Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Síða 34
42
Helqctrblctcf D V LAUGARDAGUR IO. ÁGÚST 2002
„Þettn er inikill
átakapottur og
lieitt í honum eins
og alltaf er þegar
mildð er á seyði.
Við eruni að ögra
sjálfuin okkur sem
listamönnum;
stíga inn á ókunn-
ar slóðir.“
DV-mynd E.Ól.
Ragnarök
eru viðvarandi ástand
I dag verður fyrsta sýning á Ragnarökum 2002 í Smiðj-
unni, leikhúsi Listaháskóla Islands, við Sölvhólsgötu. Þaö er
leiksmiðjan Lab Loki sem stendur fyrir þessu verkefhi þar
sem ólíkir listamenn og ólíkar stefnur eru leiddar saman í
eins konar leikrannsóknarstofú. í kynningarbæklingi um
verkefnið segir enda: „Með því að leiöa saman sviðslista-
menn sem koma úr ólíkum áttum en hafa sameiginlegan
áhuga á rannsóknum á sviði leiklistar og menningar vill
Lah Loki þróa nútímalega aðferð til að tjá og túlka okkar
foma menningararf." 1 verkefninu mætast vestrænar
leiktúlkunaraðferðir hinni austrænu Suzuki-aðferð, nútím-
inn mætir goðsögninniog svo mætti lengi telja.
Einn af stofhendum Lab Loka er Rúnar Guðbrandsson,
leikstjóri og prófessor við Listaháskólann, en hann hefur frá
árinu 1992 staðið í tilraunastarfsemi í leiklist í samstarfi við
fjölmarga listamenn, bæði útlenda og íslenska. Rúnar og
Steinunn Knútsdóttir bera mesta ábyrgð á verkefhinu
Ragnarök 2002. „Hugmyndin kviknaði úti í Svíþjóð í fyrra-
sumar," segir Rúnar, „en þar vorum við Steinunn á nám-
skeiði. Þar kynntumst við Anne Lise Gabold Suzukikenn-
Rúnar Guðbrandsson og Stein-
unn Knútsdóttir eru listrænir
stjórnendur Ragnaraka 2002
þarsem ólíktfólk og ólíkir
straumar mætast ísuðupotti
hugmgnda. Fgrsta stefnumót
við áhorfendur er í dag.
ara. Suzuki-aðferðin er mjög skýr vinnuaðferð fyrir leikara
og nokkuð frábrugðin vestrænum leikaraleiðum. Okkur
datt í hug að halda námskeið hér á landi. Síðan hefur sú
hugmynd þróast frá litlu einangruðu námskeiði í heila sýn-
ingu. Fljótlega kom upp hugmynd um að stefna Eddutextun-
um og þessari austrænu leiktúlkunaraðferð saman en hún
hefúr reynst haldgóð í vinnu með fomgrísk verk og vest-
ræna klassík.
Við höfum kafað í Edduna, endurskoðað skilning okkar;
henni og velt henni fyrir okkur sem leikrænum efnivið. Vic
höfum einnig notað aðrar aðferðir, dregið önnur elemen
leikhússins inn í vinnuna og leikið okkur fram og til baka
Margar spumingar hafa vaknað um leikhúsformið og vinni
leikarans. Við höfum gert tilraunir með formið. Suzuki-kerf
ið er stíihreint, formfast, agað og niðumjörvað að mörgi
leyti, það þrengir mjög að leikaranum en veitir honum un
leið mikið frelsi. Við höfum leyft okkur að fara yfir á hinr
endann og nýtt okkur frjálsan spuna og gjömingalist. Úi
þessu hefúr orðið til spennandi suðupottur sem við hellun
síðan inn í sýningu.“
Og hvemig líður ykkur í suðupottinum?
„Þetta er mikill átakapottur og heitt í honum eins o|
alltaf er þegar mikið er á seyði. Við emm að ögra sjáifun
okkur sem listamönnum; stíga inn á ókunnar slóðir," segh
Rúnar.
