Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2002, Blaðsíða 15
14
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2002
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2002
27
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jðnsson
Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aðstoðarritstjórí: Jónas Haraldsson
Fréttastjórí: Birgir Guömundsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyrí: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtðl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Nauðsyn friðargœslusveita
Páskahátíðin, helgasta hátíð kristinna manna, hefur
verið blóðug i Mið-Austurlöndum. Ástandið er stjórnlitið
og vonir um vopnahlé fyrir tilstuðlan samningamanna
Bandaríkjastjórnar horfnar út í veður og vind. Sjálfs-
morðsárásir herskárra Palestínumanna hafa drepið tugi
ísraela um páskana og sært meira en eitt hundrað. Árás-
imar hafa leitt til þess að ísraelsk stjómvöld hafa sótt
fram af enn meiri hörku en áður gegn Palestínumönnum
og ekki verður annað séð en þeir stefni að algjöm her-
námi palestínsku heimastjórnarsvæðanna. Sharon, for-
sætisráðherra ísraels, sagði í sjónvarpsávarpi til þjóðar
sinnar að ísraelska þjóðin væri í stríði gegn hryðjuverka-
mönnum og hætti ekki fyrr en þeir hefðu verið rifnir upp
með rótum.
Ástandið á svæðinu verður sífellt ógnvænlegra. ísraelsk
stjómvöld beita her sínum af fádæma hörku og hafa ein-
angrað og umkringt Arafat Palestínuforseta í skrifstofúm
sínum í RamaUah. Þau kenna honum um sjálfsmorðsárás-
imar í ísrael, hann sé óvinurinn. Ekki liggur fyrir hvort
ísraelar ætla sér að hrekja Palestínuforseta í útlegð en
nánustu stuðningsmenn forsetans óttast um líf hans við
þessar aðstæður. Meðan Arafat náði simasambandi úr
búðum sinum ræddi hann við þjóðarleiðtoga og kallaði
eftir alþjóðlegri aðstoð til þess að koma i veg fyrir frekara
hernaðarlegt ofbeldi gegn palestínsku þjóðinni.
Óþolandi er fyrir ísraelska borgara að búa við þá ógn
og skelfingu sem fylgir sjálfsmorðsárásunum. Þær árásir
eru hryllilegar, beinast gegn óbreyttum borgurum, börn-
um jafnt sem fúllorðnum. ísraelsk alþýða ætti þó að lita
sér nær i reiði sinni og skelfmgu. Þarlendir kjósendur
kusu yfir sig herskáa stjóm undir forystu Sharons, for-
ystu sem hefur stigmagnað átökin á svæðinu. Alþjóðasam-
félaginu ofbýður harðræðið sem ísraelsher beitir palest-
ínska nágranna. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti nú um páskahelgina ályktun um það að ísraelar
skyldu kveðja herlið sitt burt frá palestínskum bæjum,
þar á meðal Ramallah. Athygli vakti að Bandaríkjamenn
beittu ekki neitunarvaldi eins og venja er til þegar ísrael
er gagnrýnt heldur voru meðal þeirra þjóða sem stóðu að
ályktuninni.
Vegna ótrúlegrar hörku í garð Palestinumanna standa
ísraelsmenn vinafáir eftir. Egyptar og Jórdanir, þau tvö
arabariki sem hafa átt friðsamleg samskipti við ísrael um
áratugaskeið, hafa hótað að reka sendiherra ísraels frá
Kairó og Amman verði israelski herinn ekki kallaður frá
Ramallah. Rikin tvö krefjast þess að ísraelar vinni Arafat
ekki mein. Þá hafa utanríkisráðherrar arabaríkjanna sak-
að ísraela um það að draga riki Mið-Austurlanda út í
stríð.
Óhætt að taka undir fordæmingu íslenskra stjórnvalda
á hörkulegum hemaðaraðgerðum ísraela. Hérlend stjóm-
völd hafa krafist þess að ísraelar hverfi með her sinn frá
herteknu svæðunum. Haft hefúr verið eftir Halldóri Ás-
grímssyni utanríkisráðherra að aðgerðimar gegn Arafat
hljóti að hafa mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér.
