Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Page 29
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 29 Sigurður frá í 4 vikur Handknatt- leiksmaðurinn Sigurður Bjama- son, sem leikur með þýska liðinu Wetzlar, þarf að gangast undir uppskurð eftir að hann meiddist iila á handlegg í leik Wetzlar og Minden á fostu- daginn í síðustu viku. Gömul meiðsli í hægri hendi tóku sig upp og verður Sigurður frá æfmgum og keppni í að minnsta kosti fjórar vikur sem er mikið áfall fyr- ir Wetzlar. -ósk Að þessu sögðu sést að það bíður Atla Eðvalc ærið verkefni að púsla saman liði fyrir leikina mikil vægu gegn Skotum og Litháum. Geri Atli þessa breytingu þá stendur hann frammi fyrir öðru vandamáli. Hver á að leysa Rúnar af á miðjunni. Hann getur sett tvo vamarsinnaða leikmenn, Brynjar Gunnarsson, ívar Ingimarsson eða Ólaf Stígsson, á miðj- una eða flutt Arnar Þór Viðarsson úr vinstri bakverðinum inn á miðjuna. Það er sú staða sem Arnar Þór spilar hjá Lokeren en þá myndi Atli fá annan höfuðverk við að reyna að fylla skarð Arnars Þórs í bakvarðarstöðunni. Þar koma tveir menn til greina, Indriði Sigurðsson og Hjálmar Jóns- son, en hvorugur þeirra hefur nægilega reynslu til að skila því hlutverki í svona mikilvægum leikjum. Svo virðist sem Atli hafi einnig ákveðið að taka ekki Indriða inn í landsliðið á meðan hann er enn gjaldgengur i U-21 árs landsliðið þrátt fyrir að hann hafi verið að standa sig með sóma hjá Lillestrom og sé mun sterkari vamarmaður heldur Arnar Þór. Ef Indriði kæmi inn gæti Arnar Þór hugsanlega flutt sig á kantinn enda geta flestir verið sammála um að hans styrkleiki Uggur frekar í að sækja en verjast. AtU má þó fyrir aUa muni ekki gera þá vitleysu að setja Hermann Hreiðarsson í vinstri bakvarð- arstöðuna eins og hann gerði í Danaleiknum í fyrra. Að þessu sögöu sést að það bíður Atla Eðvaldssonar ær- ið verkefni að púsla Scunan Uði fyrir leikina mikilvægu gegn Skotum og Litháum. Það er ekki aðeins í sókninni sem hlutimir eru ekki eins og hann hefði viljað hafa þá. Hægri bakvarðarstaðan er enn spumingarmerki eftir að bæði Brynjari Gunnarssyni og Gylfa Einarssyni mistókst að sannfæra Atla og aðra um að þeir gætu leyst þessa stöðu í leikjunum gegn Andorra og Ungverjalandi. Fer Brynjar aftur á miðjuna Atli hefur kaUað Bjarna Þorsteinsson, vamarmann úr Molde, inn í liðið á nýjan leik og spuming hvaða hlutverk hann ætlar honum. Hann mun væntanlega láta Brynjar spUa á miðjunni með Rúnari enda fáir sem fara yfir jsún- mikið svæði og eru jafnduglegir í að pressa menn sem eru með boltann á miðjusvæðinu eins og Brynjar. Þá standa eftir Ólafur Stígsson og fvar Ingimarsson sem valmögu- leikar í hægri bakvarðarstöðuna auk Gylfa og Bjarna. Lík- legast verður að þykja að hann noti ívar gegn Skotum. fvar er besti skaUamaðurinn af þeim og sá ieikmaður sem hefur hvað mesta reynslu af því að kfjást við breska ieik- menn. Hann var reyndar slakur á miðjunni gegn Ungverj- um og virkaði taugaóstyrkur en hann hefúr verið að standa sig vel með Wolves og ætti að geta flutt það form yfir í iandsleikinn. Það er hins vegar slæmt að þurfa að setja mann sem hefur aldrei spilað bakvörð áður með landsliðinu i þá stöðu í jafnmikUvægum leik og gegn Skot- um og því má alveg eins búast við því að hann setji Lárus Orra Sigurðsson í hægri bakvörðinn þar sem hann hefur spUað oft með misjöfnum árangri og láti ívar spUa sem miðvörö með Hermanni. Annað