Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 27
LAUGARDAGU R 10. AgDST 2002 Helcjctrblacf JÖ'V" 27 Bjanii og félagar Bjarni, lengst til vinstri, ásamt sambýlismönnum sínum, sem skreppa stunduin saman í jeppa- ferðalag, þeim Theódóri, Magnúsi og Jóni. Þeir standa við húsið Bræðraborg og eins og lesa niá á skilti balt við þá bjó skáldið Krist- ján frá Djúpalæk í jjví húsi forð- urn. DV-MYNDIR EVA HREINSDÓTTIR. Bjarni Bjarna- son er orðinn flökkusnigill, kominn á tíræð- isaldurinn, og bíður spenntur eftir næstu ut- anlandsferð Maraþonhlaupari, flakkari og vísnavinur Einn af þeim kjamorkumönnum sem búa á Ási/Ásbyrgi í Hveragerði er Bjami Bjamason. Líkiega er best að kalla hann athafnamann þvi að formlegan titil hefur hann ekki eignast enn. Bjami er nýorðinn níræður en aldurinn hefur farið vel með hann og heilsan ágæt að hans sögn. Bjami var einn hirrn allra fyrsti hér á landi til að hlaupa marabonhlaup. Hann hljóp eftir holóttum malarveginum milli Reykjavíkur og Hveragerðis. Öldungar í jeppaferð Fréttaritari DV hitti Bjama að máli þar sem hann var ný- kominn úr ferðalagi um Suðurland ásamt félögum sínum úr sambýlinu. Einn beirra á jeppa sem notaður var til fararinn- ar. „Við fórum fjórir saman héðan úr sambýlinu og ætluðum að keyra að Skógum. Svo fór að okkur fýsti að fara lengra og héldum siðan til Víkur í Mýrdal. Það var eins gott að við vor- um á jeppa því að við ókum upp á fjali og vegurinn var slæm- ur. Útsýn yfir hafið og bæinn var stórkostleg og þetta var skemmtileg ferð,“ sagði Bjarni sem virtist ekki þreyttur eftir ferðalagið og svaraði spumingum fréttaritara hægt og rólega, oft glettinn á svip, um leið og hann reri fram í gráðið. Bjami'er fæddur í Skorradal árið 1912 og var aðeins 11 vikna þegar foreldrar hans neyddust til þess að láta hann frá sér vegna veikinda fóður hans. Hann ólst því upp hjá afa sín- um og síðari konu hans á sveitabýli í Flókadal. Aðspurður um menntun sagði Bjami að lítt hefði verið um skólagöngu. „Ég ólst þama upp á sveitabýlinu og gerðist vinnumaður þeg- ar ég hafði aldur til. Eina skólagangan, sem svo getur talist, er að ég var í íþróttaskólanum í Haukadal í smátíma. Um sautján ára aldur fór ég að vinna fyrir mér utan heimilisins, oft í nágrenni við svæðið. Eftir það vann ég við hin og þessi störf víða um land, m.a. sem mjólkurbílstjóri og vörubílstjóri, auk þess sem ég vann í fiski. Ég var algjör flakkari. Þar sem best var borgað, þar var ég,“ sagði Bjami og kímdi. Trídaði þetta einsamall Bjami er einn af fyrstu mönnum sem hlupu maraþonhlaup á íslandi. „Það var árið 1936 að ég fór að vesenast í íþróttum. Að- alástæðan var að halda átti Ólympiuleikana það ár í Þýskalandi og mig dauðlangaði að fara utan. Þá ákvað ég að reyna við maraþonhlaup, fór að æfa og endaði með því að ég hljóp frá Kambabrún til Reykjavíkur á þremur tímum og 12 mínútum. Ég tritlaöi þetta einsamail með bíl á eftir mér og var ekki þreytt- ari en svo að ég fór í vinnu morguninn eftir. Það vantaði þó eitt- hvað upp á tímann og ég komst aldrei á Ólympíuleika." Bjami lét þó ekki þar við staðar numið og tók þátt í og sigr- aði í svokölluðu Álafoss-hlaupi þrjú ár í röð eftir það. Eftir það tók hann þátt í hlaupum nokkrum sinnum þann 17. júní en hætti síðan að hlaupa formíega. „Ég var kominn með tvö böm og konu og hafði hvorki tima né fé til þess að halda íþróttaiðkun áfram," segir hann. Orðinn flökkusnigill Þótt Bjami hafi ekki komist á Ólympíuleikana í Þýska- landi hélt flökkueðlið áfram að blunda í honum. Á yngri árum flakkaði hann aðallega miili landshluta vegna ýmiss konar atvinnu. Bjami hafði þó fastan samastað ásamt seinni sambýliskonu sinni í um fjörutíu ár í Borgamesi. Nokkram árum eftir að kona hans lést bauðst honum herbergi í Dval- arheimilinu