Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002
Fréttir DV
Harkaleg forræðisdeila á milli íslands og Texas:
Eg hef ekki séð
syni mína í eitt ár
- segir móðirin. Dómstóll í Texas hundsaði íslenska dómsátt
„Ég hef ekki séð syni mína síðan í
september í fyrra. Vonin um að fá þá
aftur dvínar stöðugt," segir Ágústa Dúa
Jónsdóttir hjúkrunarforstjóri sem á í
harðvítugri forræðisdeilu við fyrrver-
andi eiginmann sinn sem býr í Dallas í
Texas ásamt tveimur sonum þeirra, 14
ára og 12 ára. Yngsti sonurinn, 10 ára, er
á íslandi hjá móður sinni.
Ágústa Dúa er með undirritað sam-
komulag við fyrrverandi mann sinn,
Sigurð Samúel Sigurðsson, um að hún
hafi forræði yflr sonunum þremur.
Samkomulagið var lagt fram i Héraðs-
dómi Reykjavíkur 18. maí 2000 og undir-
ritað af Gesti Jónssyni, lögmanni fyrr-
verandi eiginmanns Ágústu, og henni.
Á fylgiskjali er umboð til lögmannsins
undirritað af Sigurði. 1 sáttargjörðinni
er nákvæmlega útlistað hvemig um-
gengnisrétti skyldi háttað og að
drengimir ættu að vera hjá foður sínum
í Dallas 9 vikur eftir að skóla lýkur og
að auki um önnur hver jól og á íslandi
mátti faðirinn heimsækja drengina að
vild. Ágústa segir að samkomulagið hafi
haldið árið 2000 og drengimir hafl kom-
ið aftur til íslands eftir að hafa dvalið í
sjö vikur úm sumarið hjá fóður sínum.
En árið 2001 hafl allt bmgðist og faðir-
inn hafi neitað að skila drengjunum eft-
ir sumarfríið. Siðan hafi allt staðið fast.
Ágústa Dúa og Sigurður gengu í
hjónaband árið 1986 og settust að í Iowa.
Hún var með bandarískan ríkisborgara-
rétt og maður hennar fékk græna kortið
við giftinguna. Ágústa hafði starfað sem
hjúkrunarfræðingur í New York en Sig-
urður var læknir og þurfti ekki að inna
af hendi tveggja ára vinnuskyldu á ís-
landi eftir að hafa fengið græna kortið.
Forsagan
Hún segir að hjónabandið hafi gengið
þokkalega framan af og drengimir
fæddust einn af öðrum. í janúar árið
1997 hafl hjónabandið hins vegar verið
brostið. í mars 1998 gekk lögskilnaður í
gildi og þar var kveðið á um að Ágústu
bæri að halda drengjunum innan lög-
sagnarumdæmis Dallassýslu. Ágústa
Dúa greip til þess ráðs að fara með
drengina heim til íslands gegn vilja Sig-
urðar Samúels. Faöirinn ákvað þá að
höfða forsjármál til að fá drengina til
Texas þar sem hann býr enn.
DV-MYND ÞÖK
Örvilnuð móðir
Ágústa Dúa Jónsdóttir stendur í harö-
vítugri forræöisdeilu vegna tveggja
sona sinna sem hún hefur ekki séö í
rúmt ár. Samkomulag sem gert var
fyrir íslenskum dómstóli hefur ekki
reynst pappírsins viröi.
„Hann réð sér lögmann á íslandi en
tapaði forsjármálinu fyrir Hæstarétti.
Niðurstaðan varð sú að gert var sam-
komulag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
árið 2000 þar sem Sigurður féll frá for-
sjármálinu. Ég var hálfsmeyk við að
undirrita þetta samkomulag en lögmað-
ur hans fullvissaði mig um að Sigurður
myndi standa við samkomulagið. Bæði
minn lögmaður og Sigurðar lögðu hart
að mér að skrifa undir sáttina. Ég gerði
það fyrst og fremst til að drengimir
hefðu þann rétt skýlausan að umgang-
ast fóður sinn,“ segir Ágústa.
Samkomulagið brást
En ótti hennar reyndist á rökum
reistur. Samkomulagið hélt í eitt ár en
síðan neitaði eiginmaðurinn fyrrver-
andi að skila drengjunum heim til ís-
lands eftir að þeir höfðu dvalið hjá hon-
um i umsamdan tíma sumarið 2001.
