Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2002, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 Fréttir 1OV Lögmaður skoðar hvernig það má vera að haldlagður bíll fannst í Seláshverfi: Fangi sektaður um van- rækslu á aðalskoðun - lögregla felldi málið niður - annar bíll í rannsókn afhentur til Vöku sem rukkar Lögmaður manns sem situr í fang- elsi út af hinu svokallaða stóra fikni- efnamáli er að skoða hvernig staðið getur á því að maðurinn var nýlega sektaður fyrir vanrækslu á aðalskoð- un á bU sem lögreglan tók af honum á meðan rannsókn málsins stóð og hef- ur ekki fengið síðan. Lögmaðurinn segist m.a. vera að kanna hvernig það megi vera að lögreglumenn fundu bU- inn i Seláshverfi í júní, klipptu af hon- um númeraplötur þar fyrir vanrækslu á aðalskoðun, og sendu svo sektarboð þrátt fyrir að talið hefði verið að bUl- inn ætti að vera í vörslu lögreglunnar. Eftir að athugasemdir voru gerð- ar við sektarboðið fengust þau svör hjá lögreglunni að ákveðið hefði verið að fella málið niður. Lögmað- urinn óskaði engu að síður eftir gögnum sem hann er nú að skoða. Umbjóðandi mannsins, sem er refsi- fangi hjá Fangelsismálastofnun, er enn skráður eigandi bUsins. „Hvernig var hægt að rukka eig- andann áður en málið var fellt nið- ur?“ sagði lögmaðurinn við DV. Vaka meö annan bíl Annar lögmaður er að kanna mál manns sem handtekinn var nýlega fyrir innbrot en bifreið hans var tekin af honum eftir það. Lögregl- an gaf fyrst þær skýringar að hún þyrfti að hafa bílinn í þágu rann- sóknar sakamálsins. Eftir það komu þær skýringar að lyklar fyndust ekki að bílnum sem mun hafa verið í porti lögreglunnar. í síðustu viku sendi lögmaðurinn svo bréf til lögreglunnar og krafð- ist þess að bíll skjólstæðings hans yrði afhentur. Eftir helgina barst svo bréf frá Vöku, dagsett föstudag- inn 26. júlí, þess efnis að billinn hefði komið þangað daginn áður. Meðfylgjandi var rukkun um að eigandinn greiddi gjald til að leysa bílinn út - ella verði bíllinn rifinn niður eða seldur á uppboði fyrir kostnaði. Lögmaðurinn er nú að kanna hvort rétt sé að fara í svokallað innsetningarmál. Þess verði kraf- ist að bíllinn verði afhentur án kostnaðar. Sé slíkt gert er farið til héraðsdóms og þess krafist að eig- andanum verði afhentur billinn með beinni aðför. Sé fallist á slíkt með dómi er hægt að óska eftir að sýslumaður framfylgi dóminum - í þessu tilfelli að fá Vöku til að af- henda bílinn. -Ótt F j ármagnsmarkaðurinn: Reikna með 0,5% lækkun stýrivaxta DV-MYND KÖ Árekstur við Holtaveg Tvær jeppabifreiðir skullu saman við gatnamót Hoitavegar og Sæbrautar um hálftólfleytið í gærkvöld. Ekki urðu alvar- leg slys á mönnum en annar bílstjóranna kvartaði undan eymslum í vinstri síðu. Málið er í rannsókn lögreglu. Rannsakað sem tilraun til manndráps Rit Seðlabanka íslands, Peninga- mál, kemur út á morgun með endur- nýjaðri greinargerð um stöðu og horfur í peninga- málum landsins. Þann dag verða blaðamenn boð- aðir til fundar og þeim þá væntan- lega greint frá því hvort vextir verða lækkaðir enn frekar. Mörg- um í viðskiptalífinu finnst vaxta- lækkun liggja i loftinu. Viðskipta- blaðið í morgun vitnar í sérfræð- inga á fjármagnsmarkaði sem spá 0,5% lækkun stýrivaxta bankans. Ingimundur