Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002
DV
Menning
13
Vika bókarinnar hefst í
dag:
Gengið um slóðir
Halldórs Laxness
Vika bókarinnar hefst í dag og á
morgun er alþjóðadagur bókarinnar,
23. apríl. Dagskrá vikunnar er fjöl-
breytt og fer fram víða: í bókasöfnum,
bókabúðum, skólum og samkomustöð-
um. Dagskrána er hægt að nálgast á
vef Félags íslenskra bókaútgefenda,
www.bokautgafa.is.
Alþjóðlegur dagur bókarinnar var
fyrst haldinn 23. apríl ár 1996. íslend-
ingum finnst það sjálfsagður hlutur
að fæðingardagur Halldórs Kiljan
Laxness sé alþjóðlegur dagur bókar-
innar en það er aldeilis merkileg til-
viljun að aldarafmælis skáldsins á
Gljúfrasteini skuli vera minnst um
cillan heim á morgun.
Bók vikunnar
Gjafabók Viku bókarinnar kom
út í dag og er aö þessu sinni smá-
sagnasafn eftir íslenska höfunda
fyrir böm á aldrinum 9-13 ára. Bók-
ina gefa bóksalar viðskiptavinum
sínum sem kaupa bækur fyrir 1.000
krónur eða meira í Viku bókarinn-
Halldór Laxness. Gjafabók
vikunnar
Töfrataflið og
fleiri sögur.
ar. Bókin heitir „Töfrataflið og fleiri
sögur“ og bamabókahöfundamir 11
sem eiga sögur í bókinni eru Aðal-
steinn Ásberg, Andri Snær Magna-
son, Auður Jónsdóttir, Brynhildur
Þórarinsdóttir, Guðmundur Ólafs-
son, Helgi Guðmundsson, Iðunn
Steinsdóttir, Kristín Steinsdóttir,
Sigrún Eldjám, Þórður Helgason og
Yrsa Sigurðardóttir. í mörgum
bókaverslunum verða bamabækur
á tilboðsverði þessa viku.
Halldórsganga
Bókasambandið ætlar að bjóða í
Halldórsgöngu að kvöldi Bókadags.
Gangan hefst kl. 19 við Laugaveg 32,
fæðingarstað Halldórs Laxness. Guð-
jón Friðriksson rithöfundur og sagn-
fræðingur leiðir okkur um slóðir Hall-
dórs. Hversu víða verður farið ræðst
af veðrinu. Göngunni lýkur í Félags-
heimili bókagerðarmanna, Hverfis-
götu 21, en þangað komu Halldór og
vinir hans gjama á heimili þeirra
Kristínar Guðmundardóttur og Hall-
bjamar Halldórssonar. Félag bóka-
gerðarmanna býður veitingar í tilefni
dagsins. Til sýnis verða áritaðar
frumútgáfur bóka Halldórs og skjöl
tengd Halldóri og félögum hans í
Mjólkurfélagi heilagra. Félag bóka-
gerðarmanna mun við þetta tækifæri
afhenda Landsbókasafni íslands - Há-
skólabókasafni bréfasafn Hallbjarnar
og Kristínar.
Mikið um að vera hjá Bjarti
- samningar um Gæludýrin og útgáfa Albúms
Mikið er um að
vera hjá bókaforlag-
inu Bjarti þessa dag-
ana. Réttindaskrif-
stofa Bjarts hefur
gengið til samstarfs
við hina þekktu
bresku umboðsskrif-
stofu Roger, Coler-
idge and White sem
hefur fjölmarga
heimsþekkta rithöf-
unda á sínum snær-
um, þeirra á meðal
Ian McEwan,
Raymond Carver og
Kazuo Ishiguro. Á
bókamessunni í
London í liðnum
mánuði kynnti skrif-
stofan skáldsöguna
Gæludýrin eftir
Braga Ólafsson fyrir
fjölda erlendra út-
gáfufyrirtækja. Þegar hefur verið
samið um danska þýðingu bókar-
innar við hið virta forlag, Lindhart
og Ringhof, og er stefnt að útgáfu á
næsta ári. Einnig hafa útgefendur i
Bretlandi, Þýskalandi, Hollandi,
FrakklEmdi, á Ítalíu, Spáni, í Noregi,
Svíþjóð og Finnlandi sýnt bókinni
áhuga og er búist við að hægt verði
að ganga frá samningum um fleiri
þýðingar á næstu mánuðum. Gælu-
dýrin komu út hjá Bjarti haustið
Bragi Olafsson
Samningaviðræður standa yfir við
erlend forlög. Nú þegar hefur verið
samið við danska forlagið Lindhart
og Ringhof.
