Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2002, Page 6
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2002
Fréttir
DV
DV kannar afstöðuna til búse^u fólks af öðrum litarhætti á íslandi:
Þriðjungur Islendinga vill
ekkí að litað fólk búi hér
Tæplega 3 af hverjum 10 íslend-
ingum eru andvígir varanlegri bú-
setu fólks af öðrum litarhætti hér á
landi, viija ekki að litað fólk búi á
Islandi. Þetta eru niðurstöður skoð-
anakönnunar DV sem gerð var á
fimmtudag.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða and-
víg(ur) varanlegri búsetu fólks af
öðrum litarhætti á Islandi? Úrtakið
var 600 manns, jafnt skipt á milli
höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar
sem og kynja.
Af öllu úrtakinu sögðust 62,8 pró-
sent vera fylgjandi varanlegri bú-
setu litaðs fólks hér á landi, 24,7
prósent sögðust andvíg, 8,2 prósent
voru óákveðin og 4,3 prósent neit-
uðu að svara spumingunni.
Alls tóku því 87,5 prósent aö-
spurðra afstöðu í könnun DV. Af
þeim sögðust 72 prósent vera fylgj-
andi búsetu fólks af öðrum litarhætti
hér á landi en 28 prósent á móti.
Fleiri karlar en konur eru á móti
búsetu fólks af öðrum litarhætti hér
á landi, 30,3 prósent karla en 26 pró-
sent kvenna. Mun fleiri konur eru
hins vegar óákveðnar eða svara ekki,
Búseta litaðs fólks á íslandi
Andvíglr: 28%
eða 15,3 prósent á
móti 9,7 prósent-
um karla. And-
staðan er meiri á
landsbyggðinni en
á höfuðborgar-
svæðinu, 30,6 á
móti 25,6 prósent-
um. Þar er fólk
einnig ákveðnara
en á höfuðborgar-
svæðinu. 91,3 pró-
sent landsbyggðar-
fólks tóku afstöðu
til spumingarinnar en aðeins 84,6
prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Fordómavaki
DV er ekki kunnugt um að af-
staða landans til varanlegrar búsetu
fólks af öðrum litarhætti á íslandi
hafi verið könnuð með þessum
hætti áður. Erfitt er að nálgast við-
horf til kynþátta eða kynþáttafor-
dóma í einni spurningu í skoðana-
könnun og sveigja um leið frá gild-
ishlöðnum hugtökum. Þegar spum-
ingin hér að ofan var orðuð var lit-
ið til þess að litarháttur er það sem
Fylgjandi: 72%
helst greinir fólk
af öðrum kyn-
þætti frá „inn-
fæddum" hér á
landi og er það
sem helst virðist
geta vakið upp
kynþáttafordóma
í öðrum löndum
og um leið truflað
aðlögun innflytj-
enda að nýjum
heimkynnum.
1 könnun sem
gerð var við Háskóla íslands fyrir
nokkrum misserum var fólk spurt
um uppruna innflytjenda á Islandi,
átti að segja hvaðan það teldi að
flestir innflytjendur kæmu. Niður-
stöðurnar voru á þann veg að hér
væri mest af fólki frá Taílandi, Fil-
ippseyjum, Víetnam og Pakistan.
Frá þessum löndum kemur fólk með
annan litarhátt og fólk virtist fyrst
og fremst horfa á þau einkenni. En
reyndin var hins vegar allt önnur.
Innflytjendur á íslandi er fjölbreytt-
ur hópur eins og tölur frá Hagstof-
unni sýna. I árslok 2001 áttu 18.338
íbúar fæddir erlendis lögheimili hér
á landi eða 6,4% landsmanna. Er-
lendir ríkisborgarar voru 9.850, eða
3,4%. Flestir erlendu ríkisborgar-
amir koma frá Póllandi (1.666), Dan-
mörku (945), Bandaríkjunum (601),
Þýskalandi (591), Filippseyjum (547)
og Júgóslavíu (501).
