Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2002, Side 32
Bifreiðaverkstœði Grafarvogs
Gylfaflöt 24-30, 112 Reykjavík
S. 577-4478, Fax: 577-4478
Allar almonnar bílaviðgerðir
Þjónustuaðill fyrir Bílabúð Benna
SPORTVORUGERÐIN
SKIPHOLT 5 562 8383
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað I DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz (flT)
- Loforð er loforð
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Forsætisráðherra:
Styður aðgerðir
gegn Saddam
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði í stefhuræðu sinni á Alþingi í
gærkvöld að þjóðir heims mættu
ekki sitja hjá á meðan stjómin í írak
stæði sannanlega fyrir framleiðslu
^gereyðingarvopna.
„Sameinuðu þjóðunum ber að
taka á málinu því það eru einmitt
ályktanir þeirra sem íraksstjóm
virðir að vettugi," sagði Davíð en
bætti viö að ella væri hugsanlegt að
famar yrðu aðrar leiðir: „Takist Ör-
yggisráðinu ekki að fást við svo
hættulega ógn sem þá er stafar frá
íraksstjóm og brölti hennar má ekki
útiloka að famar verði aðrar leiðir."
Sjá nánar Á þingpöllum bls. 4.
.. deCODE:
Oðlast tiltrú á ný
Aðhaldsaðgerðir deCODE með
fækkun starfsmanna úr 650 í 450
"^hafa klárlega haft áhrif til hækkun-
ar á verði bréfanna á Nasdaq-mark-
aði undanfama daga að mati verð-
bréfamiðlara. Þessar aðgerðir sýna
að fyrirtækinu sé alvara með kostn-
aðaraðhald og alvara með að reyna
að láta þessa peninga sem það hefur
í kassanum duga þangað til það
byrjar að skila hagnaði. Fjárfestar
höfðu misst tiltrúna á fyrirtækinu
sem lýsti sér m.a. í mikilli lækkun
hlutabréfa í sumar. Þetta hefur síð-
an greinilega breyst eftir að kunn-
rferðar voru stífar aðhaldsaðgerðir í
fyrirtækinu. -HKr.
- Sjá nánar bls. 8
Þrjú þúsund hafa
séð Fálka
Um 3 þúsund manns höfðu séð
Fálka, kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, sem gerð er eftir
handriti Einars Kárasonar, þegar
sýningum lauk á þriðjudagskvöld.
Er þetta umtalsvert minni
aðsókn en aö Hafinu, mynd
Baltasars Kormáks, en nær 8 þús-
und manns höfðu séð þá mynd þeg-
ar hurðum kvikmyndahúsanna var
skellt í lás að kvöldi sunnudags
^fyrstu sýningarhelgina. -hlh
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVIUÐ SJÚKRALIÐ
Mirr uv som
HUND!
DV-MYND E.ÖL
Fögnuðu afmæll SAA
Hátíðarfundur í tilefni 25 ára afmælis Samtaka áhugafólks um áfengisvandann, SÁÁ, var haldinn í Háskólabíói í gær-
kvöld. Húsfyllir var á fundinum þar sem fjöldi skemmtikrafta kom fram, haldin voru ávörp og frumkvöðlar SÁÁ voru
heiðraðir. Á myndinni má sjá Þórarin Tyrfingsson, formann SÁÁ, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúa og Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra koma til fundarins.
Stórsameining í sjávarútvegi:
A5 okkar frumkvæði
- segir framkvæmdastjóri HB á Akranesi
Haraldur
Sturlaugsson.
Haraldur Stur-
laugsson, fram-
kvæmdastjóri HB
á Akranesi, segir
vegna kaupa
Eimskips á fyrir-
tækinu að HB
hafi haft frum-
kvæði að við-
skiptunum til að
stíga nýtt skref
inn í framtíðina.
Ný samsteypa hefur orðið til í sjáv-
arútvegi sem byggist á samstarfi
þriggja félaga, þ.e.a.s. HB, ÚA og
Skagstrendings. Nýja félagið mun
ráða yfir 11,4% kvótans en há-
markseignaraðild er 12%. Um ræðir
41.500 þorskígildistonn og er áætlað
að árleg velta nemi um 15 milljörð-
um króna.
HB er rótgróið fyrirtæki en þrir
ættliðir hafa stýrt því í 96 ár. Har-
aldur segir það ekki hafa verið erf-
iða ákvörðun að ganga til þessara
samninga. Félagið hafi um þriggja
ára skeið horft í kringum sig enda
miklar hræringar í gangi í sjávarút-
vegsgeiranum. Helsti ávinningur-
inn sé sá að HB geti dreift áhættu
sinni betur en áður í kvótasamsetn-
ingu þessara félaga.
„Við erum stórir í uppsjávar-
fiski og karfa en Skagstrendingur
og ÚA eru aftur sterkir í þorskin-
um. Það er fengur fyrir okkur að
fá hlutdeild í þorskinum og eins
hafa þeir mikinn áhuga á að koma
sterkar inn í uppsjávarfiskinn,“
sagði Haraldur í samtali við DV í
morgun. Hann telur atvinnuöryggi
starfsmanna á Akranesi hafa batn-
að eftir samrunann og telur að það
eigi við um starfsmenn hinna fyr-
irtækjanna einnig. „Saman er
þetta öflugur hópur og þess vegna
verða þetta áframhaldandi blóm-
leg félög.“
Spurður hvort kvótinn sé ekki
kominn á hættulega fáar hendur
sagðist Haraldur ekki sjá það. Eim-
skip sé félag á opnum markaði með
þúsundir hluthafa á bak viö sig.
Varla sé hægt að dreifa eignaraðild
betur.