Ásbyrgi þar sem hann býr nú ásamt þremur öðr- um karlmönnum. Það var loks í hittifyrra, þegar Bjami var orðinn 87 ára gamall, að hann fór í sína fyrstu „alvöru" utan- landsferð. Áður hafði hann einu sinni heimsótt Færeyjar. Þessi fyrsta utanlandsferð Bjama var hópferð með ferðaskrif- stofu til Mexíkó. „Ég stefni að því að fara þangað ef færi gefst. Þama var mjög gaman og margt fróðlegt að sjá og ég ákvað strax að fara til útlanda aftur. Það varð úr, og síðastliðið vor fór ég til Róm- ar. í þetta skipti hafði ég sjálfur með mér túlk, unga vinkonu mína, sem aðstoðaði mig. Eftir þessa ferð er ég orðinn algjör „flökkusnigiir, sagði Bjami, „og bíð eftir næsta tækifæri til ferðast, helst aftur til Mexíkó." Saknar fjölskyldunmtr Bjami segist vera sáttur við tilveruna þótt hann viður- kenni að hann kysi að fjölskylda sín hefði meira samband. „Hér í Hveragerði kann ég mjög vel við mig, og þeir sem ég bý með em ágætir félagar, og bærinn sérstaklega fallegur og hlýlegur með allan þennan gróður. Þetta var ekki eins í Borg- amesi, aila vega ekki gróðurinn". Aðspurður kvaðst hann vera löngu hættur að hlaupa, en „dinglaði sér“ í leikfimi til þess að halda sér í formi. „Ég fer aldrei í laugina, það þýðir ekkert, þótt ég eigi að kallast synd- ur. Ég reyndi að synda í lauginni við hótelið í Mexíkó en komst þá að því, að ég flýt bara ekki lengur! Og þar með var sú líkamsrækt úr sögunni." Bjami ekur um Hveragerðisbæ á rauðum sportbíl, Lödu, og hefur nýverið fengið endumýjað ökuskirteini sitt til eins árs. „Ég keyri aldrei til Reykjavíkur, forðast það. En þegar ég ek til Selfoss eða eitthvað annað ek ég á mínum hraða, 80-90 km á klst. og hinir geta bara átt sig. Það er þó alltaf hægt að víkja, ef einhverjir vilja böðlast áfrarn." Ekld Freösvuntu verður Bjami vildi lítið gera úr því, sem fréttaritari hafði heyrt, að hann kynni skemmtilegar sögur og sé vísnaskáld. „Þessi vitleysa er líklega komin til vegna þess að ég fer oft með vís- ur, og þá oftast vísur eftir aðra. Ég hef að vísu hnoðað ein- hverju saman, en best er að svara þessu á þennan hátt: Ég hefaldrei kunnaö kveriö, kosiö helst að mœla niö. Ég hef alltaf vitlaus veriö og verð þaó sjálfsagt alía tíö. Bjami fékkst þó til þess að segja frá því, að hann hefði eitt sinn um jól fengið ftá vinkonu sinni gátu í bundnu máli og hann beðinn um að svara á sama hátt. Gátan var þannig: Ein á Vestfjöröum ungfrú sat, átti þar nafniö skráöa. Á henni er frosiö ysta fat. Ætlaröu gátu aö ráóa? „Mér fannst þetta reyndar ekki mjög jólaleg kveðja,“ við- urkenndi Bjami, „og hugsaði ýmislegt. Síðan svaraði ég með eftirfarandi vísu, og þóttist hafa ráðið gátuna: Fór ég víöa um víkur og tanga, vístfann ég engan pilsfald hanga, lagöi á fjöllin, léttur í spori, líkt og ég vœri hreindýr aö vori. Fór ég víöa um fjallanna sali, fann þar marga grösuga dali, staldraöi við á stórum hnjúkum stóð þar aleinn á örþreyttum kjúkum. Nú er ég þreyttur, þyrstur, svangur, þetta er oröinn dagur langur. Ég malinn tek og mat minn háma, nafnið er fundið og það er Gláma. „Svo var það nú ekki Gláma, segir Bjami og brosir í kamp- inn. Þegar ég fékk að vita svarið, svaraði ég þessari vinkonu minni aftur: Dagarnir lengjast, draumamir styttast, drjúglangt er þar til viö fáum aó hittast, en svo er ég illa af Guöi geröur aó ekki er ég Freösvuntu verður. Bjami sagðist aðallega lesa ljóð í tómstundum sínum, sem væm ófáar. Þaðan væri kunnátta hans um ljóðlist komin. Uppáhaldsljóðahöfundar hans væru systkinin frá Grafardal, sérstaklega Einar Beinteinsson. -eh Flökkusnigill Bjarni komst upp á það fvrir nokkruni árum að ferðast erlendis og er viðþolslaus síð- an. Hann byrjaði á Mexíkó, fór síðan í vor til Ítalíu og ráðgerir fleiri ferðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.