Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2002, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2002, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 Fréttir DV Ósýnilegur Keikó veldur aukinni umfjöllun í Eyjum: Keikó er enn þá í villtum félagsskap - raunhæft að koma honum í villta náttúru, segir Hallur Hallsson i:*5—.,’[T ’&jy*'-_ pií®f5®ÍÍÍÍÍ^^S Kelkó Ósýnilegur en gagniegur Vestmannaeyingum. Sveitarstjóri í Hrísey: Afkomandi Hákarla-Jör- undar ráðinn Á aukafundi sveitarstjórnar 25. júlí sl. var ákveðið að ráða Ragnar Jörundsson í stöðu sveitarstjóra Hríseyjarhrepps fyrir kjörtímabilið 2002-2006. Ragnar mun hefja störf 1. september 2002. Hann var fram- kvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík en þar áður starfaði hann sem sveitarstjóri og sparisjóðsstjóri á Suðureyri, i Súðavík og Ólafsvík. Hann er afkomandi Hákarla-Jör- undar, sem margir Hríseyingar rekja ættir sínar til. Fráfarandi sveitarstjóri, Pétur Bolli Björgvinsson, leitaði ekki eftir endurráðningu og er fluttur til Ak- ureyrar. Kona hans, Rut Ingólfsdótt- ir, var skólastjóri grunnskólans. í hennar stað hefur verið ráðin Jó- hanna María Jóhannsdóttir frá Fá- skrúðsfirði. Atvinnulíf er sæmilegt í Hrísey nú, að sögn oddvitans, Kristins Fr. Ámasonar, sem er bústjóri einangr- unarstöðvar svína í eyjunni, sem er í eigu Svinaræktarfélags íslands. Hann segir töluverðar vonir bundn- ar við kræklingarækt sem fyrirhug- aö er að koma á fót í Hrísey. -GG „Keikó hefur það mjög gott, þetta gengur allt afskaplega vel. Við erum einbeittir í að koma honum i villta náttúru,“ segir Hallur Hallsson, talsmaður Ocean Future-samtak- anna. Hann stað- festi það við DV að Keikó væri mikið með há- hymingahópi í kringum Kletts- vik. Hallur segir að fyrr í sumar hafi Keikó synt frá þjálfurum sínum til annarra háhyminga. Hann hafi ver- ið í fjóra daga með hópnum og fylgst hafi verið með honum úr fjarlægð í skútu. Síðan snéri hann aftur í Klettsvík og var þar i tvo daga. Hinn 17. júlí fór Keikó síðan aftur til hópsins og hefur hann fylgt ferð- um hans síðan. „Það er greinilegt að Keikó sýnir mjög ákveðið áhuga á villtum há- hyrningum og þeirra tilveru og það eru greinileg samskipti milli hans og þeirra,“ segir Hallur en bætir við að ekki sé hægt að gera sér grein fyrir því hvort hann veiðir og borð- ar. „Við reynum að skipta okkur sem allra minnst af honum en það er mjög ánægjuleg þróun sem á sér stað. Hún staðfestir þá sýn samtak- anna að það sé fullkomlega raun- hæft að koma Keikó í villta nátt- úru.“ Ekki fjölgun útlendinga „Vissulega hefur Keikó haft já- kvæð áhrif á bæjarlífið héma í Eyj- um,“ segir Aurora Friðriksdóttir, starfsmaður hjá Feröamálastofnun Vestmannaeyja, aðspurð hvort ferðamönnum hafi fjölgað með til- komu Keikó. „Með tilkomu Keikó hafa Vest- mannaeyjar náttúrlega fengið aukna umfjöllun. Það em fyrst og fremst fleiri íslendingar sem koma og þá sérstaklega fjölskyldur með böm. Hvað varðar erlenda ferða- menn myndi ég ekki segja að þeim hafi fjölgað," segir Aurora og bætir við að það heyri til undantekninga að fólk sé að koma til að sjá Keikó. „Það var fyrst í vor að hægt var að sjá Keikó. Nú er það ekki mögu- legt, það er mikiö farið með hann „út í göngutúr" eins og þeir vilja kalla það,“ segir hún „Það voru heldur engar vonir bundnar, a.m.k. ekki hjá heima- fólki, um að Keikó myndi lokka að sér einhverja þúsundir útlendinga. Það var frá upphafi sagt að hann yrði ekkert sýningardýr og fólk hérna í Eyjum var alveg með lapp- irnar á jörðinni," segir Aurora. -vig Hallur Hallsson. Smáauglýsingar 550 5000 Ertu aö selja bfllnn? • komdu með bílinn og láttu okkur taka myndina • eða sendu okkur mynd á .jpg sniði á smaauglysingar@dv.is DV-MYND: ÞGK Bæjarstjóri með búslóö „ Viö höfum átt góö ár hér í Grindavík og eignast marga góöa vini. Viö fengum hlýjar skilnaöarkveöjur, “ sagöi Einar Njálsson í samtali viö DV. Hann og eiginkona hans, Sigurbjörg Bjarnadóttir, yfirgáfu Grindavík um helgina þar sem Ein- ar hefur starfaö sem bæjarstjóri síöustu fjögur árin. Áöur var Einar bæjarstjóri Húsvíkinga en hefur nú veriö ráöinn bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Árborg. Rauði krossmn: Tíu milljónir til hjálparstarfs Rauði kross íslands sendir á næstunni rúmlega tíu milljónir króna, að minnsta kosti, til hjálpar- starfs á hungursvæðum í sunnan- verðri Afríku eftir vel heppnaða fjáröflun undanfama daga. Um tvö þúsund manns hringdu í söfnunar- síma Rauða krossins 907 2020 og fjöldi manns kom framlagi til skila á annan hátt. Hjálparstarf Rauða krossins mið- ast við að koma matvælum til 750 þúsund manna, einkum bama, sem þjást af matarskorti nú þegar. Ef ekki verður bragðist við á næstu vikum er óttast aö 300 þúsund manns kunni að láta lífið á tímabil- inu fram að jólum. Ríkisstjórn íslands tilkynnti í gær um tveggja milljóna króna framlag til hjálparstarfsins. Þetta fé kemur til viðbótar tveimur og hálfri milljón króna sem almenningur gaf í símasöfnun, fjórum miiljónum króna úr Hjálparsjóði Rauða kross íslands og á þriðju milljón króna sem deildir félagsins um allt land hafa lagt fram. Áður höfðu stjórnvöld ákveðið að senda eina milljón til Matvælastofn- unar Sþ vegna ástandsins. Þótt fjár- öfluninni sé nú lokið getur fólk enn hringt í 907 2020 og gefið þannig 1.000 krónur sem verða dregnar af næsta símreikningi. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.