Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2002, Page 21
I
MIÐVKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002
DV
Tilvera
um nokkurt
rísa upp úr
Wesley Snipes 40 ára
Leikarinn Wesley
Snipes er fertugur í
dag. Snipes hefur
leikið í ijölmörgum
bíómyndum en er
líklega þekktastur
fyrir hasarmyndir
sínar. Hann lék í
frábærum mynd-
um, á borö við
Jungle Fever og Mo
Better Blues, en
sást svo frekar lítið
skeið en ér nú að
öskustónni Hann lék síðast í mynd
inni Blade II sem vampíra og varð
myndin mjög vinsæl.
Gildir fyrir fimmtudaginn 1. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.v
I Ekki fresta þvl sem þú
' getur gert nú þegar.
Varaðu þig á öllum
seinkunum, bæði þeim
sem koma þér illa og þeim sem
kimna að valda öðrum óþægindum.
Flskarnir (19. febr.-20. mars):
Þér gengur ekki nógu
Ivel að sannfæra fólk
um að breytingar sem
þú hefur hug á að gera
muni ganga upp. Þú ættir kannski
að bíða eftir betri jarðvegi.
Hrúturinn (21. mars-19. aprfh:
^^Aðrir virðast ekki
^■^»JFhafa mikinn áhuga
á hugmyndum þínum.
Bjartsýni þín gæti
þó haft jákvæð áhrif. Forðastu
kæruleysi.
Nautið (20. apríl-20. maíi:
Tilfmningamál veldur
deilum á milli þín og
persónu sem þú þekkir
vel. Þú verður mikið á
ferðinni seinni hluta dagsins.
Happatölur þínar eru 2, 9 og 18.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi:
V Þú finnur fyrir öfund í
//**' kringum þig. Þaö eru
wmS / ekki allir jafnánægðir
með frama þinn i
ákveðnu máli. Þú kynnist
ákveðinni persónu á nýjan hátt.
Krabblnn (22. iiiní-22. iúffl:
Þér leiðist að þurfa að
| sinna sömu skyldum
alla daga og þú ættir
að reyna eitthvað
nýtt í dag. Leitaðu til annarra
eftir hugmyndum.
Liónið (23. iúlí- 22. áeúst):
I Þú ert bjartsýnn og
það kemur sér vel í
starfi þínu. Láttu það
ekki angra þig þó að
þú verðir fyrir töfum.
Happatölur þínar eru 4, 7 og 8.
Mevian i23. áeúst-22. seot.):
Smávægilegt vandamál
kemur upp fyrri hluta
.dagsins og þú þarft
að fá hjálp annarra
við að leysa það.
Happatölur þínar eru 1, 7 og 19.
Vogin f23. sept.-23. oktö:
Þér gengur vel að fá
fólk á þitt band í
vinnunni og
hugmyndir þínar fá
mikla athygli. Fjölskyldan kemur
mikið við sögu í kvöld.
Sporðdreklnn (24. okt.-21. nóv.):
| Vertu ákveðinn
í kröfum þinum í máli
lisem þér er hugleikið,
annars áttu á hættu
að tapa því sem þú hefur
þegar unnið.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2i. des.l:
|Dagurinn verður hag-
rstæður á mörgum svið-
um en gættu þess að
treysta ekki um of á
heppnina, hún gæti brugðist.
Happatölur þínar eru 14, 22 og 24.
Stelngeitin (22. óe?.-19, ian.);
Þú gætir lent í því að
fylgja öðnrni eftir í
dag í stað þess að sýna
sjálfur frumkvæði.
Kvöldið verður ánægjulegt.
Happatölur þínar eru 3, 27 og 38.
Fyrsta sameiginleg leiksýning framhaldsskólanna:
Valinn maður
í hverju rúmi
- segir markaðsmaðurinn Þorvaldur Davíð
„Við urðum hreinlega ástfangin
af þessu stykki," segir Þorvaldur
Davíð Kristjánsson um leikverkið
Fullkomið brúðkaup sem nemar
úr framhaldsskólum Reykjavíkur
færa nú á svið. Þetta eru krakkar
úr MR, Versló, MH, Kvennó og MS
sem hafa sameinað krafta sína og
stofnað leikfélagið Þránd. Frum-
sýnt verður nú á haustdögum,
nánar tiltekið 5. september, og sér
Þorvaldur Davíð um kynningu og
markaðsmál, enda Verslingur!