„Þremur dögum áður en hann átti að
skila drengjunum, í fyrrasumar, hafði
hann samband og sagði að þeir færu
ekki til Islands. Ég fór til Bandaríkjanna
til að sækja þá og fór með málið fyrir
dómstól í Dallas. Þar lagði ég til grund-
vallar samkomulagið sem gert var
heima á íslandi. Faðir drengjanna gerði
þar kröfu til þess að halda þeim. Til
grundvailar þeirri kröfu sinni hélt hann
því fram að á íslandi fengju drengimir
ekki menntun við hæfi og þess vegna
væri það þeim fyrir bestu að vera í
Texas. Dómarinn gekk þvert á sam-
komulagið sem gert var á íslandi og úr-
skurðaði að tveir eldri drengimir
skyldu vera hjá fóðumum en ég fengi
þann yngsta. Það stakk mig að í úr-
skurðinum segir dómarinn að það sé
drengjunum hættulegt að snúa til ís-
lands með mér. Þetta er órökstutt og
afar einkennilegt," segir Ágústa sem
hélt heim til íslands með yngsta dreng-
ixm i september í fyrra.
Aðskilnaður
Hún segir að það hafi verið sársauka-
fullt að aðskilja drengina sem höfðu
alist upp saman.
„Öllum þremur drengjunum líður illa
vegna aðskilnaðarins. Þetta er það
versta vegna málsins og ég vil engum
bömum svo illt að þau þurfi að upplifa
slík örlög,“ segir Ágústa.
Hún segist hafa ráðið lögfræðing í
Texas til að gæta hagsmuna sinna og
knýja það fram að samkomulaginu frá
því í maí 2000 yrði fylgt. En málinu hafi
ekki verið áfrýjað.
„Lögfræðingurinn vildi fá fyrirfram
15.000 dollara að lágmarki eða sem nem-
ur á aðra milljón íslenskra króna til að
halda áfram með málið. Fiárhagur minn
leyflr ekki slík útgjöld og því er allt fast
og vonin dvínar stöðugt," segir Ágústa
Dúa.
Hún má hitta drengina ytra gegn því
að afhenda fyrrum eiginmanni sínum
vegabréf sitt og í annan stað að fara
ekki með böm sín lengra en nemur
ákveðnum radíus frá heimilinu. Hún
segist hafa rætt mál sitt við dómsmála-
ráðherra sem hafi sýnt skilning og sam-
úð.
„En úrræðaleysið er algjört og svo
virðist sem undirréttur í Texas geti
hundsað íslenska dómstóla. Ég er ráða-
laus,“ segir hún.
Gestur Jónsson lögmaður vildi ekki
tjá sig um málið þegar DV bar það und-
ir hann. -rt
Móðir og synlr
Ágústa Dúa ásamt sonum sínum þremur. Hún hefur þann yngsta hjá sér en
hina hefur hún ekki séð í ár. Myndin var tekin fyrir nokkrum árum,
Fjórfalt færri suður?
Gert er ráð fyrir minnsta flutningi
íbúa af landsbyggðinni til höfúðborgar-
svæðisins í áratug í skýrslu fjármála-
ráðuneytisins sem fjallar um horfur í
þjóðarbúskapnum. Þar er reiknað með
að um 500 manns flytji suður. Gangi
þessi þróun eftir verður um nærri fjór-
falda fækkun að ræða miðað við árin
1994 til 1998 en þá fluttu 1.800 manns að
meðaltali frá landsbyggðinni.
Ráðherra staðfestir Þorfínn
Menntamálaráð-
herra, Tómas Ingi 01-
rich, hefur formlega
gengið frá því að Þor-
finnur Ómarsson taki
á ný við stjóm Kvik-
myndasjóðs íslands.
Ráðherrann er engu
að síður ósammála
þeirri niðurstöðu nefiidar um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins að
honum hefði ekki borið að víkja Þorf-
inni tímabundið frá - telur óvissu
skapast hjá stjómvöldum þegar grunur
vakni um að lög og reglur um bókhald
séu ekki virtar. Mbl. greindi frá.
Perlan bleik
Perlan verður ein af fjölda mann-
virkja í heiminum sem verður lýstur
upp í bleikum lit í tilefni átaks um
brjóstakrabbamein. Vigdís Finnboga-
dóttir, vemdari Krabbameinsfélags ís-
lands, kveikir á lýsingunni í Perlunni í
kvöld.
Starfsmaður með berkla
Starfsmaður í heilbrigðiskerfmu,
smitaður af berklum, hefur verið settur
í einangrun sem standa mun í nokkra
daga. Haraldur Briem sóttvamalæknir
segir slík tiIfeOi ná rúmlega einum tug
hér á landi á ári - smittilfeUin séu að
líkindum vegna þess að fólk beri það
frá útlöndum eða „gamalt" taki sig upp
hjá eldri íslendingum.
Halldór fari fram í Reykjavík
Formenn sam-
banda framsóknar-
manna í Reykjavík
héldu í gær fund að
fmmkvæði Ólafs
Amar Haraldssonar
þingmanns þar sem
samþykkt var að
skora á HaUdór Ás-
grimsson að bjóða sig ffarn í efsta sæti
lisa framsóknarmanna í norðurkjör-
dæmi Reykjavíkur.
