Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________py Cervantes. I könnun meöal rithöfunda var mesta verk hans, Don Kíkótl, valln besta bók í heiml. „Ef þaö er bara eln bók sem maöur á aö lesa áöur en maöur deyr þá er þaö Don Kíkótl," var sagt þegar úrsllt voru tllkynnt. Bestu bækur í heimi Fyrir nokkru var tilkynnt um úrslit í skoöanakönnun meö- al rithöfunda um bestu bækur í heimi. Líflegar umræöur uröu á Netinu um úrslitin og í Guardian sögöu bóka- menn sína skoöun. Óhætt er aö segja aö skoöanir hafa verið nokkuö skiptar. Það voru hundrað rithöfundar frá 54 löndum sem kusu hundrað bestu bækumar. „Ef það er ein bók sem maður á að lesa áður en maður deyr þá er það Don Kíkóti," sagði nígeríski rithöfundurinn Ben Okri þegar hann tilkynnti að skáldsaga Cervantes, Don Kíkóti, heíði verið hlutskörpust. í hópi þeirra rithöfunda sem greiddu atkvæði voru Doris Lessing, Salman Rushdie, Nadine Gordimer, Seamus Heaney, Carlos Fuentes, Norman Mailer og Astrid Lindgren sem náði að greiða atkvæði áður en hún lést og bók hennar um Línu langsokk komst á listann. Isabella Allende neitaði þátttöku og sagðist vera á móti könnunum af þessu tagi. Gabriel Garcia Marquez vildi sömuleiðis ekki taka þátt en hann á tvær bækur á listanum. Samkvæmt heimildum var Einar Kárason meðal þátttakenda en svar hans skilaði sér ekki á réttum tíma. Það kom því í hlut annarra rithöfunda að halda uppi heiðri Islands og það var gert svikalaust því bæði Njála og Sjálf- stætt fólk komust á lista yfir hundrað bestu bækur í heimi. Don Kíkóti vann með nokkrum yfirburðum. Tíu höfundar átti fleiri en eina bók á listanum. Dostojev- skí átti fjórar, Shakespe- are átti þrjú leikrit og Kafka kom þremur bókum sínum á listann, eins og Leo Tolstoy. Rúmlega tveir þriðju bókanna voru skrifaðir af Evrópubúum og ellefu bækur af þeim hundrað bestu voru eftir konur. Ekki val almennings Skemmtilegar umræður urðu um niðurstöðumar á spjallrás á Netinu. Einn sagði um Don Kíkóta: „Listamennimir hafa dá- læti á henni. Gagnrýnend- ur þykjast hafa dálæti á henni til að vera í takt við listamennina. Almenningi er nákvæmlega sama um bókina. Ég las hana og* hætti eftir þijú eða fjögur hundrað blaðsíður af leið- indum.“ Annar þátttakandi, Kasper, sagði: „Ég býst við að rithöfúndamir hafi ver- ið einlægir í vali sínu en ég geri ráð fyrir að þeir hefðu ekki þorað að greiða Pratchet, Tolkien eða Stephen King atkvæði, jaihvel þótt þeir hefðu viljað það.“ Kasper bætti því viö að hann hefði verið á krá þar sem spurt hefði verið hvaða bók hefði verið ný- lega valin besta bók í heimi og hann hefði svaraö: „Ulysses". Þegar sagt var að Don Kíkóti hefði unnið heyrðist frá nemendum í næsta bás: „Við þekkjum hana ekki." „Það er engin ástæða fyrir almenning að hafa áhuga á þessari könnun, hann tók ekki þátt í henni. Ég efast um að venjulegur Breti þekki nokkra bók á þessum lista, fyrir utan Shakespeare kannski," sagði einn netveiji. Kasper svaraði: „Ég held að flestir myndu þekkja höfunda Glæstra vona, Hroka og hleypidóma og 1984. Og kannski höfúnda Ferða Gúlli- vers, Fýkur yfir hæðir, Stikilsbeija-Finns og Stríðs og friðar. Ég er ekki eins viss um hinar.“ Yfirlætísfullur listi The Guardian leitaði til nokkurra bókamanna og bað þá að leggja mat á niðurstöðumar. John Suther- land, fræðimaður og kennari, furðaði sig á að Söngv- ar Satans væm ekki á listanum. Hann sagði að eftir dauðann yrði Salman Rushdie viðurkenndur sem mesti rithöfundur 20. aldarinnar. Aðspurður um Don Kíkóta benti Sutherland á að W.H. Auden hefði sagt að Don Kítóti væri bókin sem enginn lyki við að lesa. Doug McAvoy, framkvæmdastjóri breska kennara- sambandsins, sagði: „Ég hef lesið Don Kíkóta en var ekki óskaplega hriflnn. Ég byijaði einu sinni að lesa Stríð og frið en las bara helminginn, ég þoldi ekki meira. Ég er mjög venjulegur maður." Robert Palmer, verslunarstjóri í Foyles, sagði að Moby Dick væri sitt eftirlæti „af því ég las hana þegar ég var veikur og hafði nógan tíma. Ég byrjaði á Don Kíkóta en lauk aldrei við hana. Hún er svo óskaplega löng. Ég verð sennilega að veikjast til að geta lesið hana.