í þessari stöðu er horft til Sameinuðu þjóðanna.
Arabaríkin hafa skorað á Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna að veita Palestínumönnum vemd. Á fundi ráðsins í
gær var rætt um alþjóðlegar friðargæslusveitir, nái stríð-
andi aðilar ekki saman. Margir þjóðarleiðtogar hafa lýst
yfir stuðningi við að senda slikar sveitir á vettvang enda
virðist önnur leið ekki fær til þess að ná tökum á ástand-
inu. Slíkt gerist þó ekki án atbeina Bandaríkjamanna
enda tjónka varla aðrir við hið herskáa Ísraelsríki.
Jónas Haraldsson
15V
Skoðun
Trú, von og blekking
Þaö hefur stöku
sinnum gerst að skáld-
verk sem ég fékk í
hendur hefur tekið
hug minn svo fanginn
að ég lagði það ekki
frá mér fyrr en ég
hafði lesið það til
enda. Gerpla, Fljótt,
fljótt sagði fuglinn,
Tómas Jónsson met-
sölubók, svo aðeins
séu nefndar þrjár bæk-
ur sem ég varð að
ljúka við áður en hugs- —
anlegt væri að snúa sér
Þetta eru ákaflega ólík
Haraldur
Ólafsson
prófessor
að öðru.
verk og
nokkum veginn ómögulegt að fmna
þeim annan samnefnara en þann að
þau vöktu áhuga minn.
Fleiri verk gæti ég nefnt en læt
þessi nægja til að sýna hvemig ólík-
ar bókmenntir höfða til min. í vetur
bættist enn eitt verkið við. Yfir
Ebrófljótið eftir Álfrúnu Gunnlaugs-
dóttur er verk sem ég get ekki lýst
nema með orðinu stórbrotið. Þetta er
saga af manni, hugsjón hans og efa,
og reynslu sem hann kannski áttar
sig aldrei á til fulls. En það er líka
saga um átök um hugmyndir um rétt
og rangt, leik stjómmálamanna
og blekkingu samtímans.
Víglínan um hug og hjörtu
Spánarstyrjöldin er stundum
kölluð undanfari heimsstyrjEild-
arinnar síðari, lokaæfing. Menn
trúðu því raunverulega þá að
hægt mundi að skapa nýja ver-
öld, nýtt samfélag þar sem mann-
eskjan væri í öndvegi, þar sem
ekki ríkti ótti og örbirgð, styrj-
aldir og svik. Því var trúað að út-
rýma mætti hinu illa, með því að
— verjast því eða ráöast gegn því.
Kannski einkenndust þessir tímar af
of miklu sakleysi. Menn störðu blá-
eygir á verkamannaríkið í austri.
Roðinn í austri boðaði daginn sem
var að rísa. Óttinn við fasismann og
nasismann var þó óþægilega raun-
verulegur og bjargráðið var að berj-
ast gegn þessum sigursælu hug-
myndum. Að veija spænska lýðveld-
ið var að verja heiminn fyrir hinu
illa. Með byssu í hönd skyldi fram-
rásin stöðvuð, og nýr heimur reistur
á rústunum.
Verk Álfrúnar fjallar um örlög ein-
staklings en eins og öll meiriháttar
skáldverk er þama líka sögð saga ör-
lagaríkra atburða. Víg-
línan lá um hug og
hjörtu fólksins. Alltof
margir vora neyddir til
að taka afstöðu, knúðir
til að lýsa yfir stuðningi
viö annan hvom hinn
brúna eða rauða. Það
eru ætíð sigurvegaramir
sem meta hver hafi valið
rétt, og sigurvegaramir
lita með fyrirlitningu á
þá sem neituðu að velja,
komu sér undan að
skipa sér í sveit. Það er
harmleikur samtímans
að enn segir valdamesti
maður heims að sá sem
ekki sé með sér sé á móti
sér. Með öðrum orðum:
Þú skalt taka afstöðu
með eða móti. Það þýðir
ekkert fyrir þig að vera
með einhverjar vanga- ............
veltur og sérskoðanir. Það er til rétt
og rangt, og ég veit hvað er rétt.
