi.
Jóhanna Þórólfsdóttir,
Hólsvegi 4b, Eskifirði.
Kristín Þuríöur Jónasdóttir,
Tjarnarlundi 14a, Akureyri.
Þorvaldur Nikulásson,
Melateigi 17, Akureyri.
Þóra Þorsteinsdóttir,
Seltúni 10, Hellu.
70 ára ________________________________
1 Þórsteinn Sigurgeirsson,
■ * bóndi á Gautlöndum í Mý-
f _ J vatnssveit. Hann tekur á
móti gestum í Sel-Hóteli,
á. —■ L. Mývatni, fimmtudaginn
/llC’WW 28.3., skírdag, kl.
1 ^' 14.00-17.00.
Ásgeir Ásgeirsson,
Barónsstíg 29, Reykjavík.
Sigrún Kristinsdóttir,
Rauðalæk 67, Reykjavík.
Þorsteinn Sigurgeirsson,
Gautlöndum 1, Reykjahlíö.
60 ára_________________________________
Elsa Jónsdóttir,
Freyjugötu 24, Sauöárkróki.
Guöný Jónasdóttir,
Hraunbæ 102c, Reykjavík.
Jóhanna Kristín Kristjánsdóttir,
Víöilundi 8g, Akureyri.
Lars Magne Nygaard,
Túnbrekku 18, Olafsvík.
Sigrún Ragna Jónsdóttir,
Hverfisgötu 21, Reykjavík.
Steinunn ingimarsdóttir,
Hraunsholtsvegi 4, Garðabæ.
50 ára_________________________________
Berta K. Gunnarsdóttir,
Klausturhvammi 24, Hafnarfiröi.
Brynhildur Áslaug Egilson,
Bláskógum 2, Hveragerði.
Gísli Jónasson,
Ósabakka 17, Reykjavík.
Guðfinna Þorgeirsdóttir,
Jörfabakka 32, Reykjavík.
Jón Guðmundsson,
Baösvöllum 11, Grindavík.
Sigríöur Sigurbjörnsdóttir,
Gtýtubakka 10, Reykjavík.
Þorvaldur Egilson,
Holtsgötu 17, Hafnarfirði.
4.0 ára________________________________
Ámi Guðmundsson,
Stakkhömrum 14, Reykjavík.
Björn Grétar Ævarsson,
Sunnuflöt 17, Garðabæ.
Bragi Guðmundsson,
Stuðlabergi 54, Hafnarfirði.
Einar Heiöar Birgisson,
Sólvöllum lOb, Breiðdalsvík.
Elfa Björk Jóhannsdóttir,
Sunnuhlíð 6, Akureyri.
Gabriella E. Þorbergsdóttir,
Öldugötu 48, Hafnarfirði.
Gunnar Ingimarsson,
Ástúni 2, Kópavogi.
Kristinn Sigurgeirsson,
Vættagili 8, Akureyri.
Pétur Hafsteinn Stefánsson,
Flókagötu 66, Reykjavík.
Sigurður Vignir Siguröarson,
Kirkjuvegi 11, Selfossi.
Sigurlaug Sigrún Haröardóttir,
Grenigrund 4, Kópavogi.
Sokol Hoda,
Seilugranda 4, Reykjavík.
Andlát
Aöalbjörn Aöalbjörnsson, elli- og hjúkr-
unarheimilinu Grund, áður til heimilis á
Skólavörðustlg 24a, Reykjavík, lést
fimmtud. 21.3.
Ingiríöur Guömundsdóttir, fýrrum hús-
vörður Menntaskólans I Reykjavík, er
látin.
Kristin Jónsdóttir, Dalbraut 27, Reykja-
vík, lést á Landspítalanum Landakoti
föstud. 22.3.
Magnús Torfi Sighvatsson frá Ási í
Vestmannaeyjum, Grýtubakka 32, lést á
heimili sínu miðvikud. 20.3.
Lilja Knudsen Lárusdóttir, Garðavík 13,
Borgarnesi, áður til heimilis á Hofsvalla-
götu 17, Reykjavík, andaðist á Sjúkra-
húsi Akraness föstud. 22.3.
Margrét Sigurðardóttir, Hrafnistu,
Reykjavík, áöur í Hvassaleiti 58, lést
fimmtud. 21.3.
DV
Sjötíu og fimm nra
Guðbjörg Stella Haraldsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Guðbjörg Stella Haraldsdóttir
húsmóðir, Kleppsvegi 52, Reykjavík,
er sjötíu og flmm ára í dag.