Friðriksson, aðstoð- arbankastjóri Seðlabankans, sagði í gær að í júní hefði komið yfirlýsing frá bankanum um að um þessi mán- aöamót yrði skoðað hvort vextir yrðu enn lækkaðir. Það kæmi hins vegar ekki í ljós fyrr en á fimmtu- dag hver niðurstaðan yrði - eftir að verðbólguþróun og staða peninga- mála hefði verið kynnt. í Viðskiptablaðinu segir Bjöm R. Guðmundsson hjá greiningardeild Búnaðarbankans líklegt að vextir lækkuðu um hálft prósent. Hann segir vaxtalækkunina fara mikið eftir verðbólguspá og sæi bankinn verðbógumarkmið sitt í augsýn þá yrðu vextir lækkaðir. -JBP- Maður, sem grunaöur er um að hafa stungið fyrrum sambýliskonu sína 4 sentímetra djúpri stungu á háls á sunnudagskvöld, var fyrir all- mörgum árum dæmdur fyrir mann- dráp. Hann hefur verið úrskurðað- ur í 10 daga gæsluvarðhald. Með hliðsjón af þeim áverkum sem kon- an hlaut rannsakar Lögreglan í Reykjavík málið sem tilraun til manndráps. Hnífur fannst á vett- vangi og styður það að maðurinn hafi stungið konuna. Hann neitar hins vegar sök. Konan býr i íbúð á Boðagranda þar sem atburðurinn átti sér stað. Manninum hafði verið ekið þangað á sunnudagskvöld en eftir það er talið að til deilna hafi komið hjá fólkinu sem hefur verið í óreglu. Þegar konan hafði hlotið sár sín gerði maðurinn, samkvæmt heim- ildum DV, viðvart en þó ekki til lög- reglu. Það var ekki fyrr en aðstand- andi konunnar kom á vettvang sem hringt var á sjúkrabíl. Meiðsl henn- ar eru ekki lífshættuleg þrátt fyrir að stungan hafi verið mjög djúp og á eins hættulegum stað líkamans og raun bar vitni. -Ótt Salmonellan í nautgripum í Hegranesi: Bændur gagnrýna hvernig staðið var að málum í vor DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON. Bær í sóttkví Séö heim að bæjunum Ási I og II. Farbann hefur verið sett vegna smits á báða bæina, þeir eru í sóttkví. Komin er upp salmonellusýking í nautgripum á bænum Ási I í Hegranesi í Skagafírði eins og greint var frá í DV í gær. Sýkingin greindist í einni af 26 mjólkurkúm og hefur henni verið farg- að. Nýbúið er að taka sýni úr hinum kúnum og er beðið niðurstöðu þeirra. Farbann er í gildi bæði á Ási I og nærliggjandi bæ, Ási II, þar sem er fjár- bú. Þar fannst smit í kind í vor auk þess sem gerlar fundust í jarðvegi við bæinn. Þá þurfti sem kunnugt er að drepa á fimmta hundrað fjár á Ríp í vor vegna salmonellusýkingar. Magnús Jónsson, hóndi á Ási I, er að vonum miður sín vegna ástandsins en mjólkurfi*amleiðsla hefur verið stöðvuð frá bænum og sýnt að hann verður að hella henni niður næstu vikumar, en um þessar mundir er nyt kúnna í há- marki. Magnús er, eins og fleiri hænd- ur í Hegranesi, ósáttur við það að ekki var fastar tekið á málum i Hegranesinu í vor, en það er altalað i Nesinu og stað- reynd að um líkt leyti og féð fór að drepast á Ríp hafði Einar Valur Val- garðsson, bóndi á Ási II, misst á þriðja tug fjár og lambadauði var óvenjumik- ill. Dýralæknar sáu þó ekki ástæðu til að rannsaka það mál til fúlls. Þá eru girðingar í ólagi við bæinn og menn álíta að farga hefði þurft fé á fleiri bæj- um í Hegranesinu en Ríp. Aðspurður sagðist Magnús, bóndi á Ási I, fyrst hafa orðið var við veikindi í kúnni jpegar hún var greind með júg- urbólgu. Eitthvað fannst Magnúsi þó vera óeðlilegt