Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2002, Síða 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2002
DV
Klórar sér í kolli
Yfirvöldum gengur erfiðlega að hafa
hendur í hári leyniskyttunnar.
12. fórnarlamb
leyniskyttunnar?
Talið er að leyniskyttan alræmda
sem skotið hefur á 11 manns í
Virginíu-fylki í Bandaríkjunum,
hafi fundið sitt 12. fómarlamb á
laugardaginn. Þar var skotið á
mann sem var að ganga út af
veitingastað síðla kvölds ásamt
eiginkonu sinni. Hann liggur nú
þungt haldinn en ástand hans er þó
stöðugt. 9 manns em látnir og 2
slasaðir af völdum skyttunnar.
Að undanfömu hafa kenningar
verið á lofti um að skyttan tengist
einhverjum hryðjuverkasamtökum
en yfirvöld i Bandaríkjunum hafa
nú gefið út að þau telja það ekki
vera svo.
Aftur sprengt
á Filippseyjum
Sprengja sprakk nærri kaþólskri
kirkju í bænum Zamboanga á
sunnanverðum Filippseyjum í gær.
Eitt bam lést og minnst 15 eru
slasaðir. Þetta er í annað skiptið á
fjórum dögum sem borgurum er
sýnt sprengjutilræði, en 7 létust og
meira en 100 slösuðust í sprengingu
í verslunarmiðstöð fyrr í vikunni.
Lögreglan þar í landi telur að
íslömsk öfgasamtök standi fyrir
sprengingunum, ásamt tveimur
öðrum í höfuðborginni Manila á
fostudag. Þar létust tveir.
Kjarnorkusátt-
máli úr sógunni
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefur gefið það út
að samkomulag þeirra við Norður-
Kóreu frá árinu 1994 sé úr sögunni.
Hann kvað á um að Bandaríkin
myndu veita Norður-Kóreu aðstoð
við að byggja orkustöðvar og gefa
eldsneyti, gegn því að Norður-Kórea
myndi hætta öllum áætlunum um
byggingu kjarnorkuvopna.
Erindreki Bandaríkjastjórnar,
James Kelly, hafði komið að máli
við yfirvöld í Norður-Kóreu með
sönnunargögn þess efnis að síðar-
nefnda landið byggi til úraníum í
þeim tilgangi að framleiða kjam-
orkuvopn, og munu stjórnvöldin
hafa gengist við því.
Powell sagði þó ekki ástæðu til að
grípa til hemaðarráðstafana enda
ástandið þar ekki nærri því eins al-
varlegt og í írak.
NOTAÐAR VINNUVÉLAR
Tl-018 Massey Ferguson 860
traktorsgrafa, 80 ha. skotbóma, 60
cm bachoskófla, 5300 vst.
Ingvar
Helgason hf.
VÉLADEILD
62,89% íra sögðu „já“ við stækkun Evrópusambandsins:
Urslitunum fagnað
víða um Evrópu
Meiri kjörsókn er að mestu þakk-
að það að írar bættust í hóp hinna
14 aðildarlanda ESB sem sam-
þykktu Nice-sáttmálann svokallaða
í gær. Hann kveður á um stækkun
sambandsins árið 2004 þegar 10 ríkj-
um verður hleypt inn í það. írar
höfðu áður fellt samkomulagið en
þá var kjörsókn einungis um 36%.
Sá fjöldi sem kaus „nei“ þá er svip-
aður og nú en kjörsókn um helgina
var 48,45%.
„Hin sögulega stækkun Evrópu-
sambandsins getur haldið áfram í
réttum farvegi," sagði forsætisráð-
herra írlands, Bertie Ahem. „Við
viljum bjóða fólk þeirra landa sem
sækir um aðild velkomið i Evrópu-
sambandið,“ sagði hann. Úrslitin í
kosningunum voru ekki síst talin
vera mikill sigur fyrir hann per-
sónulega en hefði þjóðin neitað í
annað sinn hefði það kostað hann
mikinn álitshnekki, jafnt innan
lands sem utan.
REUTERSMYND
Fagnað með írunum að þeirra sið
Leszek Miller, forsætisráðherra
Póllands, fær sér Guinnes i gær.
Ráðamenn þeirra ríkja sem biða
aðildar, einkum í Austur-Evrópu,
fógnuðu úrslitunum með írum, sem
og hátt settir embættismenn sam-
bandsins sjálfs.
„Þjóðaratkvæðagreiðsla íra hefur
sýnt svo ekki verður um villst að
ESB er byggt á lýðræðislegum
grunni og að hinar smærri þjóðir
sambandsins geta haft stór og mikil
áhrif á það,“ sagði utanríkisráð-
herra Tékka sem munu væntanlega
ganga i sambandið að tveimur árum
liðnum.
Að mörgu þarf þó enn að huga
varðandi stækkunina og munu leið-
togar sambandsins hittast i Brússel
í vikunni til að ræða eitt stærsta
vandamálið, hvernig eigi að greiða
fyrir inngöngu ríkjanna sem flest
eru fátæk fyrrum kommúnistaríki.
„Við erum nærri takmarki okkar,
en ekki enn komnir á leiðarenda,"
sagði Romano Prodi, forseti ESB,
glaðbeittur í gær.
REUTERSMYND
Sorg í Ástralíu
Mikil sorg ríkir í Ástralíu eftir sprengiutilræðið á Balí í Indónesíu í síðustu viku þar sem 180 manns létust, þar af um
90 Ástralir. Þjóðarsorg var í Ástralíu í gær þar sem fórnarlambanna var minnst.
