Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002
DV
George W. Bush
Bush Bandaríkjaforseti náöi gríöar-
legum vinsældum eftir 11. septem-
ber sem eru aö dala í lognmollunni.
Stuðningur við
Bush minnkar
Ný skoðanakönnun sýnir að
stuðningur bandarísku þjóðarinnar
við George W. Bush forseta minnk-
aði um 11 prósent frá júní fram í
ágúst. Fyrir tveimur mánuðum var
forsetinn með stuðning 76 prósent
þjóðarinnar en nú er hann 65 pró-
sent, sem samt sem áður þykir
nokkuð vel af sér vikið.
Könnunin leiðir einnig í ljós að
bandaríska þjóðin er klofin í af-
stöðu sinni gagnvart fyrirhugaðri
árás á írak. 45 prósent studdu árás-
ina en 45 prósent voru á móti. Að-
eins einn af hverjum fimm taldi
Bandaríkjamenn eiga að ráðast á
írak án stuðnings bandamanna
þeirra.
Hvatt til að snið-
ganga Mugabe
Robert Mugabe, forseti Simb-
abve, rak í gær allt ráðheralið sitt
án þess að gefa nokkra ástæðu fyrir
því. Búist var við því að hann
kynnti nýja stjóm á mánudag.
Stjómarandstæðingar í Bretlandi
hafa skorað á Tony Blair forsætis-
ráðherra að sniðganga ræðu Muga-
bes á umhverfisráðstefnunni í Jó-
hannesarborg sem hefst á mánudag.
Margaret Beckett umhverfisráð-
herra hafnar þessum áskomnum og
segir fundinn verða að snúast um
baráttuna gegn fátækt og mengun í
heiminum. Hins vegar taldi hún af-
ar ólíklegt aö Blair myndi taka í
höndina á Mugabe, sem kallað hef-
ur breska forsætisráðherrann illum
nöfnum vegna andstöðu hans við
landtökustefnu svartra i Simbabve.
Iain Duncan Smith, leiðtogi
íhaldsmanna, segir ráðstefnuna
vera farsa ef ekkert verði gert til að
mótmæla Mugabe, sem hann segir
leiða hungursneyð og kynþáttamis-
rétti yfir þjóðina með landtökunum.
Hetjuskapur í fyr-
irrúmi við flóðin
Kinverjar vinna nú að því allan
sólarhringinn að styrkja flóðavam-
ir við Dongting-vatn i Hunan-hér-
aði, en talið er að vatnsmagnið
muni ná hámarki á sunnudags-
morgun.
Myndir frá flóðabaráttunni eru
sýndar í kínverska ríkissjónvarp-
inu og er flóðabaráttan sýnd í ljóma
foðurlandsástar í ríkisfjölmiðlun-
um.
Flóðavaktin íhugar nú að sleppa
vatni á láglendi þaðan sem 10 þús-
und manns hafa verið flutt, í þeim
tilgangi að bjarga fjölmennari svæð-
um.
Skólastúlkurnar tvær í Soham:
Voru
þeim
Ekki hefur tekist að skera úr um
hvemig bresku 10 ára stúlkumar
Jessica Chapman og Holly Wells
voru myrtar vegna þess að líkin
höfðu orðið fyrir verulegri rotnun
þegar þau fundust. Stúlkurnar týnd-
ust þann 4. ágúst og fundust lík
þeirra í skurði í skóglendi um 16
kílómetra frá heimabæ þeirra, So-
ham í Camebridgeskíri.
Niðurstöður réttarrannsóknar
gáfu til kynna að líkin höfðu „rotn-
að verulega og að hluta til í ástandi
beinagrindar". Ljóst þykir að stúlk-
umar vora ekki myrtar þar sem lík-
in fundust, en ekki er vitað hvar
eða hvemig glæpurinn fór fram.
Mikil reiði ríkir hjá Bretum
vegna morðanna og hafa margir
oröiö til þess aö kalla á endurupp-
vakningu henginga vegna málsins
en dauðarefsingin var afnumin í
Bretlandi fyrir rúmum fjórum ára-
myrtar og
komið fyrir
Á vettvangi
Maöur hylur andlit sitt eftir aö hafa
lagt blóm viö staðinn þar sem lík
Jessicu og Holly fundust.
tugum.
Skólahúsvörðurinn Ian Huntley
hefur verið rekinn úr starfi, en
hann hefur verið lagður inn á
rammvígt geðsjúkrahús, ákærður
fyrir morðið á stelpuhnátunum.
Hugsanlegt er að Maxine Cam,
kærasta Huntleys, sem ákærð er
fyrir tilraun til að hindra framgang
réttvísinnar, verði fyrir frekari
ákærum vegna málsins.
Einnar mínútu þögn var viðhöfð
fyrir leik knattspyrnuliðanna
Manchester United og Chelsea í
gær, en stúlkumar höfðu mikið dá-
læti á fyrmefnda liðinu og voru
báðar íklæddar treyju með nafni
Davids Beckhams þegar þær hurfu.
Fram undan er að lik stúlknanna
verði rannsökuð enn frekar og jarð-
arför þeirra haldin næstkomandi
þriðjudag.