“ Rithöfúndurinn Nicholas Blincoe sagði að spyrja hefði átt yngra fólk um álit þess, listinn sé dæmi um smekk gamals fólks. „Mér fmnst listinn líka yflrlætis- fullur," sagði hann. „Rithöfundar halda sig vera stór- gáfaða og þessi listi endurspeglar hversu háar hug- myndir þeir gera sér um sjálfa sig.“ Tim Waterstone, stoinandi Waterstone-bókabúð- anna, segir: „Ég veit ekkert um Knut Hamsun en kannski er hann frábær. Waterstone segist ekkert botna í valinu á Halldóri Laxness sem hann telur heimskulegt. Rithöfúndurinn Piers Paul Read furðar sig á því að Toni Morrison og Doris Lessing skuli komast á listann meðan Maupassant sé þar ekki. Read saknar fleiri höfunda og segir að einkennilegt sé að setja Laxness á listann þegar hvorki Racine né Moliere séu þar. Read segir Don Kíkóta frábæra bók sem hafi staðist tímans tönn en það sama megi segja um Stríð og frið og Hamlet. Hann klykkir út með því að segja að fáránlegt sé að gera popplista um stórbrot- in meistaraverk. Veröld Shake- speares William Shakespeare: A Popular Life eftir Garry O’Connor. O’Connor er leikstjóri, gagnrýn- andi og rithöfundur. í þessari ein- stöku bók um Shakespeare rekur hann ævi mesta leikritahöf- undar ver- aldarsögunn- ar, rýnir í verk hans og umhverfi og túlkunin er ætíð sjálfstæð og forvitnileg. Það gefur bókinni aukið gildi aö höf- undurinn er maður sem þekkir alla króka og kima leikhússins. Lesturinn er einstaklega skemmti- legur því að þetta er fjölbreytileg bók þar sem maður veit aldrei hvað kemur næst. Gæði og leiðindi Þótt einhveijir nöldri vegna skoðanakannana um bókmenntaverk er víst að mörgum þykir þær skemmtilegur leikur. Somerset Maugham taldi sig ekki yfir það hafinn að velja á milli bókmenntaverka. Árið 1954 kom út bók með ritgeröum rithöfundarins um tíu skáldsögur sem hann taldi þær bestu í heimi. Tímarit hafði á sínum tíma beðið Maugham um að gera slíkan lista, sem hann gerði. Bók Maughams, Ten Novels and The authors, er bráðskemmtileg og fróðleg lesning. Bækumar eru Tom Jones eftir Henry Fielding, Hroki og hleypidómar eftir Jane Austen, Le Rouge et le Noir eftir Stendahl, Le Pére Goriot eftir Balzac, David Copperfield eftir Dickens, Madame Bovary eftir Flaubert, Moby Dick eftir Herman Mel- ville, Fýkur yfir hæðir eftir Emily Bronte, Kara- mazov-bræðumir eftir Dostojevski og Stríð og friður eftir Tolstoy. Árið 1950 var gerð bandarísk könnun á því hvað lesendum þætti vera leiöinlegustu bókmenntaverk sögunnar. í fyrsta sæti varð Ferð pílagrímsins eftir John Bunyan. Siðan komu, í réttri röð: Moby Dick eft- ir Herman Melville, Paradisarmissir eftir John Milton, Faerie Queene eftir Edmund Spencer, Ævi Samuels Johnsons eftir James Boswell, Pamela eftir Samuel Richardson, Silas Mamer eftir George Eliot, ívar Hlújám eftir Walter Scott, Don Kíkóti eftir Cervantes og í tíunda sæti var Fást eftir Goethe. Meira Ijós! Andlátsorö Goethes Allar bækur 1. Kortabók íslands. Örn Siqurðsson ritst. 2. Islenska vegahandbókin. Bókaútqáfan Stönq. 3. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason. 4. Mýrin. Arnaldur Indriðason. 5. Leggðu rækt við sjálfan þig. Anna Valdimarsdóttir, 6. Hálendishandbókin. Páll Ásqeir Ásqeirsson. 7. Hann var kallaður Þetta. Dave Pelzer. 8. Lokavitni. Patricia Cornwell. 9. