Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2002, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2002
Fréttir X>V
Árni Sigfússon verður bæjarstjóri í Reykjanesbæ - D-listi fékk 6 manna meirihluta:
Viö lögðum áherslu á að vera jjákvæð
- megum vel við una með 4, segir oddviti Sf. - vonbrigði hjá Framsókn
„Ég er þakklátur bæjarbúum fyrir
þennan öfluga stuðning. Nú munum
við leggja okkur öll fram um að gera
bæinn okkar betri og fylgja eftir þeim
stefnumálum sem við höfum kynnt og
verið eins vel tekið og raun ber vitni,“
sagði Árni Sigfússon, tilvonandi bæj-
arstjóri í Reykjanesbæ, sem leiddi
lista sjálfstæðismanna til meirihluta-
sigurs á laugardag, fékk 6 bæjarfull-
trúa kjöma af 11.
„Ég tel að við höfum verið einstak-
lega heppin með góðan hóp frambjóð-
enda sem lagði fram vandaða vinnu í
tengslum við kosningamar. Við lögð-
um áherslu á jákvæðni og munum
halda þvi áfram. Bæjarbúar taka okk-
ur vel - þeim einstaklingum sem eru
tilbúnir að vinna í þeirra þágu og
málefnum sem við setjum á oddinn -
menntamál, umhverfis- og atvinnu-
mál, Við fáum skýrt umboð til að
fylgja þeim eftir.
Ég vil leggja áherslu á eins gott
samstarf og kostur er og tel okkur
hafa þörf fyrir alla 11 bæjarfulltrúana
- ná til þeirra sem eru í minnihluta.
Ég vil reyna að veikja þau mörk sem
eru milli meiri- og minnihluta og tel
að ef menn hafi viija og þroska til
slíks þá sé það unnt."
Héldum okkar fjórum
„Við megum vel við una að halda
okkar fjórum mönnum. Helsta
breytingin er að meirihlutaflokkur-
inn, Sjálfstæðisflokkurinn, vann
mann af lista Framsóknarflokks. Ég
óska Áma Sigfússyni til hamingju
um leið og ég þakka mínu stuðn-
ingsfólki fyrir þá vinnu sem það
lagði fram,“ segir Jóhann Geirdal,
oddyiti Samfylkingarinnar.
„Á komandi tímabili munum við
sinna minnihlutastarfinu með því
að veita meirihlutanum aðhald og
gagnrýna þar sem þess gerist þörf.
Við fognum orðum Áma um að
nálgast í samstarfi meirihluta og
minnihluta. Við munum styðja
meirihlutann með góð mál. Við,
þessir 11 sem hlutum kosningu, höf-
um það hlutverk að vinna sameigin-
lega að málum, í þeim tilgangi að ná
sem bestum árangri fyrir bæjar-
búa.“
Mikil tíðindi
„Ég vil óska Sjálfstæðisflokknum
til hamingju. Það er ljóst að bæjar-
búar hafa ákveðið að fela honum
umboð tú að stýra næstu fjögur
árin. Það eru mikil tíðindi," sagði
Kjartan Kjartansson, oddviti fram-
sóknarmanna í Reykjanesbæ. B-list-
inn fékk einn mann kjörinn og
missti einn.
„Vissulega eru þetta vonbrigði fyr-
ir okkur framsóknarmenn. Við höfum
unnið af heilindum í mörgum góðum
málum. Við munum nú fara yfir mál-
in i rólegheitum. Flokkurinn er gam-
all og aðrar kosningar koma eftir
þessar. Annars eru í huga mér þakkir
til þeirra sem studdu okkur og unnu
með í baráttunni." -Ótt
DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON
Kosnlngakaffi
Árni Sigfússon kom aö sjálfsögöu til kaffisamsætis á kosningaskrifstofu
sjálfstæöismanna í Reykjanesbæ. Góö stemning var meöal
sjálfstæöismanna á kjördag.
Sigurvegari kosninganna á Akureyri ósáttur:
Heljarherferð gegn minum flokki
- segir Oddur Helgi Halldórsson, leiðtogi L-listans
Helstu niðurstöður kosninganna á
Akureyri eru að meirihlutinn féll og
L-listinn vann stórsigur og bætti við
sig manni. Sjálfstæðisflokkurinn
missti einn mann, fékk fjóra í stað
fimm áður, eða tæp 36% atkvæða.
Samfylkingin fékk 14% og einn mann.