Guörún Eva Mínervudóttir
Bjartur hefurgefið út nýjustu
skáldsögu Guðrúnar Evu. Bókin
heitir Albúm - skáldsaga og er
byggð upp af 99 myndum úr lífi
ungrar stúlku.
2001 og var bókin tilnefnd til Is-
lensku bókmenntaverðlaunanna og
Menningarverðlauna DV.
Albúm - skáldsaga
Ekki er nóg með það að Bragi og
Gæludýrin hans séu komin á flakk
um heimsbyggðina. Bjartur hefur
gefið út bókina Albúm - skáldsögu
eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur.
Sagan er byggð upp af níutíu og niu
myndum úr lífi ungrar stúlku sem
bregða heillandi
ljósi á þá krókóttu
braut sem liggur frá
sakleysi æskunnar
til þroska og sjálf-
stæðis.
Guðrún Eva
Mínervudóttir er
fædd árið 1976 og í
hópi fremstu skálda
sinnar kynslóðar.
Hún hefur áður sent
frá sér skáldsögur,
smásagnasafn,
barnabók og ljóð.
Síðasta skáldsaga
hennar, Fyrirlestur
um hamingjuna,
hlaut einróma lof
gagnrýnenda og var
tilnefhd til íslensku
bókmenntaverð-
launanna árið 2000.
í þessari nýju bók
leikur hún sér að skáldsagnaform-
inu með snjöllum hætti en líkt og í
fyrri bókum hennar einkennist frá-
sögnin af þroskaðri lífssýn og
ísmeygilegum húmor.
Albúm - skáldsaga er fimmtánda
verkið sem kemur út í Neon-bóka-
flokki Bjarts. Bókin er 111 blaðsíður
að lengd, kápugerð annaðist Snæ-
bjöm Amgrímsson en prentun ann-
aðist Prentsmiðjan Oddi.
Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness:
Hálf milljón fyrir bestu söguna
- tíminn er að renna út
Bókmenntaverðlaun
Halldórs Laxness verða
veitt í sjötta sinn í haust að
undangenginni árlegri sam-
keppni. Frestur til að skila
inn handritum er til 1. maí
næstkomandi. Verðlaunin,
sem nema 500.000 krónum,
era veitt fyrir nýja og áðm-
óbirta íslenska skáldsögu
eða safn smásagna. Sam-
keppnin er öllum opin og
mun bókin, sem verðlaunin hlýtur,
koma út hjá Vöku-Helgafelli sama
dag og þau verða afhent nú í haust.
Bjami Bjamason hlaut verðlaunin
árið 2000 fyrir skáldsöguna
Mannætukonan og maður hennar.
Megintilgangur Bókmenntaverð-
launa Halldórs Laxness er að efla ís-
lenskan sagnaskáldskap og
stuðla þannig að endumýj-
un íslenskrar frásagnarlist-
ar. Bókaforlagið Vaka-
Helgafell stendur að verð-
laununum. Fjórir rithöf-
undar hafa hlotið verðlaun-
in auk Bjama. Skúli Björn
Gunnarsson fékk þau fýrir
smásagnasafhMs Lífsklukk-
an tifar, Eyvindur P. Ei-
ríksson fyrir skáldsöguna
Landið handan fjarskans, en hann
var einnig tilnefndur til íslensku
bókmenntaverðlaunna fyrir þá bók,
og Sindri Freysson fyrir skáldsög-
una Augun í bænum. Þá fékk Gyrð-
ir Elíasson verðlaunin árið 2000 fyr-
ir smásagnasafnið Gula húsið sem
einnig hlaut íslensku bókmennta-
verðlaunin.
Vaka-Helgafell leggur fram verð-
launaféð, sem nemur 500.000 krón-
um, en við þá upphæð bætast venju-
leg höfundarlaun samkvæmt
rammasamningi Rithöfundasam-
bands íslands og Félags íslenskra
bókaútgefenda..
Skilafrestur er sem fyrr segir til
1. maí. Utanáskriftin er
Bókmenntaverðlaun
Halldórs Laxness
Vaka-Helgafell
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
og skal handritum skilað þangað
eftir þann tíma. Þau eiga að vera
merkt dulnefni en rétt nafn fylgi í
lokuðu umslagi.
Bjarni Bjarnason.
"the perfect pizza"
John Baker
Brckkuhús
IYLÖ
Tylö-sánaklefar.
Sérpöntum sánaklefa
eftir þínum óskum,
allar stærðir og gerðir.
Eigum á lager
fylgihluti fyrir sánaböð.
Lítið inn í Ármúlanum.
4* VATNS VIRKINN ehf
Armúla 21,108 Rvk. s. 533-2020
www.vatnsvirkinn.is.