Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 41
4-9 l-AUOARDAQUR (O. AC,ÚS,T Í0.0 2' Helcj a rb /a df DV Fyrsta grindarbyggða rútan í áratug Fyrsti nýi grindarbyggöi fólksflutn- ingabíllinn í áratug eða meira var tek- inn í notkun nú um mitt sumar. Eig- andinn er Austfjaröaleiö sem hefur sér- leyfi á ýmsum leiðum austan lands og sinnir einnig hópferðum eftir þörfum, hvort heldur er austan lands eða sunn- an. Bíll þessi er af gerðinni Mercedes Benz Actros, 45 sæta og allur tölvu- stýrður; vélbúnaður, girskipting, heml- un og hömlun og fjöðrun. Almennt hef- ur bíllinn meiri veghæð en hefðbundn- ar rútur sem framleiddar eru fyrir bundið slitlag og hraðbrautir sem aftur Hlífar við stýrlð - hér er allt tölvu- stýrt sem hugsast getur og þæg- índin í fyrirrúmi. gerir að verkum að auðvelt er að koma á hann keðjum þegar á þarf að halda. Að sögn Hlífars Þorsteinssonar, eig- anda og forstjöra Austfjarðaleiðar, er meginástæðan til að fariö var út í bíl af þessu taginu fremur en hefðbundna „göturútu" sú að á svæði Austfjarða- leiðar eru ekki allir vegir i byggð með bundnu slitlagi og auk þess er talsverð þörf fyrir bíla sem geta farið utan al- faraleiða. Einnig er þessi bíll heppi- legri fyrir venjuleg vetrarveður þar sem hann er með vélina frammi í. Síðasta Jonkhere-yfirbygging- in „Húsið á þessum bíl er síðasta Jonkhere-húsið sem byggt var yfir bíl fyrir íslendinga sérstaklega," sagði Hlifar í samtali við DV-bíla. „Ég fékk það 1994 en út af þágildandi tollaregl- um keypti ég undir það grind af ¥88 módelinu, sem í sjálfú sér er enn í góðu lagi. En ástæðan til þess að ég fór í þessi kaup núna er sú að það hafa orð- ið svo miklar framfarir í gerð og bún- aði þessara bíla, þeir eru orðnir mun umhverfisvænni og svo er öll sjálf- - ■ m\ Éi DVA1YNDIR SHH Nýr grindarbyggöur rútubíll hjá Austfjaröaleiö, byggöur á vörubílsgrind eins og mest tíökaðist meö íslenska fólksflutningabíla áratugum saman. Ami Árnason, sölumaöur Mercedes Benz atvinnubíla hjá Ræsi hf., stendur hér framan vlö nýjan rútubíl Austfjaröaleiöar ásamt eigandan- um, Hlífari Þorsteinssyni. virkni orðin miklu meiri. Með þessum hætti er ég kominn með alveg nýjan bíl - bíl til framtíðar." Stenst Euro 3 mengunarstaðal Hlífar flutti sem sagt Jonkere-yfir- bygginguna á nýja grind af Benz Act- ros 1848 vörubfl og setti um leið ailt nýtt inn í húsið. Sú vinna fór fram í Bifreiðasmiðju Sigurbjörns Bjamason- ar. Sætin eru pólsk með viðurkennd þriggja punkta belti, hliðarfærslu, bak- halla, armhvílur, fótskemla og vasa aft- an á sætum. Vélin er 480 hö og stenst mengunarstaðalinn Euro 3. Hún er með sjálfvirkan og tölvustýrðan 16 gira kassa. Fjöðrunin er loftgöðrun sem hægt er að nota til að hækka bílinn þegar veður og færð krefjast þess en gerir bflinn jafhffamt mjög þýðan á öll- um venjulegum vegum. „Ein fyrsta ferðin var norður yfir Kjöl,“ sagði Hlífar. „Sá vegur er mjög vondur núna, harður og mikið þvotta- bretti. Þar sem vegurinn var verstur er náttúrlega enginn bfll góður á honum en á löngum köflum var hann alveg sérlega góður og ég heyri ekki annað en farþegunum líki hann vel.