Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 43
éíClOÁ .1)1 RUDAOHADUAJ
LAUGARDAGUR IO. ÁGÚST 2002
Helcjctrhlað DV
Reynsluakstur nr. 695
DV-myndir Hari
DVA1YNDIR PJETUR
Minni vél
sem dugar
honum
nokkuö vel
Kostir: Létt vél með
ágœtistog, rými
Gallar: Hávœr vél,
hár annar gír
Ný útgáfa MMC Pajero kom á
markað árið 2000 og voru breyting-
arnar frá fyrri gerð mjög róttækar,
svo ekki sé meira sagt. Yfirbygging-
in er nú sjálfberandi en ekki á grind
eins og áður var og því eru akst-
urseiginleikar á malbiki betri.
Hann er nú fáanlegur með 2,5 lítra
dísilvél sem er sú minnsta sem
hægt er að fá í þennan stóra bíl. Vél-
in dugar samt bílnum þokkalega
eins og við fundum þegar DV-bílar
reynsluóku bílnum um landið fyrr í
sumar.
Með mikið innanrými
Með þessu byggingarlagi verður
billinn allur rúmbetri en áður og
ekki skortir plássið í lengri gerð-
inni af Pajero. Prófunarbíllinn var
með tvö barnasæti i farangursrými
sem með tveimur handtökum má
leggja saman og fella ofan í gólfið á
farangursrýminu. Þeim fylgja höf-
uðpúðar sem komið er fyrir í vasa á
afturhlera þegar sætið er ekki í
notkun. Mjög vel fer um framsætis-
farþega í bílnum enda plássið mikið
og sætin með sérstökum dempara
sem tekur við í mestu dýfunum. Allt
er á sinum stað og hvergi óþægilegt
að teygja sig í neitt eins og oft er i
jeppum af þessari stærðargráðu.
Pláss í aftursætum er einnig gott,
jafnvel með framsæti í öftustu
stöðu. Bíllinn er þokkalega búinn,
framsæti eru með upphitun og
geislaspilari staðalbúnaður, svo að
eitthvaö sé nefnt. Vel er gengið frá
vélinni og góð botnplata úr stáli
undir henni sem tók vel við þegar
bíllinn rakst einu sinni upp undir á
moldarbarði í reynsluakstrinum.
o Mælaboröiö er elnfalt en þægilegt í
notkun þótt flelri stillingar mættu vera á
stýrishæö.
O 2,5 litra vélln er léttari en dugar bíln-
um ágætlega viö flestar aðstæöur.
0 Bamasæti í farangursrými má fella
niöur í gólfið meö nokkrum handtökum en
höfuöpúöum er komiö fyrir i hólfi á aftur-
hlera.
Léttari vél meö þoklcalegt
tog
Nýja 2,5 lítra DID vélin mætti varla
vera minni fyrir þennan stóra bíl.
Upptakið er ekkert til að hrópa húrra
fyrir en hún hefur þó þann kost að
hafa mikið tog sem dugar honum vel
við langflestar aðstæður. Langa
brekkan í Kjósinni var ekkert mál í
fimmta gír með þessa litlu en duglegu
vél. Vélin er nokkuð hávær, sérstak-
lega þegar reynir á hana, en góð hljóð-
einangrun minnkar hávaða í farþega-
rými. Gírkassinn er sá sami og fyrir
stærri vélarnar og því fmnur maður
aðeins fyrir því í öðrum gír að það
dynur mikið í bílnum ef skipt er of
snemma upp úr fyrsta gír. Það sem
þessi vél hefur hins vegar fram fyrir
aðrar vélar sem fáanlegar eru í þenn-
an bil er að hún er mun minni og þar
af leiðandi léttari en það hjálpar bíln-
um upp á aksturseiginleika. Undir-
stýringin, sem flnnst mjög vel í bílun-
um með stærri vélunum, er mun
minni í þessum bfl. Þess vegna má
keyra hann nokkuð greitt í beygjur án
þess að hann missi mikið grip. Fjöðr-
un er líka nokkuð stíf miðaö við jeppa
og minna aksturseiginleikamir meira
á jeppling en bíllinn hefur samt alia
kosti jeppans. Sá helsti er mjög fúll-
komin driflína þar sem meðal annars
er hægt að læsa afturdrifl með takka í
mælaborði. Bfllinn er talsvert ódýrari
með þessari vél en hann mun kosta
3.990.000 kr. sem er hálfri milljón
minna en með næstu vélarstærö og
munar um minna.
-NG
jp'""’ n wir-w r.TD , U.,u. U . hrr ,ji l,. , n ".-'„LL. _
MITSUBiSHI PAJERO 2,5 DÍSIL
Vélbúnaður:
Vél: 2,5 lítra, 4ra strokka dísilvél.
Rúmtak: 2477 rúmsentímetrar.
Ventlar: 8
Þjöppun: 21:1
Gírkassi: 5 gíra beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan: Sjálfstæð fjöðrun með tvöföldum spyrnum
Fjöðrun aftan: Sjálfstæð gormaf jöðrun með fjölliðafestingum
Bremsur: Diskar/diskar, ABS, EBD
Dekkjastærð: 265/70 R16
YTRI TÖLUR:
Lenqd/breidd/hæð: 4775/1845/1850 mm
Hjólahaf/veqhaeð: 2780/220 mm.
Beygjuradíus: 11,4 metrar.
INNRI TÖLUR:
Farþeqar m. ökumanni: 7
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 7/4
Farangursrými: 1293 lítrar.
Hagkvæmni:
Eyðsla á 100 km: 10,6 l/trar
Eldsneytisgeymir: 74 Iftrar
Ábyrgð/ryðvörn: 3/6 ár
Verð: 3.990.000 kr.
Umboð: Hekla hf.
Staðalbúnaður: Rafdrifnar rúður með slysavörn, rafdrifnir speglar með raf-
stýrðum aðdrætti og rafhitun, fjarstýrðar samlæsingar, 4 öryggispúöar, hæðar-
stillanleg framsæti með dempara, útvarp m. geislaspilara, upphituð framsæti,
aldrifsbúnaður með fjölvali, álfelgur, 3 sætaröð fellanleg í afturgólf, 100% læs-
inq á afturdrifi.
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 115/4000
Snúningsvægi/sn.: 240 Nm/2000.
Hröðun 0-100 km: 17,8 sek.
Hámarkshraði: 150 km/klst.
Eigin þyngd: 2085 kg.
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 7/99, ek. 76 þús.
Verð kr. 990 þus.
Nissan Terrano II Lux dísil.
Skr. 11/98, ek. 62 þús.
Verð kr. 2290 þus.
Suzuki Vitara JLX, 3 d. bsk.
Skr. 7/98, ek 75 þús.
Verð kr. 970 þus.
Honda CRV sjsk.
Skr. 9/97, ek. 80 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---//M--------------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sfmi 568-5100