Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 48
V 56 Helcfarblað H>V LAUGARDACLUR I o. ÁGÚST 2002 ÚTBOÐ F.h. SHS fasteigna ehf., Skógarhlíö 14, Reykjavík, er óskað eftir tilboöum í dísilrafstöö. Útboösgögn fást á skrifstofu okkar frá og meö 13. ágúst 2002. Opnun tilboöa: 27. ágúst 2002, kl. 11.00, á sama stað. SHS 76/2 I INNKA UPASTOFNUN I REYKJA VÍKURBORGAR Fríkirkjuve&i 3-101 Reykjavík-Sími 570 5800 Fax 562 2616 - Netfang: isn@rhus.rvk.is HOFÐABILAR Bílasala/þjónustuverkstæði Erum fluttir a6 Fosshálsi 27 Mjög góð aðstaða, 400 fm innisalur, malbikað, upplýst útisvæði. Getum bætt við okkur bílum, bæði inni og úti. Tökum að okkur öll þrif, standsetningar og smáviðgerðir á bílum, fellihýsum og vélsleðum. Höfðabílar Fosshálsi 27 S. 577-1085 894-5899 892-4800 Laus störf .IKEA Ertu rösk(ur)? Ertu jákvæð(ur)...? Ertu sjálfstæð(ur)...? Hefðurðu frumkvæði...? Ertu komin(n) yfir tvítugt...? Viltu vinna í góðum félagsskap...? Hefur þú áhuga á fallegu umhverfi...? Vildu starfa hjá traustu og spennandi fyrirtæki? Ef þú svarar öllu játandi hér að ofan erum við að leita að þér! BtBMl ‘ -, . ’ ,w«* IKEA er fyrirtæki í örum vexti og vegna þess vantar okkur duglegt fólk í ýmsar deildir á breytilegum vinnutíma. Brennandi áhugi er skilyrði! Umsóknum skal skila á heimasíðu fyrirtækisins www.IKEA.is eða til IKEA Holtagörðum fyrir 16. ágúst 2002. IKEA er meira en „ venjulegur" vinnustaður. Hjá IKEA gefst fólki tækifæri til að þroskast í starfi, reyna á sköpunargáfuna, axla ábyrgð og verða sífellt mikilvægari hlekkur í kraftmiklu fyrirtæki. IKEA býður gott starfsumhverfi alla daga, allan ársins hring. A Skákþátturinn Umsjón Sævar Bjamason Skák Skákin á vaxandi vinsældum að fagna í Kína. Reyndar eru margar útgáfur af töflum (borðspilum) til þar. Ég fór til Kína fyrir um 13 árum að tefla og þekki því nokkuð vel til skákmála þar. Skák var iðk- uð í Kína eins og við þekkjum að litlu leyti fram yfir' byltinguna 1949. Ólíkt Sovétmönnum þá lögðu Kínverjar ekki mikla áherslu á að ná fram góðum skákmönnum - nóg verkefni var að brauðfæða og auka menntun þessarar stóru þjóðar. Ólæsi var að mestu útrýmt og góður árangur náðist í heil- brigðismálum og ýmsu öðru. Ekki er ætlunin að lofsyngja kínversku byltinguna hér - aðeins að drepa á þær aðstæður sem hin „vestræna" útgáfa á skák bjó við fyrir um 50 árum. Kínverjar voru t.d. ekki með á ólympíuskákmótum fyrr en 1978 í Argentínu. Skákin var bönnuð og fordæmd í menningar- byltingunni og alls staðar í Kína virtu menn þetta bann því nóg var af öðru til að gæta. Komu til að læra Á einum stað í Suður-Kína er borgin Chengdu, smáborg á kín- verskan mælikvarða, með aðeins um 10 milljónir íbúa (1985). Borg- arstjóri var þar Deng Xiopeng nokkur sem síðar tók við stjórnar- taumunum þar á bæ. Hann hafði áhuga á skák frá því að hann var við nám í París (Svartaskóla?). Þegar Deng svo var kominn í innsta valdahring þá fóru Kínverj- ar að láta að sér kveða í skáklist- inni! 1978 unnu íslendingar ágætan sigur