Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002
MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002
27
Útgáfufólag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aösto&arritstjóri: Jónas Haraldsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Skaftahlíö 24, 105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagíö DV ehf.
Plötugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eða tyrir myndbirtingar af þeim.
Nýtt líf í baráttuna
Skoðanakönnunin sem DV birtir í dag um fylgi lista í
Reykjavík flytur tíðindi. Talsvert dregur saman með stóru
fylkingunum sem berjast um völdin í höfuðborginni. Sam-
kvæmt könnuninni er R-listinn með 51,4 prósenta fylgi en
Sjálfstæðisflokkurinn 44,3 prósent. Frjálslyndi flokkurinn
fær 3,7 prósenta fylgi og er talsvert frá þvi að koma manni
að. Aðrir mælast litt.
Þetta er breyting frá síðustu könnun DV sem birt var
4. mars sl. Þá var fylgi R-listans 56,9 prósent en D-listans
39,5 prósent. Miðað við þá könnun hefði R-listinn fengið 9
borgarfulltrúa kjörna á móti 6 fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins. Könnunin nú gefur R-listanum 8 borgarfulltrúa
og Sjálfstæðisflokknum 7. Það er sama staða og er í borg-
arstjórn Reykjavíkur eftir síðustu kosningar. Fylgi R-list-
ans er sterkt meðal kvenna en þó sækir Sjálfstæðisflokk-
urinn nokkuð á meðal kvenna miðað við síðustu könnun.
Þá nýtur Sjálfstæðisflokkurinn nú meira fylgis karla en
R-listinn.
Þessi skoðanakönnun mun hleypa nýju lífi i kosninga-
baráttuna í Reykjavik. Hún hefur verið daufleg fram til
þessa þótt aðeins sé rúmur mánuður til kosninga. Þar hef-
ur miklu ráðið að allar undangengnar skoðanakannanir
hafa sýnt mikinn mun á fylgi R-listans og Sjálfstæðis-
flokksins. Meginlínur í þeim skoðanakönnunum hafa ver-
ið þær að fylgi R-listans hefur legið nær 60 prósentum og
fylgi Sjálfstæðisflokkins nær 40 prósentum. Það hefur ver-
ið meiri munur en svo aö spenna hafi fylgt baráttunni.
Margt kann að ráða því að niðurstaða skoðanakönnun-
ar DV nú sýnir breytingu á fylgi flokkanna. Menn hafa
raunar gefið sér það að saman drægi þegar nálgaðist kosn-
ingar og þá miðað við gang mála í undanfömum tvennum
borgarstjórnarkosningum. Þá má teljast líklegt að yfir-
burðastaðan hafi gert R-listafólk værukært. Staðan væri
svo örugg að best væri að gera sem minnst. Slíkt kann
ekki góðri lukku að stýra. Þá má og benda á það að R-list-
inn hefur enn ekki kynnt stefnu sína formlega. Listinn
ætlar sér það með sumarkomunni síðar í vikunni. Hugs-
anlegt er að kjósendum i höfuðborginni þyki listinn nokk-
uð seint á ferð með stefnuskrá sína.
Á meðan hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft tima til að
hamra á sínum stefnumálum og kynna sitt fólk. Það hef-
ur skilað árangri, sé mið tekið af skoðanakönnuninni sem
DV tók síðdegis í gær. Augljóst er að fylgisaukning, eins
og sú sem könnunin sýnir, er Birni Bjarnasyni, oddvita
Sjálfstæðisflokksins, og hans mönnum hvatning til þess að
herða enn róðurinn. Flokkurinn hefur átt á brattann að
sækja alla kosningabaráttuna. Staðan hefur breyst. Hvert
prósentustig sem vinnst gefur aukna von.
Að sama skapi er þessi skoðanakönnun viðvörun fyrir
R-listann. Staða hans er að sönnu betri en Sjálfstæðis-
flokksins en hann tapar talsverðu fylgi frá síðustu könn-
un DV. í því sambandi er rétt að minna á viðbrögð Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra við marskönn-
un DV. Miðað við góðu útkomuna sem listinn fékk þá
sagði borgarstjóri að því væri ekki að neita að góður upp-
taktur gæfi fólki loft undir vængina. Það væri þó full
ástæða til að gjalda varhug við of mikilli bjartsýni. Við
vitum, sagði borgarstjóri, að veður skipast fljótt í lofti og
staðan getur breyst mjög skyndilega. Þvi yrði að vinna vel
til að halda forystunni.
