Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2002, Side 2
2
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Linda Blöndal, dagskrárgeröarmaður á Rás 2, missti allt sitt í Laugavegsbrunanum:
Hélt ég væri lokuð
inni í reyknum
- var í stöðugu sambandi við konu á Neyðarlínunni þar til hún stökk fram af svölum
DV-MYND ÞÓK
Rauða dúnúipan er aleiga Lindu í dag
Gallabuxur, sokkar, vettlingar, skór, úlpa oggsm-sími. Annaö á hún ekki í dag. Margir
óbætanlegir persónulegir munir, sumir sem erföust, allar bækurnar hennar, öll fötin.
Allt er fariö. Svipaö er ástatt fyrir mörgum öörum íbúum viö Laugaveginn. Þegar DV
tök myndina afLindu ígærkvöld sagöi hún: „Ég þori ekki einu sinni aö líta viö til aö
horfa þarna upp. “
„Sem betur fer var ég ekki farin að
sofa en var farin að huga að því. Ég var
að horfa á sjónvarpið rétt fyrir klukkan
tólf uppi í risíbúðinni minni þegar ég sá
bjarma fyrir utan gluggann, einhveija
birtu sem ég kannaðist ekki við, mjög
sérkenniiega. Ég gekk út að glugganum.
Þá sá ég að portið vestan megin við hús-
ið var í ljósum logum. Ég var í náttföt-
unum, berfætt, greip símann og hringdi
í 112,“ sagði Linda Blöndal, dagskrár-
gerðarmaður á Rás 2, sem var nálægt
þvi að lokast inni í húsinu númer 40a
við Laugaveg þar sem eldurinn kom
fyrst upp á laugardagskvöldið.
„Ég hélt á sím-
anum, greip
úlpuna mína og
ætlaði niður stiga-
ganginn en þá kom
bara þykkur og
svartur reykur
snöggt á móti mér.
Ég fór aftur inn til
mín og hélt ég
væri lokuð inni í
reykhaílnu. Þetta
var hálf geðklofin
blanda af algjörri
örvæntingu en mjög skarpri hugsun.
Þetta var mjög sérstakt en fyrst og
fremst algjör panik.
Konan á Neyðarlínunni, í 112, var
alltaf í símanum. Ég lýsti fyrir henni
hvað ég væri að gera. Hún spurði hvort
aðrir væru í húsinu en ég gat upplýst
hana um að enginn annar væri þarna.
DV-MYNDI KÓ
Slökkvistarf
Nokkur þúsund lítrum af vatni var
dælt hverja mínútu í margar
klukkustundir.
Það býr enginn fyrir neðan okkur en
svo er verslun á neðri hæðinni. Ég sagði
konunni að ég teldi mig vera lokaða
inni enda var ekki hægt að komast út úr
risinu nema að fara niður í íbúð á hæð-
inni fyrir neðan. Svo mundi ég eftir að
það væru svalir þar. Ég sá að fólk í
næstu húsum var komið út á palla til að
horfa á hvað væri að gerast. Það er eins
og eldurinn hafi náð að malla áður en
fólk tók eftir honum.“
Ég var eins og Móglí
Linda var i rauðu dúnúlpunni sinni
utan um náttfótin en berfætt. Hún hélt á
farsímanum sinum
og sagði konunni á
Neyðarlínunni að
hún hygðist stökkva
niður. „Ég ætla bara
að stökkva niður,"
sagði ég. Hún hefur
örugglega haldið að
ég væri sturluð -
haldið að ég væri
orðin geðveik."
Linda gekk niður á
hæðina fyrir neðan
risíbúðina sem var
mannlaus og fór þar út á svalimar sem
eru rúma tvo metra frá jörð.
„Ég stökk svo fram af, berfætt, alveg
öins og Móglí. í þeim svifum sem ég
lenti á jörðinni heyrði ég hvílíka
sírenusinfóníu. Slökkvilið, sjúkrabílar
og lögregla voru komin á staðinn. Mér
fannst þeir bara komnir um leið - þeir
voru svo fljótir, sennilega voru þeir 5
mínútur á leiðinni. Ég heyrði að ég
hefði verið ein af 80 sem létu vita af
brunanum."