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason. Ljóð vikunnar Augu þín eru kort af Himnaríki - eftir Sigtrygg Magnason Ég styð á receive alltof annað slagið Danska stúlkan - Jóhann Páll Valdimarsson segir frá bókunum sem hann hefur verið að lesa undanfarið 10. Réttarkrufning. Patricia Cornwell. Skáldverk 1. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason. 2. Mýrin. Arnaldur Indriðason. og óska þess að svarið frá þér berlst. Ég bíð og vona, bíð en ekkert gerlst. Ég bið tll Drottins upp á gamia laglð. Því fátt ég meira þrál en þögul orðin i þyrpingu á miðjum tölvuskjánum (því ástln gerir alla menn að kjánum, af elsku svigna hugarveisluborðin). Ég sakna meira en orða augna þinna: þín augu eru kort af Himnaríki sem Guð dró sjálfur upp í ástarsýki og englnn mátti nokkurn tíma finna. Æ. leyfðu mér að leita í auga þínu að leiðlnni að Himnaríkl mínu. „Því er fljótsvarað að uppáhaldsbæk- umar mínar eru þær bækur eða handrit sem ég er að lesa hverju sinni. Ég hef reyndar aldrei skilið þegar fólk segist lesa uppáhaldsbækur sínar einu sinni á ári. Ég kemst ekki yfir að frumlesa allar þær bækur sem ég hef áhuga á og eru örugg- lega þess virði að vera lesnar. Þar sem ég hef farið tvívegis til út- landa á árinu hef ég lesið mikið af ferða- handbókum um þau svæði sem ég hef dvalið á. Ég er nýkominn frá Frakklandi þar sem við dvöldum uppi í sveit í suö- vesturhluta landsins. Á kvöldin les ég mér gjarnan til um svæðið til að afla mér fróðleiks sem gerir dvölina margfalt ánægjulegri. Þegar mað- ur hefur lesið um hinar ýmsu orrustur sem háðar hafa verið í tilteknum köstulum, svo dæmi sé tekið, þá heyrir maður vopnagnýinn og sér mannskapinn falla niður af virkinu þegar maður er þar staddur. Það eru tveir flokkar ferðahandbóka sem ég les mest. Eyewitness frá Dorling Kindersley þar sem fróðleikurinn er settur fram með mjög myndrænum hætti og síðan Michelin-handbækumar sem eru mjög góðar. Með þessu móti heyrir maður nið ald- anna þegar maöur þvælist um landið. Ég var að ljúka við bók sem heitir The Danish Girl eða Danska stúlkan eftir David Ebershoff. Hún gallar um danskan listmálara sem skírð- ur var Einar Wegener og var fyrstur manna til að ganga undir kynskiptaað- gerð árið 1930. Þetta er skáldsaga en byggð á vönduðum heimildum um líf Einars sem hét Lili Elbe sem kona. Þetta er saga um mikið hugrekki manns sem ákveður að fylgja tilfinningum sínum hvað sem það kostar. Hún er ekki síður hetjusaga konu hans, Gerdu, sem líka var listmálari. Hún varð einkum fræg fyrir myndir sínar af Lili Elbe en í sög- unni fær hún Einar mann sinn til að hlaupa í skarðið fyrir óperusöngkonu sem hún var að gera portrett af en forfallaðist. Þeg- ar Einar klæðist síðan kvenfótum af þessu tilefni vaknar með honum vitneskjan um að hann hafi fæðst í vitlausum líkama, sem endar með kynskipta- aðgerð hjá framsæknum lækni í Dresden. Kynskiptaaðgerðin vakti að vonum gífurlega at- hygli fjölmiðla á sínum tíma en síðan hefur saga þessa fólks gjörsamlega fallið í gleymsku og tilviljun að höfundurinn rakst á heimildir sem vöktu forvitni hans og urðu þess valdandi að honum tókst að grafa upp mikinn fróðleik um þessa merkilegu ævi. Á heimasíðu höfundarins, davidebershoff.com, er með- al annars að ftnna málverk af Lili Elbe eftir konu hans.“ 3. Lokavitni. Patricia Cornwell. 4. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason. 5. Réttarkrufning. Patricia Cornwell,___________________ 6. Ást á rauðu Ijósi. Jóhanna Kristjónsdóttir. 7. Guð hins smáa. Arundhati Roy. 8. Anna, Hanna og Jóhanna. Marianne Fredriksson.l 9. Morð um borð. Aqatha Christie. 10. Napóleonsskjölin. Arnaldur Indriðason. Metsölulisti Eymundsson 1.8-7.8 Kiljur 1. A BEND IN THE ROAD. Nicholas Sparks 2. HEMLOCK BAY. Catherine Coulter 3. DIVINE SECRETS OF THE YA-YA SISTERHOOD. Rebecca Wells Listinn er frá New York Times
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.