Langt bak við orðin
Enn er ég, og kannski einhveijir
aðrir aðrir, auðtrúa og saklaus. Ég
trúi ekki að stríö leysi neinn vanda,
„Yfir Ebrófljótið eftirÁlfrúnu Gunnlaugsdóttur er
verk sem ég get ekki lýst nema með orðinu stór-
brotið. Þetta er saga af manni, hugsjón hans og
efa, og reynslu sem hann kannski áttar sig aldrei á
til fulls. Á sögusviðinu; Ebrófljótið í vexti.
ég trúi því ekki að mannvíg og eyði-
legging stöðvi hið iila né ryðji hinu
góða braut. Ég trúi því hins vegar að
meðan rituð eru merkilegt bók-
menntaverk, skrifuð merkileg tón-
list, búin til merkileg myndverk,
meðan menntir og listir fá að
blómstra, meðan ein-
hverjir þrá fegurð og
samræmi, þá sé von til
þess að mannkynið láti
af að styijöldum og
fjöldamorðum sem eiga
að tryggja öryggi ein-
hvers.
Það er alls ekki auð-
velt að neita að taka af-
stöðu með eða móti. Það
er svo auðvelt að skipta
heimninum í tvennt og
segja: Veldu annan hvom
kostinn, hinn þriðji er
ekki til. Hinn ægilegi
lærdómur hins heita
stríðs sem hófst með
Spánarstyrjöldinni og
lauk með kjamorku-
sprengjunni í Hírósíma,
og hins kalda stríös sem
tók við, er hve orð og
hugtök era afskræmd í
þeim tilgangi að villa um fyrir
fólki.“Hugstola mannfiöldans vitund
og vild er villt um og stjórnað af fám“,
sagði Stephan G. Álfrún sér langt bak
við orðin og skynjar örlög einstak-
lingsins í veröld glataðrar æsku.
Haraldur Ólafsson
EES sem efnahagsbandalag
Nýlega sögðu um 90% íslendinga í
skoðanakönnun að þeir vildu láta
kanna hvað okkur stæði til boða í
sambandi við hugsanlega inngöngu
okkar í Evrópusambandið eða ESB.
Þetta hefur valdið fiaörafoki hér á
landi og í Noregi. Varla er ástæöa til
að taka þetta svona hátíölega. Samt
er rétt aö ræða þetta í fullri alvöru.
Vantraust á ríkisstjórnina
Þegar um 90% íslendinga vilja at-
huga með ESB í skoðanakönnun þá
er það fyrst og fremst vantraust á sitj-
andi rikisstjórn á Islandi. Allur al-
menningur er uppgefinn t.d. á há-
vöxtunum og alveg sammála um þaö
að sýna núverandi ríkissfióm gula
spjaldið. Ef sama þróun heldur áfram
og ástandið verður verra þá mun nú-
verandi ríkissfióm fá rauöa spjaldið
írá meirihluta kjósenda. Ný rlkis-
sfióm tekur þá við en það er alls óvíst
að lausn hennar á vandamálum Is-
lendinga verði umsókn um aðild að
ESB. Raunar er líklegt að svo verði
ekki. - EES mun duga okkur.
Of háir vextir
Allur almenningur er t.d. alveg
uppgefinn á of háum bankavöxtum á
íslcmdi í dag sem það kennir ríkis-
sfióminni um að hluta.Svo fáranlegt
sem það er þá era bankavextir hér á
landi í sumum tilfellum
2-3 sinnum hærri en í
næstu löndum. Sam-
kvæmt opinberum
skýrslum era vanskil al-
mennings mjög vaxandi.
Venjulegur kjósandi
sættir sig ekki við það í
dag að borga yfir 20% í
dráttarvexti til bank-
anna. Svipaðir hávextir
eru á öðrum lánum.
