Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Qupperneq 14
14
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002
Skoðun DV
Spurning dagsins
Ferðu í strætó í vinnu eða
skóla?
Ólafur Oddsson:
Nei, ég hef ekki gert það.
Hildur FJóla Bridde:
Nei, þaö geri ég ekki.
Valdimar Kristlnn Jónsson:
Nei, aldrei.
Jakob Gísli Þórhallsson:
Nei, ég labba í skóiann.
Nei, ég geng.
Sverrir Garöarsson:
Því miöur. Já.
Skrímslið verður að
stöðva
Yfirráð yfir olíubirgöunum - yfirráð yfir helmsmálum?
Spytjiö hvaöa hagfræöing sem er.
Ástþór Magnússon,
stofnandi Friöar 2000, skrifar:
Óhugnanlegt skrímsli er í fæð-
ingu er reynir að draga heims-
byggðina til styrjaldar sem ógnar
allri framtíð mannkyns, stríðs-
skrímslið. - í sjö ár hef ég skorað á
íslensku þjóðina að takast á við það
hlutverk að leiða heiminn til friðar.
Á þeim sjö árum sem ég hef gengið
niður skósólana til forseta, ráð-
herra, þingmanna og biskups hefur
skrímslið fengið að þróast og dafna
og náð að læsa klónum með enn
sterkari tökum á samfélagi þjóð-
anna.Ý
Menn hafa ekki viljað horfa á
samlikingamar með því sem gerðist
í Evrópu á síðustu öld.ÝÞað sem nú
gerist í Bandaríkjunum svipar um
margt til Þýskalands fyrir seirnii
heimsstyrjöld. Þingið knúiö til að
færa forsetanum aukin völd, enda
hemaðarbrölt Bush Bandarikjafor-
seta nánast sama brjálæðiö um
heimsyfírráð.
Nú þegar er búið að senda fjölda
bandarískra hermanna til Afganist-
an og fleiri ríkja til að tryggja yflr-
ráð yfir olíu- og gasauðlindum í
Kaspíahafi. Hvers vegna? - Spyrjið
hvaða hagfræðing sem er hvort ekki
sé staðreynd að þeir sem ráða yfir
olíubirgðum jarðar ráði heims-
byggðinni.
Bandarikin styðja Israel í nær
hverju sem er. Ósýnilega höndin
teygir sig heimsálfanna á milli, frá
Bandaríkjunum til ísraels. Aukaat-
riði er hvort þúsundir, milljónir,
eða jafnvel tugir milljóna einstak-
linga láta lífið meðan þessar þjóðir
móta heimsbyggðina eins og leir
með draumsýn um heimsyfirráð.
Framtíð okkar og sjálfstæði verð-
„ Við gœtum haft veruleg
áhrif á ad þjóðir heims
átti sig á því hvað er að
gerast og stöðvi skrímslið
í fæðingu á pólitískum
vettvangi. “
ur ekki varið með hervaldi, þótt all-
ir íslendingar gengju í dátasveit
Bjöms Bjamasonar, eða þótt leyni-
þjónusta undir forystu Halldórs Ás-
grimssonar dansi með NATO-þjóð-
unum.ÝFjármagn eigum við heldur
ekki til að takast á við skrímslið í
spilavítum kauphallanna.Ý
Ég minni hins vegar á kjörorð
stofnfundar Friðar 2000 árið 1995:
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi“.
Máttur okkar gæti verið mikill á
vettvangi umræðunnar. Við gætum
haft veruleg áhrif á að þjóðir heims
átti sig á því hvað er að gerast og
stöðvi skrímslið í fæðingu á póli-
tískum vettvangi.ÝTillaga að einum
homstein í slíkt friðarstarf íslend-
inga er að finna á vef okkar;
www.althing.org, en því miður hef-
ur utanríkisráðherra neitað að
hlusta á tillögumar.ÝMeira að segja
forsetinn, sem fékk fólk til að tár-
fella yfir friðarhugsjónum sínum í
forsetakosningunum 1996, gekk ný-
lega Keflavíkurgönguna öfugt sem
gengilbeina skrimlisins - til Rúss-
lands.
Ekkert svar frá Svari
Helgi Haraldsson skrifar:
Merkilegt hvemig nöfri fyrirtækja
geta snúist upp í andhverfu sína. Ég
keypti fyrir rúmu ári á einu bretti þijá
Nokia GSM-síma hjá þeim á Svari, og
fékk ágæta þjónustu hjá tunguliprum
aðilum Sama var uppi á boröinu þegar
einn síminn dó drottni sínum rétt ríf-
lega ársgamall, þ.e.tungulipur þjónusta
og því lofað að leysa málið og bæta okk-
ur skaðann með einhverju móti. Við-
komandi starfsmaður hjá Svari, maður
að nafni Haukur, bað um að fá að
skoða málið og ætlaði síðan að hafa
samband aftur.
