Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002
DV
Fréttir
Tillögur starfshóps landbúnaðarráðuneytisins gegn salmonellu:
Viðurlög við að láta dýra-
hræ rotna á víðavangi
- hert eftirlit í fjölmörgum þáttum og aukin vöktun
Starfshópur landbúnaðarráöu-
neytisins, sem unnið hefur að um-
fangsmiklum athugunum á smiti
salmonellu og camphylobacter á
Suðurlandi, gerir m.a. að tillögu
sinni að beitt verði viöurlögum við
því að kasta dýrahræjum í skurði
eða láta þau á annan hátt rotna á
víðavangi. Einnig að komið verði á
stöðugri umhverfisvöktun á yflr-
borðsvatni i lágsveitum Suðurlands
með sérstöku tilliti til sjúkdóms-
valdandi örvera.
Við sýnatökur og vettvangsrann-
sóknir í lágsveitum Rangárvalla-
sýslu og á nokkrum stöðum í Ámes-
sýslu kom i ljós mikil salmonellu-
mengun á tilteknum stöðum. í af-
rennslisskurði frá rotþró við Hvols-
völl mældist hún t.d. allt aö 80 pró-
sent. Á mörgum þeirra staða þar
sem sýni voru tekin virtist vera um
mikla og samfellda mengun að
ræða. Sýni voru tekin á 35 stöðum
fjarri þéttbýli í Rangárvallasýslu og
3 stöðum í Ámessýslu. Þar reyndust
1,3 % sýnanna menguð.
í Ámessýslu voru valdir 5 sýna-
tökustaðir í Varmá í Hveragerði.
Reyndust ca. 75-80% þeirra sýna já-
kvæð fyrir salmonellu. Einnig voru
vísbendingar um mikla og samfellda
mengun af völdum salmonellu.
Þá reyndust um 46,7 prósent sýna
sem tekin vom úr frárennsliskerf-
um þéttbýlisstaða, einkum Hellu og
Hvolsvallar, jákvæð.
Af vatnssýnum, sem tekin voru í
yfirborðsvatni, bæði við og fjarri
þéttbýli í Rangárvalla- og Árnes-
sýslu, reyndust 25,7 prósent menguð
af camphylobacter. Villtir fuglar
voru einnig athugaðir með tilliti til
camphylobacter- og salmonellu-
mengunar. Ekki náðust nægilega
mörg sýni til að fá mætti marktæka
mynd af ástandinu.
Hert eftirlit
í ljósi þessara niðurstaðna bendir
starfshópurinn enn fremur á nauð-
syn þess að eftirlit með fóðurfram-
leiðslu og fóðurflutningum verði
hert. Landbúnaðarráðuneytið setji í
reglugerö ákvæði um innra eftirlit
fóðurblöndunarstöðva sem taki til
reglubundinnar sýnatöku vegna
salmonellu og annarra hættulegra
örvera. Það eftirlit þurfl að hljóta
vottun opinberra aðila. Eftirlit með
fiskimjöli og öðru fóðri, innfluttu
sem innlendu, skuli samræmt öðru
opinberu eftirliti sem snýr að heil-
brigði búfjár, búfjárafurða og mat-
væla. Þá þurfl fóðurflutningar að
Slæm umgengni hefur ~
fariö vaxandi
Umfjöllun DV fyrir tveimur árum
DV birti frétt og myndir af dýrahræjum á
Suöurlandi fyrir um það bil tveimur
árum. Sú umfjöllun varö til þess að við-
mælandi blaðsins um málið varð að
leita skjóls hjá lögmanni sínum og stétt-
arféiagi vegna stöðugrar áreitni heii-
brigðisnefndar Suðurlands sem dró í efa
rétt hans til að tjá sig um málið í DV.
Landbúnaðarráðuneytið hefur nú lagt lín-
urnar um meöferð dýrahræja sem ætti
að auövelda heilbrigðiseftirliti störf
þess í héraði.
vera með þeim hætti að smitdreif-
ing geti ekki átt sér stað.
Nefndin bendir á útigangsgripi
skuli fóðra í jötur, stalla, á
gjafagrindur eða palla. Fóður þarf
einnig að verja fyrir ágangi varg-
fugla og sUd skuli einungis gefa inn-
andyra.
Búfé beri að tryggja nægan og
góðan aðgang að neysluhæfu
drykkjarvatni, hvort heldur það er í
beitarhögum eða í gripahúsum.
Átak í frárennslismálum
Sveitarfélög á Suðurlandi, eink-
um þó á úttektarsvæðinu, geri með
aðstoð ríkisins úttekt á frárennslis-
málum á láglendi Suðurlands, með
það að markmiði að þau verði kom-
in í viðunandi ástand árið 2005. Frá-
rennsli sveitabæja skulu vera lok-
uð. Hætt verði með öllu að veita frá-
rennsli einstaka bæja eða þéttbýlis-
staða í opna skurði fyrir árslok
2005.
