Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2002, Blaðsíða 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2002_________________________________________________________________________________________________
DV_____________________________________________________ Útlönd
Karl ríkisarfi í Bretlandi minnist drottningarmóðurinnar:
Stórkostlegasta amma
sem hægt var aö eiga
Karl ríkisarfi á Bretlandi minnt-
ist nýlátinnar ömmu sinnar, drottn-
ingarmóðurinnar, á afar hlýjan og
tiiíinningaþnmginn hátt í sjónvarpi
í gær. Drottningarmóðirin lést í
svefni síðdegis á laugardag, með
dóttur sína, Elísabetu drottningu,
sér við hlið. Hún var 101 árs.
„Hún var mér afar mikils virði.
Ég hafði kviðið fyrir þessari stundu
en ég hélt einhvem veginn að hún
myndi aldrei renna upp,“ sagði
prinsinn. „Hún var einfaldlega stór-
kostlegasta amma sem maður gat
hugsað sér og ég var mjög hændur
að henni.“
Kista drottningarmóður verður
flutt frá All Saints kapellimni í
Windsor til Drottnmgarkapellunnar
í London í dag. Á fóstudag fer kist-
an svo þaðan á fallbyssuvagni til
Westminster Hall þar sem hún mun
REUTERSMYND
Drottnlngarmóðurinnar mlnnst
Mikill fjöldi blóma og annarra gripa hefur veriö lagöur viö heimili drottningar-
móöurinnar í London og Wihdsor frá því hún andaöist á laugardag, 101 árs.
liggja á viðhafnarbörum. Embættis-
menn hirðarinnar gera ráð fyrir að
allt að fjögur hundruð þúsund
manns muni ganga fram hjá kistu
drottningarmóðurinnar þar tU útfór
hennar verður gerð frá Westminster
Abbey, með tilheyrandi pompi og
pragt, á þriðjudag í næstu viku.
Drottningarmóðir verður síðan
jarðsett í Windsorkastala, við hlið
eiginmanns sins Georgs konungs
sjötta sem lést 1952.
Fallbyssur um gjörvallt Bretland
skutu heiðursskotum tU að minnast
drottningarmóðurinnar og hundruð
manna söfnuðust saman fyrir utan
heimUi hennar, bæði í London og í
Windsorkastala, og lögðu blóm á
jörðina tU heiðurs hinni látnu.
Drottningarmóðim var vinsælust
í konungsfjölskyldunni og tókst að
halda henni saman í sjö áratugi.
Colin Powell
Bandaríski utanríkisráöherrann vill
meiri samvinnu frá Júgóslavíu.
Ákvörðun um að-
stoð var f restað
Colin PoweU, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, frestaði í gær að
taka lokaákvörðun um hvort stjóm-
völdum í Júgóslavíu verði veitt sú
aðstoð sem þau eiga eftir að fá á
þessu ári þar tU í ljós kemur hvort
þau verði samvinnuþýöari við
stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna.
Ríkisstjóm Júgóslavíu, sem óttast
mjög afleiðingamar ef aðstoðin
verður fryst, lýsti í gær yfir fuUum
stuðningi sínum við stríðsglæpa-
dómstólinn og sagði að fleiri gran-
aðir stríðsglæpamenn yrðu fram-
seldir þangað.
REUTERSMYND
Knattspyrnumenn á sígarettupókkum
Suöur-Kóreubúar búa sig nú í óöaönn undir aö hálda heimsmeistaramótiö í knattspyrnu í sumar. Þeir ganga meira aö
segja svo langt aö skreyta sígarettupakka meö myndum af knattspyrnumönnum. Tíu milljónir pakka af svokölluöum
heimsmeistarakeppnisígarettum veröa boönar til sölu á meöan á keppninni stendur. Sígaretturnar veröa seldar í frí-
höfnum, gistihúsum og öörum stööum sem feröamenn venja komur sínar á.
Tylö - vatnsgufuklefar
Sérpöntum
vatnsgufuklefa
eftir þinum óskum.
Sænsk gæðavara.
Komið við eða
pantið myndalista
hjá okkur.
VATNS VIRKINN ehf
Ármúla 21,108 Reykjavík
s. 533-2020, www.vatnsvirkinn.is
Hako hreinltiL'li
Meintur foringi Al-Qaeda í
haldi Bandaríkjamanna
Maður sem grunaöur er um að vera
einn æðsti foringi i al-Qaeda-samtök-
um Osama bin Ladens og handtekinn
var i Pakistan í síðustu viku hefur nú
verið afhentur bandarískum stjóm-
völdum og verður væntanlega fluttur
til Guantanamo-herstöðvarinnar á
Kúbu til frekari yfirheyrslu.
Maðurinn er talinn vera Abu Zu-
baydah, Sádí-Arabi af palestínskum
uppruna, úr innsta hring al-Qaeda-
samtakanna og grunaður um að vera
heilinn á bak við hryðjuverkaárásim-
ar í Bandaríkjunum þann 11. septem-
ber sl.
Hann er einnig talinn búa yfir vit-
neskju um allt hryðjuverkanet sam-
takanna og jafhvel felustað Osama bin
Ladens og er því feitasti bitinn sem
Bandarikjamenn hafa klófest til
þessa.
Að sögn talsmanna bandaríska
hersins var meintur Zubaydah hand-
tekinn eftir árás öryggissveita skip-
aðra pakistönskum og bandarískum
Osama bln Laden
Abu Zubaydah, meintur samstarfsmaöur
Osama bin Ladens úr innsta hring al-
Qaeda-samtakanna, var handtekinn i
Pakistan á miövikudaginn og er nú í
haldi Bandarikjamanna.
liðsmönnum, á bækistöð al-Qaeda-liða
sem njósnir bárust um í bænum
Faisalabad á miðvikudaginn og mun
hann hafa særst þremur skotsárum
þegar hann reyndi að flýja af hólmi
ásamt að minnsta kosti tiu félögum
sínum. í kjölfar aðgerðanna voru um
sextíu manns handteknir, þar af 29
grunaðir liðsmenn al-Qaeda-samtak-
anna og talibana.
Zubaydah er talinn hafa staðið að
skipulagningu fleiri aðgerða al-Qaeda
gegn bandarískum hagsmunum, þar á
meðal fyrirhuguðum árásum á flug-
völlinn í Los Angeles og Radison SAS-
hótelið i Amman í Jórdaníu, en í báð-
um tilfellum komst upp um ráða-
gerðimar áður en til þeirra kom. Þá
er hann grunaður um að hafa skipu-
lagt árásir á bandarísku sendiráðin í
París og Sarajevo eftir árásimar í
Bandaríkjunum þann 11. september.
Árið 2000 var hann dæmdur til
dauða í Jórdaníu fyrir samsæri um
hryðjuverkum í landinu.
Hako Hamster 780
Fyrirferðalítill
en öflugur
rafknúinn sópur.
Afkastageta allt
að 3,200m2/klst.
...bœtir imytid þina
y KRAFTVÉLAR
Dalvegur 6-8 • 200 Kópavogur • Sími 535 3500 • Fax 535 3501 • www.kraftvelar.is