Fatlaðir sitja ekki við sama borð og aðrir í bíómálum á Akureyri:
Krefst úrbóta eða lokunar Nýja bíós
- verið að vinna í málum um betra aðgengi, segir framkvæmdastjóri bíósins
Bergur Þorri Benjamínsson, sem
bundinn er við hjólastól, hefur sent
samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra og
Sambióunum harðort bréf þar sem
hann gagnrýnir bágt aðgengi hreyfi-
hamlaðra að sölum Nýja bíós á Akur-
eyri. Nýja bíó er eitt Sambíóanna og
krefst maðurinn úrbóta. Hann vUI aö
annaðhvort verði lyfta sett upp við
fyrsta tækifæri í húsnæði Nýja bíós eða
bíóinu verði lokað að öðrum kosti.
Hann segir að Nýja bíó á Akureyri skeri
sig algjörlega úr frá öðrum kvikmynda-
húsum landsins hvað þetta varði.
Bergur Þorri segir að aUt fiá því að
Nýja bíó hafi verið opnað á ný eftir elds-
voða í skemmtistaðnum 1929 hafi að-
gengismálin verið tU „háborinnar
skammar". Brattur stigi liggi að aðalsal
og sé fótluðum gert að koma inn um út-
göngudyr þar sem þeir neyðist tU að
sitja fremst. „Það eitt að fatlaðir geti
einungis nýtt sér lökustu sæti salarins
segir meira en mörg orð um afstöðu
bíósins tU fatlaðra," segir Bergur Þorri.
Þá er salur B í Nýja bíói algjörlega óað-
gengUegur fyrir fatlaða að sögn hans og
telur Bergur Þorri að eigendum sé ekki
stætt á að skýla sér á bak við að húsið
MYND -BÞ
í verstu sætunum
Bergur Þorri Benjamínsson segir óþolandi aö hann þurfi ab fara inn bakdyra-
megin í Nýja bíó og veröi aö sitja í verstu sætum hússins.
sé gamalt. Það hafi verið endurbyggt
nánast frá grunni fyrir aðeins örfáum
árum.
Hann hefur átt samtöl við starfsmenn
Akureyrarbæjar vegna málsins og hafa
þeir staðfest að lyfta hefði verið inni á
teUmingum þegar bíóið var endurbyggt.
Svo virðist sem Nýja bíó hafi ekki feng-
ið lokaúttekt vegna málsins og í raun
teljist húsið enn í byggingu.
„Er hægt á okkar tímum að koma á
fót bíói sem uppfyUir ekki öU skUyrði
fyrir fatlaða? Það eiga aUir að vera jafn-
ir. Ég tel þetta vera brot á grundvaUar-
mannréttindum," sagði Bergur Þorri í
samtali við DV í gær.
Davíð Rúnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Nýja bíós á Akureyri, seg-
ir að málið sé tU skoðunar en kostnaður
sé mikiU og nefnir hann að lyfta gæti
kostað um fjórar mUljónir króna. Hann
segir vafa leika á hvort húsinu sé skylt
að láta gera breytingar sem bæta að-
stöðu hreyfihamlaðra en fuUur viiji sé
að aðhafast í málinu. Davíð Rúnar segir
að aðeins hafi borist kvörtum frá einum
hreyfihömluðum, þ.e.a.s. frá Bergi
Þorra. -BÞ
Ráðuneyti styridr Hrafn
Umhverfisráðuneytið styrkir
fræðslukvikmynd Hrafns Gunnlaugs-
sonar sem nefnist Island í öðru ljósi.
Ástæðan er sú að efiii hennar fjaUar
um skipulagsmál, að áliti Sivjar Frið-
leifsdóttur.
____________________-ótt
f ókus
Á MORGUN
Bílar unga fólksins
í Fókus á morgun
er umfjöllun um
draumabUa unga
fólksins. Við skoðum
hvað þú þarft að
gera tU að eignast
þinn uppáhaldsbU og
hvaða bílar eru heit-
astir í dag. Þá ræð-
um við við nokkur ungmenni sem lagt
hafa metnað sinn í að skreyta bUana
sína tU að gera þá athyglisverðari.
Heitasti myndbandaleikstjóri lands-
ins, Samúel Bjarki Pétursson, segir
frá erfiðum en skemmtUegum bransa
og við skoðum hvaða frægir Islending-
ar eiga von á bömum á næstunni. Þá
hitum við upp fyrir Airwaves-tónlist-
arhátíðina sem nálgast eins og óð
fluga og kUcjum á hvað er komið í stað
allra strippbúUanna í borginni.