Framfylgt verði lögboðnu mark-
vissu eftirliti og rannsóknum á slát-
urdýrum og búfjárafurðum til að
koma í veg fyrir stórfellda matar-
eitrun. Breyta þurfl lögum um bú-
fjárhald til að auðveldara verði fyr-
ir eftirlitsaðila að rækja skyldur
sínar. Samræma þurfi ákvæði laga
um dýravernd og búfjárhald og færa
það undir einn aðila í stjómsýsl-
unni. Koma þurfi í veg fyrir að ein-
stakir aðilar geti fjölgað skepnum á
bújörð, langt umfram beitarþol
hennar og húsrými fyrir skepnurn-
ar. -JSS
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Löggæsla fjarri mannabyggð
Hér eru þeir Sigurður B. Baidvinsson lög-
reglumaður og Sigurður Gunnarsson,
sýslumaður í Vestur-Skaftafellssýslu.
Lögreglan á Suðurlandi:
Fylgjast grannt
með hálendinu
Á sameiginlegum fundi lögregluemb-
ættanna á Suðurlandi í vor var ákveðið
að lögreglan væri reglulega á ferð á há-
lendinu sunnanlands í sumar. Embætt-
in hafa í sameiningu mannað þetta eft-
irlit og farið á óreglulegum timum inn á
hálendið það sem af er sumri og að sögn
Sigurðar Gunnarssonar, sýslumanns í
Vík, verður því haldið áfram næstu vik-
umar. Nú um helgina fer einn bíll með
tveim lögreglumönnum sem ætla að
ferðast um allt svæðið, þ.e. Eldgjá, Land-
mannalaugar og Veiðivötn, með við-
komu í öllum skálum og tjaldsvæðum.
„Það er mikill straumur ferðafólks
upp á hálendið, einkum um helgar. Það
er því full þörf á löggæslu, ekki síst um
helgar þegar flest er,“ sagði Sigurður B.
Baldvinsson, lögregluvarðstjóri í Vík, í
gær. „Munurinn á löggæslunni í hálend-
inu og í byggð er nánast enginn en
mörgum fmnst nærvera lögreglumanna
á svæðinu af hinu góða.“ Sigurður segir
að lögreglumenn frá Selfossi, Vík og
Hvolsvelli hafi skipt störfum með sér í
sumar og oft hafi nærvera þeirra komið
að góðum notum fyrir ferðafólkið.
-SKH
Stæk brunalykt milli
biksvartra veggja
Sterk brunalykt og myrkar álmur
mættu fréttamönnum þegar þeim var
hleypt inn i bygginguna við Fákafen 9 i
gær. Kjallarahæð byggingarinnar er
svört af sóti og enn eru sjáanleg um-
merki hnédjúps vatns sem huldi gólfið
fyrir skemmstu.
Hrólfur Jónsson, slökkviliðsstjóri í
Reykjavík, og Jón Viðar Matthíasson
varaslökkviliðsstjóri teymdu fjölmiðla-
fólk um biksvartar geymslur byggingar-
innar sem nú hefur að hluta verið tæmd
af brunarústum. Þeir notuðu tækifærið
til að hrósa eldvömum í byggingunni.
„Steinullin hangir enn uppi enda hefur
hún verið fest uppi með vírum. Þetta er
mjög vel gert,“ sagði Jón Viðar.
Greina mátti ógnarkraft eldsins í
geymsluálmunum og enn eimdi eftir af
því harðræði sem slökkviliðið mætti
þegar eldurinn hafði tekið völd í bygg-
ingunni. Vegna snöfurmannlegra við-
bragða slökkviliðs og ágæts frágangs
eldvama í byggingunni var reyndin sú
að eldurinn hélst í geymslurými Teppa-
lands og dreifðist ekki þaðan. Stórt gat
var á veggnum milli Teppalandsgeymsl-
unnar og geymslu listmuna og er með
ólíkindum að eldurinn skyldi ekki náð
þar á milli. Hrólfur slökkviliðsstjóri
leiddi líkur að því að kvoða og kolsýra,
sem slökkvilið dældi þar inn, hafi riðiö
baggamuninn.
Hrólfur lýsti raunum reykkafara fyrir
fréttamönnum. Þeir mættu ógnarhita
eldsins á kafi í reyk og þurftu frá að
hverfa. Reykköfun fer fram án sjónar og
verða menn að treysta á önnur skynfæri.
Hættan er sú að reykkafarar villist í
hnausþykkum reyknum og er þá voðinn
vís.