Framsóknarflokkurinn hélt þremur
mönnum og Vinstri grænir fengu
einn mann kjörinn. L-listi fólksins
fékk um 18% og tvo menn. Kjörsókn
var fjórum prósentum betri en í kosn-
ingum 1998, eða 80,55%.
DV innti forystumenn flokkanna
viðbragða við úrsiitunum á kosninga-
nótt og þrátt fyrir sigurinn var blend-
in gleði hjá Oddi Helga Halldórssyni,
leiðtoga L-listans. „Mér líst rosalega
vel á úrslitin. Við stefhdum alla tíð á
tvo menn en fylgið er heldur minna
en síðasta skoðanakönnun gaf til
kynna. Við megum ekki gleyma því
að á síðustu dögunum fóru fjórir
flokkar í heljarherferð gegn mínum
flokki og ekki síst gegn mér persónu-
lega. Þeir hafa greinilega náð að sann-
færa einhvern um að ég væri óheppi-
legur kostur en það hefur ekki dugað
til að ná öðrum manni okkar út,“
sagði Oddur.
Talið er að Oddur hafi sótt stóran
hluta fylgis sins til ungs fólks og með-
al annars með nýstárlegri auglýsinga-
herferð. Hann segir að aðrir hafi ekki
unnt honum þess. „Það er mjög slæmt
þegar stórir stjórnmálaflokkar
hringja i unga fólkið og fleiri og hefja
ófrægingarherferð gegn mér persónu-
lega. Það á ekki heima í svona slag.
Svo líktu pólitiskir andstæðingar mér
í blaðagreinum viö verstu fasista Evr-
ópu. Það á ekki við hjá siðmenntuðu
fólki.“
Árangur Vinstri grænna var lakari
en búist hafði verið við. „Þetta eru
vissulega vonbrigði en samt ákveðin
byrjun. Einn maður er kominn inn og
áfram verður unnið. Þetta hefur verið
samhentur og frábær hópur og við
hlökkum til að starfa saman," sagði
Valgerður Bjarnadóttir, sem kemur
inn í bæjarstjórn fyrir Vinstri græna.
Krlstján Þór Júlíusson, oddvitl sjálf-
stæöismanna.
Hún sagði um skýringar útkom-
unnar að framboðið yrði að horfa
gagnrýnum augum á niðurstöðuna.
Vinstri grænir mældust með allt að
þrjá fulltrúa í könnunum áður en ljóst
varð hvort flokkurinn myndi bjóða
fram eða hverjir myndu skipa hann
en Valgerður sagðist ekki treysta sér
til að skýra þann mikla mun sem varð
á fyrri könnunum og úrslitum kosn-
inganna.
Jakob Bjömsson, oddviti framsókn-
armanna, sagðist líta á það sem varn-
arsigur að hafa haldið þremur mönn-
um. „Við náðum því takmarki sem
við settum okkur að tryggja þrjá full-
trúa og ég er sáttur við það,“ sagði
Jakob og taldi framgang L-listans og
slakt gengi VG-framboðsins koma
mest á óvart í kosningunum.
Kristján Þór Júlíusson, oddviti
sjálfstæðismanna og bæjarstjóri,
fylgdist líkt og aðrir sjálfstæðismenn
mjög spenntur með talningunni en
samkvæmt fyrstu tölum var D-listinn
með fimm menn inni. Fimmti maður-
inn datt síðan út en Kristján sagði þó
ljóst að í grunnninn væri staða sjálf-
stæðismanna mjög sterk á Akureyri.
Oktavía Jóhannesdóttir, efsti mað-
ur Samfylkingarinnar, lýsti vonbrigð-
um með að fá ekki Hermann Tómas-
son, annan mann á lista Samfylking-
arinnar, sér við hlið inn í bæjarstjóm.
Hún sagöist hins vegar gleðjast yfir
góðum árangri flokksins á landsvísu
og taldi niðurstöðumar vera upptakt
fýrir alþingiskosningamar næsta ár.
Þar sem gengi krónunnar er hagstætt
í dag getum við boðið þér frábært verð á þessum Renault bílum.
Renault Laguna II
fólksbHI
Renault Scénic
fólksbíll
Renault Mégane Berline
fólksbíll
Bilalán, afborgun á mán.
Rekstrarleiga: 39.351
Veiöáður 2.090.000
Verð nú 2.006.000
Bílalán, aftxxgun á mán.
Rekstrarietga-38.665
Veröáður 2.050.000
Grjóthál* 1 • Sfmi 575 1200
Verðnú 1.968.000
Söludeild 575 1220 • www.bl.is
Bilalán, afcorgun á mán.