Þá brotnaði ég saman
Nú tók við áfallatími hjá Lindu. Hún
segist hafa talið að slökkvilið myndi ná
að ráða niðurlögum eldsins áður en
hann næði íbúð hennar. Svo fór ekki.
Linda gekk um svæðið og horfði á hús-
ið brenna. Hún segir engan hafa verið
að hlúa að fólkinu í húsunum sem voru
að brenna, sumt fólk illa klætt.
„Ég fékk ekki einu sinni teppi,“ segir
hún. „Okkur var bara sagt að fara í ein-
hvem strætisvagn á Vitastíg til að gefa
skýrslu. Þegar ég kom þaðan, búin að
ganga Skólavörðustíginn og hálfa Njáls-
götuna, sá ég að íbúðin mín var að
brenna. Miðað við upplýsta umræðu um
áfallahjálp og slík teymi fannst mér ein-
kennilegt að fólkinu sem átti um sárt að
binda þama skyldi ekki vera hóað sam-
an og því veitt aðstoð. Ég var þama á
náttfótunum en kunningjakona haiði
látið mig fá stóra strigaskó og sokka.“
Kuldaleg framkoma
„Tveir mjög almennilegir lögreglu-
menn buðu mér inn í bíl tfl sín en svo
þurfti ég að fara út úr honum - hann
var að fyllast af reyk Um klukkan tvö
stóð ég fyrir utan homið þar sem Vegas
var. Ég sá að risíbúðin mín var að fara.
Ég hafði haldið að þetta myndi sleppa.
Þetta leit ekki út fyrir að eldurinn
myndi taka fjögur heil hús,
Nú þyrmdi yfir mig. Ég fór að lög-
reglumanni sem stóð við gula línu. Ég
spurði hvemig hann teldi þetta fara.
Hann svaraði snöggt: „Ertu búin að gefa
skýrslu?" „Já,“ svaraði ég og brotnaði
þá algjörlega saman. Lögreglumaðurinn
ýtti mér bara í burtu og sneri sér frá.“
Linda segir að hjartagóð skagfirsk
kona hefði komið og tekið utan um sig.
-Ótt
DV-MYND KÖ
Um 90 slökkviliðsmenn börðust við eldinn
Reykkafarar þurftu á tímabili aö hörfa, komust í hættu og stöngur þeirra
brunnu inni.
DV-MYND KO
Lögregla ræðir við vegfarendur
Handtaka þurfti nokkra ótátabetgi.
Amerískur hvíldarstóll
Ótrúlega bœgileguri
Agnar Jón Egilsson leikari, íbúi að Laugavegi 40a:
Ég fékk algjört lost
„Ég var á ferð í leigubíl nið-
ur í bæ um eittleytið þegar við
sáum reykský. Ég spurði hvar
þetta væri og bílstjórinn sagði
að þetta væri við Laugaveginn,
einmitt þar sem ég hef búið síð-
astliðin fimm ár. Við ókum því
á staðinn og ég horfði á heimili
mitt brenna. Ég sá hvemig eld-
urinn var kominn upp í gegn-
um þakið. Ég fékk algjört lost.
Fyrst hélt ég að vinir mínir
væru inni og í lífshættu," sagði Agnar
Jón Egilsson leikari sem missti allt sitt
í brunanum aðfaranótt sunnudagsins.
„Ég á bara jakkann minn - fótin sem
ég er í núna, annað er allt brunnið - per-
sónulegir munir, fótin mín, tölvumar,
húsgögnin, hnífapörin, vekjaraklukkan,
allt. Hver einasta arða.“
Agnar Jón segist hafa orðið skelfingu
lostinn og talið að nágrannar sínir, þær
Linda Blöndal, Guðrún Ama Gylfadótt-
ir og Ásta Hafþórsdóttir, væru i lífs-
hættu innan dyra. Þær bjuggu
í tveimur íbúðum sem hafa
sama inngang á Laugavegi 40a.
Raunar hafði Agnar ekki búið
á staðnum síðustu tvo mánuði
en allir munir hans vom í
íbúð sem Linda bjó í.
„Þetta var svona vottur af
kommúnu hjá okkur. Ég
hringdi og hringdi og náði
loks sambandi við Lindu. Hún
sagði mér að hún hefði komist
berfætt og fáklædd fram af svölunum."