vandamál sem AtU stendur frammi fyrir er að finna kantmenn fyrir landsliðið. Jóhannes Karl hefur ekki náð að sýna sinar bestu hliðar á hægri kantinum í undan- fórnum leikjum og viröist einfaldlega ekki kunna við sig þar. Sama má segja um Hjálmar Jónsson vinstra megin. Hann var ágætur gegn Andorra en hafa skal i huga að andstæðingarnir voru ekki upp á marga fiska. Gegn Ungverjum hafði hann sig lítið í frammi og gerði ekkert tU að sannfæra menn um að hann væri rétti maðurinn í þessa stöðu gegn Skotum. Haukur Ingi Guðnason kom inn á fyrir Hjálmar gegn Ung- verjum en komst lítið áleiðis. Haukur Ingi er duglegur og fljótur en það kemur bara svo ofboðslega lítið út úr öUum hans aðgerðum þótt oft megi virða vUjann fyrir verkið. Nú hefin- Atli valið Bjarna Guð- jónsson hjá Stoke í hópinn og spuming hvort honum er ætlað að taka við af bróður sínum. Hann er sennUega meiri kantmað- ur en yngri bróðir hans en ég set spumingarmerki við hraða hans tU að hlaupa í eyðurnar á bak við vörnina. Helgi Sigurðsson hefur hraðann tU að vera á kantinum en hætt er við því að nokkur byrði yrði sett á axlir hægri bakvarðarins í varnarþætt- inum ef Atli tæki þann valkost því Helgi verður seint talinn öflugur vamarmað- ur. Atli er hins vegar í þeirri stöðu að hann gæti blásið tU sóknar með Helga Sig- urðsson á hægri kantinum og Jóhannes Karl ef tU vUl á vinstri kanti þar sem hann gæti skorið inn að teig og ógnað með sínum frægu þrumufleygum. Það eru margar spurningar sem Atli þarf að svara fyrir leikinn gegn Skotum 12. október næstkomandi. Hvort hann kemur með réttu svörin verður tíminn einn að leiða í ljós en mikUvægi þessa leiks verðm- ekki með orð- um lýst. Möguleikinn á því að ná öðru sætinu í riðlinum hefúr aldrei verið meiri.__________ Miðað við þær vangaveltur sem hafa verið hér á undan er erfitt að sjá að Atli Eðvalds- son sé með fullmót- að landsliö í hönd- unum á þessari sfimdu, níu dögum fyrir leikinn mikUvæga gegn Skotum. -ósk Hinn fullkomni staðgengill? AUir eru sammála um að frábær landsliðsferUl Eyjólfs Sverrissonar hafi endað á leiðinlegan hátt með stórtapi gegn Dönum á Parken í fyrrahaust. Hann hefði átt skUið að kveðja liðið með öðrum hætti og skemmtUegri og það hefði verið tUvalið að kalla á hann i landsleikina tvo, gegn Skotum og Litháum, sem fram undan eru. Ekki í sina venjulegu stöðu sem miðvörður heldur sem framherja í fjarveru Rikharðs Daðasonar. Það er ekkert nýtt að menn sem hafa lagt landsliðsskóna á hUluna taki þá fram á nýjan leik ef neyðarkaU berst frá þjóðinni. Nýjasta dæmið er þýski varnarmaðurinn Thomas Linke sem ákvað að hætta að spUa með landsliðinu eftir HM. Hann tók hins vegar fram skóna í leiknum gegn Litháum í september vegna mikUla meiðsla hjá vamarmönnum Þjóðverja. Hann skoraðist ekki undan kaUinu og það hefði Eyjólfur ekki gert heldur ef tU hans hefði verið leitað á stundu sem þessari. Eyjólfur hefur aUt sem tU þarf. Hann er stórkostlegur karakter, gífúrlega öfl- ugur í loftinu, sparkviss með eindæmum og hefur þá reynslu sem myndi hjálpa liðinu í þessum tveimur mikilvægu og erfiðu landsleikjum. Með þessari uppástungu er þó ekki verið að reyna að kynda undir umræðu undanfarinna vikna í fjölmiðlum um nauðsyn þess að draga á flot gamla refi um víða veröld landsliðinu tU bjargar heldur væri nær að líta á þetta sem tímabund- iö neyðarkaU landsliðsins tU manns sem hefur þjónað því fiábærlega og aldrei brugðist. AUi