„Það eru mjög ólík element sem mætast í þessari vinnu,‘
segir Steinunn. „Ef við tölum um leikhús sem tungumál hef
ur mikil ögrim falist í því að leiða saman ólíkar stefnm
þannig að þær verði organískar. Við hefðum getað farið ú
í að búa til hreina Suzuki-sýningu og forðast þannig þ;
hættu að sú aðferð yrði eins og aðskotahlutur í sýningunn:
en við vildum mæta þeirri ögrun. Þannig mætum við lík;
efhi Völuspár"
Stefnumót \ið áliorfendur
„Við höfum verið sammála um að sprengja leikhús
rammann," segir Steinunn, „en við gerum okkur kannsk:
ekki grein fyrir því hvemig leikhús við erum að gera fyn
en á síðasta stefnumótinu, þ.e.a.s stefnumótinu við áhorf
endur. Það verður spennandi að sjá hvemig áhorfendm
skynja þessa veröld okkar sem er að einhverju leyti einstök
kannski svolítið póstmódemísk. Við nýtum okkur öll mögu
leg tæki til að koma því á framfæri sem stendur okkm
nærri. Þessi sýning fjallar að einhverju leyti um leikhúsic
og okkur í leikhúsinu."
Og hvemig haldið þið að áhorfendur bregðist við?
„Það er síðasta skrefið í tilrauninni að mæta áhorfandan
um,“ segir Rúnar. „Við nálgumst hann með svolítið öðrun
hætti en hann er vanur. En það er hluti af rannsókninni 0£
hefur ekki komið í ljós enn þá. Sýningin fjallar mikið un
þann sjóð sem við búum yfir og hvemig við virkjum orkun;
sem skapast þegar ólíkir einstaklingar og ólíkar hugmyndh
mætast. Suzuki-aðferðin og Völuspá em límið í sýningunn:
og hvort tveggja er meira og minna jafn nýtt fyrir okkur öil
um. Hvað gerist þegar Suzuki og Völuspá mætast, hvað ger
ist þegar við mætumst og síðasta spumingin er hvemij.
áhorfandinn mætir okkur.“
Hefur verið lítil tilraunastarfsemi í íslensku leikhúsi?
„Það hefur farið alltof lítið fyrir tilraunum," svarar Rún
ar. „Það hefúr reynst erfitt að skapa það svigrúm sem ei
nauðsynlegt. Það er alltaf þessi krafa um sýningu. f þessi
tilfelli hefðum við kosið að fá meira næði og tíma. En þettr
er í anda þeirrar menningarpólitíkur sem er rekin hér í
landi. Menn virðast ekki átta sig á nauðsyn þess að fólk
spyrji sig spuminga um vinnu leikarans og reyni að bijót
ast undan oki vanans og viðtekinna hugmynda.. Menning
arpólitíkin viR kyrrstöðu - status quo. Við erum mef
Ragnarökum 2002 frekar að varpa fram spumingum en at
svara þeim.“
Er íslenskt leikhús íhaldssamt?
„Já, það má segja það eða frekar kannski svolítið ein
hæft,“ segir Rúnar. „Það á rætur að rekja til fámennisins
Þeir sem fást við leikhús em að mestu leyti að fást við þaf
sama.“
„Þær tilraunir sem gerðar hafa verið eru í raun aðeins til
brigði við stef,“ segir Steinunn. „Það hefur aldrei veric
gengiö langt í því að ögra og þar kemur til að sýningamai
verða að standa undir sér fjárhagslega."
Spegla sig í Völuspá
„Völuspá er útgangspunkturinn í vinnunni," segir Rúnar
„Við byrjuðum með allt undir en hringurinn hefúr smán
saman þrengst og við notum Völuspá sem hryggjarsúlu sýn
ingarinnar. í sögu heimsins er líka hægt að koma inn mörg
um hliðarsögum. Við höfum reynt að skoða textana í nýji
ljósi og jafnvel sett þá í nýtt samhengi. Við höfum reynt a£
losa okkur undan byrði menningararfsins."
„Við höfum fært Völuspá nærri okkur," segir Steinunn
„og spurt okkur þeirra spuminga sem era i kvæðinu, reym
að lyfta henni upp þannig að hún segi okkur eitthvað sen
manneskjum. Við höfum speglað okkur í Völuspá."
Og það hlýtur að vera mjög magnað á þessum síðustu oé
verstu túnum?
„Já,“ svarar Steinunn. „Sumir halda því fram af
ragnarök séu viðvarandi ástand.“
-sm
FJÓRHJÓL/SEXHJÓL
Vetur, sumar, vorog haustþá erþetta verkfærið. Þaulprófað við okkar
aðstæður til margra ára sem vinnuvél, verkfæri og ekki sist leiktæki
sem kemur þér á staði sem þig hefur ekki dreymt um að komast á.
77/ sýnis og sölu hjá POLARIS
umboðinu í Lágmúla 9.
BRÆÐURNIR
POLARIS
Lágmúla 9 • Sími 530 2800