Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2002, Side 32
Mold og hellusandur
Jarðefni - ótal gerðir
Grjót og grjóthleðsla
Flytjum sumarhús
Vörubílar - Kranabílar - Gröfur www.throttur.is
MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz (jfí)
- Loforð er loforð
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Skotárás við kjallaraíbúð í Álfheimum í gærkvöldi:
Ég sá byssuna
- segir íbúi í húsinu - vegfarandi veitti
eftirför sem leiddi til handtöku
Lögreglan í Reykjavík mun í dag
yfirheyra tvítugan mann sem
handtekinn var eftir að hann hafði
hleypt af haglabyssu á útidyrahurð
kjallaraíbúðar við Álfheima í gær-
kvöldi. Samkvæmt upplýsingum
DV var maður innandyra sem ekki
á íbúðina en hafði dvalið í henni
um skeið. Honum tókst að komast
út um glugga og forða sér.
Kona sem býr 1 sama húsi sagði
við DV að hún hefði heyrt skothvell
en ekki gert sér grein fyrir strax
hvað um væri að vera. Eftir það
hefði hún og aðrir ibúar litið út og
séð ungan mann. „Ég sá byssuna,"
sagði konan. Hún sagði að fólk hefði
verið skelkað þegar það gerði sér
ljóst hvað var á seyði.
Ekki lá fyrir í morgun hjá lög-
reglu hver ástæða árásarinnar var.
Þó er ljóst að tveir byssuhvellir
heyrðust. Byssumaðurinn var á bil
og ók á brott eftir atburðinn. Nokk-
ur vitni voru til staðar. Þar á meðal
var maður sem átti leið fram hjá.
Hann sá ungan mann koma frá hús-
inu með haglabyssu í hönd, fannst
það strax óeðlilegt og ákvað að aka
á eftir manninum. Hann gerði lög-
reglu viðvart og gaf henni síðan
upplýsingar í farsíma um hvert
byssumaðurinn stefndi. Lögregl-
unni tókst að stöðva för mannsins í
Ártúnsbrekkunni. Haglabyssan
fannst i bílnum.
Umræddur maður er fæddur árið
1982. Hann er ekki þekktur afbrota-
maður en málið er í rannsókn. 1 dag
verður tekin ákvörðun um hvort
lögreglan krefst þess fyrir dómi að
fá að halda honum lengur en í einn
sólarhring frá handtöku. -Ótt
Kríuvarp gengur illa
Á Norðurlandi hef-
ur krían verið að
koma að hreiðrum sín-
um allt að tveimur vik-
um á eftir áætlun.
Kristinn Haukur
Skarphéðinsson nátt-
úrufræðingur sagði í
viötali við DV að ekk-
ert óvenjulegt væri við
það að kríuvarp gengi
iila og færi það alfariö
eftir því hvemig gengi
að afla ætis. „Krían
heldur sig við sjó þar
sem um 95% kria
verpa. Meginæti kríunn-
ar er sandsíli og trönusíli og ef ekki er
nóg af þessum mat i sjónum seinkar
varpi," sagði Kristinn.
Kristinn býr á Seltjamarnesi og
sagði hann að kríulíf væri blómlegt þar
í bæ og greinilegt að nóg æti væri í
sjónum. Hins vegar vissi hann til þess
að kríur hefðu verið með unga i sept-
ember en það væri allt of seint og næst-
um öruggt að þeir ungar lifðu ekki.
„Krían er viðkvæm að mörgu leyti. Ef
brestur verður á æti hennar verður
varpskortur og ungamir deyja að öllum
líkindum," segir Kristinn. Þó telur
Kristinn ekki að kríustofninn sé í hættu
þar sem stofhinn sé enn stór. -ss
Líkur á besta veörinu eystra
Væta verður um allt vestanvert
landið á morgun, fimmtudag, eða
svipað veður og í dag og má draga
Við viijum minna á að næsta
helgarblað kemur út fóstudaginn 2.
ágúst.
Tekið er á móti smáauglýsingum
fimmtudaginn 1. ágúst til kl. 20 til
birtingar í helgarblaðinu.
nánast lóðrétta línu yflr landakortið
og austan við hana verður þurrt.
Áttin verður suðlæg og vindstyrkur
5 til 10 metrar um landiö vestanvert
og lítils háttar súld víðast hvar en
hægari vindur um landið austan-
vert og skýjað með köflum eða létt-
skýjað. Hiti getur orðið allt að 22
stig í innsveitum austanlands.
Lægðir eru mjög aðgerðalitlar svo
vaxandi líkur eru á því að þurrviðri
verði um verslunarmannahelgina á
Suðausturlandi, Austurlandi og
Norðausturlandi og jafnframt verði
einnig heitast í veðri þar. -GG
Hvor í sína áttlna
Guömundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON ræðir við fréttamenn eftir fund hjá efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis í gær. Árni Tómasson, bankastjóri Búnaðarbankans, hraðar sér af fundinum að baki hans.