Eðvaldsson kaus að leita ekki eftir liðssinni Eyjólfs en það hefði óneitanlega verið gaman að sjá hann leiða liðið gegn Skotum og Litháum og enda ferUinn á glæsUegan hátt. -ósk an) mun skapa vand- ræöi fyrir Atla Eö- valdsson landsliös- þjálfara sem heföi kannski átt aö leita á náö- ir Eyjólfs Sverris- sonar, til vinstri. dsliðin gegn Skotum: ■nginn frá KR eða Fylki í landsiiðunum - íjórir nýir hjá Atla^ Atli Eðvaldsson og Ólafur Þórö- arson tilkynntu í gær landsliðs- hópa sína fyrir leikina gegn Skot- um og Litháum en þetta eru fyrstu alvöru landsleikir ársins og liður í undankeppni EM i Portúgal 2004. Það vekur athygli að enginn leikmaður frá toppliðum Síma- deUdar karla, KR eða Fylki, eru í landsliðum þeúra en aftur á móti fjórir frá faUliði Keflavíkur og fjór- ir úr liöi Skagamanna en sjö af átta þessum leikmönnum eru í Ik undir 21 árs-liði Ólafs. Atli Eðvaldsson tekur inn fjóra Iti nýja leikmenn í a-landsliðið frá R því í leiknum gegn Ungverjum HjFl og Ámi Gautur Arason er síðan*1- sá fimmti en hann datt út úr hópn- um þá vegna meiðsla. Bjami Guðjónsson er kom- t inn aftur inn í hópinn sem og þeir Bjami Þorsteinsson og feh Heiðar Helguson og eins kemur Helgi Sigurösson aö ■ nýju inn en hann var ekki j með gegn Ungverjum. A-landsliðiö: Markverdir: Birkir Kristins- ® son, ÍBV, Ámi Gautur Ara- i son, Rosenborg j Sp Aórir leikmenn: Rúnar fefeBB Kristinsson, Lokeren, Her- mann Hreiðarsson, Ipswich, Helgi Sigurðsson, Lyn, Láms Orri Sigurðs- son, WBA, Brynjar Björn Gunnarsson, Stoke, Heið- ar Helguson, Watford, Amar Þór Viðarsson, Lokeren, Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea, Bjami Guðjónsson, Stoke, Marel Baldvins- son, Stabæk, Jóhannes Karl Guðjónsson, Real Betis ívar Ingimarsson, Wolves, Bjami Þor- steinsson, Molde, Gylfi Einarsson, Lilleström, Haukur Ingi Guðnason, Kefla- vík og Hjálmar Jónsson, Gauta-* borg U21 árs-landsliðiö: Markverðir: Ómar Jóhannsson, Keflavík, Páll Gísli Jónsson, ÍA. Aðrir leikmenn: Indriði Sigurðsson, Lilleström, Helgi Valur Daníelsson, Peterborough, Grétar Rafn Steinsson, ÍA, Guðmundur Viöar Mete, Malmö, Ármann Smári Bjömsson, Brann, Hannes Sigurðsson, Viking, Haraldur Guðmundsson, Keflavik, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Keflavfk, Sig- mundur Kristiánsson, Utrecht, Ellert Jón Bjömsson, ÍA, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV, Hjálmur Dór Hjálmsson, ÍA, Ólafur Ingi Skúlason, Arsenal og Viktor Bjarki Amarsson, Utrecht. -ÓÓJ U-19 ára landslið karla: *-■ Tap gegn Noregi íslenska landsliöið skipað piltum 19 ára og yngri tap- aði í gær fyrir norskum jafnöldrum sínum, 5-3, í vin- áttulandsleik í Ósló. Norðmenn byrjuöu mun betur í leiknum og Trond 01- sen skoraði fyrsta markið fyrir þá á 18. mínútu. Brani- mir Poljac bætti öðru marki við á 23. mínútu og tveim- ur mínútum síðar skoraði Kristian Onstad þriðja mark Norðmanna. Á 37. minútu náði íslenska liðið að minnka muninn í 3-1 en þá skoraði Davíð Þór Viðarsson, leik- maður með Lillestrom í Noregi, úr vítaspymu. Davið Þór var síðan aftur á ferðinni á 55. mínútu þegar hafcí skoraði annað mark íslendinga. Vonir íslendinga um að jafna leikinn voru síðan gerð- ar að engu þegar Erik Mjelde skoraði fjórða mark Nor- egs á 68. mínútu. Óskar Hauksson minnkaöi reyndar muninn í 4-3 á 70. mínútu en Mjelde gulltryggði sigur Norðmanna, 5-3, með marki á 89. mínútu. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.