R-listinn heldur að sönnu forystunni en dregið hefur úr
yfirburðunum. Borgarstjóri hlýtur því að spyrja sjálfan
sig, sem og aðrir R-lista-frambjóðendur, hvort vel hafi
verið unnið. Kosningabarátta er langhlaup fremur en
spretthlaup. Hlaupið er að jafnast en enn er langt í enda-
sprettinn.
Jónas Haraldsson
DV
Skoðun
Grænna hinum megin
Eigum við að sækja um
aðild að Evrópusamband-
inu eða ekki er sú spuming
sem brunnið hefur á vör-
um þjóðarinnar undan-
farna mánuði. Forystu-
menn stjómmálaflokkanna
hafa aliir tekið þátt í að
reyna að svara henni og
fleiri áhrifamenn þjóðar-
innar og erlendir gestir
hennar.
Ummæli Carls Bildts
Flestir gera sér grein fyrir því í
dag að okkar sérstaða, gagnvart öðr-
um ríkjum ESB, er hversu vægi sjáv-
arútvegsins í íslensku efnahagslífi er
mikið. Það vakti athygli á þemaráð-
stefnu Norðurlandaráðs í síðustu
viku þegar Carl BOdt, fyrrv. forsætis-
ráðherra Svía, tók afstöðu í þessu
máli fyrir okkur íslendinga. Hann
segir aðstæður svo sérstakar á ís-
landi að ekki frnnist hliðstæða hjá
hinum ríkjum ESB. Þess vegna geti
verið erfitt að sjá augljósan hag af
því fyrir íslendinga að ganga í ESB,
segir hann. Höfum það í huga að
Carl Bildt er einn harðasti stuðn-
ingsmaður ESB í Svíþjóð og hvetur
mjög til inngöngu
manna í ESB.
Norð-
Kristján Pálsson
alþingismaOur
Glannaleg afstaöa
Samfylkingin gaf út sér-
stakt rit „ísland í Evrópu“
fyrir nokkru. Þar er komist
að þeirri niðurstöðu að nú-
verandi sjávarútvegsstefna
ESB sé íslendingum hag-
stæð!! Þetta er furðuleg nið-
urstaða og þegar orð Carls
Bildts eru höfö i huga er
þetta mjög glannaleg afstaða
með hagsmuni íslendinga í huga.Það
var einmitt vegna sjávarútvegsins
sem Norðmenn felidu aðild að ESB
en norsk stjómvöld töldi sig hafa náð
mjög góðum samningi á þvi sviði,
norska þjóðin trúði því ekki.
Það verður að gera ráð fyrir því að
stjórnmálaöfl sem vilja telja sig
ábyrg byrji á því að átta sig á hags-
munum íslendinga í svo mikilvægu
máli. Ekki er að sjá að svo sé og tals-
menn aðildar íslands hafa ekki með
trúverðugum hætti getað svarað
þeirri spurningu hvemig íslenskt
samfélag gæti þróast innan ESB.
Samfylkingin gerir mikið úr því í
bók sinni að áhrif okkar á stjórnkerf-
ið í Bmssel gætu orðið
veruleg við inngöngu og
við stoppað mál á vinnslu-
stigi ef við værum i ESB
sem við getum ekki núna.
Staðreyndin er nú sú að
áhrif einstakra ríkja á gang
mála innan ESB munu fara
þverrandi og áhrif fá-
mennra ríkja verða nánast
engin. Áhrifin má mæla
með ýmsu móti eins og
með því hver áhrif okkar
yrðu á Evrópuþinginu.
Með stækkun ESB mun
Evrópuþingmönnum fjölga
í u.þ.b. 1000 og af þeim
fjölda verða 7 frá íslandi.
Áhrif okkar á gang mál
innan ESB gætu því orðið
0,7%.
Tálsýn talsmanna ESB Carl Bildt, fv. forsœtisráðherra Svíþjóðar. - Seg-
Ef miðað yrði við íbúa- ir aðstæður svo sérstakar á íslandi að ekki finn-
ist hliðstœða hjá hinum ríkjum ESB. Þess
vegna geti verið erfitt að sjá augljósan hag af
því fyrir íslendinga að ganga í ESB,
tölu væru áhrifin svo lítil
að þau mældust ekki.