Starfsferill
Stella fæddist í Kerlingadal i Mýr-
dal í Vestur-Skaftafellssýslu og ólst
upp í Kerlingadal til átján ára ald-
urs. Hún var í barnaskóla á Höfða-
brekku og í Vík í Mýrdal og stund-
aði nám við Kvennaskólann á
Varmalandi I Borgarfirði 1947-18.
Stella starfaði á veitingastofu áð-
ur en hún gifti sig og vann á sauma-
stofu Últíma í Reykjavík 1946-53.
Hún var húsmóðir á Borðeyri við
HrútaQörð 1953-81 er hún flutti til
Reykjavíkur. Þar starfaði hún í
matvælaiðnaði á árunum 1982-94.
Stella var formaður Kvenfélags-
ins Iðunnar i Bæjarhreppi 1975-81,
var formaður Kvenfélagasambands
Strandasýslu 1970-79, var einn af
stofnendum Alþýðubandalagsfélags
Bæjarhrepps og nágrennis og for-
maður þess frá stofnun og sat í
sveitastjóm Bæjarhrepps 1978-81.
Fjölskylda
SteUa giftist 9.5. 1953 Jónasi Ein-
arssyni, f. 25.6. 1924, d. 19.8. 1995,
kaupfélagsstjóra Kaupfélags Hrút-
firðinga á Borðeyri. Hann var sonur
Einars Elíserssonar og Pálínu
Bjömsdóttur er bjuggu í Óspaks-
staðaseli í Hrútafirði.
Börn Stellu eru Aðalsteinn Þor-
kelsson, f. 26.1. 1955, verkamaður,
var í sambúð með Margréti Trausta-
dóttur og eiga þau eina dóttur auk
þess sem hann á fósturson; Harald-
ur Jónasson, f. 1.4. 1956, rafmagns-
verkfræðingur í Reykjavík en kona
hans er Helga Gísladóttir, f. 19.5.
1957, kennari; Guðlaug Jónasdóttir,
f. 31.5. 1958, bókari í Reykjavík og á
hún tvö börn en maður hennar er
Halldór R. Lárusson, f. 22.12. 1957,
auglýsingateiknari; Þórey Jónas-
dóttir, f. 9.5. 1961, skrifstofustjóri
hjá Vimeti í Borgamesi en maður
hennar er Þór Jónasson, f. 9.5. 1961,
kennari og eiga þau fjögur böm;
Silja Jónasdóttir, f. 1.4. 1972, dag-
móðir í Borgamesi og á hún tvo
syni en maður hennar er Ólafur Þ.
Eggertsson, f. 4.3.1968, er starfar hjá
Vegagerð ríkisins í Borgamesi.
Systkini Stellu: Skarphéðinn Har-
aldsson, f. 21.4. 1916, d. 7.3. 1998,
kennari og listmálari í Reykjavík en
kona hans var Sigurlína Ingimund-
ardóttir, f. 1.9. 1917, húsmóðir;
Tryggvi Haraldsson, f. 25.2. 1918, d.
25.2. 2000, póstfulltrúi í Reykjavik
en kona hans var Svava Hjaltadótt-
ir, f. 30.11. 1925, húsmóðir; Guðrún
Haraldsdóttir, f. 31.7. 1922, húsmóð-
ir i Reykjavík en maður hennar er
Bjami G. Bogason, f. 8.1.1907, fyrrv.
sjómaður og verkamaður; Andrés
Haraldsson, f. 12.5.1925, bifvélavirki
í Reykjavík en kona hans er Kol-
brún Þorvaldsdóttir, f. 16.6. 1930,
sjúkraliði.
Foreldrar Stellu voru Haraldur
Einarsson, f. 12.7. 1888, d. 20.9. 1971,
bóndi í Kerlingadal og síðan verka-
maður í Vik í
Mýrdal, og Guð-
laug Stefanía
Andrésdóttir, f.
14.3. 1892, d. 19.3.
1985, húsfreyja.
Ætt
Haraldur var
sonur Einars, b. á
Heiði og frumbýl-
ings og veitinga-
manns í Vík í
Mýrdal og báta-
formanns Hjalta-
sonar, hrepp-
stjóra í Skamma-
dal og í Suður-
Götum Einars-
sonar, b. í Berja-
neskoti Jóhanns-
sonar. Móðir
Hjalta var Ragnhildur Jónsdóttir
ljósmóðir. Móðir Einars var Tala,
dóttir Runólfs Sigurðssonar og Ing-
veldar Jónsdóttur.
Móðir Haralds var Ingibjörg Sig-
urðardóttir, b. á Giljum Ámasonar,
b. þar Jónssonar. Móðir Sigurðar
var Björg Einarsdóttir. Móðir Ingi-
bjargar var Anna Gísladóttir, b. í
Eystri-Tungu Gislasonar, og Hall-
dóru Oddsdóttur.