á Kínverjum á ólympíuskák- mótinu. Enda sögðu Kínverjar, með breiðu brosi, að þeir væru komnir til að læra og það var ekki fyrr en á næstu mótum að menn fóru að gera sér grein fyrir því að Kínverjar væru komnir til að vera á skáksviðinu. Meira að segja ís- lendingar hafa mátt þola tap gegn þeim og það oftar en einu sinni á þessum 24 árum sem þeir hafa verið með. Heimsmeistari kvenna Englendingum, með Miles í broddi fylkingar, var síðan boðið til Kína í byrjun níunda áratugar- ins og þóttu það mikil tíðindi. Tefld var landskeppni sem Eng- lendingar unnu, með hörmungum þó. Samskipti okkar íslendinga og Kínverja hófust fyrir utan ólymp- íuskákmótin með því að unglinga- meistari Kína kom hér í heimsókn um 1982. Sá ágæti drengur, hvers nafni ég hef gleymt (Ronggu- yang?), flúði síðan til Hollands 1989 eftir hina hörmulegu atburði á Torgi hins himneska friðar eða, réttara sagt, sneri ekki aftur úr skákferðalagi. Hann er nú orðinn stórmeistari. Þróunin i skákmál- um þarna austur frá hefur verið hröð og markviss. Fyrst var kvennaskákin í fyrirrúmi því kín- verskar skákkonur náðu fljótar að komast í fremstu röð en karlarnir. Sú þróun náði hámarki þegar Jun Xie varð heimsmeistari kvenna um 1990 og nokkur ár liðu þar til elsta Polgar-systirin, Zsusa, náði titlinum af Jun Xie. Titlinum tap- aði hún síðar án keppni. FIDE hafði af visku sinni ákveðið að einvígi þeirra skyldi fara fram í Kína og Zsusa Polgar var ekki sátt við það. Hún var orðin ólétt, treysti sér ekki til Kína og bað um frestun á einvíginu en fékk ekki og titilinn var síðar dæmdur af henni. Hún hætti að tefla upp úr því og fór að sinna börnum og búi. Ýmis önnur mál, eins og verð- Kína launafé, komu við sögu en of langt mál er að rekja þá sögu alla. Tapaði titlinum! Síðar lenti Jun Xie sjálf í útistöð- um við FIDE þegar Kirsan Iljums- hinov kom með þessar hraðsoðnu heimsmeistarakeppnir sínar. Hún neitaði að vera með og tapaði FIDE- titlinum líkt og Kasparov sjálfur fyrir óþekkt og virðingarleysi við FIDE. En önnur kínversk stúlka náði hinum hraðsoðna heimsmeist- aratitli um leið og Ruslan Ponom- ariov á síðasta ári. Sú heitir Chen Zhu og er ung að árum, liðlega tví- tug. Kínverjar unnu nýlega Banda- ríkjamenn í röð landskeppna í skák í Kína og því ber að fagna. Þessar tvær skákdrottningar, Jun Xie og Chen Zhu, voru fengnar til að etja kappi við 2 þekkta skákmenn frá Vesturlöndum, Nigel Short frá Englandi og Yasser Seirawan frá Bandaríkjunum, og tefldu þau nokkur einvígi i borginni Jinan í norðurhluta Kína til útbreiðslu skáklistarinnar og svo var sigurhá- tíð vegna sigursins sæta. Kínverji vann Karpov Ég ætla rétt að geta þess aö kín- verskir karlmenn hafa náð frábær- um árangri líka. Skemmst er að minnast þess að það var Kínverji sem sló út Anatolí Karpov í síðustu heimsmeistarakeppni FIDE, þegar Karpov ætlaði að ná titlinum aftur til „móður Rússlands"! en hann lenti á næsta bæ, Úkraínu, fyrir til- stilll Ponomariovs. Jæja, víkjum aftur að keppni skákdrottninganna