Rekslrarieiga:31.758
Veröáður 1.630.000
Verð nú 1.564.800
Rekstrarleiganertil 36 mán.,m.v.við 20.000 kmááriogerlendaniyntköriu.Rekstrar1eigaeraðeinsíboðitilrekstraradila( fyrirtækja).
Bflalán miðast við 30% útborgun og 84 mán. samning. Allar tölur erumeðvsk.
-BÞ
Fangelsismálayfirvöld:
Engin
ákvörðun um
hert eftirlit
- en tilvik verða rædd
Fangelsismálayfirvöld hafa ekki
tekið neinar ákvarðanir um hertar
reglur innan fangelsa hér á landi
vegna þeirra afbrota eða tilrauna til
þeirra, sem fangar hafa átt aðild að.
í fyrradag féll dómur í máli fanga
á Litla-Hrauni sem uppvís hafði orð-
ið að fjármögnun og skipulagningu
á stórfelldu smygli fikniefna hingað
til lands. Annar fangi á Litla-Hrauni
er grunaður um að hafa falsað tann-
læknareikninga og sent til inn-
heimtu hjá Tryggingastofnun rikis-
ins. Starfsfólk stofnunarinnar stöðv-
aði þegar afgreiðslu þeirra og stofn-
unin hóf rannsókn á málinu sem
verður kært til lögreglu.
Þorsteinn Jónsson fangelsismála-
stjóri sagöi viö DV að öll tilvik af
því tagi yrðu rædd. Það þyrfti ekki
að þýða að tilefni þætti til að herða
eða breyta framkvæmdmn. Sjálfur
kvaðst Þorsteinn ekki vilja tjá sig
um hvort hann teldi þörf á hertu eft-
irliti. -JSS
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 23.16 23.33
Sólarupprás á morgun 03.34 02.49
Síódegisflóó 19.08 23.41
Árdegisflóó á morgun 07.29 11.00
Minnkandi norðaustanátt, 3-8 m/s
veröur síðdegis. Víöa verður
léttskýjað suðvestan- og vestantil.
Þokubakkar og súld verða öðru hvoru
við norður- og austurströndina. Hiti
verður á bilinu 2 til 15 stig.
Gert er ráð fyrir norðaustan- og
austanátt, 5 til 10 m/s. Skýjaö
verður með köflum og skúrir,
einkum sunnan og austan til. Hiti
verður á bilinu 7 til 15 stig.
mc
Miövikudagur Fimmtudagur Föstudagur
Hiti 7° Hiti T Hiti 7°
til 15“ til 18" tii 15*
Vindur: 3-8 “A Vindun 3-8 nv* Vindun 3-8 m/s
Austlæg átt veröur rikjandi. Skýjaö og skúrir víöast hvar um landiö. Veöur fer Vindur blæs úr austri. Skýjaö veöur og skúrir veröa um mestallt land. Á föstudag er gert ráö fyrir noröiægri átt og rigningu eöa skúrum.
iítiliega
kólnandi.
Bjartviöri veröur
suövestan tll.
Áfram kóinandi
veöur.
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnningsgola 5,5-7,9
Kaldl 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
AKUREYRI alskýjaö 7
BERGSSTAÐIR skýjaö 5
BOLUNGARVÍK 4
EGILSSTAÐIR alskýjaö 6
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjað 17
KEFLAVÍK léttskýjaö 9
RAUFARHÖFN alskýjaö 10
REYKJAVÍK hálfskýjað 10
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 10
BERGEN skýjaö 16
HELSINKI skýjaö 14
KAUPMANNAHÖFN hálfskýjaö 15
ÓSLÖ skýjaö 16
STOKKHÓLMUR 16
ÞÓRSHÖFN skýjaö 10
ÞRÁNDHEIMUR skúrlr 17
ALGARVE léttskýjaö 23
AMSTERDAM skúrir 14
BARCELONA léttskýjað 19
BERLÍN rigning 13
CHICAGO þokumóöa 10
DUBUN skýjaö 13
HAUFAX hálfskýjað 11
FRANKFURT léttskýjaö 19
HAMBORG léttskýjaö 19
JAN MAYEN súld 4
LONDON skúrir 11
LÚXEMB0RG skýjaö 15
MALLORCA léttskýjað 23
MONTREAL 12
NARSSARSSUAQ hálfskýjað 10
NEW YORK alskýjaö 14
ORLANDO 20
PARÍS skúrir 16
VÍN alskýjaö 14
WASHINGTON þokumóða 18
WINNIPEG alskýjaö 7
1 6>6CT \ lHÍA un KSKVV ISLAW*