Forstjóri nýja fyrirtækisins verð-
ur Guðbrandur Sigurðsson en Stur-
laugur Sturlaugsson verður aðstoð-
arforstjóri. Haraldur Sturlaugsson
heldur áfram sem framkvæmda-
stjóri hjá HB en félögin þrjú verða
rekin sem sjálfstæðar rekstrarein-
ingar innan nýja félagsins. -BÞ
Hundaeigendur vilja láta loka Geirsnefi fyrir bílaumferð:
Einn hundur drepinn og keyrt á tvo
- fjögurra ára barn slapp naumlega - algert stríðsástand
Hópur áhugasamra hundaeig-
enda hefur tekið sig saman og
þrýstir nú á um að útivistarsvæð-
inu á Geirsnefi verði lokað fyrir
allri bílaumferð. Eins og DV hefur
greint frá hafa heilbrigðisyfirvöld
til athugunar umgengni og um-
ferð á svæðinu þar sem margar
kvartanir hafa borist varðandi
það.
Amdís Hauksdóttir, einn tals-
manna hundaeigenda, sagði ömur-
legt og óþolandi þegar allir hunda-
eigendur væru settir undir einn
hatt þegar aðeins væru örfáir sem
færu ekki eftir reglunum.
„Þama ríkir algert stríðsá-
stand,“ sagði hún. „Ekið hefur
verið yfir einn hund með þeim af-
leiðingum að hann drapst og ekið
á tvo aðra á þessu ári. Böm sem
þama hlaupa um em í stórhættu.
Stutt er síðan næstum var búið að
aka niður fjögurra ára dreng.“
Þóra Sólveig Guðmundsdóttir,
annar talsmanna hópsins sem
loka vill svæðinu fyrir bílaum-
ferð, sagði við DV að þeir sem
fæm ekki að þeim reglum sem
giltu á svæðinu væru mjög fáir.
Þeir settu þó svartan blett á alla
hundaeigendur.
„Þetta er fólkið sem keyrir
hringinn í kringum svæðið og
hreinsar ekki upp eftir hundana
sína,“ sagði Þóra Sólveig. „Svo eru
aðrir aö tína upp rusl eftir þetta
fólk. Þeir örfáu sem ekki nenna að
ganga með hundana sína keyra
hringinn i kringum svæðið og láta
hundana elta. Fyrir um það bil
mánuði var fólk þama með himd-
inn sinn og keyrði yfir hann. Um
daginn kom fólk á sportbíl sem
var með hund. Það keyrði á fullri
ferð. Við hringdum í lögregluna.
Minn hundur var nærri orðinn
fyrir bil á dögunum. Við höfum
reynt að taka niður númer og höf-
um nokkrum sinnum hringt á lög-
regluna."
Þóra Sólveig sagði enn fremur
að svæðið væri einnig notað sem
tilraunasvæði fyrir bíla. Á dögun-
um hefði komið hópur fólks á á aö
giska tíu bílum sem hefði ekið inn
á svæðið með hamagangi og lát-
um. Þá hefði verið hringt á lög-
regluna. Þama hefði ekki verið
um hundaeigendur að ræða. -JSS
Silvía spurði um
Barnahúsið
Silvía Svíadrotning sýndi sérstakan
áhuga á íslenska Bamahúsinu á ráð-,
stefnu sem haldin var í Stokkhólmi i |
síðustu viku. Polisakademian í Stokk-
hólmi efndi til ráðstefnunnar þar sem
sátu fulltrúar ESB- og Efta-ríkja. Bragi |
Guðbrandsson, forstjóri Barnavernd-f
arstofu, hafði verið beðinn að kynna
starfsemi Barnahúss á ráðstefhunni. |
Skömmu áður en hann hóf erindi sitt I
var haft samband við hann og honum
tjáð að Svíadrottning hefði sérstakan j
áhuga á að fá upplýsingar um Bama-1
húsið. Þau áttu síðan fund, ásamt
sænska ríkislögreglustjóranum. Svía-,
drottning lýsti yfir hrifningu sinni afl
starfsemi hússins og lét í ljós ósk um ’
að eiga þess kost að heimsækja það.
Bragi sagði að aðrar þjóðir sýndu ‘
mikinn áhuga á því starfi sem rekið
væri í Bamahúsi. Hefði ailoft verið
leitað til sín til að biðja um kynningu
á þessu íslenska módeli á erlendri
grund. -JSS
/
V
l
I
UV-MYND bKáUHUUH K. h
Litlu árnar eins
og hafsjór að sjá
Gífurlegar rigningar hafa dunið á
syðri hluta landsins síðustu vikur og
fer ekki hjá því að ámar séu í foráttu-
vexti. í Mýrdal og undir Eyjafjöllum
vom meinlitlar ár eins og hafsjór yfir
að líta í gær. Á myndinni sést hvemig
Bakkakotsá var seinni partinn í gær-
dag. Kerlingadalsá rétt fyrir austan
Vík fór yfir gróið land og olli skemmd-
um. í morgun var fegursta veður
eystra og skin milli skúra. -JBP
Skjálftavirkni
færist austar
Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli hefur
undanfarið verið að færast austar und-
ir jöklinum eða nær Kötlu. Ragnar Stef-
ánsson jarðsKjálftafræðingur segir að
þama sé um hefðbundna haustvirkni
að ræða. „Þetta hefur verið mest í vest-
anverðum jöklinum en þó smitað inn
að miðjunni. En jarðskjálftavirknin er
helst tÚ mikil ef miðað er við venjuna
en við höfum þó séð hana meiri. Við
fylgjumst grannt með framvindunni
þama upp á hugsanlegt Kötlugos eða
Kötluhlaup," segir Ragnar.