Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2002, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002
DV
Fréttir
Hurðaskellir á fundi úthlutunarnefndar Kvikmyndasjóðs íslands:
Vilhjálmur talaði fyr-
ir kvikmynd Hrafns
- ég vildi bara loka örugglega, segir Vilhjálmur Egilsson
Vilhjálmur Egilsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
stjómar Kvikmyndasjóðs, mætti á
fund úthlutunarnefndar sjóðsins
klukkan hálftíu á mánudag þar sem
til umræðu voru nýjustu úthlutanir
sjóðsins og þau meintu hagsmuna-
tengsl sem ýjað hefur verið að i
tengslum við þær.
Að sögn meðlima í úthlutunar-
nefndinni skýrði Vilhjálmur þau
sjónarmið sin á fundinum að kvik-
myndin Stella i framboði væri ekki
hæf til úthlutunar þar sem gerö
myndarinnar hafði þegar verið
komin í gang. Þá benti hann á ann-
að verkefni sem betur væri til
styrksins fallið.
„Vilhjálmur nefndi kvikmynd
Hrafns Gunnlaugssonar, Glæpur
skekur Húsnæðisstofnun, sem
heppilegra verkefni sem félli betur
að styrknum," segir Anna G. Magn-
ússon, nefndarmaður í úthlutunar-
nefndinni.
Vilhjálmur er sagður hafa struns-
að út í miðjum klíðum á fundinum
án þess að kveðja og síðan skellt
hurðinni á eftir sér. „Ég skellti bara
til þess að loka örugglega. Hurðin
var í lás og það þurfti að taka aðeins
DV-MYND E.ÓL.
Vilhjálmur á upplelð
Formaöur stjórnar Kvikmyndasjóös
strunsaöi út af fundi úthlutunarnefnd-
ar eftir aö hafa lýst því yfir aö kvik-
myndin Stella í framboöi væri óhæf til
úthlutunar og bent á annan kost. Hér
er hann hins vegar á uppleiö á fund
stjórnar sjóösins sama dag.
á henni,“ segir Vilhjálmur og tekur
fram að sig minni að hann hafi
kvatt. „Þegar menn eru famir að
endurtaka sömu setningamar er
ekki um meira að tala. Ég sagði
bless og að ég héldi að við þyrftum
ekkert að ræöa þetta meira,“ segir
hann.
Einelti og Hrafn
Vilhjálmur segir að komið hafi
upp eineltisandrúmsloft í kringum
Hrafn Gunnlaugsson leikstjóra. í
hvert skipti sem Hrafn sæki um út-
hlutunarstyrk birtist blaðaskrif og
sögusagnir þar sem hann er kallað-
ur styrkjahöfðingi. „Ég bendi hins
vegar á að hann hefur aðeins einu
sinni fengið úthlutað úr sjóðnum
síðan ég byrjaði í stjóminni fyrir
níu árum. Og hann hefur aldrei
fengið útgreiddan framleiðslustyrk
á tímabilinu," sagði Vilhjálmur og
varpaði fram þeirri spurningu
hvort það væri sanngjamt.
Eins og kunnugt er hlaut Stella í
framboði, kvikmynd Guðnýjar Hall-
dórsdóttur, úthlutun upp á 35 millj-
ónir króna úr Kvikmyndasjóði.
Stjóm sjóðsins samþykkti úthlutun-
ina með 3 atkvæðum gegn einu. Ari
Kristinsson kvikmyndagerðarmað-
ur sat hjá, en hann var undirritaður
á umsókn Hrafns Gunnlaugssonar
til sjóðsins.
Vilhjálmur Egilsson formaður
var einn stjómarmanna á móti út-
hlutuninni. Hann segir úthlutunina
gefa slæmt fordæmi. „Þetta eru stór-
kostlega hættuleg vinnubrögð. Það
er verið að gefa þau skilaboð að
menn geti farið af stað með kvik-
mynd og þá treyst því að fá styrk af
því að þeir eru þegar farnir af stað.
Úthlutunamefndin stóð frammi fyr-
ir því að hún myndi valda aðstand-
endum myndarinnar Stellu í fram-
boði miklu fjárhagstjóni með því að
veita ekki styrkinn. Þetta verður
sérstaklega hættulegt þegar einn
maður verður ábyrgur fyrir þessu
og verður undir sífelldu álagi,“ seg-
ir hann og vísar til væntanlegrar
stofnunar Kvikmyndamiðstöðvar ís-
lands utan um Kvikmyndasjóð.