Þegar það dróst að Haukur þessi
hefði samband til aö standa við stóm
orðin var ítrekað reynt að ná í viðkom-
andi, en hann alltaf upptekinn og svar-
„Nú er ég þeirrar skoðunar
að orð skuli standa. Spum-
ingin er því hvort þeir
Svar-menn œttu ekki að
breyta nafninu á fyrirtœki
sínu þannig að það sé
meira í takt við raunveru-
leikann. “
aði hvorki skilaboðum né heldur ítrek-
uðum tölvupóstsendingum, sem verður
að teljast merkilegt i ljósi þess að hann
er starfsmaður fýrirtækis sem kennir
sig við sögnina að svara.
Nú er málið þannig vaxið að þegar
kaupin vom gerð var ekki búið að taka
í gildi ný lög sem segja að tveggja ára
ábyrgð sé á seldum hlutum, lögin tóku
gildi skömmu síðar. En í ljósi þess að
keyptir vom í einu 3 símar af viður-
kenndri gerð fannst mér eðlilegt að svo
léleg ending sé bætt, og var áðumefnd-
ur Haukur fyllilega sammála því. Efhd-
imar eru hins vegar engar.
Nú er ég þeirrar skoðunar að orð
skuli standa. Spumingin er því hvort
þeir Svar-menn ættu ekki að breyta
nafninu á fyrirtæki sínu þannig að það
sé meira í takt við raunveruleikann.
Innantóm loforð - léleg þjónusta væri
kannski nær lagi en óneitanlega er það
lengra og óþjálla en Svar. Mín reynsla
sýnir hins vegar að lengra nafnið væri
nær raunveruleikanum.
Loks í öruggu skjóli
Garra er létt. Hann lifir alltaf í óvissu yfir
sumartímann, óttast stjómleysi og jafnveí upp-
lausn. Þessi nagandi kvíði stafar af því einu að
þá starfar Alþingi ekki og það sem verra er,
sumarið er langt hjá löggjafanum. Þingmenn
fara í frí þegar vorar, væntanlega svo bændur í
hópnum komist í sauðburð, og hittast ekki á ný
fyrr en í október, að afloknum göngum og rétt-
um.
Enga skrúögöngu veit Garri fegurri en þá sem
gengur úr Dómkirkjunni yfir til Alþingis. Það
kvöld sofhar hann betur en undangengna mán-
uði, öruggur og sæll. Hann veit að allt er komið
í fastar skorður. Fremstur í skrúðgöngunni fer
forsetinn, þá biskupinn blessaður og síðan ráð-
herramir. Davíð fer þar fyrir og hinir í halarófu
á eftir. Loks trítla óbreyttir þingmenn fram hjá
áhorfendum og lögreglumönnum sem gera
honnör. Þetta er dásamleg stund.
Mjög óbreyttur
Garri er mjög óbreyttur borgari, á maka og
böm í fjögurra herbergja íbúð og borðar fisk
hvunndags og læri um helgar. Honum finnst
fiskurinn að vísu orðinn dýr en borðar hann
samt, vitandi það að hann er hollur auk þess
sem það er þjóðlegt að borða ýsu. Við lifum jú á
sjávarútvegi. Garri og makinn vinna hins vegar
allt árið utan hvað þau skreppa með krakkana
hringinn I sumarfríinu, undir lok júlí. Vegna
þess hve þau hjónin eru óbreytt fmnst þeim
þetta líf eðlilegt. Þau vita það að þau þurfa að
vinna fyrir sér til þess að geta borgað af íbúð-
inni og fiskinn ofan í krakkana, að viðbættu
helgarlærinu. Eitthvaö verða menn jú að láta eft-
ir sér og það er gott með grænum baunum, brún-
uðum kartöflum, rauðkáli og rabarbarasultu.
Velferð fjöldans
Þeim hjónum þykir því skrýtið, kannski vegna
þess hve þau em óbreytt, að þingmenn þurfi
ekki líka að vinna allt árið. Garri unir þessu
varla vegna öryggisleysisins sem þvi fylgir.
Hvemig er hægt að hafa heila þjóð stjómlausa
nánast hálft árið? Því leggur hann til að þessu
verði breytt. Varla er hann eini mörlandinn sem
á erfitt með svefn í nóttleysunni vegna þessa. Af
hyggjuviti sínu þykist hann vita að þetta langa
frí sé tímaskekkja, arfur liöinnar tíðar. Það hef-
ur bara enginn tekið á sig rögg og breytt þessu
til batnaðar.