“ -SHH Fiat Stilo er loksins kominn til landsins og er til sýnis í sýningarsal Flaro aö Smiösbúö 2 í Garöabæ. Hjá honum eru þeir Páll Gíslason, fráfarandi for- stjóri Fiat/Aifa-umboösins á íslandi, og Sturla Sigurðsson sem tók við for- stjórastarfinu 1. ágúst síðastliöinn. NýrLand Cruiser 90 áfram á grind Þrátt fyrir mikla leynd yfir nýja Land Cruiser 90 jeppanum náðust myndir af honum nýlega sem birt- ust í Autocar, en frumsýna á nýja bílinn á bílasýningunni í París í september. Myndir náðust við próf- anir í snjó og köldu veðri og sýna að þótt línumar séu mýkri er undir- vagninn það ekki eins og orðrómur var uppi um. Nýi bíllinn fær sama undirvagn og Lexus GX470 jeppinn, sem er stiglaga grind í stað einrým- is eins og í MMC Pajero og Range Rover. Veghæð verður 250 mm og sama sjálfstæða fjöðrunin að fram- an og áður en loftpúðafjöðrun verð- ur valbúnaður í dýrari gerðum. Nýja 163 hestafla D4D dísilvélin veröur aðallega í boði en einnig verður hægt að fá hann með 184 hestafla V6 bensínvél. Nýi „Krúser- inn“ verður 4900 mm á lengd og mun geta tekið allt að átta manns í sæti. Eins og sjá má er útlitiö mikið breytt þótt bíllinn sé í felubúningi. Sem betur fer er varadekkið þó enn þá á gamla staðnum hugsa eflaust einhverjir. Nýi Land Cruiser-jepp- inn er væntanlegur til íslands í jan- úar á næsta ári. -NG Fiaro tekur við umboði Fiat/Aifa Umboðið fyrir Fiat og Alfa Romeo á Islandi er komið á hendur nýju fyrir- tæki - Fiaro, en nafnið er samsett úr fyrstu stöfum Fiat/Alfa Romeo. Fiaro verður til húsa í Smiðsbúð 2 í Garðabæ þar sem ístraktor hefur verið með þessi umboð undanfarin ár. ístraktor verður áfram til en nú sem eignarhaldsfélag um húsnasðið þar sem Fiaro rekur starf- semi sína. Eigendur Fiaro eru bræðumir Sturla og Þorvaldur Sigurðssynir. Sturla er viðskiptafræðingur og lokaritgerð hans var einmitt um bílaumboð en Þorvaldur er rafmagnsverkffæðingur. Sturla verð- ur forstjóri fyrirtækisins en að öðru leyti er starfsmannaskipan umboðsins óbreytt. „Með þessu sest markaðsmaður í þann stól Fiat/Alfa-umboðsins sem áður var setinn af tæknimanni," sagði Páll Gíslason, forstjóri ístraktors, í samtali við DV-bfla en Páll er einmitt tækni- ffæðingur. I vor sem leið seldi Istraktor Iveco-umboðið tfl Vélavers og með söl- unni á Fiat nú til Fiaro er aðeins um- boðið fyrir Schaeff-vinnuvélamar eftir. ístraktor var upprunalega stofnað 1975 sem samvinnufélag er tveir starfs- menn verkstæðis Dráttarvéla hf. tóku að sér rekstur verkstæðisins. Páll kom inn í starfsemina 1980 en hafði þá um hríð starfað hjá Bflaborg við sölu og þjónustu á Komatsu-vinnuvélum og samsetningu og sölu á Hino-vörubílum sem voru fluttir hingað tfl lands ósam- settir. Árið 1982 var rekstri ístraktors breytt í hlutafélag. Fiaro mun á næstunni fá til sölu Fiat Stilo sem vænst hefur verið um nokk- urra mánaða skeið og fengið hefur góð- ar