Baskar mótmæla
Þúsundir Baska streymdu út á götur í gær þegar saksóknari spænska ríkisins gafgrænt ijós á bann hins þjóöernis-
sinnaöa Baskaflokks Batasuna, sem sakaöur er um tengsl viö hryöjuverkasamtökin ETA. Á mótmælaspjöldum
Baskanna stóö „Stööviö fasismann. Frelsi fyrír Baskaland".
Búist við ofbeldi í Baskalandi:
Stjórnmálaflokkur bannaður
Öflug mótmæli voru í borgum og
bæjum Baskalands í gær eftir að
spænskur saksóknari gaf grænt ljós
á bann baskneska stjómmálaflokks-
ins Batasuna.
Bannið byggir á nýjum spænsk-
um lögum um stjórnmálaflokka sem
kveða á um að banna megi flokka
sem styðja hryðjuverk. Saksóknari
spænskra stjómvalda segir Batas-
una styðja skæruliðasamtökin ETA
fjárhagslega, en bæöi flokkurinn og
samtökin eiga sjálfstætt Baskaland
sem æðsta markmið.
Hæstaréttardómarinn Baltasar
Garzón segist munu úrskurða um
bann flokksins á mánudag í allt að
fimm ár. Hann öðlaðist heimsfrægð
þegar hann upplýsti um mannrétt-
indabrot í Chile í tíð Pinochets, auk
þess sem hann barðist gegn inn-
komu ítalska auðkýfingsins og
stjómmálamannsins Silvios Berlu-
sconis i spænskan sjónvarpsrekst-
ur.
Þetta er aðeins eitt þeirra laga-
ferla sem spænsk yfirvöld setja í
gang til aö banna Batasuna. Á
mánudag mun Jose Maria Aznar
forsætisráðherra að sögn biðja
spænska þingið um að byrja réttar-
ferli sem bannar Batasuna á grund-
velli umdeildra nýrra laga sem gera
kleift að banna hvem þann stjóm-
málaflokk sem ekki fordæmir
hryöjuverk.
Leiðtogi Batasuna hefur varað
stjóm Baskalands við „ófýsilegum
afleiðingum" þess að banna flokk-
inn. Búist er viö því að basknesk
lögregla mæti á skrifstofur flokks-
ins í byrjun næstu viku og loki á
starfsemina.
Óttast er að upp úr sjóði i Baska-
landi í kjölfar þess að Batasuna
verði bannaöur. Baskneskir lög-
reglumenn hafa verið beðnir að
hafa augun hjá sér og beita harka-
legum aðferðum tfl að vemda sjálfa
sig, en ETA hefur oft beint spjótum
sínum að þeim.
Gro Harlem hættir í WHO
Gro Harlem
Brundtland, fyrsti
kvenkyns forsætis-
ráðherra Norð-
manna og núver-
andi framkvæmda-
stjóri Alþjóðahefl-
brigðisstofnunar-
innar (WHO), hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér á ný
þegar kjörtímabfli hennar lýkur í
júlí á næsta ári.
Heilahimnubólga í Rúanda
Faraldur heflahimnubólgu geng-
ur nú yfir Afríkuríkið Rúanda. Að
minnsta kosti 65 manns hafa látist
af völdum sjúkdómsins, en talið er
að margir hafi látist án þess að það
hafi verið greint sérstaklega.
Syndir með tveim limum
52 ára gamall Króati hyggst synda
yfir Ermarsund í lok mánaðarins,
en hann er hvorki með vinstri hönd
né hægri fót. Hann varð fyrir skrið-
drekakúlu i borgarastríðinu 1991.
Friðarákall hunsað
Tveir vopnaðir Palestínumenn
voru skotnir til bana af ísraelsher í
gær þegar þeir komust yfir landa-
mærin til ísraels og stefndu að land-
nemabyggð. Samkvæmt samningum
eiga Palestínumenn að sjá tfl þess
að stöðva hryðjuverkaárásir á ísra-
ela og hefur palestínska forystan
gert ákall tfl baráttuhópa um að
árásir verði stöðvaðar.
Sonur Blair í háskóla
Euan Blair, elsti
sonur breska for-
sætisráðherrans
Tonys Blair, hefur
fengið inni í
Bristolháskóla þar
sem hann mun
leggja stund á nám
í fomaldarsögu. Eu-
an hefur undanfarið fengið einka-
tima í þeim tilgangi að ná inn í Ox-
ford-háskólann. Andstæðingar for-
sætisráðherrans saka hann um
hræsni, þar sem hann treysti ekki
menntakerfinu sem hann skapaði.
Tonn af kannabis í rútu
Eitt tonn af kannabisefnum fannst
í rútu á leið frá marokkósku borg-
inni Casablanca til Belgíu í gær.
Tveir marokkóskir bílstjórar rútunn-
ar vora handteknir, en þeir komust
aldrei lengra en til hafnarborgarinn-
ar Tangiers í heimalandinu.
Kúba býður fram hjálp
Kúbverjar hafa boðið Bandaríkja-
mönnum hjálp sína í baráttunni
gegn Vestur-Nílarveirunni sem kom
til Bandaríkjanna fyrir þremur ár-
um og dreifist nú hratt með
moskítóflugum. Kúbverjar hafa
staðið að miklum framfómm í bar-
áttunni gegn hitabeltisveirum.
ORMSSON
DEH-P7400 fyrir MP3
Kr.74.900.-
Mosfet 4x50W • 3 RCA útgangur • tónjafn;
24 stöðva minni* MP3/OEL skjár • FM/MW,