Samkvæmt blaðafrétt-
um högnuðust íslenzku
bankamir um marga
milfiarða á siðasta ári
sem er of mikið í litlu þjóðfélagi.
Meðan aimenningi blæðir út í vaxta-
okri og margir horfa upp á glötun
eigna sinna þá vill venjulegur kjós-
andi heldur ESB og evrana sem tæki
þá völdin í vaxtamálum af okkar rík-
isstjóm.
Þegar þetta er skrifaö, miöviku-
daginn 20. marz sL, segir textavarpið
að forsætisráðherra vifii lækkun
vaxta en Seðlabanki haldi enn fast i
neitun sína varðandi vaxtalækkun.
Vaxandi atvinnuleysi
Venjulegur kjósandi verður í dag
var við vaxandi atvinnuleysi og
minni vinnu. Ekki eru stór atvinnu-
aukandi verkefni fram undan á næst-
unni sem bæta myndu atvinnuá-
standið. Ný stórvirkjun ásamt álveri
er í enn meiri óvissu en áður og verð-
ur líklega frestaö eitthvað. Svo segja
blöðin okkur að þjóðin skuldi 600
milljarða erlendis þegar eignir okkar
þar hafa verið dregnar frá heildar-
skuldinni sem er um 1000 milfiarðar.
Ef erlend lán stoppa verulega tfl
okkar feflur krónan aftur í fijálsu
faOi og doOarinn gæti tvöfaldast í
verði eins og var nýlega í
Argentínu þegar erlend lán
stoppuðu þar. Þá myndi banda-
ríski doOarinn kosta 200 krón-
ur á íslandi.
Er þá ekki betra að forða sér
í ESB og fá evruna áður en
slíkt áfaO myndi ganga yfir? í
þessu fiósi verður að skoða
vaxandi áhuga íslendinga á
ESB og evrunni. Fólk er hrætt
við núverandi fiárhagsástand
Islands og viO koma þjóðinni í
meira fiárhagslegt öryggi. Van-
treystir stjómvöldum. Það seg-
ir þessi skoðanakönnum um
ESB og evrana okkur fyrst og fremst.
Er ekki bein ósk um inngöngu .
Samstarf EESríkja
Ef Noregur og Liechtenstein vOja
halda utan um EES, t.d. í næstu 10
ár, þá ættu þessar þrjár þjóðir að
taka upp nánara efnahagssamstarf
og binda það með samningi. Norö-
menn gætu haft meira samstarf við
okkur í sambandi við fiskveiðar en
þar hafa þeir stundum sett fyrir okk-
ur fótinn. Liechtenstein gæti tekið
upp samstarf við okkur í bankamál-
um og frætt okkur um stööu er-
lendra fyrirtækja sem þeir hafa lað-
að tO sín. Samt dugar þetta lítið,
nema nýtt og meira komi tO i efna-
hagsmálum íslendinga.
Þess vegna munu íslendingar að
óbreyttu í vaxandi mæli taka afstöðu
með því í skoðanakönnunum að evr-
an verði tekin upp hér. AðOd að ESB
mun áfram fá meira og meira fylgi
nema ríkissfiómin komi með lausn-
ir sem tryggja fuOa atvinnu og sann-
færi okkur um að 100 kr. doOari
hækki ekki frekar.
Lúðvík Gizurarson
„Ef sama þróun heldur áfram og ástandið verður verra
þá mun núverandi ríkisstjóm fá rauða spjaldið frá
meirihluta kjósenda. Ný ríkisstjóm tékur þá við en það
er alls óvíst að lausn hennar á vandamálum íslendinga
verði umsókn um aðild að ESB. Raunar er líklegt að
svo verði ekki. - EES mun duga okkur. “
Lúðvík
Gizurarson
hæstaréttarlögmaöur
Ummæli
Af drottningar-
viðtölum
„HaOdór Ásgrims-
son utanríkisráð-
herra viO líka fá að
vera í drottningarvið-
tölum. Hann veigrar
sér við að takast á
við pólitíska and-
stæðinga sína í sjón-
varpskappræðum. Hann mætir hins
vegar gjaman í viðtöl þar sem hann
fær að tala einn, nokkuð athuga-
semdalaust. En í þau þrjú ár sem ég
hef haldið úti Silfri EgOs hefur hann
ekki vOjað koma í þátt ásamt öðrum
sfiómmálamönnum. Mig rekur held-
ur ekki minni tO að HaOdór hafi
verið tiður gestur í kappræðum á
öðrum stöðvum, í fljótheitum man
ég bara eitt skipti þegar hann kom í
Kasfljós tO að slökkva elda sem log-
uðu eftir öryrkjadóminn."