Agnar fregnaði að þær Linda, Guð-
rún Ama og Ásta hefðu komið sér frá
Laugaveginum. „Maður reynir að vera
ekki að horfa á allar eigur sínar brenna.
En það dó enginn, það er fyrir öllu.“
Agnar var í vinnu sinni i Borgarleik-
húsinu þegar DV ræddi við hann í gær.
í tölvugögnum sem fóru í brunanum
var meðal annars uppkast að leikriti
sem hann hefur verið að skrifa síðustu
mánuði. -Ótt
Agnar Jón
Egilsson.
Bófar á ferð
Brotist var inn í hús við Súðarvog í
gærmorgun. Þar voru tveir menn að
verki og náðist annar þeirra á hlaup-
um en hinn slapp.
Langar í Fossvogsdalinn
Tveir hópar aldr-
aðra sækjast eftir að
fá að búa í fjölbýlis-
húsum sem byggð
verði á auðu svæði
austan Skógræktar
Reykjavíkur í Foss-
vogsdal. Fyrir öðr-
um hópnum fara
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti, og Baldvin Tryggvason, fyrrv.
sparisjóðsstjóri. Þrír aðfiar hafa sótt
um leyfi til að byggja á svæðinu.
Enginn með fimm réttar
Fyrsti vinningur í lottóinu á laug-
ardaginn gekk ekki út og verður þvi
Qórfaldur næst. Tveir voru hins vegar
með fjórar tölur réttar og bónustöl-
una. Þeir fá 248 þúsund hvor.
Hanna líklega hitaveitu í Peking
Líkur era á að tvö íslensk fyrir-
tæki, Orkuveita Reykjavíkur og Enex
hf., fái það verkefni að hanna hita-
veitu í norðurhluta Pekingborgar og
veita þar tæknilega ráðgjöf. Fyrirtæk-
in standa í viðræðum við yfírvöld í
Peking. Samningurinn yrði upp á 40
milljónir króna.
Ekkert alltaf að breyta
Ekki vfil Páll
Magnússon, fram-
kvæmdastjóri sam-
skipta- og upplýs-
ingasviðs íslenskrar
erfðagreiningar,
meina að fyrirtækið
hafi stöðugt vOjað
breyta hönnun hins
miðlæga gagnagrunns á heObrigðis-
sviði, eins og Persónuvemd hefur
haldið fram. Mbl. sagði frá.
Vilja slitlag um Djúpið
Bæjarstjórn ísafjarðar leggur
áherslu á að hraðað verði lagningu
bundins slitlags um Isafjarðardjúp
inn á þjóðveg 1 og mælist tO að auknu
fé verði varið til vegagerðar á Vest-
fiörðum við gerð nýrrar vegaáætlunar
á Alþingi. BB sagði frá.
Bilun í kallkerfi
TæknOeg bOun kom upp í hátalara-
kerfi verslunarmiðstöðvarinnar
Smáralindar sl. laugardag en engin
hætta var á ferðum og almenningur
tók atvikinu með ró.
Sjaldséður gestur
Húmgali sást hér á landi nýlega - í
fyrsta sinn að talið er. Hann er ná-
skyldur næturgala og söngur þeirra
svipaður en báðir eru af þrastaætt.
Húmgalinn flaug á glugga i Hólmgerði
í Reykjavík og dó svo hann syngur
ekki meira i þessu lífi.
Guðni vissi...
Auglýsjng á malti
frá Ölgerðinni Agli
Skallagrímssyni, þar
sem Jóhannes Krist-
jánsson eftirherma
líkir eftir Guðna
Ágústssyni landbún-
aðarráðherra, var
gerð með vitund og
leyfi Guðna, að því er fram kemur i
yfirlýsingu frá fýrirtækinu.
Vilja veiða meira
Einungis náðist að veiða sex af 30
hreindýrakúm sem heimOt var að
feOa á veiðisvæði 9 fyrir lok veiði-
tímabOsins, 15. september. Hreindýra-
ráð hefur óskað leyfis tO að feOa 24
kýr tO viðbótar á næstu vikum tO að
halda stofnstærð í skefium. Svæði 9
nær yfir Suðursveit og Mýrar í Aust-
ur-SkaftafeOssýslu. horn.is greinir
fi'á. -Gun.