Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Page 11
11 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 Útlönd Hans Blix kynnir samninginn við íraka í Öryggisráði SÞ í dag: Litlar líkur á að samkomu- lag náist um nýja ályktun Hans Blix, yflrmaður vopnaeftir- litsnefndar Sameinuðu þjóðanna, mun í dag kynna meðlimum Öryggis- ráðs SÞ samkomulagið sem náðist við fulltrúa íraksstjórnar á fundum í Vín- arborg fyrr í vikunni um endurupp- töku vopnaeftirlits í landinu að kröfu SÞ. Búist er við miklum átakafundi þar sem bandarísk stjómvöld með stuðn- ingi Breta hafa hótað andstöðu við samkomulagið og boðað að þeir muni leggja fram drög að nýrri og harðari ályktrm í ráðinu áður en vopnaeftirlit geti hafist en þar verði hemaðarað- gerðum hótað verði Saddam ekki við öllum kröfum um eftirlit og afvopnun auk þess sem hann leggi fram lista yf- ir allar vopnabirgðir íraka. Um þá tillögu er heldur ekki sam- staða og hafa fulltrúar þriggja ríkja, Rússa, Kínverja og Frakka, sem hafa neitunarvald í ráðinu, þegar lýst and- stöðu sinni við fram komin drög Bandarikjamanna. Bush ásamt leiötogum í fulltrúadeildinni Bush Bandaríkjaforseti kynnir hér samkomulagiö sem náöist um íraksmátiö í fulltrúadeild bandaríska þingsins í gær, sem styður áætlanir hans um ein- hliða hernaöaraögeröir gegn írökum. Rússar og Kínverjar hafa fagnað samkomulagi vopnaeftirlitsnefndar- innar en Bandaríkjamenn segja það aðeins gamla tuggu sem geri Saddam kleift að halda undanbrögðunum áfram. Blix gæti hugsanlega ákveðið að hunsa vilja Bandaríkjamanna og hefja vopnaeftirlit strax i næstu viku, en flestir telja ólíklegt að hann muni gera það gegn svo valdamiklu afli sem Bandaríkin eru. Þar með gæti verið komin upp pattstaða og þó harkaleg drög Bandarikjamanna yrðu sam- þykkt í Öryggisráðinu, sem telja verð- ur ólíklegt, eru engar líkur á að írak- ar myndu ganga að þeim kröfum sem þar eru gerðar. Með málið í þessum hnút innan SÞ styrktist staða bandarískra stjóm- valda til muna heima fyrir í gær, þeg- ar samkomulag náðist um drögin milli meiri- og minnihluta í fulltrúa- deild þingsins sem styður ráðagerðir Bush Bandaríkjaforseta um einhliða hemaðaraðgerðir gegn írökum. Yasser Arafat Forseti Palestínumanna fordæmdi í gær lagasetningu í Bandaríkjunum þar sem Jerúsalem er viöurkennd sem höfuöborg ísraeis. Útgöngubann truflar skóla- göngu barnanna Bamahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) sagði í gær að útgöngu- bannið sem ísraelski herinn hefði innleitt í borgum óg bæjum Palest- ínumanna á Vesturbakkanum trufl- aði mjög skólagöngu hundraða þús- unda palestínskra bama. ísraelsher hefur lagt undir sig fjölda bæja síðan í júní, í kjölfar tíðra sjálfsmorðsárása Palestínu- maima. Með útgöngubanninu segj- ast ísraelar vera að reyna að koma í veg fyrir frekari árásir af því tagi. „Heilli kynslóð palestínskra bama er meinað um þann rétt sinn að mennta sig,“ sagði Pierre Poupard, fulltrúi UNICEF á Vestur- bakkanum og Gaza, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér. Leiðtogar hvetja til meiri hjálpar Leiðtogar ríkja í sunnanverðri Afríku hvöttu í gær erlend ríki til að hraða matvælaaðstoð sinni og skuldaeftirgjöf við þjóðir í þessum hluta álfunnar þar sem milljónir manna glima við hungur og alnæm- isfaraldur. „Við getum ekki gert allt sjálf og við hvetjum alla félaga okkar til