móttökur, ekki síst í Norður-Evrópu. Þá mun verða lögð áhersla á Fiat Punto sem verið hefur metsölubfll í sínum flokki í mörgum löndum Evrópu undan- farin ár. Multipla og Alfa 156 hafa feng- ið nokkra andlitslyftingu og verða einnig á boðstólum. Verð verður óbreytt frá því sem verið hefur og eftir sem áður geta viðskiptavinir valið sparleið við kaupin, vilji þeir fá bflana fyrir sem lægst verð. -SHH Bíllinn er mikiö breyttur frá fýrri gerö en varadekkiö verður þó áfram á gamla staönum. Sk»búct , meðbíl',nn g§ifha' á netinu á benni Nissan Prímera GX1600,10/1996. Ekinn 81 þús. km. Beinskiptur. Álfelgur. Verð 750 þús. kr. Bmm MMC L300 bensín 7/1993. Ekinn 139 þús. km. Góður 8 manna bfll. Verð 650 þús. kr. rt(.(ClÓÍK A'jV’ BILASALANOS>SKEIFAN S • BÍLDSHÖFÐA 10 • LL_ __ S: 577 2800 / 587 1000 www.benni.is Opnunartími: Virka daga 10-19, Laugardaga 11-16 Akureyri: Bílasalan Ós, Hjalteyrargötu 10, Sími 462 1430 FRETTIR UTAN UR HEIMI VW Golf 1400 Comfortline 5/1998, ekinn 68 þús. ,km. Beinskiptur. Geislaspilari. Álfelgur. Verð 1.100 þús. kr. Subaru Legacy GL 2000,10/1998. Ekinn aðeins 31 þús. km. Sjálfskiptur. Álfelgur. Geislaspilari. Dráttarkúla o.fl. Verð 1.590 þús. kr. hvemig öryggisbelfi og fleira hefur óhrif við óhapp. Nýr Accord í París Honda frumsýnir nýjan Accord lang- bak á bílasýningunni í Paris í septem- ber, en hann mun fara á markað snemma á nœsta ári. Bíllinn faer útlit sitt að miklu leyti frá S2000 sportbíln- um og Jazz smábílnum og há þaklína bendir til mikils innanrým- is. Honda hefur lofað Ijölnota- möguleikum í sœtaskipan, líkt og í Jazz og sama flata gólfinu og í Cl- vic. Bíllinn veröur betur búinn en áður og fcer þijár nýjar vélar. Tvœr þeirra eru tveggja lítra, önnur 120 hest- öfl en hin yfir 200 hest- afla VTEC vél. Einnig má bú- ast við 2A iítra lóOhestafla vél og Type-R bíl sem keppa mun vlð BMW 330i, með 250 hestöfl. Einnig er vœntanleg dísilvél sem skilaá 180 hestöflum og miklu togi. Toyota Yaris WT-i 3/2001, ekinn 24 þús. km. Beinskiptur, geislaspilari o.fl. Verð 1.190 þús. kr. Dodge Ram sport Cummings dísil, 9/2000, ekinn 68 þús. km. Sjálfskiptur, með öllu. i Verð 3.500 þús. kr. Skodinn vinsæiastur Eigendur Skoda-bifreiða eru ánœgö- ustu bílaeigendurnir. Þetta kemur fram í bílablaðinu Autocar. Yflr 92% af Skoda-eigendum sögðu aö þeir myndu kaupa annan Skoda ef þeir vœru aö skipa um bl Land Rover kom einnig vel út í þessari könnun en 82% Land Rover-eigenda sögðu það sama um bílana sína. Þá kom BMW vel út og sögðust 80% af BMW-eig- endum myndu vilja ann- an BMW þegar skipt yrði nœst um bíl. Þeir bíleig- endur sem síst voru áncegðir með bílana sína voru eigendur Fiat, Citroén- og Rover-bíla. Ofrísk árekstrardúkka Volvo hefur gert árekstrar- dúkku ófriska, í fyrsta skipti sem það er gert í heiminum. Dúkkan verður notuð til aö auka öryggi ófriskra kvenna í árekstium. Dúkkan getur sýnt fram á vœntanleg meiösli bœði móður og barns og * C K-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.