Hvaða áhrif missum við svo
frá okkur við inngöngu í
ESB? Það liggur nokkuð
Ijóst fyrir að við töpum yfirráðum
okkar yfir langmikilvægustu at-
vinnugrein landsmanna, fiskveiðun-
um. Með núverandi fiskveiðistjóm-
Gjafir eru yður gefnar
Að mér setti kaldan hroll síðastlið-
ið mánudagskvöld, þegar ég hlustaði
á hérlendan ofsatrúarmann karpa í
útvarpinu við einn af prestum þjóð-
kirkjunnar og verja með innantómu
málæði svívirðilegt athæfi ísraels-
hers undir stjóm múgmorðingjans
Aríels Sharons, sem vakiö hefur
heimsbyggðinni meiri andsyggð en
nokkur núlifandi einstaklingur, og
er þó enginn hörgull á varmennum í
veröld samtímans. Helsta röksemd
ofsatrúarmannsins var sú, að Guð al-
máttugur hefði í öndverðu gefið ísra-
elum landið og því hefðu þeir fuilan
rétt til að murka lífið úr þjóðinni
sem byggði Palestínu frammá síð-
ustu öld, jafnt konum og ómálga
bömum sem fulltíða íbúum flótta-
mannabúða til margra áratuga.
Guðsgjöf?
Þetta með gjafmildi Guðs er vert
nánari íhugunar. Sænska skáldið og
ritstjórinn Olof Lagercrantz segir á
einum staö, að í flestum tilfellum
byrjum við að lesa bækur með vit-
neskju, sem okkur hefur áskotnast
áðuren við hófum lesturinn, og sú vit-
neskja muni móta hugmyndir okkar
um það sem við erum að lesa. Og
hann bætir við: „Ef þvi væri ekki al-
mennt haldið fram, að kristindómur-
inn sé trú kærleikans, mundum við
með vissu lesa Biblíima sem bók um
hatur og umburðarleysi.“ Hér hygg
Siguröur A.
Magnússon
rithöfundur
„Hafi Jahve gefið Israelum landið sem þeir fengu fyrír
málamiðlun stórveldanna 1948 og lögðu undir sig 1967,
þá eiga þeir ámóta tilkall til þess og við œttum til Noregs
eða írlands, ef við alltíeinu ákvæðum að við vildum held-
ur búa þar en hér.“ - Við landamæri ísraels og Palestínu.
ég að skáldið hafi fyrst og
fremst í huga Gamla testa-
mentið, enda er guðshug-
myndin í bókum þess
harla frábrugðin myndinni
sem Kristur dró upp af
Föður sínum á himnum.
Guð Gamla testamentis-
ins var strangur, grimmur,
refsiglaður, hefnigjarn og
langrækinn. Sú guðshug-
mynd er frumstæð og á
ekki erindi við samtímann.
Hafi Jahve gefið ísraelum
landið sem þeir fengu fyrir
málamiölun stórveldanna
1948 og lögðu undir sig 1967, þá eiga
þeir ámóta tilkall til þess og við ætt-
um til Noregs eða írlands, ef við
alltíeinu ákvæðum að viö vildum
heldur búa þar en hér.
Ég hef alla tíð haft ríka samúð með
Gyðingum, dáð þá fyrir fjölmarga af-
burðamenn sem þeir hafa fært mann-
kyninu á liðnum öldum, ekki síst
tveimur þeim síðustu, og fundið til
með þeim vegna þeirra ólýsanlegu
þjáninga sem þeir máttu öldum sam-
an þola af hendi kristinna nábýlis-
manna og siðan í helfórinni alræmdu
í seinna stríði, en ekkert af þessu af-
sakar framferði ísraelsstjómar nú -
og nota bene: ótöldum ísraelum of-
býður það sem er að gerast, þó hér-
lendir ofstækismenn láti sér vel líka
og reyni að bera í bætifláka fyrir
ódæðismennina
Sem dæmi um hugarfar Sharons
má hafa þá frétt írsks blaðamanns ný-
lega, aö þegar verið var að undirbúa
aðgerðirnar sem nú eru í fulium
gangi, lét Sharon herforingja sína
fara rækilega yfir áætlun þýsku her-
foringjanna áðuren þeir hófust handa
um að eyða gyðingahverfinu í
Varsjá.
