Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 22. APRlL 2002 x>v Fréttir Miklar fram- kvæmdir hafa ein- kennt stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks i Reykjanes- bæ á þessu kjör- tímabili. Tveimur milljörðum hefur verið varið í ein- setningu grunn- skólanna og þá hef- ur hreinsun strandlengjunnar kostað um hálfan miiljarð króna. Jafnframt hefur ýmiss konar upp- bygging í þágu iþrótta átt sér stað og fyrir vikið hef- ur skuldsetning bæjarins aukist verulega á kjör- tímabilinu. Fram- kvæmdanefnd um launamál sveitar- félaga hefur gert athugasemdir við skuldastöðuna en í ár er gert ráð fyrir að skuldir verði greiddar niður um 585 milljónir skv. fjárhagsáætlun. Jóhann Geirdal. Þrír leiðtogar Sjálfstæðismenn eiga fimm bæjar- fulltrúa af ellefu í Reykjanesbæ og hef- ur Ellert Eiríksson leitt lista þeirra og starfað sem bæjarstjóri um hríð. Hann hættir senn störfum og hefur Ámi Sig- fússon tekið við sem leiðtogi sjáifstæð- ismanna. Framsóknarmenn eru með tvo bæj- arfulltrúa í Reykjanesbæ og er Kjartan Már Kjartansson nýr leiðtogi þeirra. Samfýlkingin er aftur í minnihluta. Hún hefúr 4 menn sem stendur og leið- ir Jóhann Geirdal listann sem fyrr. Engin önnur ffamboð hafa lýst áhuga á þátttöku í sveitarstjómarkosningun- um. Ekki síður rætin barátta Ámi Sigfússon segir að hugmynd hans að flutningi til Reykjanesbæjar hafi kviknað i nóvember sl. þegar sjálf- stæðismenn þar í bæ leituðu til hans sem bæjarstjóraefiiis og leiðtoga D-list- ans. Hann hafi slegið til eftir umhugs- un þar sem Reykjanesbær hafi mikla möguleika, s.s. góðar hafnaraðstæður, alþjóðaflugvöllinn, orkuna, mikið land- svæði og gott fólk. Spurður um saman- burð á pólitískri þátttöku hans í Reykjanesbæ og í Reykjavík segir hann að staða sjálfstæðismanna í Reykjanes- bæ sé sterkari en þegar honum var falið að leiða D-listann í Reykjavík. „Ég geri þó ekki ráð fyrir að kosningabar- áttan verði eitthvað minna rætin en i Reykjavík," segir Ámi og getur þess að alls staðar virðist vera til einstaklingar sem velji slíka leið ffemur en að vinna málefnalega. Hann vill þó ekki útskýra Miklar framkvæmdir hafa einkennt kjörtímabilið í Reykjanesbæ en skuldir aukist: Framsókn efast um getu Árna sem bæjarstjóra - finn fyrir rætni hér eins og í Reykjavík, segir Ámi - Samfylkingin óhress nákvæmlega hvað hann á við með ræt- inni umræðu. Ámi flyst með fjölskylduna á næstu dögum til bæjarins og segist hann finna eindreginn jákvæðan anda í eig- in garð og fjölskyldu af hálfu bæjarbúa. „Við erum að stækka hópinn og koma inn með nýjar hugmyndir um leið og við styrkjum það góða starf sem sjálf- stæðismenn hafa þegar unnið hér.“ - En hvað verður um þig ef Sjálf- stæðisflokkurinn nær ekki meirihluta og þú verður ekki bæjarstjóri? „Ég verð áfram fjögurra bama faðir og hamingjusamlega kvæntur, það skiptir mestu máli. Ég hef yfirleitt getað valið úr verkefnum og sé ekki vandkvæði á því í ffamtíðinni þótt ég búi í Reykja- nesbæ. Síður en svo.“ Helstu málin sem tekist verður á um fyrir kosningamar em að mati Áma hvaða menn skuli veljast til bæjar- stjómar og bæjarstjórastarfsins. 1 öll- um stærstu sveitarfélögum landsins sé bæjarstjórinn pólitískt kjörinn og Ámi telur það mikilvægt til að ná sem mest- um árangri fyrir bæjarfélagið. Þá snú- ist kosningamar einnig um stefhumál, s.s. öfluga uppbyggingu í atvinnumál- um. „Við höfúm t.d. kynnt hugmynd um umhverfisvænan orkugarð sem endurspeglar nýja hugsun í nýtingu möguleika svæðisins. Þá er einnig mik- ilvægt að auka menntun á svæðinu," segir Ámi og bendir á fleiri mál, s.s. fjölskyldustefhu, áframhaldandi upp- byggingu í íþrótta- og tómstundarmál- um og fleira. Efast um hæfi Árna Kjartan Már Kjartansson, oddviti Framsóknarflokksins, talar