Skemmdarverk og ryskingar
Afstaða til innflytjenda hefur ver-
ið mikið hitamál i mörgum löndum
Evrópu undanfarin ár en ekki sett
jafnafgerandi svip á pólitíska um-
ræðu hér á landi. Umræða um þessi
mál hefur hins vegar aukist hér á
landi síðustu misseri og strangari
reglur um flutning hingað til lands
tekið gildi. Af og til hafa hins vegar
birst fréttir í íslenskum fjölmiðlum
af skemmdarverkum þar sem kyn-
þáttafordómar eru undirtónninn. Þá
hefur af og til komið til ryskinga
eða áfloga milli unglingahópa af
ólíkum uppruna, nú síðast í Breið-
holti þar sem hópur íslenskra ung-
linga og unglinga ættaðra frá Fil-
ippseyjum tókust svo harkalega á
að kalla varð á lögreglu. -hlh
Samkomulag við Samson um sölu á 45,8% hlut í Landsbankanum:
Meiri einkavæðing en
við áttum von á
- segir Davíð Oddsson forsætisráðherra
„Við töiuðum um að selja 25% í
Landsbankanum og því er þetta nær
helmingi stærri hlutur en við lögðum
upp með. Þetta er miklu meiri einka-
væðing en við áttum von á að ná í þess-
um áfanga,“ sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra í samtali við DV þegar til-
kynnt var síðastliðinn laugardag að
samkomulag hefði náðst við Samson
eignarhaldsfelag ehf. um kaup félagsins
á 45,8% hlut ríkisins í Landsbankanum.
„Nú verður ríkið ekki lengur með bönd
á bankanum. Ég tel að það hafi tilheyrt
gömlum tíma að stjómmálamenn hefðu
stýringu á banka. Með fúliri virðingu
fyrir þeim þá held ég að þeir eigi að
vera að gera eitthvað annað en stýra
bankakerfmu."
NOTAÐAR VINNUVELAR
T3-021 Case 590 Super LE
traktorsgrafa, 95 hö., skotbóma 45
og 90 cm skóflur, 1600 vst.
Helgasonhf.
VÉLADEILD
Davið telur líklegt að í fyllingu tím-
ans muni Samson ehf. minnka eign
sína og selja hlut til erlendra aðila. Þá
segir hann að ekki standi til að taka
inn í íslenskt hagkerfi þá fjármuni sem
ríkið fái með sölunni heldur verði þeir
notaðir td að lækka erlendar skuldir
og muni salan því ekki koma við gengi
krónunnar með beinum hætti.
Andvirðið - alls rúmir 12,3 milljarð-
ar króna - verður greitt út og hlutabréf
afhent í tveimur áföngum. Alls verða
afhent 33,3% við undirritun og 12,5%
að ári liðnu. Greitt verður í Banda-
ríkjadölum. Gengi bréfa i viðskiptun-
um er 3,91 sem er 6% hærra en meðal-
gengi síðustu 90 daga og 12% hærra en
gengið var þegar ríkið seldi vænan
hlut i bankanum sl. sumar í gegnum
viðskiptakerfi Kauphallarinnar. Sam-
son er i eigu Björgólfs Guðmundsson-
ar, Björgólfs Thors Björgólfssonar og
Magnúsar Þorsteinssonar.
Kaldbakur og S-hópur
Jafnframt þvi sem náðst hefur sam-
komulag um sölu á Landsbankanum
hefur einkavæðingarnefnd ákveðið að
ræða við tvo aðila um ráðandi hlut i
Búnaðarbanka. Annar vegar er um að
ræða Kaldbak hf. á Akureyri og S-hóp-
inn svonefnda,> en í honum eru félög
sem tengjast. samvinnuhreyfingunni.
Að sögn forsætisráðherra, hvað varðar
Búnaðarbankann, er gengið út frá því
að selja minnst 25% hlut, rétt eins og
lagt var upp með í Landsbankasölunni.
Frá fyrsta fundi
íyfírlýsingu sem Eignarhaldsfélagið Samson sendi frá sér er lýst yfír ánægju meö þá
niðurstöðu viðræöna um kaup á Landsbanknum sem nú sé fengin.
I yfirlýsingu sem Eignarhaldsfé-
lagið Samson sendi frá sér er lýst
yfir ánægju með þá niðurstöðu við-
ræðna um kaup á Landsbankanum
sem nú sé fengin. Sé eigendum fé-
lagsins ljós sú mikla ábyrgð sem
fylgi forystu í bankanum, sem veiti
þúsundum íslendinga um allt land
mikilvæga þjónustu.
-sbs/ÓTG
r J lóga h á Guð óni Bergmann
Ármúla 38, 3.hæð - www.gbergmann.is - yoga@gbergmann.is - 690-1818
Bílaleiga Rugleiða
missti 23 bíla
Jóqa fyrir 60 óra oq eldri
Síðasta námskeið fyrir
áramót hefst 29. október.
