Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 H e Iga rb lacf JOV 3 I pFlokkurinn er að öðlast karakter, sem er mikilvægt, og Össur hefur leitt og lialdið utan um það starf. flokkurinn sýnt betur og betur sinn innri styrk. Flokk- urinn er að öðlast karakter, sem er mikilvægt, og Öss- ur hefur leitt og haldið utan um það starf. Ég hef látið það fara í taugarnar á mér þegar fólk leyfir sér endalaust að ræða hvort hinn og þessi sé ekki á leiðinni til björgunar. Þá eru menn að segja að okkar formaður sé ekki vaxinn sínu hlutverki." - En það hafa komið upp erfið mál hjá honum, sam- anber bráðræðisbréfin: „Já, já, þau hafa verið erfið en það er svo skrýtið að leiðtogar sem hafa fest sig í sessi hafa komist upp með svona bráðræðisbréf eins og þú orðar það. En vissulega gerum við kröfur til þess að okkar formaður vandi sig aðeins meira en formaður Sjálfstæðisflokksins.“ Fer hrollur um mig - Myndirðu styðja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ef hún sæktist eftir leiðtogastöðu hjá Samfylkingunni? „Ég vil gjarnan sjá Ingibjörgu Sólrúnu í ábyrgðar- stöðu hjá Samfylkingunni en ég held hins vegar að ef Ingibjörg Sólrún eigi að verða formaður í Samfylking- unni þurfi hlutirnir að gerast í réttri röð. Foringja- skipti verða að gerast í sæmilegri sátt þannig að þau styrki Samfylkinguna." - Sérðu fyrir þér einhverjar stórbreytingar á núver- andi kjörfylgi eftir næstu kosningar? „Þegar ég horfi á skoðanakannanir Gallups fer hroll- ur þetta undan.- Evrópuumræðan og viðhorf forsætisráðherra til hennar hafa líka sín áhrif. I Sjálfstæðisflokknum eru menn ekkert sammála um að ekki eigi aö ræöa þessi mál og að menn megi ekki hafa skoðanir." Evrópuhálfkák verra - Hvað með þína skoðun? Eigum við að láta vaða? „Nei, við eigum ekki að vaða í neitt, ég geri mér mætavel grein fyrir að við verðum að stíga létt til jarð- ar. En ég finn að fólk hefur mikinn áhuga á umræðunni og finnst hún mikilvæg og spennandi. Það sem mér finnst sérkennilegast er hvað tekist hef- ur að gera þetta mál flókið. í raun er það þannig að með EES-samningnum og Schengen má segja að við séum þegar gengin í Evrópusambandið, svona 70-80% á mæli- kvarða Evrópusambandsins. Það sem vantar upp á eru hlutir sem varða landsbyggðina sérstaklega. Það eru byggðamálin, landbúnaður og svjávarútvegurinn og ég spyr sjálfa mig hvort það hafi orðið landsbyggðinni til góðs að við létum EES nægja en slepptum þessum mála- flokkum. Hefðum við e.t.v. verið betur sett ef við hefð- um gert eins og Austurriki, Finnland og Svíþjóð sem byrjuðu með okkur í EES-viðræðunum en tóku svo all- an pakkann?" „Sigbjörnsmálið" var mjög áberandi í síðustu alþingiskosningum. Margir töldu flokkinn liafa skaðast eftir að Sigbjörn Gunnarsson dró sig í hlé þrátt fvrir að hafa sigrað í umdeildu prófkjöri. „Vandi okkar fólst ef til vill í því að_ vegna bernsku flokksins voru þessi mál dálítið losaraleg. Stjórnmálaflokkur ineð bakbein lendir miklu síður í svona klúðri því þá er til einhver stofnun sem getur tekið á málunum. Vandi okkar var að við höfðum enga slíka stofnun og bæði aðdragandi prófkjörsins, prófkjörið sjálft og eftirleikurinn bar allt saman inerki um að það vantaði festu í iuálin." ur um mig. Þær sýna að viö erum að fara inn í kosn- ingavetur þar sem flokkarnir eru nánast með sama fylgi og í síðustu kosningum. Ef ekkert breytist eigum við ekki þá möguleika eftir kosningarnar sem við höfð- um vænst.“ Davíð að dala - Hvað gæti breyst? „Ég held að ýmislegt geti breyst.“ - Nýtt fólk? „Nýtt fólk er eitt af því en fleira þarf að koma til. Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn eigi við meiri innanmein að stríða en sýnileg eru nú. Ég held að vinsældir Dav- íðs Oddssonar dali mjög þessar vikurnar og að Sjálf- stæðisflokkurinn verði ekki jafnsterkur og skoðana- kannanir sýna. Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn sé jafnvel að komast f stöðu Kohls kanslara f Þýskalandi - að hann þoli ekki fleiri skandcilmál." - Hefur flokkurinn sem slíkur lent í nokkrum hneykslismálum? Eru þaö ekki bara einstaklingar inn- an hans? „Sjálfstæðisflokkurinn hefur náð að sigla fram hjá ýmsum málum. En auðvitað taka ýmis mál í nú, sein- ast SPRON-málið, þar sem forsætisráðherra átti sinn hlut, og svo málefni Kvikmyndasjóðsins. Auðvitað gref- Óábvrgt hjá VG - Margir hyggja að landinu sé ágætlega stjórnað. Hefur verið erfitt að vera í stjórnarandstöðu undan- farið? „Það veitist mönnum miserfitt að vera í stjórnarandstöðu. Mér fmnst það erfitt af því að ég vil vera í stjórn. Það er hluti af mínum karakter á meðan sumir eru stjórn- arandstöðumenn að upplagi." - Hvaða dæmi geturðu nefnt? „Mér finnst hægt að nefna heilan þingflokk, þ.e.a.s. Vinstri græna. Flokkur þeirra er stjórnarandstöðu- flokkur af þvi að hann er ekki fyrir málamiðlanir." - Meinarðu að hann sé nei-flokk- ur? „Hann er jafnan uppi með gagn- rýni og setur sig sjaldan í þær stell- ingar hvernig þeir myndu.gera hlut- ina ef þeir sætu viö stjóriivölinn." - En er það ekki lýðræðinu hollt að hafa svo gagnrýninn flokk? „Jú, lýðræðinu er hollt að uppi sé gagnrýni á störf meirihlutans en hún þarf lika að vera málefnaleg og uppbyggjandi svo hinn valkosturinn sé mönnum ljós.“ - Hverjar eru andstæður Vinstri grænna? „Samfylkingin og Vinstri grænir hafa að sumu leyti þróast í ólíkar áttir. Við tókum strax þá afstöðu að við ætluðum okkur að vera stjórnarflokkur og þess vegna verður samfella í stefnu okkar í stjórnarandstöðu og þegar við fórum í ríkisstjórn. Það hefði verið miklu auðveldara að vera bara á móti í ýmsum málum en við teljum það óábyrgt ef við trúum því ekki innst inni. Við viljum verða stjórnarflokkur og skoðanakannanir sýna vaxandi stuðning við málflutning okkar og viðhorf." Yngra Alþingi - Er vandi Samfylkingarinnar öðrum þræði sá að þar vanti frekari endurnýjun? „Sá vandi er ekki okkar vandi frekar en annarra flokka. Þingflokkur Samfylkingarinnar er með lægsta meðalaldur þingflokka. Ég vil hins vegar sjá yngingu al- mennt á Alþingi íslendinga. Mér flnnst Alþingi eins og það er í dag ekki endurspegla þjóðina nógu vel. Konum hefur fjölgað mikið, sem er gott, en það eru allt of marg- ir miðaldra karlar. Ég vil sjá fleira yngra fólk með ólíka menntun, þekkingu og skilning á möguleikum framtíð- arinnar. Líka fleira fólk sem hefur menntast erlendis, með víðari sjóndeildarhring og laust við kalda- striðsviðjarnar. 21. öldin þarf á því að halda.“ -BÞ GR1LLVE1SLA Grillþjónusta fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtök. Tökum að okkur grillveislur hvar sem er, hvenær sem er. Fyrir allt frá 25 manns í senn. Mætum með allt á staðinn, diska, hnífapör o.þ.h. Grillum allt sem hægt er að grilla. Kynnið ykkur verðið og þjónustuna. dRtLLVACiNINN Hafsteinn Gilsson matreiðslumeistari, 566-6189 Svanur Hafsteinsson matreiðslumaður, 898-3189 HLEÐSLU/’ BORUEL Ifesto I SYSTEM- Töskur. .fyrir öll verkfæri og þú kemur reglu á hlutina! Öruggur staður fyrir FESTO verkfærin og alla fylgihluti ..þafl sem fagmaðurinn notar! Ærmún I7f 103 ReykjavDt Sfml: 533 1E34 fax5GB 0433
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.