Lögmaður fimmmenningahópsins:
Segir Fjármálaeftirlitiö
hafa samþykkt áformin
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður
fimm stofnfiáreigenda í SPRON, sem
vilja hafa milligöngu um sölu á a.m.k.
meirihluta stofnfiár til Búnaðarbank-
ans, segir að Fjármálaeftirlitið hafi sam-
þykkt áformin. Þetta er þvert á túlkun
stjómar SPRON sem Fjármálaeftirlitið
virtist hafa staðfest skriflega.
Rök Jóns Steinars em þau að Fiár-
málaeftirlitið hafi það hlutverk eitt sam-
kvæmt lögum að meta hvort þeir sem
hyggjast eignast hlut í banka eða spari-
sjóði séu hæfir til þess með tiiliti til heil-
brigðs og trausts reksturs. Eftirlitinu
beri að afgreiða erindi um þetta innan
eins mánaðar frá þeim degi sem full-
nægjandi upplýsingar berist.
Samþykkt með þögninni
„Með því að afgreiða ekki umsókn
umbjóðenda minna með samþykki eða
synjun fyrir 25. júlí 2002 telst Fjármála-
eftirlitið hafa samþykkt hana,“ segir í
greinargerð Jóns Steinars um máliö.
Ámi Tómasson, bankastjóri Búnað-
arbankans, fer á fund forstjóra Fiár-
málaeftirlitsins í dag til þess að kynna
nákvæm áform bankans i framhaldi af
kaupum á stofnfénu. Bankastjóm telur
að í samningi þeim sem stofnunin fékk
til umsagnar felist ekkert annað en
kaup á stofnfé á yfirverði, en slík við-
skipti hafi Fjármálaeftirlitið þegar sam-
þykkt.
Andstæðingar ftinda
Flestir ef ekki allir aðilar þessa máls
voru boðaöir á fúnd efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis í gær. Fundinn
sátu fulltrúar frá Búnaðarbankanum,
SPRON, félagi starfsmanna SPRON, sem
einnig hefúr gert tilboð í stofnfé sjóðsins,
fimmmenningahópnum, viðskiptaráðu-
neytinu og Flármálaeftirlitinu.
Jón G. Tómasson, stjómarformaður
SPRON, sagðist eftir fundinn ekki getað
dæmt um hvort hann hefði verið gagn-
legur.
„Ég get ekki dæmt um það, en það er
alveg ljóst að allir þingmennimir sem
tjáðu sig - og þeir gerðu það næsta allir
- töldu nánast að Búnaðarbankinn væri
að ögra lagasetningarvaldinu með því
að ganga gegn skýrum vilja löggjafans í
þessum máli.“
Aðspurður um hvort þingmenn hefðu
tjáð sig með sama hætti um tilboð starfs-
mannafélagsins sagði Jón að það hefði
ekki verið til umræðu, enda væri það til
meðferðar hjá Fjármálaeftirlitinu.
Landsbankinn vill viðræður
Ari Bergmann Einarsson, stjómar-
formaður einkahlutafélags starfsmanna,
segir ljóst að frestur stofnfiáreigenda til
að ganga að tilboði félagsins verði fram-
lengdur, líklega til hádegis á morgun.
Hann rann út á miðnætti í nótt en ekki
hefur meirihluti stofnfiáreigenda gengið
að tilboðinu.
Landsbankinn óskaði í gær eftir við-
ræðum við sparisjóði landsins um náið
samstarf og hugsanlegan samruna ein-
stakra sparisjóða við bankann, enda
megi með því ná fram hagræði öllum til
góða.
Guðmundur Hauksson sparisjóðs-
stjóri segir í DV í dag að brýnast sé að
tryggja sjálfstæði SPRON og hann telji
ekki að það sé markmið hjá neinum
sparisjóði að renna saman við banka.
-ÓTG
Sjá yfirheyrslu á blaðsíðu 4
Nöguðu sig í gegnum
girðinguna í þetta sinn
Fimm hvolpar af Stóra-Dan teg-
und, sem margítrekaðar tilraunir
hafa verið gerðar til að hafa i húsi
og girðingu við Junkaragerði utan
við Hafnir, sluppu enn út á þriðju-
dagskvöld. Til þessa hafa þeir ým-
ist komist yfir girðinguna eða
grafið sig undir hana en i þetta
sinn nöguðu þeir sundur vírnetið
og sluppu þannig.
Þeir fóru að laxeldisstöðinni
Stofnflski en síðan til baka og
voru handsamaðir fyrir utan
hundagirðinguna og færðir á
hundahótelið á Hafurbjarnarstöð-
um milli Sandgerðis og Garðs.
Síðast þegar hundarnir sluppu út
greiddi eigandinn 7 þúsund krónur
fyrir hvem þeirra í lausnargjald en
að sögn talsmanns Heilbrigðiseftir-
lits Suðumesja er alls ekki ljóst
hver endir málsins verður þar sem
ekki var hægt að búast við að þeir
nöguðu sig í gegn um netið. Ákvörð-
un um hvort hundunum verður lóg-
að liggur hjá heilbrigðisnefnd en
eigandi hefur frest þar til síðdegis
til að tjá sig. -GG
HEIMAGÆSLA
ORYGGISMIDSTÖÐ ÍSLANDS
BORGARTÚNI31 • SlMI 530 2400
WWW.0l.IS
BYSSUR
SPORTVÖRUGERÐIN
SKIPHOLT 5 562 8383