Staða forstöðumanns miðstöðvar-
innar mun hafa talsvert meira um
úthlutanir að segja en núverandi
staða forstöðumanns sjóðsins. Ný
lög um Kvikmyndamiðstöð taka
gildi 1. janúar næstkomandi. -jtr
Taliö að landnáms-
bær sé fundinn á
Seylu í Skagafirði
DV-MYND HARI
Stór áfangi í lífinu
Kristinn Arnar Friögeirsson, einn sex íbúa á Baröastööum, tekur viö lykli aö
íbúö sinni úr hendi Líneyjar Óladóttur forstööuþroskaþjálfa. Til hliöar stendur
Björn Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Svæöisskrifstofu fatlaöra í Reykjavík.
Nýtt sambýli tekið í notkun í Grafarvogi:
Langþráður
draumur margra
að rætast
- segir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu
Ekki verður annað sagt en mikil
gróska sé i fomleifauppgrefti í
Skagafirði í sumar. Auk þess sem
uppgröftur á sér nú stað á Hólum og
í Glaumbæ eru vísindamenn frá
Kalifomíuháskóla að kanna nokkra
staði i nágrenni Glaumbæjar. Þeir
hafa síðustu vikumar verið á bæn-
um Stóru-Seylu, sem er gamalt höf-
uðbýli, og telja sig þar hafa fundið
bæjarrústir frá landnámsöld. Þá er
einnig áformað að kanna svæði í
landi Torfgarðs.
John M. Steinberg, fomleifafræð-
ingur frá Kaliforníuháskóla, segir
húsarústirnar við Seylu mjög
óvenjulegar en þær eru neðarlega í
landinu, rétt fyrir neðan fjósbragg-
ann og votheysgeymsluna sem
standa enn uppi. Þar hafa fundist
hleðslur fjögurra húsa á litlu svæði.
DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Rústir frá landnámsöld
Bandarísku vísindamennirnir viö störf
á Seylu. Frá hægri taliö: John M.
Steinberg, Steve Martin og Poul Song.
Steinberg segir þennan fund mjög
forvitnilegan sökum þess hversu
óvenjulegt munstur bygginganna sé
og í rauninni væri þessi fundur
merkilegri með tilliti til fomleifa-
rannsókna en það sem fundist hefur
í Glaumbæ en þar er það sagan,
tengd Guðríði og Snorra Þorfmns-
syni, sem gerir rannsóknimar svo
merkilegar. Reyndar em vísinda-
menn í Glaumbæ einnig komnir
niður á húsarústir sem taldar eru
frá landsnámsöld. Þær reyndust
vera undir langhúsinu frá 11. öld
sem staðsett var i fyrra með berg-
málsmælingum - aldurgreining
barst fyrr í sumar.
Eftir er að framkvæma nákvæma
aldursgreiningu á þeim húsarústum
sem fundist hafa í Stóru-Seylu en
það verður væntanlega gert næsta
vetur. Bandarisku visindamennim-
ir kortleggja svæðið og framkvæma
grunngröft og þar eru nú komnar
fjórar rásir, tæplega metri á dýpt,
ein við hvert húsanna. Að sögn
Johns Steinbergs verður það síðan
væntanlega verkefni íslenskra fom-
leifafræðinga að stjóma frekari
rannsóknum en Guðmundur Ólafs-
son, deildarstjóri fornleifadeildar
Þjóðminjasafnsins, var á svæðinu i
síðustu viku.
Sigríður Sigurðardóttir, safn-
stjóri Byggðasafnsins í Glaumbæ,
segir mjög spennandi að fylgjast
með þeim fomleifarannsóknum sem
nú fara fram í Skagafirði. Bæði
fundurinn í Glaumbæ og á Seylu
hafi sýnt fram á munstur í bygging-
um forfeðranna sem ókunnugt var
áður. Það sé greinilegt að frum-
byggjamir hafi reist hús sín neðar í
landinu en tíðkaðist seinna. Það
verði eitt rannsóknarefnið að fá
svar viö þvi hvers vegna þeir gerðu
það. En hins vegar hafi það alltaf
verið þekkt og vitað að bændur
fluttu tU sín hús á jörðunum þegar
um nýbyggingar eða endumýjun
var að ræða. -ÞÁ.
GlæsUegt íbúðasambýli, ætlað
fötluðu fólki, var tekið í notkun við
Barðastaöi í Grafarvogi í gær. Hús-
ið er ætlað sex fotluðum einstak-
lingum sem hver um sig mun búa í
eigin 32 fermetra íbúð. í húsinu er
jafnframt sameiginleg borðstofa,
eldhús, skrifstofa, þvottahús og
geymslur. Garöskáli með heitum
potti er við hlið hússins og mun án
efa veröa íbúum tU yndisauka.