Egill Helgason á Strik.is
Velferð í öndvegi
„Sjálfbær þróun er
þannig ekki blind
umhverfisstefna held-
ur stefna sem setur
manneskjuna og vel-
ferð hennar í önd-
vegi. Hugtakið leggur
áherslu á að vemdun
hins náttúrulega umhverfis sé for-
senda áframhaldandi efnahagsþróun-
ar og velferðar mannkyns en jafn-
framt að blómlegt efnahagslíf og fé-
lagsleg velferð séu forsendur þess að
umhverfið verði vemdað og auðlind-
ir náttúrunnar nýttar á ábyrgan hátt
tO frambúðar. Því þarf ávaOt að
skoða framkvæmdir og ákvarðanir í
efnahagsmálum, félagsmálum og um-
hverfismálum í samhengi."
Halldór Ásgrímsson á Alþingi á dögunum.
Spurt og svarað____Er þörf á sérstakri byggöaáœtlu n fyrir Vestfirði?
Gunrtlaugur M. Sigmundsson,
framkvœmdastjóri:
Opinberar áœtlan-
ir skila litlu
„Sé þörf á byggðaáætlun yfir-
leitt er þörfin ekki síður fyrir
Vestfirði en aðra landshluta. AI-
mennt held ég að byggðaáæfiun
sem unnin er á opinberum kontórum skOi næsta
liflu. Að þvf leyti er ég hrifinn af þessu nýjasta
framtaki sveitarsfióma fyrir vestan. Þótt sú
byggðaáætiun miði að einhveiju leyti að sækja fé
úr ríkissjóði þá era einnig í áætiuninni þættir
sem snúa á samhæfingu verka. Og ég held að
svona áætiun sem er unnin heima í héraði geri
kannski mest gagn að þessu leyti; að menn ræða
og skipuleggja hvemig þeir ætia að halda á ein-
staka málaflokkum. Þar nefhi ég tO dæmis upp-
byggingu ferðaþjónustu í Qórðungnum í he0d.“
Magnús Ólafs Hansson,
skrifstofumaður í Bolungarvík:
Á Vestfjöröum
býr fólk
„Sannarlega og margfaldlega. Sú
staðreynd viO stundum gleymast að
á Vestflörðum, eins og öðrum hlut-
um landsins, býr líka fólk. Mér
finnst eðlOegt að ailir landsmenn sifii við sama borð
- og að heimafólk i hverjum fiórðungi komi með tO-
lögur um þróun byggðar í sínum fiórðungi. I fram-
haldinu ættu ráðamenn þjóðarinnar að fara yfir til-
lögumar og móta uppbyggingarstarfið. Fáheyrt er að
ráðherra byggðamála í landinu skuh hafa leyft sér að
leggja fram byggðaáætlun fyrr í vetur þar sem Vest-
firðir og Vestfirðingar voru að Otlu gerðir. Þær tiOög-
ur í nýrri Vestfiarðaáætlun sem ég hef heyrt af þykja
mér góðar - og þær undirstrika að hér vestra býr
hæfileikaríkt fóOi og möguleikamir eru margir."
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
sveitarstjóri í Reykhólasveit:
Byggðaáœtlun fyr-
ir alla fjórðunga
„Ég held að þörf sé á byggðaáæti-
un fyrir aOa landsfiórðunga. í
þeirri Vestfiarðaáætiun sem kynnt
var fyrir páska kemur fram hveiju
er ætlast til af opinberum aðOum - og eins hvað
heimamenn sjálfir ætla að gera og eru að framkvæma.