Guðlaug Stefanía var dóttir Andr-
ésar, b. í Kerlingadal Andréssonar,
b. þar Andréssonar, b. í Fjósum
Brandssonar. Móðir Andrésar og
kona Andrésar i Fjósum var Oddný
Jónsdóttir. Móðir Andrésar Andrés-
sonar yngra var Ingveldur Áma-
dóttir, b. í Kerlingadal Klemensson-
ar. Móðir Ingveldar var Helga Þor-
steinsdóttir, systir Bjama Thor-
steinssonar, amtmanns á Amar-
stapa, föður Áma, bæjar- og landfó-
geta í Reykjavík og Steingríms
skálds.
Móðir Guðlaugar Stefaníu var
Guðríður Þorsteinsdóttir, b. í Kerl-
ingadal Ámasonar, bróður Ingveld-
ar. Móðir Guðriðar var Guðrún
Þórðardóttir, pr. á Felli í Mýrdal
Brynjólfssonar, og Sólveigar Sveins-
dóttur.
Stella verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Attræður
Hjálmar Jónsson
húsamálari
Hjálmar Jónsson málari, Hraun-
bæ 103, Reykjavík, er áttræður í
dag.
Starfsferill
Hjálmar fæddist í Stóra-Holti í
Holtshreppi í Skagafirði og ólst þar
upp. Hann flutti til Reykjavíkur
1945 og hóf nám í húsamálun ári
síðar hjá Hákoni I. Jónssyni mál-
arameistara. Hjálmar lauk iðnskóla-
og sveinsprófi vorið 1950.
Hjálmar vann við húsamálun í
Reykjavík til 1956 en það ár réðst
hann til starfa hjá Mælingastofu
málara er þá var nýstofnuð. Hann
starfaði þar í tuttugu og þrjú ár
samfellt en starfaði síðan hjá bygg-
ingardeildar Reykjavíkurborgar síð-
ustu sjö starfsárin.
Hjáímar hefur sinnt ýmsum fé-
lags- og stjórnarstörfum er tengjast
málarastarfinu. Hann gekk í MSFR
1950, var ritari stjómar 1951-52 og
1956, ritari 1955 og 1970, varafor-
maður 1957-62 og formaður 1979-81.
Hann var fulltrúi á þingum SSB
1951-56, í verðskrárnefnd 1962-67, i
ritnefnd félagstíðinda MFR 1963-67
og átti auk þess sæti í trúnaðar-
mannaráði og samninganefndum.
Hann var eftirlitsmaður málarafé-
laganna í Reykjavik 1953-54 og mæl-
ingafulltrúi sömu félaga 1954-79.
Hjálmar var sæmdur þjónustu-
merki MMFR 1978 og gullmerki
MFR 1982.
Hjálmar starfaði með Ungmenna-
félagi Holtahrepps á yngri ámm, er
einn af stofendum íþróttafélags i Ár-
bæjarhverfi árið 1967 en félagið
hlaut þá nafnið Knattspymufélag
Seláss og Árbæjarhverfis en í dag
heitir félagið Iþróttafélagið Fylkir.
Hann var í stjórn félagsins í átta ár
og þar af formaður í fimm ár.
Hjálmar tók einnig þátt í stofnun fé-
lags eldri borgara í Reykjavik og ná-
grenni og sat i stjóm og varastjóm
félagsins 1986-92.
Fjölskylda
Fyrri kona Hjálmars var Ásta
Jónsdóttir, f. 22.6. 1920, húsmóðir,
þau skildu. Foreldrar hennar voru
Jón Jósepsson, bóndi á Minni-
Reykjum í Flókadal í Vestur-Fljót-
um, og k.h., Herdis Bjarnadóttir.
Hjálmar kvæntist 1950 seinni
konu sinni, Stefaníu Guðrúnu
Guðnadóttur, f. 17.10. 1926, húsmóð-
ur. Foreldrar hennar voru Guðni
Kristinn Þórarinsson, sjómaður og
bóndi, og s.k.h., Jóhanna Ragnheið-
ur Jónasdóttir húsfreyja en þau
bjuggu lengst af á Hofsósi.
Sonur Hjálmars og Ástu: Herbert,
f. 12.7. 1944, starfsmaður Rafmagns-
veitu ríkisins á Dalvík en kona
hans er Guðrún Skarphéðinsdóttir
húsmóðir og eiga þau fimm böm.
Böm Hjálmars
og Stefaníu Guð-
rúnar: Jón Ingi, f.