Sambýlið var reist fyrir tUstuðlan
Hússjóðs Öryrkjabandalagsins en
félagsmálaráðuneytið tekur það á
leigu. Um er að ræða samstarfsverk-
efni Hússjóösins og ráðuneytisins
tU að stytta biðlista vegna búsetu
fatlaðra.
Björn Sigurbjömsson, fram-
kvæmdastjóri Svæðisskrifstofu
Reykjavíkur, segir nýja sambýlið já-
kvætt skref í áttina að styttingu
biðlista. „í dag er langþráður
draumur margra að rætast en enn
eru margir sem bíða eftir þjónustu
frá Svæðisskrifstofu Reykjavíkur og
sumir hverjir hafa beðið verulega
lengi - jafnvel mörg ár,“ sagði Björn
m.a. við opnunina í gær.
Bjöm sagði jafnframt ánægjulegt
að sjá sex ungmenni leggja af stað í
búsetu og hefja nýtt lif. „Þótt ung-
lingurinn sé íloginn burt úr hreiðr-
inu þá slitna bönd fjölskyldunnar
ekki og vona ég að foreldrastarf geti
orðið öflugt hér og komi tU með að
efla aUt starf innan sambýlisins,"
sagði Bjöm Sigurbjörnsson. -aþ
S:LinJFýjjjy,iU u'£ sjíiJiLt/lJ]
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 22.36 22þ39
Sólarupprás á morgun 04.33 03.56
Siódegisflóó 23.12 16.15
Árdegisflóð á morgun 11.42 03.45
PiBHflflWBBr
> ....
Skýjað með köflum
Suölæg átt, 5-10 m/s um landið
vestanvert og lítilsháttar súld öðru
hverju, hægari vindur um landið
austanvert og skýjaö með köflum
eða léttskýjað. Hiti 10 til 22 stig
síðdegis, hlýjast í innsveitum
austanlands.
IBBl
Fremur hæg suðaustlæg átt. Skýjað
að mestu en þurrt að kalla en síðan
rigning um nóttina vestanlands en
annars skýjað með köflum. Hiti 10
tU 20 stig.
Veðriö
Föstudagur Laugardagur ! iunnudagur
£> 33
Hrti 10» Hiti 10° Hiti 10°
«120° til 22° «1 22°
Vindun Vindur: Vindur:
5-10 m/* 5-10 "V* 5-10 "v*
Fremur hag ! Suftaustanátt 08 SuSlægar áttlr,
suðaustiæg átt, viia suld rigning ota súld
skýjaö en þurrt vestanlands en meö köfium
aö kalla. annars b|nrtara. vestanlands an
annars skýjaö
meö köflum.
f * t
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnningsgola 5,5-7,9
Kaldl 8,0-10,7
Stinnlngskaldl 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassvlðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárvlörl >= 32,7
AKUREYRI skýjað 12
BERGSSTAÐIR alskýjaö 12
BOLUNGARVÍK alskýjaö 10
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 9
KIRKJUBÆJARKL. skviað 9
KEFLAVÍK súld 9
RAUFARHÖFN skýjaö 10
REYKJAVÍK súld 9
STÓRHÖFÐI súld 10
BERGEN léttskýjaö 20
HELSINKI léttskýjaö 23
KAUPMANNAHOFN skýiaö 20
OSLÓ hálfskýiaö 21
STOKKHOLMUR 21
ÞÓRSHÖFN hálfskýiaö 11
ÞRANDHEIMUR skýjaö 18
ALGARVE heiöskírt 20
AMSTERDAM þokumóðc i 20
BARCELONA alskýjaö 20
BERLÍN skýjaö 21
CHICAGO heiöskírt 26
DUBLIN súld 13
HALIFAX þokumóöc i 17
FRANKFURT skýjaö 20
HAMBORG léttskýjaö 20
JAN MAYEN þoka 6
LONDON skýjað 17
LÚXEMBORG skýjað 19
MALLORCA léttskýjaö 25
MONTREAL skýjaö 18
NARSSARSSUAQ léttskýjað 15
NEW YORK léttskýjað 23
ORLANDO heiöskírt 26
PARÍS skýjaö 18
VÍN hálfskýjaö 19
WASHINGTON skýjaö 20
WINNIPEG hálfskýjaö 16