Le'iðbeinandi: Guðrún Egilsdóttir.
Skráðu þig núna!
Bílaleiga Flugleiða, Hertz, hefur í
sumar misst 23 bíla vegna útafakst-
urs eða vegna þess að bílamir hafa
oltið. I mörgum tilfellanna er um er-
lenda ökumenn að ræða. Hjálmar
Pétursson, framkvæmdastjóri bUa-
leigunnar, segir það allt of marga
bíla og heldur fleiri en oft áður. Þeir
staðir sem helst eru viðsjárverðir
eru Vatnsnes, Holtavörðuheiði,
Geirlandsvegur og Lyngdalsheiði.
Oft má rekja orsakir slysanna tU
þess að merkingum vegna t.d. vega-
framkvæmda, malbikunar eöa við-
gerða er mjög ábótavant og mun
verri en erlendir ökumenn eiga al-
mennt að venjast frá sínum heima-
löndum. T.d. sé lítt varað við lausa-
möl sem verður vegna nýlagðrar ol-
iumalar og hafi orðið banaslys af
þeim sökum.
BUaleiga Flugleiða er með 650
bUa í leigu og yfir sumartímann eða
um 8 vikna skeið er nýtingin yfir
92%. Að jafnaði er hver bUl keyrður
um 200 km á dag. Hjálmar segir að i
ljósi þess séu afíoUin ekki eins
óskapleg. -GG
Séfar:
og csjíiynjVLJJ
REYKJAViK AKUREYRi
Sólariag i kvöld 17.48
Sólarupprás á morgun 08.38
Síödegisflóð 18.37
Árdegisflóft á morgun 06.51
17.26
08.30
23.10
11.24
Kuldarok á norðan
Norðanátt, víða 8-16 m/s. Él á
norðanverðu landinu, en léttskýjað
syðra. Hiti 0 til 5 stig aö deginum.
El fyrir norðan
Norðlæg átt, 8-13 m/s og él
noröan- og austantil, en annars
bjartviöri. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast
sunnanlands.
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
'°VocP
Hi« 0°
Hiti 2°
Hiti 2"
til 6° til 8° til 8°
Vindun Vindur: Vindur:
8-13 "!/s 10-19™/“ 8-15 "'/“
4» t£ t£
Norðlæg átt, 8- Hvöss Norðaustlæg átt
13 m/s og él norðaustanátt og slydda eða
noröan- og um landið rigning, en
austantil, en norðanvert og úrkcmulítið
annars slydda eöa suðvestantil.
bjartviðri. Hiti 0 snjókoma, en Hitl 2 til 8 stig.
til 6 stig, hægari og
hlýjast úrkomulítiö
sunnanlands. sunnanlands. Heldur hlýnandi.
m/s
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13.9- 17,1
17,2-20,7
20,8-24,4
24.5- 28,4
28.5- 32,6
>= 32,7
AKUREYRI snjóél 0
BERGSSTAÐIR snjóél 0
BOLUNGARVÍK úrkoma I gr. 2
EGILSSTAÐIR úrkoma í gr. 0
KEFLAVÍK hálfskýjað 2
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjað 4
RAUFARHÖFN snjóél 1
REYKJAVÍK léttskýjaö 3
STÓRHÖFÐI rykmmistur 2
BERGEN úrkoma 3
HELSINKI skýjað -0
KAUPMANNAHÖFN haglél 7
ÓSLÓ skýjaö 2
STOKKHÓLMUR 3
ÞÓRSHÖFN skúr 3
ÞRÁNDHEIMUR úrkoma í gr. 2
ALGARVE rigning 20
AMSTERDAM skýjað 10
BARCELONA léttskýjaö 22
berlIn skýjaö 8
CHICAGO heiðskírt 1
DUBLIN rigning 7
HALIFAX skýjaö 12
HAMBORG skúr 9
FRANKFURT skýjaö 8
JAN MAYEN úrkoma í gr. 0
LONDON rigning 8
LÚXEMBORG skýjaö 8
MALLORCA léttskýjaö 25
MONTREAL heiösktrt 3
NARSSARSSUAQ 6
NEW YORK hálfskýjað 10
ORLANDO skýjað 19
PARÍS skýjað 14
VÍN skýjaö 11
WASHINGTON skýjaö 13
WINNIÞEG heiöskírt 12