Útvaldir?
Það hefur aldrei kunnað
góðri lukku að stýra, þegar
þjóðir eða einstaklingar telja
sig sérstaklega útvalda af
æðri máttarvöldum. í Israel
hefúr afleiðingin meðal
margs annars orðið sú, að þar
er riki sem byggir á ap-
artheid nákvæmlega einsog
Suður-Afríka undir stjórn
hvíta minnihlutans. Gyðing-
ar búa viö lýðræðisskipulag,
en aðrir íbúar landsins verða að sæta
meðferð annars eða þriðja flokks
þegna í öllum greinum. Þannig er lýð-
ræðisríkið ísrael í rauninni skripa-
mynd, ef ekki annað verra.
ísraelar telja sig útvalda. Þess-
vegna sé þeim heimilt að fara sínu
fram, myrða, pynda og limlesta, ef því
sé að skipta, til að ná settum mark-
miðum. Þeir eiga sér forvera í þessu
óhrjálega hlutverki. Evrópsku land-
nemamir í Amríku töldu sig líka út-
valda og nefndu Bandaríkin Guðs eig-
ið land. Til að ná settum markmiðum
efndu þeir til mestu múgdrápa í ger-
vallri mannkynssögunni, útrýmdu
með köldu blóði hundruðum ef ekki
þúsundum ættbálka af indjánkyni og
nálega þurrkuðu út frumbyggja Norð-
ur-Amríku. Til eru þeir sem treystast
tihað verja indjánadrápin einsog nú
er leitast við að verja fjöldamorðin í
ísrael. Það verða þeir að eiga við sam-
visku sína, en að leggja nafn Krists
við þvílíkan máiflutning er andleg
brenglun sem best er komin í umsjá
sálfræðinga.
Sigurður A. Magnússon
unarkerfi gætam við
einnig tapað öllum kvót-
anum úr landi með sölu
útgerðarfyrirtækja til
annarra ESB-landa. Hvar
sætum við þá, hver yrði
staða okkar sem sjálf-
stæðrar þjóðar eftir slíkt?
Ef ráð Samfylkingarinnar
fá ein framgang gæti farið
mjög illa fyrir okkur sem
þjóð.
Það er oft sagt að grasið
sé grænna hinum megin
við lækinn. Mér sýnist að
sú tálsýn sé vandamál tals-
manna ESB-aðildar. Nú-
verandi staða okkar Is-
lendinga er mjög vænleg
eins og hún er nú innan
Evrópu með EES-samn-
ingnum og Schengen-aðild-
inni. Þá samninga þarf að
laga að breyttum aðstæð-
um innan ESB sem er auð-
sótt mál. Að öðru leyti
njótum við þess að vera
mitt á milli tveggja stór-
velda, Bandaríkjanna og
ESB, í góðri vinátta tii beggja handa.
Kristján Pálsson
Ummælí
Þurfum að axla
meiri byrðar
„Ég hef á undanfómum
árum haldið því fram, að
gæsla öryggishagsmuna
okkar íslendinga hafi
breyst á þann veg, að við
hljótum sjálf að axla
meiri byrðar vegna þeirra en áður. At-
burðimir 11. september styrktu mig í
þeirri trú. Hvað sem við verðum að
gera sjálf, getum við hins vegar aldrei
gert neitt, sem kemur að styrkleika og
öryggi í stað vamarsamningsins við
Bandaríkin og þess að hafa bandarísk-
an viöbúnað í landinu. Engin Evrópu-
þjóð kemst hemaðarlega með tæmar,
þar sem Bandaríkjamenn hafa hælana
- vamarsamningur okkar við þá hefur
auk þess það stórpólitíska gOdi, að
hann gerir okkur kleift að standa utan
við Evrópusambandið."
Björn Bjarnason á heimasíöu sinni.