Fullkomið brúðkaup er glænýr
breskur farsi eftir Robin Hawdons
sem Örn Árnason, leikari og
grinisti, var fenginn til að þýða.
Magnús Geir Þórðarson leikstýrir
en hann hefur oft stjórnað sýning-
um framhaldsskólanna, fyrir utan
að vera sjóaður úr atvinnuleik-
húsunum. Tónlist verður áber-
andi í sýningunni og er hljóm-
sveitin skipuð framhaldsskóla-
nemum. Að sögn Þorvalds Davíðs
munu lög úr Fullkomnu brúð-
kaupi bráðlega heyrast á öldum
ljósvakans.
Leiksýningin er fyrsta stóra
samstarfsverkefni skólanna og er
myndarlega styrkt af Reykjavík-
urborg. Þorvaldur Davíð segir
þátttakendur vera þá krakka sem
mestan leiklistaráhuga hafi sýnt i
skólunum á síðustu árum. „Þetta
er rjóminn - valinn maður í
hverju rúmi í margvíslegum
skilningi," segir hann brosandi og
bætir við að verkið sé líka bráð-
íjörugt og fyndið. En er búið með
allan rig milli skólanna eða hvað?
Því kveðst Þorvaldur Davíð ekki
þora að lofa. „Eitt er víst, það hef-
ur myndast mjög góður andi inn-
an leikhópsins og vonandi smitar
hann út frá sér.“ segir hann að
lokum. -Gun
Bíógagnrýni
Söguiegt samstarf
Formenn skólafélaganna hittust, ásamt aðstandendum sýningarinnar. Efsta röð
frá vinstri: Hannes Þórður Þorvaldsson (MR), Þorvaldur Davíð Kristjánsson (VÍ),
Birgir Haraldsson (ármaður nemendafélags MS), Sigurður Örn Hilmarsson (in-
spector scholae MR), Kári Hðlmar Ragnarsson (formaður nemendafélags MH),
Jón Ingi Jónsson (forseti nemendafélags VÍ), Haukur Hrafn Þorsteinsson (for-
maður nemendafélags Kvennó) Miðröð: Magnús Geir Þórðarson (leikstjóri), Krist-
ín Þóra Haraldsdóttir (MH), Helga Lára Haarde (MR), Marta Goðadóttir (MR), Mar-
grét Erla Maack (MR), Ástrós Elísdóttir (MR) Fremsta röð: Sólmundur Hólm Sól-
mundarson (MS), Hilmar Guðjónsson (Kvennó), Lydía Grét-
arsdóttir (VÍ).
Háskólabíó - Viliti folinn; ★ ★ ★
Sif
t- i / . n . Gunnarsdóttir
Proskasaga ur villta vestrmu skrifar gagnrýni
ímyndum okkur sögupersónu
sem er villt í æsku en verður á
fullorðinsárum sjálfkjörinn leið-
togi vegna hugrekkis síns, lendir
í óttalegum hættum, eignast góða
vini, verður ástfangin og sigrast
á öllum erfiðleikum í lokin!
Klassisk þroskasaga, krydduð
hetjudáðum og rómantík, en í
þessu tilviki fjallar hún ekki um
mann heldur hinn teiknaða villi-
hest, Spirit. Saga villta vesturs-
ins var sögð úr söðlinum, segir
sögumaður okkur í upphafi - og
sögiunaður er Spirit sjálfur en
þetta er í fyrsta sinn sem hestur-
inn fær orðið.
Spirit er bæði fallegur og hug-
rakkur hestur. Hann lendir í
miklum ævintýrum og kynnist
bæði góðu og slæmu fólki. Þeir
slæmu eru hvítu mennimir sem
eru komnir til að temja villta
vestrið og allt sem í því er, nátt-
úru, menn og dýr. Þeir reyna hvað
þeir geta til að temja Spirit en
hann reynist þeim ofviða. Indíán-
inn, sem Spirit vingast við síðar,
lítur umhverfi sitt allt öðrmn aug-
um og vill ekki ráða yfir neinu eða
neinum heldur lifa í friði með öll-
um þeim sem landið byggja. í
kvikmyndinni Villta folanum ríkir
því pólitísk rétthugsun um nátt-
úruvernd og átroðning hvita
mannsins á landi og lýð. John Wa-
yne myndi ekki líka þessi heims-
mynd.
