Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2002, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
DV ræðir við fyrrverandi safnaðarmeðlim Omega-safnaðarins:
Aleiga mín fór í
safnaðarstarfið
þeim sem ekki borga er sagt að þeir fari beint í „elddyngjuna“ í helvíti
1
Þess eru dæmi að meðlimir trúar-
safnaða hér á landi keyri sig svo
hart fjárhagslega og setji sig í svo
miklar skuldbindingar fyrir söfnuð-
inn að þeir lendi í greiðsluþroti, að
sögn fyrrverandi safnaðarmeðlims í
söfnuðinum Samfélagi trúaðra.
Söfnuðurinn á og rekur meðal ann-
ars sjónvarpsstöð-
ina Omega.
Safnaðarmeð-
limurinn fyrrver-
andi sem DV
ræddi við segist
hafa innt af hendi
svo mikil fjárút-
lát í þágu safnað-
arins og Omega-
stöðvarinnar að
hann átti ekki
orðið fyrir nauð-
synjum, svo sem
mat, fatnaði,
húsaleigu og öðr-
um heimilisút-
gjöldum. Á end-
anum sagði hann
sig úr söfnuðin-
um.
Viðmælandi DV kvaðst ekki viija
koma fram undir nafni þar sem
hann bæði skammaðist sín fyrir að
hafa látið teyma sig í greiðsluþrot,
auk þess sem hann væri hræddur
við forstöðumenn safnaðarins. Hann
er öryrki og hefur 70-80 þúsund
krónur á mánuði til ráðstöfunar.
Þar af greiddi hann tiund til safnað-
arins, þ.e. 10 prósent af ráðstöfunar-
fé sínu. Að auki skuldbatt hann sig,
með samningi til þriggja ára, til þess
að greiða 12 þúsund krónur á mán-
uði til uppbyggingar á jarðstöð
Omega-sjónvarpsstöðvarinnar. Sam-
kvæmt tilmælum forstöðumanna
safnaðarins tók hann þátt í nám-
skeiði til að læra að lækna sig og
aðra og reka út illa anda. Hann seg-
ir það hafa kostað 15.000 krónur. Því
fylgdu kaup á svokölluðu bænaglasi
sem er svipað og þau sem notuð eru
til eggjasuðu. Það kostaði 40 þúsund
krónur. Hann
I
M
mBgsg&z&iSJzznz'.
Dlplóma
Fjöldamargir hafa tekiö þátt í nám-
skeiöum til aö lækna og læra aö reka
út illa anda. Námskeiöiö kostar 15
þúsund krónur og þátttakendur fá
„dipioma". eins og sést á meöfylgj-
andi mynd.
keypti einnig
minna stunda-
glas handa ætt-
ingja, það kost-
aði 30 þúsund.
Hann styrkti
svokallaðan Arn-
arklúbb safnað-
arins með 50
þúsund króna
framlagi. Arnar-
klúbburinn var
heiti á einni fjár-
söfnun af mörg-
um sem efnt var
til. Þeir sem
borguðu 50 þús-
und fengu styttu
af erni, hinir
sem gátu ekki greitt svo mikið fengu
enga styttu. Fljótt varð ljóst að við-
mælandi blaðsins stæði ekki undir
þessum stöðugu og vaxandi útgjöld-
um til safnaðarins. Hann jók því fyr-
irgreiðslu sina hjá banka sínum.
Það dugði ekki til.
- En hvers vegna fórstu í þennan
trúarsöfnuð?
„Ég hafði lengi þjáðst af veikind-
um,“ sagði viðmælandi DV. „Börnin
voru flogin úr hreiðrinu, ég var ein-
mana og í leit að kærleika og félags-
skap. Ég hafði horft dálítið á Omega
og taldi að þar væri að finna það
sem ég leitaði að. Á fyrstu samkom-
Oryrkjar og konur skipa stærsta hluta safnaöarins
Viömæiandi blaösins segir marga hafa viljað segja sig úr söfnuöinum en þeir
þori ekki aö hringja sjálfir. Þó heföi einstaka tekiö af skariö.
unni var tekið afar vel og hlýlega á
móti mér. Eftir svo sem 2-3 mánuði
var farið að taka tíund af mér, síðan
komu fjársafnanir til Omega og
framlög á samkomum. Þetta var að-
eins hluti af Qárútlátunum.
Heilaþvotturinn, sem ég kalla svo
nú, fór einnig hægt af stað.
Langstærsti hluti safnaðarins eru
öryrkjar og konur. Boðskapurinn
felst í því að stjórnendur safnaðar-
ins séu blessaðir, hlýði Guði í einu
og öllu og útbreiði boðskap hans.