með ákveð- inni varfæmi um næsta kjörtímabil og viðurkennir að framkvæmdagleði meirihlutans kalli á aðhald. „Það er al- veg ljóst að áhersla næsta kjörtímabils verður lögð á að greiða niður skuldir hjá okkur,“ segir Kjartan. Björn Þorláksson 'J blaöamaöur Fréttaljós Hann segir að stórverkefhum, s.s. einsetningu grunnskólanna, sé ekki lokið fyrr en skuldimar séu greiddar og menn séu staddir í því verkefni miðju. „Það verður ekki jafhmikið um að vera hjá okkur á næsta kjörtíma- bili,“ segir Kjartan en bendir á að eftir- litsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hafi í síðustu viku samþykkt ffamtíðar- áætlanir bæjarins. „Kannski má segja að menn hafi teflt djarft en við stönd- um þá bara og follum með því.“ Skúli Þ. Skúlason hefur verið leið- togi framsóknarmanna um langt skeið í Reykjanesbæ en Kjartan fer nú úr öðm sæti í það fyrsta. Löng hefð er fyr- ir meirihlutasamstarfi framsóknar- og Framkvæmdagleöi Einsetning grunnskóianna er helsta framkvæmdamál meirihluta Reykjanes- bæjar á þessu kjörtímabili en nefnd um fjármái sveitarfétaga hefur varaö viö skuldasöfnun. Uppskipti veröa nokkur í bæjarstjórn. sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Þess- ir tveir flokkar hafa starfað óslitið sam- an frá árinu 1970, ef undan er skilið eitt kjörtímabil. Kjartan segir að samstarf- ið á þessu kjörtímabili hafi gengið vel þótt taugatitringur hafi gert vart við sig í aðdraganda kosninganna. Hann segist hafa ágæta menntun og reynslu til bæjarstjórastarfans en sú staða sé ekki baráttumál númer 1. Spurður um mat Kjartans á Áma Sigfússyni sem bæjarstjóraefhi segist hann ekki þekkja mikið til hans. Það sem hann hafi séð og heyrt undanfarið bendi þó ekki sérstaklega til þess að Ámi yrði góður bæjarstjóri. Framsóknarflokkurinn lagði fram stefhuská sína í gær. Á oddinum verða fjölskyldumál, innra starf í skólum, tnálefni eldri borgara og ungmenna, svo nokkuð sé nefht, sem og skipulags- mál. Reyknesingar horfa björtum aug- um til fýrirhugaðrar röraverksmiðju í Helguvik og segir Kjartan það mál vera í góðum farvegi. „Það er mikil upp- bygging og jákvætt andrúmsloft á Reykjanesinu þessa dagana," segir odd- viti framsóknarmanna. Skelfileg skuldastaöa Jóhann Geirdal, oddviti Samfýlking- arinnar, hefur aðra sýn á störf ffarn- sóknarmanna og sjálfstæðismanna. „Því miður get ég ekki verið sammála leiðtogum hinna listanna. Hér hefur vissulega verið gert stórt átak í grunn- skólamálum og um það hefur verið góð samstaða í bæjarstjóm. Fleiri góðir hlutir hafa verið gerðir en skuldastaða bæjarins er alveg skelfileg. Allt tal um að hlutimir séu að skána er blekkinga- leikur," segir Jóhann. Jóhann segir að til að bæta rekstrar- reikning bæjarins hafi 580 milljóna sala á hitaveitunni verið færð í bók- hald bæjarins á vafasaman hátt og hann telur að boginn hafi verið spennt- ur fúllhátt. „Það er allt í lagi að auka útgjaldaliðina ef tekjuhliðin eykst líka. Hér vantar hins vegar byggingarlóðir þannig að íbúafiölgun á svæðinu hefur verið afskapalega litil.“ Ámi Sigfússon heldur þvi ffarn að íbúafiölgun sl. tvö ár hafi verið 3% en Jóhann bendir á að inni í þeirri tölu sé flóttafólk. Brottfluttir séu fleiri en að- fluttir sem sé áhyggjuefni. Hins vegar eigi líffræðileg fiölgun sér stað. Samfýlkingin stefnir að meirihluta- samstarfi enda segir Jóhann að merrn séu í pólitík til að hafa áhrif. Um helstu stefnumál segir hann að efla verði innra starf skólanna, aöstoða íþrótta- hreyfinguna og vinna að skipulagsmál- um í samvinnu við íbúana. „Við leggj- um áherslu á menntun, atvinnumál, velferð og lýðræðisleg vinnubrögð. Við viljum vinna með fólki enda erum við eini listinn sem er valinn af fólkinu," segir Jóhann og vísar þar til opins