Þama er verið að taka á mörgu sem verið er að vinna
í nú um stundir svo sem varðandi rannsóknir og
menntun á Vestfiörðum. Sem dæmi má nefna að há-
skólamenntun er orðinn veruleiki á Vestfiörðum með
fiamámi. Þetta vtijum við efla. Við erum með ttilögu
um að höfuðstöðvar sjómannamenntunar í landinu
verði á ísafirði. Sjávarútvegur er okkar stóriðja og
tengdum honum sjáum við ýmsa möguleika Ld. í þor-
skeldi og veiðarfærarannsóknum."
Ingvi Hrafn Óskarsson,
formaður SUS og Vestfirðingur:
Framtíðin mótast
affólkinu
„Ég hef meiri trú á þeirri
byggðaáætiun sem Vestfirðing-
ar gera fyrir sig sjálfir en opin-
berar stofiianir í líkingu við
Byggðastofnun eða ráðuneyti iðnaðar og við-
skipta.
Þegar öOu er á botninn hvolft held ég að Vest-
firðingar þurfi litlar áhyggjur að hafa af því að
hafa gleymst í nýlegri byggðaáætiun sem að
mínum dómi er lítið annað en æfing I skrif-
finnsku.
Framtíð Vestfiarða á að mótast af einstakling-
unum sem þar búa og samtökum þeirra, ekki
opinberum kontórum.“
4) Vestfirðingar hafa sett saman elgln byggðaáætlun sem mótsvar vlð áætlun Iðnaðarráðherra. Kvótabanki og efling menntunar og þjónustu vestra er meðal tillagna.)
Uppbyggingin strandar
Álverkefhið á Reyðarfirði
er strandað. Norsk Hydro er
búið að gefast upp, nennti
ekki að bíða lengur. Ég lái
þeim það ekki, jafnvel þótt
þeir séu Norðmenn.
Eftir hverju var beöiö?
Fyrir nokkrum árum
hefði verið hægt að taka
ákvörðun um að reisa 120
þúsund tonna álver á Reyð-
arfirði og virkjun við Eyja-
bakka (fúafen sem sést sjald-
an fyrir snjó, sandfokum eða
sudda). Það verkefni lenti i
umhverfismati og var þar meö svæft
í pappírsveltingi mitii skrifborða í
Reykjavík, kærum, meiningarlaus-
um úrskurðum og áróðri umhverf-
isöfga.
Þeir sem hefðu átt að taka ákvörð-
un (ríkisstjóm og Alþingi) á réttum
tíma tóku ekki af skarið, komust
ekki að. Ef svo hefði verið væri ál-
verið byrjað að framleiða ál og sktia
tekjum. Það álver var nógu lítið tti
þess að íslenskir aðtiar hefðu líklega
ráðið við að byggja það að mestu
með eigin afli. Þá væru íslendingar
nú sjálfir orðnir þátttakendur í ál-
iðnaðinum.
Beðiö og beðiö
Þegar fiárfestar koma og vtija vera
með og nýta orku hérlendis fara þeir
til Landsvirkjunar og hinna orkufyr-
irtækjanna og spyija hvenær orkan
veröi ttibúin, og hvað hún kosti. Eft-
ir að „lögin um mat á umhverfisá-
hrifum" voru sett, fá þeir svarið:
„Fyrst þarf að gera mat á umhverfis-
áhrifum"! AOir vita að ákvarðanir
um fiárfestingar eru teknar þegar
rétt stendur í bólið hjá fyrirtækjun-
um (fiárfestanum) og atvinnugrein-
inni. Ef verkefnið dregst fer hand-
bært flárfestingarfé og fiárfestingar-
vtiji fyrirtækjanna í önnur ttitæk
verkefhi.