Hinir fátæku séu svo illa staddir
fjárhagslega af því aö þeir hafi
syndgað. Ef þeir gefi Drottni aflt sitt
og sái þannig, uppskeri þeir marg-
falt í himnaríki. Hinir, sem ekki
borga eða hætta því, fari beina leið í
„elddyngjuna“ í helvíti.“
Viðmælandi blaðsins kvaðst hafa
verið orðinn hræddur og sér hafl
verið farið að líða illa vegna þess of-
stækis sem ríkt hefði gagnvart
mörgum þáttum í þjóðfélaginu. Svo
væri um marga fleiri sem vildu
segja sig úr söfnuðinum en þyrðu
ekki að hringja sjálfir. Þó hefði ein-
staka tekið af skarið, svo sem kona
ein sem hefði greitt milljónir í safn-
aðarstarfíð, aflt sem hún átti.
„Ég er ekki að segja sögu mína til
þess að rífa niður eða eyðileggja,“
sagði viðmælandi DV að lokum.
„Tilgangurinn er aö reyna að híálpa
öllu því fólki sem lent hefur í sömu
gryfju og ég og þarfnast hjálpar. Mér
ber skylda til þess gagnvart náunga
mínum og þetta er eina leiðin sem
ég get farið." -JSS
Samfélag trúaðra segist ekki ganga hart að safnaðarfólki:
• •
íslandsmet hjá
Hólmaborg SU
Enn falla íslandsmetin hjá
Hólmaborg SU, skipi Hraðfrystihúss
Eskifjarðar. Samkvæmt tölum
Fiskistofu um afla fiskiskipa á upp-
sjávarfiskveiðum fyrir fiskveiðiárið
2001/2002 er Hólmaborg þar á toppn-
um með tæp 99.000 tonn samanlagt
og slær eigið met frá flskveiðiárinu
2000/2001 sem var rúm 76 þúsund
tonn. Hólmaborgin er þama í
nokkrum sérflokki því næsta skip
er með rúm 82.000 tonn. Þorsteinn
Kristjánsson, skipstjóri Hólmaborgar,
var á nýafstaðinni sjávarútvegssýn-
ingu valinn fiskimaður ársins. -GG
Þetta er algjor-
lega út í hött
- segir forstöðumaður - tilbúnir að endurgreiða, segir sjónvarpsstjórinn
Guðmundur Örn Ragnarsson, for-
stöðumaður Samfélags trúaðra,
sem m.a. stendur að baki sjón-
varpsstöðinni Omega, segir ekkert
hæft í fullyröingum að gengið sé
hart að safnaðarmeðlimum varð-
andi fjárframlög, né að hótanir séu
hafðar í frammi. „Það er ekki lagt
hart að neinum og hjá okkur er
sama kerflð og hjá öðrum söfnuð-
um af þessu tagi. Fólki er i sjálfs-
vald sett hvað það leggur mikið til
safnaðarins en hins vegar er það
biblíuleg kenning að greiða tíund
og það vita allir. Meirihlutinn
greiðir ekki neitt. Það er algjör-
lega út í hött að við leggjum hart
Eiríkur
Sigurbjörnsson.
Jóga hjá Guðjóni Bergmann
Ármúla 38, 3.hæð - www.gbergmann.is - yoga@gbergmann.is - 690-1818
Jóqa fyrir stirðo oq stressaða karlmenn
Síðasta námskeið fyrir áramót
hefst 28. október.
Leiðbeinandi: Guðjón Bergmann.
Skráðu þig núna!
aö safnaðarmeð-
limum.“
Guðmundur
segir að safnað-
armeðlimir séu
eimmgis um 40
talsins en sjón-
varpsstöðin sé
ekki rekin bein-
línis af söfnuðin-
um. Hins vegar
er sjónvarps-
stjórinn, Eiríkur Sigurbjörnsson, í
söfnuðinum.
- Er þetta eingöngu fjármagnaö
hér heima?
„Já, aðallega þannig, en auðvit-
að þiggjum við líka stuðning er-
lendra predikara. En fyrst og
fremst eru það velunnarar hér
heima fyrir sem greiða kostnað-
inn,“ segir Guðmundur Öm. Hann
segir að fjölmargir einstaklingar
úr mörgum söfnuðum, m.a. úr
Þjóðkirkjunni, styrki Omega. Búið
er að reisa jarðstöð við hlið
Skyggnis fyrir ofan Mosfellsbæ og
útsendingar hafnar um gervihnött
til Skandinavíu. Eiríkur Sigur-
bjömsson segir að nú nái Omega
til 33 landa eftir tíu ára starfsemi.
„Það er engin þvingun í gangi
og allt frjáls framlög sem tfl okkar
koma,“ segir Eiríkur Sigurbjöms-
son. Hann kannaðist vel við mál
fyrrverandi safnaðarmeðlims.
Hann segir þó einkennUegt að nú
náist ekki í viðkomandi.
„Hafi fólk gert eitthvað í ölæði
og sér eftir því, þá borgum við
bara tU baka. Okkur er mikið
kappsmál að aflt sé í góðu lagi. Við
vUjum ekki að hér séu neinir pen-
ingar nema þeir sem fólk hefur
geflð með glöðu geði, enda segir
Biblían: Guð elskar glaðan gjaf-
ara.“
- Eruð þið tUbúnir tU að endur-
greiða framlag þessa fyrrverandi
safnaðarmeðlims?