Stellla Blómkvist
eða Stephen King
„íslenskum stjómmálamönnum er
tamt að gripa til þjóðemisraka í umræð-
um um smæstu mál. Ég heyrði Halldór
Ásgrímsson segja að hinir háu skattar á
útlendar bækur væm liður í að „vemda
íslenska menningu og íslenska tungu“ -
og því hljóti „allir að sjá að það er eðli-
legt að það sé minni skattur á íslenskar
bókmenntir en enskar bókmenntir".
Allir? Ég er svo tregnæmur að ég fatta
ekki rökin. Er þessi skattheimta þá ein-
hvers konar neyslustýring - á að hafa
mismunandi verð á íslenskum og út-
lendum bókum til að maður neyðist til
að lesa Hallgrím Helgason, Ólaf Jóhann
eða Stellu Blómkvist fremur en Salman
Rushdie, Gúnter Grass eða Stephen
King? Eiga stjómvöld yfirleitt að skipta
sér af því hvað fólk les?“
Egill Helgason í pisli á Strik.is
Spurt og svarað
Hver er
Ellert B. Schram,
forseti ÍSÍ:
Afstaðan sveifl-
ast til og frá
„Afstaðan sveiflast til eftir því
hver spyr og hvemig er spurt.
Hins vegar er hægt að draga þá
meginályktun af þessum tveimur skoðanakönnun-
um að helmingur þjóðarinnar að minnsta kosti og
rúmlega það sé hlynntur því að aðild að Evrópusam-
bandinu verði skoðuð áfram. Væntanlega er það
vegna þess að íslendingar eigi frekar að fara þang-
að inn en standa utan bandalagsins. Umræðan um
þessi mál hefur verið mjög vaxandi að undanfómu
og ég kvarta ekkert yfir því. Nauðsynlegt er að mál-
in séu rædd og á dagskrá í nokkum tíma áður en
fólk myndar sér galiharða skoðun á því hvort við
eigum að vera innan eða utan bandalagsins."
Bjami Harðarson,
ritstjóri Sunnlenska:
Skrifrœðisbáknið
birtist
„Evrópuvilji íslendinga er ekki
mikill. Ég held að sá hluti þjóðarinn-
ar sem gerir sér grein fyrir því hversu
dýrt er að ganga í þetta apparat sé á móti inngöngu. Hinn
helmingurinn á aðeins eftir að fatta um hvað málið snýst.
Ef til viðræðna um inngöngu íslendinga kemur þá koma
staðreyndir málsins upp á borðið og munu móta afstöðu
þjóðarinnar á þann veg að meginþorri þjóðarinnar sér
hag sinum best borgið utan ESB. Hins vegar verður
áfram tekist á um Evrópumálin með svipuðum hætti og
nú er gert. Ég held líka að andstæðingum aðildar eigi til
lengri tíma litið eftir að gölga, samhliða þvi sem ESB á
eftir að birtast heimsbyggðinni sem sósíaiískt skrifræðis-
bákn - eins og við sjáum raunar nú þegar.“
Björgvin G. Sigurðsson,
^k framkvstj. Samfylkingar:
f Meirihlutinn vill
| * ' láta reyna á
„Viðhorf landsmanna til Evr-
ópusambandsins koma i ljós í báð-
^— um þessum könnunum. Á þeim er
eðlismunur vegna þess hvernig spurt er. Það er ljóst
að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill láta
reyna á aðildarumsókn. Það er kjami málsins. Við
eigum að ganga til samninga við ESB og láta reyna
á hvaða kostir okkur bjóðast. En þjóðin á bæði að
hafa fyrsta og síðasta orðið - með því að fyrst verði
þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort við eigum að
sækja um aðild. Og ef af verður þá greiðir þjóðin at-
kvæði um samninginn þegar hann liggur fyrir.
Þetta er lýðræðislegt ferli og sýnir að ekkert er að
óttast, eins og margir láta í veðri vaka.“
Bjöm Ingi Hrafhsson,
skrifststj. þingflokks Framsóknarfl.:
Mikill áhugi en
skiptar skoðanir
„Raunverulegur vilji íslendinga í
þessum málum stendur til þess að
láta frekar til sín taka í samfélagi
Evrópuþjóða - enda er svo margt líkt með þjóðum álfúnn-
ar og margt sameiginlegt í menningu þeirra til að byggja
á. Ég fæ ekki betur heyrt en almenningur hafi mikinn
áhuga á Evrópumálum þótt vissulega séu skoöanir um
ágæti aðildar mjög skiptar. Mitt mat er að þessi umræða
eigi enn eftir að vaxa og verði í rauninni eitt helsta álita-
efhið í pólitískri umræðu hér á landi á næstu árum. Bæði
fylgismenn aðildar og andstæðingar hafa fært fram giid
rök fyrir sinu máli - og það er skylda okkar að í kjölfar-
ið verði kostir og gallar aðildar vegnir og metnir og kom-
ist að niðurstöðu. Annað er óhjákvæmilegt."