Því kallar Garri þann til aðstoðar sem öllu
ræður. Davíð, breyttu þessu. Veittu þegnum þín-
um öryggi og vellíðan og láttu þingmennina
sinna því sem þeir vom kosnir til, að sjá um
okkur. Gefðu þeim frí í júlí, eins og öðmm, en
láttu þar við sitja.
Sauðburður og réttir geta varla vegið þyngra
en velferö heillar þjóðar.
CsH&ri
Hvað dvelur hval-
veiðar?
Ragnar skrifar:
Furðulegt að
stjómvöld skuli
ekki leyfa hvalveið-
ar, þar sem talið er
fullvíst að þær
skaði ekki á
nokkum hátt við-
skiptatengsl okkar
erlendis. Engin at-
hugasemd hefur
verið gerð við veið-
ar Norðmanna, ekki
Hvalveiðiskipin
tilbúin
Ósýnilegir
„draugar"
f veginum.
einu sinni Bandaríkjamenn. Hér liggja
hvalveiðiskipin í höfninni tilbúin til
veiða nánast hvenær sem er. Eigandi
hefúr greitt tilskilin gjöld til Reykjavík-
urhaíhar. Biðlund hans er með eindæm-
um. Þar sem nauðsyn ber til að grisja
hvalastofninn með vísindalegum hætti,
rétt eins og aðra dýrastofha, þá er ekk-
ert í veginum nema ef vera kynni
hræðsla við „drauga" án þess þó að geta
bent á þá, eins og Kristján Loftsson hjá
Hval hf. hefur bent á.
Samræmd
„Kastljós“
Eyþór hringdi:_______________
Margir em orðnir undrandi á því hve
málefiiafátækt virðist hrjá stærstu sjón-
varpstöðvamar, Sjónvarp og Stöð 2, þeg-
ar kemur að hinum daglegu fréttaskýr-
ingaþáttum þeirra, annars yegar Kast-
ljósi Sjónvarps og þættinum ísland í dag
á Stöð 2. Undanfarið er eins og þessar
stöðvar hafi samræmt þessa þætti sína,
þannig að sama efrii er til umfjöllunar,
og meira að segja sömu menn til viðtals
á báðum stöðvum. Auðvitað veit maður
að reynt er aö taka fyrir efni sem er efst
á baugi, en fyrr má nú rota... Þar sem
Stöð 2 er á undan með sinn þátt þá er
það beinlínis skylda Sjónvarpsins að
skipta út viðmælanda eða viðmælendum,
að minnsta kosti ef efnið er það sama og
hjá Stöð 2. Þetta er a.m.k. mitt álit
Hvar fæst
Aznavour?
Jón Helgason skrifar.
í DV þann 11. sept
ember sl. skrifaði
einhver um þá
söngvarana Stefán
Hiimarsson og hinn Charies Aznavour
franska Charles frábær túlkandi
Aznavour og likti _ en hvar næst í
þeim saman. Ég er hann?
ekki frá því að hann —
hafi nokkuð til síns máls. Ég á mikið af
lögum með Stefáni og tel hann einn okk-
ar bestu söngvara dægurtónlistar í dag.
En Aznavour hef ég aðeins heyrt í sjón-
varpi og finnst hann frábær túlkandi á
lög. En hvar getur maður fundið diska
eða kassettur með Aznavour? Ef ein-
hver þekkir málið ætti hann að láta í
sér heyra í þessum dálkum.
Reynslulausn -
engin lausn
Kristinn SigurBsson skrifan
Margir spyrja sem svo: Hver eigin-
lega veitir morðingjum reynslulausn? -
Nýlega gerðist það að ofbeldissinnaður
sakamaður ætlaði að myrða mann hér i
borginni en sem betur fer var mannin-
um bjargað og ofbeldismaðurinn var
tekinn fastur. Kom þá í ljós að hann var
á margnefndri reynslulausn - hafði
áður framið tvö morð og stutt í það
þriðja! Ég held að ég og allir aðrir eigi
rétt á því að vita hveijir veiti slíka
„reynslulausn". Hróp ýmissa aðila um
að biluðum ofbeldismönnum, oft glæpa-
mönnum, sé ekki sinnt, er ofinælt og oft-
ar hreinasta bull. Um 90% af öllum fóng-
um eru „bilaðir" á einn eða annan hátt
og Litla-Hraun er sá staður þar sem þeir
eiga að vera.
DV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Skaftahlíö 24,105 ReyHiavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.