að koma okkur til aöstoðar í barátt- unni við þennan vanda,“ sagði José Eduardo dos Santos, forseti Angóla, í setningarræðu sinni á tveggja daga leiðtogafundinum í angólsku höfuðborginni Luanda. Matarskorturinn sem blasir nú við íbúum sunnanverðrar Afriku er hinn versti í áratug. Talið er að 14,4 milljónir manna í sex löndum hafi ekki til hnífs og skeiðar. REUTER&MYND Dustaö af höfuökúpunni Sjálfboðaliöinn Míkhaíl Púsjninskij burstar varlega jaröveg frá höfuökúpu sem fannst í fjöldagröf í skóglengi á skotæf- ingasvæði rússneska hersins um þrjátíu kílómetra frá Pétursborg. Rússnesk mannréttindasamtök telja aö í gröfmni kunni aö vera lík allt aö þrjátíu þúsund fórnarlamba ógnarstjórnar Jósefs Stalíns. Major guggnaði á að ræða ástarsambandið við Currie John Major, fyrrum forsætisráð- herra Bretlands, ákvað í gær að segja ekki orð við blaðamenn um ástarsamband sitt við samflokks- konuna Edwinu Currie um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Til stóð að Major hitti fréttamenn í Dailas í Texas þar sem hann flutti ræðu á góðgerðarsamkomu í gær. Skipuleggjendur samkomunnar af- lýstu hins vegar fundinum og sögðu að Major hefði ekki áhuga á að tjá sig um málið. Þá var öllum frétta- mönnum meinaður aðgangur að samkomunni. „Þar sem við höfum engan áhuga á að þetta verði að fjölmiðlasirkus höfum við afturkallað öll leyfi til blaðamanna," sagði Don Stephens, stofnandi og stjórnandi góðgerðar- stofnunarinnar Mercy Ships. Ian McColl lávarður, fyrrum að- REUTERSMYND Lesið úr umdeildri bók Edwina Currie les úr umdeildri bók þar sem hún greinir frá ástarsam- bandi sínu og Johns Majors, sem síöar varö forsætisráöherra. stoðarmaður Majors, var með hon- um í Dallas í gær. Hann sagði frétta- mönnum að allir nánustu sam- verkamenn Majors væru sem þrumu lostnir yfir tíðindinum. Major var ötull baráttumaður fyr- ir hefðbundnum fjölskyldugildum í forsætisráðherratíð sinni. Edwina Currie, sem greinir frá ástarsambandinu í dagbókum sin- um sem dagblaðið Times birtir, veittist að Major í gær og sagði að í ljósi ástarævintýris þeirra væri sið- ferðiskrossferð hans á meðan hann var í embætti af hinu illa. Ástaræv- intýrið stóð i fjögur ár. Currie, sem um tima var heil- brigðisráðherra Bretlands, sagði í gær að hún hefði ákveðið að birta dagbækumar til að hið sanna kæmi í ljós en ekki vegna peninganna eða athyglinnar sem þær vektu. Slobodan Milosevic Fyrrum Júgóslavíuforseti var haröur í horn aö taka í stríösglæparéttar- höldunum í Haag í gær. Milosevic ræðst á Króatíuforseta Slobodan Milosevic, fyrrum Júgóslavíuforseta, beindi spjótum sínum að Stjepan Mesic Króatíufor- seta í gær og sakaði hann um að hafa fyrirskipað að leggja eld að heilu þorpunum og reka Serba burt frá heimilum sínum í átökunum á Balkanskaga á síðasta áratug. Mesic kom sem vitni fyrir stríðs- glæpadómstólinn í Haag í gær þar sem verið er að rétta yfir Milosevic fyrir glæpi í Króatíu og Bosniu, þar á meðal þjóðarmorð. Mennimir horfðust sjaldan í augu þegar Milosevic spurði Mesic spjörunum úr og sakaði hann meðal annars um að hafa svikið gömlu Júgóslavíu. Mnspjöld ...íeiiium grænum! k' LETURPRENT Síðumúla 22 - Sími: 533 3600 Netfang: stafprent@stafprent.is - Veffang: www.stafprent.is STAFRÆNA PRENTSTOFAN Sobo/ fyrir blöðruhólskirtilinr náttúrulega Gilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.