Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 226. TBL. - 92. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK AUKARAF Bíla- Fjarstýringar Radarvarar Geislaspilarar 12-24-230V hljómtæki Þjófavarnir lausnir ] Sautján ungmenni hafa af- i plánað í almennum fangelsum t - á slðustu átta árum - eitt ungmenni sat inni á þessu ári I I Sautján ungmenni hafa afplánað refsingar sínar í íslenskum fangels- um á síðastliðnum átta árum, það er frá 1995 til og með þeim tíma sem liðinn er af árinu 2002. Um er að ræða ungmenni á aldrinum 15-17 ára, sem dæmd hafa verið til óskil- orðsbundinnar refsingar samkvæmt 29 dómum á ofangreindum árum, samkvæmt upplýsingum sem Fang- elsismálastofnun ríkisins hefur lát- ið blaðinu í té. Á þessu ári afplán- uðu tvö ungmenni óskilorðsbund- inn dóm. Annað þeirra fór í fangelsi en hitt kaus að afplána dóminn á einu af meðferðarheimilum Bama- vemdarstofu. Frá árinu 1995 hafa samtals 22 ungmenni verið dæmd til óskilorðs- bundinnar fangelsisrefsingar sam- kvæmt 29 dómum. Ails 20 ungmenni hafa afþlánað eða hafið afplánun of- angreindra refsinga. Af þeim hafa þrjú ungmenni afplánað á meðferð- arheimilum Bamavemdarstofu, en hin sautján hafa setið í fangelsum eins og að framan greinir. Tveimur til viðbótar hefur verið veitt samfé- lagsþjónusta samkvæmt tveimur dómum. Vatnaskil urðu í afplánunarmál- um ungmenna árið 1998 þegar Fang- elsismálastofnun ríkisins og Bama- vemdarstofa gerðu með sér sam- komulag. Samkvæmt því er stefnt að því að fangar yngri en 18 ára Óskllorðsbundin fangelsisrefsing Ár Fjöldi Fjöldi dóma ungmenna 1995 7 4 1996 4 4 1997 4 4 1998 j ■ 8 7 1999 1 ' 1 2000 2 1 2001 0 0 2002 3 2 verði að jafnaði vistaðir á meðferð- arheimilum. Ferlinu er þannig hátt- að að þegar stofnuninni berst dóm ur til fúUnustu er Bamavemdar stofu tilkynnt um það. Bamavemd- arstofa kannar þá hvort hún telji mögulegt að viðkomandi ungmenni afpláni refsingu sina á meðferðar- heimili á hennar vegum., Viiji ung- mennisins sjálfs ræður mestu um hvort það fer í fangelsi eða á með- ferðarheimili. Þá er afstaða viðkom- andi bamavemdamefndar könnuð. Sama málsmeðferð er viðhöfð þegar um er að ræða ungmenni sem úrskurðað hefur verið í gæsluvarð- hald. -JSS Samkomulagið við íraka kynnt í Öryggisráðinu Hans Blix, yfmnaður vopna- eftirlitssnefndar SÞ, mun í dag kynna fuiltrúum Öryggisráðs- ins samkomulag það sem náðist við íraka um framhald vopna- eftirlits í landinu. Bandaríkjamenn hafa þegar lýst andstöðu sinni við sam- komulagið og er búist við að þeir muni á fundinum nota tækifærið til þess að kynna drög sín að nýrri og harðari ályktun, sem einnig gerir ráð fyrir afvopnun. Samkomulag um drögin náð- ist í fulltrúadeild bandaríska þingsins í gær og þykir það mikiil sigur fyrir Bush og styrk- ir um leið ráðagerðir hans um einhliða hemaðaraðgerðir gegn írökum. ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 11 í DAG MAGASIN I 80.000 EINTÖKUM: Heima hjá Jóni Ársæli á Stöð 2 FRAMHERJAVANDAMAL HJÁ LANDSLIÐINU: Erfitt val hjá Atla EINFALT MYNDBANDSTÆKI ■ — O O ST22B 14.990 Verð áðurkr. 17.990 DAEWOO Einfallt og gott 2 hausa myndbandstæki. Fæst svart eða grátt Sjúnvamsmiostöoin RAFTÆKJAUERSLUN • SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.