Slökkvilið hefúr nú lokið störfum í
byggingunni og við taka trygginga- og
hreinsunarmál.
Enginn bilbugur
Birgir Georgsson, eigandi Herrafata-
verslunar Birgis í byggingunni við
Fákafen, segir vinnu við að koma búð-
inni aftur af stað þegar komna í gang.
„Allt er á útopnu við að kippa þessu í
liðinn og við vonumst til aö opna með
brunaútsölu á þriðjudag," segir hann en
hefur þann varann á að enn sé eftir að
semja við tryggingafélag verslunarinn-
ar. Þegar DV hafði samband við hann í
gær var hann að rýma verslunina svo
hægt yrði að byrja í málningarvinnu
strax um helgina.
Ljóst er að gríðarlegt tjón hefur orðið
FILMIJR & FRAMKOLLUN
STÆKKUM
SETJUM A GEISLADISKA
YFIRUTSMYt® í'Yl GIR FRÍTT MFD
Gæða framköllun HEIMSMYNDIR
mtmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmummommmmmmmrAQFA ■
Smlöjuvegl 11,- gulgata 200 Kópavogur, slml 544 4131.
í byggingunni og þrátt fyrir að fyrirtæk-
in séu tryggð fyrir tjóninu verður þeim
lokað um skeið, með tilheyrandi tapi á
fé og viðskiptavinum.
í ljós er komið aö flestir þeirra list-
muna sem voru í geymslu Listasafns ís-
lands sluppu við óbaetanlegar skemmd-
ir. Skúlptúrar eítir Ásmund Sveinsson
voru sumir hveijir huldir óbráðnu
plasti sem gefúr til kynna að hitinn hafi
ekki náð til þeirra. Einkennilegt and-
rúmsloft ríkti í listmunageymslunni í
gær þar sem abstraktverk og blautir
pappakassar lágu á víð og dreif í bik-
svartri geymslunni. -jtr
DV-MYND HARI
Listaverkin sluppu
Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, við gripina í sótsvörtum
kjallaranum. Flestir listmunanna, sem voru í geymslu, sluppu við óbætanlegar skemmdir.
Bruninn í Fákafeni:
Endurskoðum
öll öryggismál
- segir Ólafur Kvaran
„Svona atburðir verða að sjálf-
sögöu til þess að menn fara yfir öll
öryggismál að nýju og endurmeta
þau,“ segir Ólafur Kvaran, forstöðu-
maður Listasafns íslands, í samtali
við DV. Sem kunnugt er var fjöldi
merkra verka eftir ýmsa vel þekkta
listamenn, þar á meðal Ásmund
Sveinsson, geymdur í húsinu viö
Fákafen sem stórskemmdist í mikl-
um eldsvoða á miðvikudaginn.
Verkin eru í eigu Listasafns Reykja-
víkur og segir Eiríkur Þorláksson,
forstöðumaður safnsins, þau vera
ómetanleg menningarverðmæti.
Betur fór hins vegar en áhorfðist í
fyrstu og við skoðun í gær reyndust
flest verkin vera heilleg aö sjá, utan
hvað bókakostur eyðilagðist.
í eigu Listasafns íslands eru um
8.000 listaverk. Meginþorri þeirra er
geymdur í safnhúsinu við Fríkirkju-
Ólafur
Kvaran.
Margrét
Hallgrimsdóttir.
veg en nokkur fjöldi í húsi Listahá-
skóla íslands í Laugarnesi í Reykja-
vík. Eru á síðari staðnum einkum
stærri og umfangsmeiri verk. „Við
höfum talið þessar geymslur okkar
nokkuð tryggar en þessi bruni verð-
ur þess valdandi að allar öryggis-
reglur verða endurmetnar. Slíkt
liggur í hlutarins eðli,“ sagði Ólafur
Kvaran.
Megingeymslur Þjóðminjasafns
íslands eru í Vesturvör í Kópavogi
og segir Margrét Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður þær uppfylla allar
helstu öryggiskröfur, svo sem vegna
leka, elds, innbrota og jarðskjálfta-
hættu. Hún segir aö hins vegar hafi
uppbygging geymsluaðstöðu hvers
konar verið vanræktur þáttur í
safnastarfi á Islandi og ónógar fjár-
veitingar fengist. Mikilvægt sé að
þessi mál séu í góðu lagi, enda sé
varöveisluþátturinn ekki síður mik-
ilvægur en beint sýningarhald.
Raunar má segja að Þjóðminja-
safnið sé sú safnastofnun hér á
landi sem verst hafl farið út úr
brunum, en fyrir um áratug eyði-
lagðist bátasafn þess i Kópavogi
þegar böm báru þar eld að.
-sbs