22.11. 1950, tré-
smiður í Kópa-
vogi en kona
hans er Svanhvít
Jónsdóttir, hús-
móðir og eiga
þrjár dætur;
Elva, f. 24.12.
1951, kennari í
Reykjavík og á
hún þrjú böm;
Þráinn, f. 12.1.
1956, bóndi á
Hríshóli á Barða-
strönd en kona
hans er Málfríð-
ur Vilbergsdóttir,
húsmóðir og
sjúkraliði en þau
eiga þrjú böm á
lífi; Stefán Ragn-
ar, f. 9.5. 1957,
byggingatæknifræðingur í Reykja-
vík, maki Edda Sóley Óskarsdóttir,
húsmóðir og meinatæknir og eiga
þau þrjú börn; Guðný, f. 3.8. 1958,
leikskólakennari í Reykjavík en
maður hennar er Ellert Ingason
skrifstofustjóri og eiga þau eina
dóttur auk þess sem Guðný á einn
son frá þvi áður.
Hálfbræður Hjálmars, sam-
mæðra: Benedikt Bergsson, f. 18.10.
1913, d. 19.12. 1943, hann vann við
landbúnaðarstörf; Guðmundur
Bergsson, f. 2.6. 1915, bóndi að
Hvammi í Ölfusi en kona hans er
Þrúður Sigurðardóttir húsfreyja.
Hálfbróðir Hjálmars, samfeðra:
Ólafur, f. 5.5. 1932, nú látinn, skóla-
stjóri í Gaulverjabæjarskóla en eft-
irlifandi eiginkona hans er Þórveig
Sigurðardóttir kennari.
Foreldrar Hjálmars voru Jón
Jóakimsson, f. 1.10. 1890, d. 31.10.
1972, bóndi, og Guðný Benedikts-
dóttir, f. 27.5. 1891, d. 7.8. 1927, hús-
móðir. Fósturmóðir Hjálmars: Ingi-
björg Amgrímsdóttir, f. 5.8. 1887, d.
1977, húsmóðir.
Hjálmar verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Benedikt Eiríksson
vélfræðingur, Fellsási 12a,
Mosfellsbæ, er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Benedikt fæddist í
Reykjavík. Hann missti
ungur móður sína og ólst
upp hjá móðurforeldrum
sínum á Frakkastíg 12 og
síðar á Smáragötu 10 hjá
móðursystrum sinum, Kristínu
Ingimundardóttur
hárgreiðslumeistara og
Steinunni Ingimundar-
dóttur, gjaldkera hjá
Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar.
Benedikt stundaði nám í
Verslunarskóla íslands og
lærði síðar jámsmíðar í
Vélsmiðju Kristjáns
Gíslasonar og Iðnskólanum
í Reykjavik. Að því loknu
fór Benedikt í vélstjóranám og
útskrifaðist frá Vélskóla Islands 1960.
Benedikt var vélstjóri og
yfirvélstjóri á skipum Eimskipafélags
íslands til 1979 en fór þá í land. Hann
starfaði á Vélaverkstæði Sigurðar
Sveinbjömssonar, var verkstjóri hjá
Stálveri hf. og Vélsmiðju Kristjáns
Gíslasonar. Benedikt er nú
starfsmaður hjá Sjóvá-Almennum.
Benedikt hefur starfað í
Oddfellowreglunni um árabil.
Fjölskylda
Benedikt er tvíkvæntur. Seinni
kona Benedikts var Eygerður
Pétursdóttir, f. 30.6.1942, d. 27.12.1989,
starfsmaður Prentsmiðjunnar
Gutenberg. Foreldrar hennar: Pétur
Guðmundsson, f. 1903, d. 1971,
heilbrigðisfulltrúi Kópavogs-
kaupstaðar, og k.h., Ásta
Davíðsdóttir, f. 1912, nú látin,
húsmóðir.
Böm Benedikts og Eygerðar: Pétur,
f. 18.12. 1963, rafvirki, maki Guðrún
Ingólfsdóttir skrifstofumaður;
Guðrún, f. 23.4.1965, lögreglumaður.
Hálfbróðir Benedikts, samfeðra:
Jóhannes Eiríksson, f. 23.3. 1938,
prentari og leigubifreiðastjóri, maki
Bergljót Guðjónsdóttir, þau eru búsett
í Reykjavík og eiga þrjár dætur.
Foreldrar Benedikts: Eiríkur
Narfason, f. 1894, d. 1970, sjómaður, og
Guðrún Ingimundardóttir, f. 1907, d.
1935, húsmóðir, en þau bjuggu í
Reykjavík.
Sjötugur
Benedikt Eiríksson
vélfrædingur í Mosfellsbæ