próf- kjörs sem fór fram hjá framsóknar- mönnum í Reykjanesbæ. Tilkoma Árna virðist auka fylgi D-lista: Vænlegt hjá sjálfstæðismönnum - framsókn niður í einn mann, skv. nýrri skoðanakönnun í nýlegri skoðanakönnun, sem Talnakönnun gerði fyrir heimur.is, kemur í ljós að sjálfstæðismenn njóta mikils fylgis. Könnunin var gerð að kvöldi 17. apríl og voru nið- urstöður þannig að Framsóknar- flokkurinn fengi 15,1%, Sjálfstæðis- flokkurinn 60,3% og Samfylkingin 24,6%. Verði úrslitin þessu lík vinn- ur Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í Reykjanesbæ. Miðað við úrslit könnunarinnar fengi Sjálfstæðisflokkurinn sjö menn kjöma, Samfylkingm þrjá og Framsókn einn. Ekki er þó langt frá þvi aö öðrum manni Framsóknar- flokksins takist að komast inn en það yrði þá á kostnað annaðhvort þriðja manns Samfylkingar eða sjö- unda manns sjálfstæðismanna. í báðum tilvikum væri D-listinn með hreinan meirihluta. Síðast féllu atkvæði svo að Fram- sóknarflokkurinn fékk 18,2% og tvo fulltrúa, Sjálfstæðismenn 44,9 og fimm fulltrúa og Bæjarmálafélag REYKJANESBÆR - úrslit könnun apríl 2002 J n JL b > Br 1 / /Tj? V mi/æ jafnréttis og félagshyggjufólks 36,9% og fióra fulltrúa (nú Samfylkingin). Þann fyrirvara verður að hafa á að mjög margir voru óákveðnir eða vildu ekki svara, eða 49%. Alls byggist könnunin á 248 svöram. Vikmörk eru +/-8,5%. Því er ljóst að enn er allt of snemmt að slá ein- hverju föstu um niðurstöðu þó vissulega bendi könnunin eindregið til fylgisaukningar sjálfstæðis- manna. -BÞ Reykjanesbær Framboðs listar Framsóknar- flokkurinn 1. Kjartan Már Kjartansson, starfsmanna- og gæðastjóri. 2. Þorsteinn Árnason, fv. skip- stjóri. 3. Guðný Kristjánsdóttir, leið- beinandi og varabæjarfulltrúi. 4. Ólöf Sveinsdóttir húsmóðir. 5. Jón Marínó Sigurðsson nemi 6. Magnús Daðason málarameist- ari. 7. Elín Gunnarsdóttir kennari. 8. Freyr Sverrisson þjálfari. 9. Sonja Sigurjónsdóttir leiðbein- anandi. 10. Amgrímur Guðmundsson ör- yggisfulltrúi. VSjálfstæðis- flokkurinn STÆÐISFLOKK1 1. Árni Sigfússon stjómsýslu- fræðingur. 2. Böðvar Jónsson, fasteignasali og bæjarfulltrúi. 3. Björk Guðjónsdóttir, bæjarfull- trúi og framkvæmdastjóri. 4. Steinþór Jónsson fram- kvæmdastjóri. 5. Þorsteinn Erlingsson, fram- kvæmdastjóri og bæjarfulltrúi. 6. Sigríður Jóna Jóhannesdóttir skrifstofustjóri. 7. Garðar Vilhjálmsson fram- kvæmdastjóri. 8. Ríkharður Ibsen viðskiptaráð- gjafi. 9. Rósa Ingvarsdóttir skrifstofu- kona. 10. Hermann Helgason sölumað- ur. Samfylkingin 1. Jóhann Geirdcd, kennari og bæjarfulltrúi. 2. Ólafur Thordersen, fram- kvæmdastjóri og bæjarfulltrúi. 3. Guðbrandur Einarsson, for- maður VS og varabæjarfulltrúi. 4. Sveindís Valdimarsdóttir, kennari og varabæjarfulltrúi. 5. Eysteinn Eyjólfsson leiðbein- andi. 6. Friðrik Ragnarsson húsasmið- ur. 7. Gerður Pétursdóttir leikskóla- stjóri. 8. Agnar Breiðfiörð Þorkelsson, verkstjóri og varabæjarfulltrúi. 9. Andrea Gunnarsdóttir þjón- ustustjóri. 10. Brynjar Harðarson bókavörð- ur Um bæinn • Alls búa 10.942 manns í Reykja- nesbæ. • Útsvarshlutfall bæjarins er 12,70%. • 5 skólar eru í bæjarfélaginu, þar af einn fiölbrautaskóli, auk tónlist- arskóla og nokkurra leikskóla. • Einnig er Sportköfunarskóli ís- lands með aðsetur í bænum. • Gunnar Eyjólfsson leikari er bæj- arlistarmaður Reykjanesbæjar. • Mikil körfuboltahefð ríkir í bæn- um en félögin tvö, Njarðvik og Keflavík, léku einmitt til úrslita um íslandsbikarinn i ár. • Knattspyrna er einnig vinsæl í bænum þótt Keflvikingar hafi ekki hampað íslandsbikarnum siðan 1973. • Reykjanesbær varð fyrst bæjarfé- laga til að reisa yfirbyggt knatt- spymuhús og hefur það reynst mik- il lyftistöng fyrir iþróttalífið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.