Sögumannsröddin er ein af
fáum mannsröddum sem við heyr-
um í myndinni þvi að sú djarfa
ákvörðun var tekin af höfundum
myndarinnar að láta dýrin ekki
tala saman á mannamáli. Það er
því mikið um hnegg og önnur
dýrahljóð. Sagan fer samt hvorki
fyrir ofan garð né neðan hjá nein-
um, bæði er söguþráðurinn ein-
faldur og klassískur i uppbygg-
ingu og þótt hestarnir tali ekki
mannamál sín á milli er látbragð
þeirra ótrúlega mannlegt og auð-
velt fyrir jafnvel yngstu áhorfend-
ur að lesa úr andlitum hestanna
skilaboðin sem ekki eru sögð með
orðum. Það gerir myndina að
sterkari upplifun að sleppa
mannamáli dýranna á milli og
sögumaðurinn er ekki notaður til
að útskýra söguþráð heldur til að
leyfa okkur að kynnast hugsunum
og tilftnningum Spirits.
Myndin er feikilega vel gerð,
um kvikmyndir.
bæði eru
mögnuð atriði þar sem við fylgj-
umst með hestahjörð þjóta yfir
endalausar sléttur eða sjáum
eimreið velta niður fjallshlíð
með viðeigandi eldhafi og lát-
um. Það er líka nostrað við
smáatriði eins og líkamstján-
ingu Spirits. Við erum aldrei í
vafa um hvort hann er angistar-
fullur, ástfanginn, reiður eða
sorgmæddur. Tónlistin er eink-
ar vel heppnuð og undirbyggir
hvert atriði en sönglög Bryans
Adams fundust mér þó ansi
þreytandi. Hann syngur með
sinni hrjúfu rödd um það sem
er nákvæmlega að gerast fyrir
framan augun á manni og rýrir
því upplifunina frekar en hitt
og dregur myndina stundar-
kom niður á plan tónlistarmynd-
banda. En fylgdarkonu minni, 12
ára, fannst lögin fyrirtaksviðbót
og ætlar að kaupa diskinn strax og
hún getur - greinilega smekksat-
riði eins og svo margt annað.
Villti hesturinn er af allt öðru
sauðahúsi en síðasta teiknimynd
fyrirtækisins, Skrekkur. Hér er
ekki verið að gera út á fyndni og
krúttlegheit heldur hugrekki, ást
og aðrar stórar tilfinningar. Villti
folinn er fyrir alla krakka með
smekk fyrir dramatík en mest fyr-
ir litlar stelpur sem dreymir um
að eiga hest (og mömmur þeirra
líka).
Leikstjórar: Kelly Asbury, Lorna Cook
Handrit: John Fusco Tónllst: Hans
Zimmer Sönglög: Bryan Adams
Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk.
Skr. 5/99, ek. 38 þús.
Verð kr. 890 þus.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 5/98, ek. 60 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Suzuki Vitara JLX, sjsk.
Skr. 4/97, ek. 75 þús.
Verð kr. 1050 þús.
Suzuki Vitara JLX, 3 d., bsk.
Skr. 7/98, ek 75 þús.
Verð kr. 970 þús.
Suzuki Swift GLS. 3 d., bsk.
Skr. 9/99, ek. 23 þús.
Verð kr. 790 þus.
Ford Focus TTend, 5 d., sjsk.
Skr. 1/02, ek. 1 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Audi A-4, bsk.
Skr. 11/99, ek. 35 þús.
Verð kr. 1670 þuís.
Honda CRV, sjsk.
Skr. 9/97, ek. 80 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Tovota RAV-4, 5 d., sjsk.
Skr. 6/96, ek. 76 þús.
Verðkr. 1150 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
SUZUKI BILAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100