við kúna og kallaði aftur eftir dýredækni. Var þá ákveðið að taka sýni og greindist þá salmoneUusýking- in. Ljóst er að húsbændur á Ási I verða fyrir miklu tjóni, þó svo að ekki þurfi að farga fleiri kúm úr fjósinu. Þegar veikin kom upp á Ríp í vor var tekið sýni úr hrossum á Ási I. Það sýni reyndist neikvætt. Síðustu dagana hafa flutningabUar sem leið hafa átt í Hegranesið ekki far- ið annað í héraðinu án þess að vera hreinsaðir i miUitíðinni og bUstjórar verið varðir sérstaklega. „Við erum komin í einangrun," sagði bóndi einn i Hegranesinu vegna þessa. Yfirdýralæknir sagði í hádegisfrétt- um í útvarpi í gær að ekki veitti af að gera aUsherjarrannsókn á salmoneUu- sýkingunni í Hegranesi. ÞÁ Rætt um SPRON og BÍ Efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis kom saman í gær tU að ræða málefni SPRON og yfirtökutU- boð Búnaðarbanka ís- iands. Formaður nefndarinnar, VU- hjálmur EgUsson, sagði í samtali við RÚV að formleg ósk Sambands íslenskra sparisjóða um að ræða við nefndina um þessi mál hefði legið fyrir um hríð. Játuðu smygl á áfengi Þrír skipverjar á Brúarfossi hafa ját- að smygl á um 100 áfengisfiöskum. ToU- verðir i Hafnarfirði fundu smyglið við skyndUeit í skipinu en áður hafði skip- ið verið toUskoðað i Reykjavíkurhöfn. Málið hefur verið sent lögreglunni í Hafnarfirði tU rannsóknar. Rutningi OR frestað Nýjar höfuðstöðvar Orkuveitu ReykjavUmr verða ekki teknar í notkun í september eins og fyrirhugað var. Ástæðan er sú að nýtt hús Orkuveitunn- ar við Réttarháls er ekki tUbúið. Nú er ráðgert að flytja starfsemina í nóvem- ber. Verðlaun á flugsýningu Einar PáU Einarsson flugvélasmiður hlaut á dögunum sérstaka viðurkenn- ingu fyrir flugvél sína, sem er af gerð- inni Piper Cub J-3, á flugsýningunni í OshKosh í Wisconsin í BandarUíjunum. mbl.is greindi frá. Boðið á kvikmyndahátíð Kvikmyndinni Reykjavík Guest- house - rent a bike, hefur verið boðið á eina stærstu kvik- myndahátíð N-Amer- fcu, Montreal World FUm Festival. Mynd- in verður sýnd í flokki mynda sem fjafla um samtímann. Leikstjórar myndarinnar eru Unnur Ösp Stefánsdóttir og Bjöm Thors. Með aðalhlutverk fara HUmir Snær Guðna- son, Kristbjörg Kjeld og Stefán Eiríks- son. Bensín lækkar vart Bensín mun tæpast lækka verulega um mánaðamótin. Aðstoðarforstjóri Skeljungs segir í samtali við mbl.is að ef einhverjar breytingar verði um mán- aðamótin þá verði þær ekki miklar. Komin til meðvitundar Konan, sem var skorin á háls á sunnudagskvöld, hefur verið tekin úr öndunarvél og er komin tU meðvitund- ar. Líðan hennar mun eftir atvikum. Kvörtun hjá Barnaverndarstofu Formleg kvörtun móður 11 ára drengs vegna dvalar hans í sumarbúð- um KFUM í Vatnaskógi er enn tU athug- unar hjá Bamavemdarstofu. Eins og DV greindi frá fyrir stuttu telur móðir- in drenginn hafa orðið fyrir aðkasti í búðunum og starfsemi hafa verið ábóta- vant á fleiri sviðum. Laxeldi í Reyðarfirði Kvíaeldi í Reyðarfirði felur hvorki í sér varanleg umhverfisáhrU' né veruleg spjöU á umhverfinu sem ekki verði hægt að bæta úr með mótvægisaðgerð- um. Þetta er niðurstaða matsskýrslu sem unnin var fyrir Samherja um um- hverfisáhrif sex þúsund tonna laxeldis í Reyðarfirði. RÚV greindi frá. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.