Og það var það sem gerðist: Norsk
Hydro undirritaði yfirlýsingu með
Landsvirkjun og stjómvöldum fyrir
2 árum (maí 2000). Heila etiífð tók að
bíða eftir svari yfirvalda og íslend-
ingar sjálfir töfðu og frestuðu
ákvörðunum vegna þess að „um-
hverfismatið þurfti meiri tíma“. Það
er búið að halda Norðmönnunum
uppi á snakki í mörg ár vegna svo-
katiaðra „umhverfismála", sem okk-
ar bestu náttúrufræðingar þekktu
fyrir löngu í ötium aðalatriðum.
Mat á umhverfisáhrifum
Ástæða þess að Reyðarálverkefnið
er strand era „lög um mat á um-
hverfisáhrifum". Þau hafa kostað
Landsvirkjun gífurlegar fiárhæðir.
Okkar sérhæfðu orkumenn, sem eiga
heimsmet i fæmi og afköst-
um hvert sem litið er, era
famir að eyða sínum virka
tíma í klögumál og nöldur,
fundarsetu með skriffinn-
um og erindrekum um-
hverfisöfga, áhyggjur af
eyðimerkursöndum og
mórtiluám og gæsum á
borðum Breta. - Þeirra
stcufsþekking er að hverfa
í mosatalningu, vemdun á
hraunnibbum og örfoka-
landi, htilumetra af óþörf-
um umhverfisskýrslum og
úrskurðum.
Raforkan verður þess vegna dýrari
og ekki jafn samkeppnishæf í alþjóð-
legu viðmiði og ísland verður af góð-
um atvinnukostum. Staðnar, líkt og
Evrópusambandið þaðan sem lögin
era ættuð, þau era sniðin aö þörfum
þess, nokkur hundruð sinnum þétt-
býtia svæöis og þúsund sinnum fiöl-
mennara en ísland.
Óþörf lög
Lögin um mat á umhverfisáhrifum
framkvæmda voru frá upphafi óþörf.
Það hefur atitaf þurft leyfi stjóm-
vaida fyrir virkjunum og stórfram-
kvæmdum. íslensku stjómvaldi hef-
ur atitaf verið í lófa lagið að fá fær-
ustu náttúrufræðinga, sem hér er
nóg af, tti þess að gefa mat á um-
hverfisáhrifum, eftir aðstæðum og
þörfum hverju sinni. Líklega hefði
oft mátt gera það á einum eftirmið-
dagsfundi, fyrir slikk, ekki mtijóna-
hundruð og tafir til skaða. ^
Mistökin
Lögin um mat á umhverfisáhrifum
(sem meö réttu mætti katia lög um
höft á uppbyggingaráform) era af-
kvæmi EES-samningsins, undirlægj-
unnar við evrópskar stjómunarhug-
myndir, þýdd upp úr lagakraðaki
ESB. Þau eru flókin og sniðin að
stjómkerfi stórþjóða og óframkvæm-
anleg hérlendis. Það er í kjölfar
valdaafsalsins tU Brassel, EES-samn-
ingsins, sem þessi ólög og reyndar
fleiri, hafa skoUið á fslenskri at-
vinnuuppbyggingu.
Þegar EES-samningurinn var sam-
þykktur, 12. janúar 1993, af 52% þing-
heims og í andstöðu við meirihluta
þjóðarinnar og bestu menn, átti hann 4
að spara landsmönnum nokkur hund-
ruð miUjónir samkvæmt áhangend-
um hans. Sannleikurinn er nú kom-
inn í ljós: TugmiUjarða árlegt tekju-
tap íslenska þjóðarbúsins vegna tap-
aðra eða tafinna þjóðþrifaverkefna.
Friðrik Daníelsson
þingheims og í andstöðu við meirihluta þjóðarinnar og
bestu menn, átti að spara landsmönnum nokkur hund-
ruð milljónir samkvæmt áhangendum hans. Sannleik-
urinn er nú kominn í Ijós: Tugmilljarða árlegt tekjutap
íslenska þjóðarbúsins vegna tapaðra eða tafinna þjóð-
þrifaverkefna. - Frá ráðstefnu í húsakynnum ríkisins *
um EES og Evrópumál.
Friðrik
Daníelsson
efnaverkfræðingur