Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 42
50 Helqarblað I>'V‘ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 Bílar Tækjaakstur nr. 30 Umsjón Njáll (Junnlaugsson Vespa og vespa er sitt hvað Kostir: Stórt farangursrými, kraftur, óreynslulaus akstur Gallar: Áseta Hvað dettur manni i hug þegar talað er um „vespu?“ Jú, sennilega lítil, kraftlaus mótorhjól sem varla hreyfast úr stað. Gaml- ar konur í göngugrindum geta jafnvel tekið fram úr þeim sumum. TMAX-inn frá Yamaha kom þvi verulega á óvart því hvem hefði grunað að draumurinn um „vespu“ sem hreyfðist úr stað yrði einn góðan dag að veruleika. Hjólið hefur alla kosti „vespunn- ar“: sjálfskiptinguna, þægilega ásetu, (svo næstiun því er hægt að hjóla í kjól og hæla- háum skóm - ekki ráðlegt þó, öryggisins YAMAHA TMAX 500 Velbunaour: Vél: 2ja strokka línuvél, vatnskæld Rúmtak: 499 rúmsentímetrar Þjöppun: 10,1:1 Ventlar: 8 Kerti: 2 Blöndunqar: 30 mm Bensíntankur: 14 lítrar Gírkassi: Sjálfskipt Rafgeymir: 14 Ah HELSTU TÖLUR Lenqd/hæð: 2235/1410 mm Hjólhaf: 1S7S mm Veqhæð: 140 mm Sætishæð: 795 mm BURÐARVIRKI Framfjöðrun: Tvöföld vökvaf jöðrun Hreyfiqeta: 120 mm Afturf jöðrun: Einfaldur dempari Hreyfiqeta: 120 mm Frambremsur: 282 mm diskur Dælur: Ein 2ja stimpla Afturbremsa: 267 mm diskur Dæla: Ein Framdekk: 120/70 14 Afturdekk: 150/70 14 HAGKVÆMNI Verksmiðjuábyrqð: 2 ár Verð: 985.000 kr. Umboð: Merkúr hf. SAMANBURÐARTÖLUR Hestöfl/sn: 40/7000 Snúninqsvæqi/sn: 46 Nm/5500 Þurrviqt: 197 kq vegna) og lágan jafnvægispunkt svo ég hafði það á tilfínningunni að hægt væri að setja komabam undir stýri á þessu hjóli og það myndi spjara sig. Vélarstærðin er þó kannski það sem kemur i veg fyrir að hjól af þessu tagi nái útbreiðslu meðal þeirra sem velja einfaldleikann en 500 rúmsentímetra mótor skilar frá sér 40 hestöflum. Próf á stórt mótorhjól þarf nefnilega á TMAX hjólið þrátt fyrir að um sjálfskipta „vespu“ sé að ræða. Framúrstefnuleg hönnun Hönnun hjólsins er verulega framúr- stefnuleg og dálítið „speisuð", eins og ein- hverjir myndu segja. Mjúkar en langar línur og hátt glerið auk skásettra framijósa gera hjólið rennilegt og verulega fallegt. Mæla- borðið er einfalt með öllum helstu mælum, s.s. hraðamæli, hitamæli og bensínmæli, auk klukku, viðvömnarljósa og stafræns kíló- metramælis. Farangursrými TMAX-hjólsins er 32 lítrar sem þýðir að vel er hægt að koma aukahjálmi, innkaupapokanum eða íþrótta- töskunni fyrir undir sætinu án vandkvæða en farangursrými í bifhjólum er venjulega lítið sem ekkert. Þá er n.k. „hanskahólf ‘ líka á hjólinu og er það nógu stórt til að geyma í - því símann, húslyklana og peningaveskið. Þægilegur akstur Öll hönnun hjólsins tekur mið af þægind- um fyrir ökumann og farþega og hár skerm- urinn og sérstök straumlínulaga hlíf að framan brýtur mesta vindinn svo lítil hætta er á að þreytast þess vegna en ökumaðurinn og farþeginn sitja nánast í logni í stað þess að berjast með vindinn í fangið. Sætið er ein- staklega þægilegt, bæði fyrir ökumann og farþega, en stuðningspúða við bakið er hægt að færa fram og aftur. Sætið sjálft er mjúkt og fínt og farþeginn minn á hjólinu talaði sérstaklega um það hversu þægilegt það væri. 500 kúbikin og hestöflin 40 skila sér ótrúlega vel þrátt fyrir sjálfskiptingu en hjól- ið er sprækt af stað á gatnamótum og engin hætta á að maður sé skilinn eftir á umferð- arljósum. Það var ekki fyrr en komið var í 80-90 km hraða og átti að gefa aðeins meira í að í ljós kom að sjálfskiptingin tekur dálít- ið af viðbragðinu. Hámarkshraði hjólsins er þó uppgefmn 160 km/klst og uppgefln hröð- un er 7,5 sek. frá 0 í 100 km/klst þannig að © „ Speisaö" útlit er mikil breyting frá gamal- dags útliti Vespunnar. © Fyrir framan ökumann er lítiö hanskahólf fyrir smáhtuti. © Hjóliö er sjálfskipt og allur akstur því átakalaus. © Hólf undir sæti tekur 32 lítra og rúmar því mótorhjólahjálm meö andtitsvörn og fleira dót. þeir sem vilja njóta einfaldleika sjálfskipting- arinnar og áreynslulausrar ásetunnar án þess að tapa krafti mótorhjóla fá nú loks eitt- hvað fyrir sinn snúð. Fjöðrun hjólsins er ein- staklega mjúk og fagmannlega uppbyggð sem á ekkert skylt við fjöðrunarbúnað lítiila vespa, sem oft eru hastar, enda afar þægilegt og lítt þreytandi að aka hjólinu lengri vega- lengdir. Fyrir mömmur sem þora Ég velti því lengi fyrir mér hvaða hóp ég myndi sjá á svona hjóli þar sem um er að ræða blöndu af stóru bifhjóli með alvörumót- or og vespu og eiginleikum þessara tveggja blandað saman. Notagildið verður dálítið annað fyrir vikið og þessir venjulegu mótor- hjólatöffarar þora væntanlega ekki að skipta yfir í þægindin. Hjólið er hægt að nota til styttri ferða innanbæjar eða huggulegra sunnudagsbíltúra út úr bænum. Nesti og aukafatnaður verður ekkert vandamál enda farangursrými nóg. Ég sé fyrir mér að mark- hópurinn fyrir Yamaha TMAX hjóliö verði því mömmur sem þora. Helstu gallamir við hjólið eru ásetan sem er eins og setið sé í hægindastól með fætur fyrir framan sig en hún verður samt dálítið skrýtin þegar mað- ur hefur vanist því að aka hjóli þar sem áset- an er allt önnur og nota þarf fætur til gír- skiptinga og hemlunar. Hún venst hins veg- ar afar vel. Sjálfskiptingin tekur dálítið af „þoli“ hjólsins þvi þó það sé tiltölulega snöggt af stað verður átakið meira þegar hraðinn hefur verið aukinn og viðbragðið lengist þegar hraðatalan fer að nálgast þrjá stafi. Helstu kostir eru þægileg áseta, rúm- gott farangursrými og nægur kraftur. -HSH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.