gegn skákkóngunum eins og keppnin var kölluð. Fyrst tefldu annars vegar Jun Xie og Nigel Short og vann sú kínverska Short, sem hefur teflt einvígi um heims- meistaratitilinn 3-1, og hins vegar tefldi Chen Zhu við Yasser Seiraw- an sem vann 3,5-0,5 En þetta voru atskákir allt saman og voru þessi einvígi tefld hvert og eitt á einum degi. Síðan tefldu Jun Xie og Yass- er Seirawan og lauk þeirri rimmu með jafntefli, 2-2. Nigel Short náði að taka sig saman í andlitinu og vinna Chen Zhu, 3,5-0,5, en Chen er greinilega enn þá lakari skákmað- ur en stalla hennar. Síðan var öllu slegið saman í parakeppni og sam- ráðakeppni og tefldu Chen Zhu /Yasser Seirawan gegn Jun Xie /Nigel Short og lauk þvi í ágætri sátt, 2-2. Jun Xie sýndi þarna að hún hefur svokallaðan ofurstór- meistarastyrkleika og jók enn veg- semd skáklistarinnar í Kína og er það hið besta mál því í skákinni fá keppendur að taka sjálfstæðar ákvarðanir á eigin ábyrgð. Mörg skákmót eru nú haldin árlega í Kína og kínverskir skákmenn æ al- gengari sýn á Vesturlöndum. Hvitt: Nigel Short (2682) Svart: Jun Xie (2562) ítalski leikurinn. Jinan, Kína (1), 21.07. 2002 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. Rg5 d5 5. exd5 Ra5 6. Bb5+ Bd7. Hér er nú venjulega leikið 6. - c6 en Short hefur góða reynslu gegn því afbrigði svo sú kínverska bryddar upp á einhverju minna þekktu. 7. De2 Be7 8. Rc3 0-0 9. 0-0 Bg4! Short er þegar kominn í vandræði - svona er að kunna ekki aukaafbrigðin. Hann nælir sér í peð en verður að láta biskup af hendi fyrir nokkur peð sem síð- an eru tínd af honum! 10. Dxe5 Bd6 11. Dd4 c5!! Æ, æ. Ef hann drepur peðið í framhjáhlaupi fell- ur drottningin eftir 12. - Bxh2+. Tekinn í bólinu! 12. Dd3 a6 13. h3 Bc8 14. Ba4 b5. 1 Ofurstórmeistari á villigötum. Einhvern tímann var honum kennt eins og öðrum byrjendum að varast svona „gaffla" Enda heitir þetta fórn en ekki afleikur!? 15. Rxb5 axb5 16. Bxb5 c4 Og enn koma fleiri kínverskar brellur - 17. Bxc4 Rxc4 18. Dxc4 Ba6 tapar heOum hrók. 17. Dd4 Bb7 18. d3 Bxd5 Short er hér í miklum vandræð- um: ef 19. dxc4 Bxc4 (hótar Bh2+) 20. Hdl Be5 og hvítur er með rjúk- andi rústir. Og ekki fatast svört- um úrvinnslan: 19. Be3 Dc7 20. Hadl Bh2+ 21. Khl Be5 22. Dc5 Db7 23. f3 Hfc8. Hún kann að ná sér í afgerandi leikvinninga (tempo), sú Kínverska. 24. Db6 Dxb6 25. Bxb6 Eftir næsta leik svarts er útséð um enskan sigur eða jafntefli. 25. - Hcb8! 26. Bxa5 Hxb5! 27. Bc3 Bxc3 28. bxc3 h6 29. Re4 Bxe4 30. dxe4 Hxa2 31. Hd4 Hxc2 32. Hxc4 Hbb2 Ekki nóg með að peð- in séu tínd af hvítum - nú ryðjast kínversku drekarnir inn fyrir og mylja allt niður! 33. Hgl Rh5 34. e5 Rg3+ 35. Kh2 Re2 36. Hel g5 37. Hg4 Kg7 38. h4 Kg6 39. hxg5 hxg5 40. Hal Rf4 41. Ha6+ Kh5 42. Hf6. Hvilík hörmungarstaða. Maður skyldi ætla að það sé óvinnandi skákher í uppsiglingu í Kína. Skynsamlegra að efla hann en allt hernaðarbröltið og, nei, sleppum þvi í skákþætti! 42. - Rxg2 43. Kg3 Re3. 0-1.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.