Stöðvum sölu Stein-
ullarverksmiðjunnar
Skv. nýrri skoöanakönnun sem gerö var fyrir LÍÚ eru 36% landsmanna hiynnt inngöngu í ESB. í könnun fyrir Samtök iönaðarins í febrúar sögöust 52% aöspurðra vilja ganga í sambandiö.
SteinuUarverksmiðjan á
Sauðárkróki hefúr nú um
nokkurt skeið verið einn
helsti bakhjarl byggðarlags-
ins í atvinnumálum. Sam-
kvæmt ársreikningum fyrir
árið 2001 kemur fram að
fjöldi árstarfa er 46. Meðal
iaunagreiðslur á starf fyrir
utan launatengd gjöld eru
3,2 miljónir. Eignastaða fyr-
irtækisins er afar góð og
sömuleiðis rekstraraíkom-
an. Fyrirtækið gat lagt í
stofnbúnað tæpar 200 miij-
ónir á sl. ári og samtímis
greitt niður áhvílandi lán og greitt út
arð. Eignarhald SteinuHarinnar skipt-
ist nú þannig: Ríkissjóöur á 30,11%,
ParocGroup í Finnlandi 7,68%, Sveit-
arfélagið Skagafjörður á 23,98%, Byko
og Húsasmiöjan 12,38%, Kaupfélag
Skagfirðinga 4,92% og aðrir 0,93%.
Vissulega eru blikur á lofti í rekstr-
inum, t.d. vegna stefnu stjórnvalda í
landsbyggðarmálum, en flutnings-
kostnaður fer ört hækkandi. Framtíð
verksmiðjunnar á Sauðárkróki er því
alls ekki sjálfgefm. Nú liggur fyrir Al-
þingi lagafrumvarp sem felur í sér að
Sveitarfélagið Skagafjörður og Ríkis-
sjóður selji sína hluti í fyrirtækinu.
Kaupendur verði fyrst og fremst
Húsasmiöjan-Byko og Kaupfélag
Skagflröinga. Til að meta áhrif þess-
ara breytinga er nauðsynlegt að horfa
á söguna.
Skagfiröingar unnu saman
Stofnun Steinullarverksmiöjunnar
má rekja til ársins 1981 en þá lagði
þáv. iðnaðarráðherra Hjörleifur Gutt-
ormsson fram frumvarp til laga um
steinullarverksmiðju á íslandi með
allt að 40% eignarhlutdeild ríkisins
sem eftir ítarlegar umræður var sam-
þykkt sem lög frá Alþingi. En stað-
setning verksmiðjunnar hafði þá ekki
enn verið ákveðin. Ljóst var frá byij-
un að fjarlægð frá markaðnum á suð-
vestarhorninu og hár flutningskostn-
aður yrði megin Akkilesarhæll Skaga-
fjarðar í samkeppninni um staðsetn-
ingu. I kjölfar þessarar lagasetningu
fór í hönd mikið kapphlaup, en Skag-
firðingar unnu vel heimavinnu sína.
Hart var tekist á um staðsetningu
verksmiðjunnar á Alþingi og víðar.
Lyktir málsins urðu þær að Skagfirð-
ingar, undir forysta Þorbjöms Árna-
sonar, þáv. forseta bæjarstjómar
Sauðárkróks, Haröar Ingimarssonar,
form. bæjarráðs, og Þorsteins Þor-
steinssonar bæjarstjóra urðu hlut-
skarpastir og Steinullarverksmiðjan á
Jón Bjarnason
þingmaöur Vinstrihreyf-
ingahnnar - græns
framboös á
Noröuriandi vestra.