„Já, því fyrr því betra. Þessi
manneskja hefur hins vegar aldrei
sagst vUja fá þetta tU baka.
Viðkomandi sagðist hafa gert
þetta af fúsum og frjálsum vUja.
Við myndum þó að sjálfsögðu
greiða þetta tU baka ef farið væri
fram á það. Ég vU þó taka fram að
við eigum frásögnina og vitnis-
burð á myndbandi. Þar segir
viðkomandi frá því að hafa af
frjálsum vilja tekið ákvöröun um
að gera þetta. Þetta er allt tU á
snældum eins og annað efni sem
við sendum út,“ sagði Eiríkur Sig-
urbjörnsson. -HKr.
Brotið fyrir vegi
Veriö er aö brjóta niöur kletta á veg-
arstæöi nýja vegarins aö Þjórsár-
brúnni sem geröur veröur í vetur.
Ný Þjórsárbrú næsta haust
Framkvæmdir við vegagerð að nýrri
Þjórsárbrú eru nú komnar í fúllan
gang. Vinnuvélar voru í gær að brjóta
niður kletta á holtinu neðan við Þjórs-
ártún í Rangárvallasýslu. Fram-
kvæmdum við vegagerðina og brúna á
að vera lokið 15. september á næsta ári.
Með því fækkar einbreiðum brúm
um eina á hringveginum á Suðurlandi.
Þá verður aðeins ein slík brú eftir á
veginum frá Reykjavik að Skaftá við
Kirkjubæjarklaustur en það er brúin
yflr Klifanda í Mýrdal. -NH
RÚV í hart við nýja stöð
Útvarp Reykjavík, sem er ný út-
varpsstöð, hefur ákveðið að breyta
nafni stöðvarinnar i Radíó Reykjavík-
ur. Óðinn Guömundsson, sölu- og
markaðsstjóri, segir fyrirtækinu það
nauðugan einn kost. Rikisútvarpið
hafi bannað fyrirtækinu að kynna fyr-
irtækið undir fyrrnefnda nafninu í
krafti einkaleyfis.
„Ætlan fyrirtækisins var að hefja
útsendingar með kallmerkinu Útvarp
Reykjavík en það vilja menn í Efsta-
leiti ekki sætta sig við og segjast hafa
þarna einkarétt," segir Óðinn.
Óðinn segir nýju stöðina ekki vilja
starfa í andstöðu við RÚV og hann
kveðst vonast til að nýja nafnið, Rad-
íó Reykjavík, sé ekki á meðal nafna
sem Ríkisútvarpið hafi tryggt sér
einkaleyfi á. -SBS
7T
/
Skagfirðingur verður Haukur
Togarinn Skagfirðingur sem Fiskiðj-
an Skagfirðingur á Sauðárkróki hefur
gert út undanfarin ár hefur verið seld-
ur til ísafjarðar. Kaupandi er útgerðar-
félagið Torfnes ehf. Skipið sem eitt
sinn hét Vigri hefur legið við bryggju í
meira en ár. Skipið var selt án veiði-
heimilda. Þvi var siglt úr Sauðárkróks-
höfn nýlega í slipp í Hafnarfirði. Að
sögn forsvarsmanns Torfness er vonast
til að skipið komist til veiða um næstu
mánaðamót og verður byrjað á að
veiða rækju fyrir Fiskiðjuna Skagfirð-
ing sem fara mun til vinnslu í verk-
smiðju fýrirtækisins í Grundarfirði.
Líklegt er að skipið muni að einhverju
leyti fiska fyrir þau fyrirtæki sem eiga
kvóta á næstunni.
Forbrjótur sligaöi brú
Dráttarbíll frá ístaki olli verulegum
skemmdum á brúnni yfir Göngu-
skarðsá í Skagafirði á fimmtudag
Bíllinn var að flytja mölunarsam
stæðu, sem nú kaflast forbrjótur með
al vegagerðarmanna, ofan af Þverár
fjalli um Gönguskarðsá, en hámarks
þungi á brúnni var 10 tonna ásþungi.
Forbrjóturinn vegur 45 tonn. Gunnar
H. Guðmundsson, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar í Skagafirði, segir
ístak hafa haft undanþágu til þess að
fara þessa leið með forbrjótinn gegn
því að fara á vaði yfir Gönguskarðsá,
en það hafi ekki verið virt af ístaki.
Umdæmisstjóri segir að ráðist
verði í að gera við brúna eftir helgi,
en það gæti tekið 2 daga.
Sviptur ökuleyfinu
Miðaldra maður var tekinn af lög-
reglu þar sem hann ók bifreið sinni
á 156 kílómetra hraða við Skaftár-
tungu í umdæmi lögreglunnar I Vík
í Mýrdal í gær. Að sögn lögreglu eru
viðurlögin svipting ökuleyfis I tvo
mánuði og 60 þúsund króna sekt.
Ökuþórinn gaf þær skýringar á
hraðakstrinum að hann hafi ekki
verið að fylgjast með hraðamælin-
um. -sbs/ÖÞ/jtr/GG