Sauðárkróki varð að vem-
leika. Náið samstarf og ein-
hugur allra sveitarstjórnar-
manna á Sauðárkróki og þá-
verandi þingmanna kjör-
dæmisins átti drjúgan hlut
að farsæHi lokaafgreiðslu
málsins.
Nú er annar háttur á
Við stofnun SteinuUar-
verksmiðjunnar á sínum
tima var það einörð sam-
staða heimamanna, jafnt
sveitarstjórnarmanna sem
þingmanna kjördæmisins,
sem réð úrslitum um að hún yrði
staðsett á Sauðárkróki. Nú er annar
háttur hafður á. LítiU meirihluti
sveitarstjómar Skagafjarðar keyrir
sölu SteinuUarinnar áfram. Nú er
ekki kaUað tU þingmannafundar tU aö
ræða með hvaða hætti megi tryggja
stöðu þessa fyrirtækis í héraðinu.
SöluferU SteinuUarinnar er smeygt
bakdyramegin inn í ríkisstjórn og
þaðan tU afgreiðslu Alþingis. Nú er
vinnulagið með öðrum og dapurlegri
hætti en í árdaga verksmiðjunnar.
Hvem skyldi hafa órað fyrir því þá að
það væra heimamenn sem fyndu sig
knúna tU frumkvæðis í að svipta
verksmiðjuna þeirri kjölfestu og því
öryggi sem eignarhald ríkisins og
sveitarfélagsins er.
Það er dapurlegt að svo skuli kom-
ið í fjárhagslegri verkskiptingu ríkis
og sveitarfélaga að hvert sveitarfélag-
ið af öðru er knúið tU að selja eigur
sinar upp í rekstrarskuldir. Fram-
koma ríkisins gagnvart einstökum
sveitarfélögum, einkum út um hinar
dreifðu byggðir, er alveg forkastanleg.
En fyrir sveitarfélögin er hér aðeins
um bráðbirgðaaðgerð að ræða, engin
framtíðarlausn, þvert á móti era þau
neydd tU að fórna bestu mjólkur-
kúnni, einni af annarri. Það sér hver
heUvita maður í hvert óefni slíkt
ráðslag stefnir.
Voru allir möguleikar kannaðir?
Ef sveitarfélagið telur sig nauð-
beygt tfl að selja sinn hlut í verk-
smiðjunni hefði það átt að kanna aðra
sölumöguleika. TU dæmis gat Stein-
uUarverksmiðjan sjálf leyst tU sín
hlut sveitarfélagsins aö hluta eða öUu
leyti. Vegna góðrar eignastöðu gæti
fyrirtækið fært niður hlutaféð og
greitt það út til hluthafanna og þar
með tU sveitarsjóðs Skagafjarðar
Sá möguleiki er einnig fyrir hendi
að ríkissjóður kaupi út hlut sveitarfé-
lagsins í SteinuUinni og tryggi
óbreytta stöðu hennar. Það væri góð
byggðaaðgerð af hálfú ríkisvaldsins ef
á annað borð þarf að breyta eignar-
haldi á fyrirtækinu. Kaupfélag Skag-
firöinga er sett í þá erfiðu stöðu að
þurfa að kaupa út hlut ríkisins í verk-
smiðjunni tU að treysta stöðu hennar
í heimabyggð. Þetta er öfugsnúin
byggðaaögerð og ríkinu ekki tU sóma.
Framtíðin ekki sjálfgefin
Verði af fyrirhugaðri sölu SteinuUar-
innar blasir sú hætta við að eignaraðU-
arnir sæki fjármagn inn í verksmiðj-
una, hækki arðsemiskröfuna og fram-
tíð hennar á Sauðárkróki er stefnt í
voða. Núverandi eignarhald verksmiðj-
unnar hefur reynst henni farsælt.
Framtíð hennar á Sauöárkróki er ekki
sjálfgefm. Það eru hagsmunir Skagfirð-
inga aö hætt verði við aUar söluhug-
myndir á SteinuUarverksmiðjunni.
Jón Bjamason
„Verði af fyrírhugaðri sölu Steinullarínnar blasir sú
hœtta við að eignaraðilamir sœki fjármagn inn í verk-
srrtiðjuna, hœkki arðsemiskröfuna og framtíð hennar á
Sauðárkróki er stefnt í voða.“
1-