Bandaríkjamenn gefa lítið fyrir nýjasta útspil íraksforseta:
Saddam þakkar fyrir sig meö
því aö náöa flesta fanga í írak
Saddam Hussein íraksforseti náð-
aði í gær alla fanga sem dúsa í fang-
elsum í írak, hvort sem er af póli-
tískum eða lagalegum ástæðum, til
að þakka þjóðinni fyrir þá samstöðu
sem hún sýndi í nýyfirstöðnum for-
setakosningum. Þar hlaut eini mað-
urinn á kjörseðlinum, Saddam
Hussein, 100% atkvæða.
Eina undantekningin var sú að
dæmdum morðingjum yrði aðeins
sleppt ef fjölskyldur fórnar-
lambanna samþykktu það.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Colin Powell, gaf þó lítið fyrir
athæfi forsetans í sjónvarpsviðtali í
gær. „Heldur þú virkilega að ef
þetta fólk er hættulegt stjóm lands-
ins verði því leyft að vera frjálst?
Eða verður það aftur komið á bak
við lás og slá eftir þrjá daga eða
svo?“ spurði hann. Breska ríkis-
REUTERSMYND
Fagnaðarlæti fanga
Fangar í Irak og ættingjar þeirra
fögnuðu frelsinu af innlifun.
stjómin gaf það svo út að þetta
breytti engu um afstöðu Bretlands
til íraks og málefna forseta þess.
írakar höfðu áður neitað tilvist
pólitískra fanga í landinu, sem nú
hafa hlotið frelsi. Mannréttindasam-
tök höfðu áður ásakað þarlend
stjórnvöld um að fangelsa tugþús-
undir íraka af pólitískum ástæðum.
Talið er að margir þeirra hafi verið
teknir af lífi í gegnum árin. Það
verður þó aldrei vitað með fullri
vissu, hversu mörgum föngum var
sleppt í gær.
Þá hófu írakar að skila skjölum
úr skjalasafni Kúveit sem þeir
rændu á meðan írakar hertóku
landið árin 1990-1. Fyrsti kassinn
var afhentur á landamærum land-
anna í gær undir eftirliti Samein-
uðu þjóðanna.
msmms:: .
Þrjár sprengjur á Balí?
Lögreglan á Balí
rannsakar nú hvort
þrjár sprengjur hafi
verið sprengdar á
Balí en ekki tvær
eins og haldið hefur
verið fram til þessa.
Þetta hefur þó ekki
verið endanlega
staðfest.
Ráðherra hótar að hætta
Varnarmálaráðherra ísraels,
Binyamin Ben-Eliezer, hefur hótað
að ganga úr ríkisstjórn Ariels Shar-
ons í kjölfar gagnrýni sem hann hef-
ur hlotið frá kollegum sínum fyrir
að bera út ísraelska landnámsmenn
á vesturbakka Jórdanár. Til rysk-
inga kom þegar landnemar voru
fjarlægðir af lögreglunni.
Kosið til forseta í Ekvador
11 eru í framboði til forseta i
kosningum í Ekvador sem hófust í
gær. Þetta eru fyrstu kosningarnar
þar í landi síðan janúar árið 2000
þegar hin svokallaða indíánaupp-
reisn átti sér stað. Sósíalistinn Leon
Roldos hefur nauma forystu sam-
kvæmt könnunum.
Lést eftir sprengingu
Bílasprengja sprakk fyrir utan
McDonalds veitingastað í Moskvu á
laugardag og slösuðust sjö. Einn
þeirra, 17 ára unglingur, lést af
sárum sínum í gær.
4 milljónir hjálparþurfi
Sameinuðu þjóð-
irnar hafa gefið það
út að 4 milljónir
íbúa í Afganistan
þurfi að stóla á mat-
argjafir til að kom-
ast af á næsta ári.
Mikill þurrkur hef-
ur verið í landinu
en það eru aðallega íbúar i sveitum
landsins sem eru hjálparþurfi.
Sjálfsmorðsbelti fundið
Yfirvöld á Ítalíu hafa fundið svo-
kallað sjálfsmorðsbelti sem notað er
í sjálfsmorðsárásum í íbúð þriggja
Egypta sem handteknir voru fyrr í
mánuðinum. Talið var að þeir hefðu
verið að skipuleggja sjálfs-
morðsárás þar í landi.
Churchill besti Bretinn?
Bm Veðbankar í
Bretlandi telja
ij mestar likur á því
B að leiðtogi Breta í
■ seinni heimsstyrj-
I öldinni, Winston
■ Churchill, verði
■ kosinn tilkomu-
” mesti Breti allra
tíma. William Shakespeare og Isaac
Newton eru næstir í röðinni en á
næstu vikum mun fara fram kosn-
ing á BBC2 sjónvarpsstöðinni þess
efnis.
Pagrotsky iðnaðarráðherra
Sænski viðskiptaráðherrann Leif
Pagrotsky tekur við iðnaðarráðu-
neytinu í kjölfar afsagnar Björns
Rosengren sem hætti afskiptum af
stjórnmálum í síðustu viku af per-
sónulegum ástæðum.
Bandarískt skip í Jemen
í fyrsta sinn í tvö ár hefur banda-
rískt skip lagst við akkeri í Aden-
höfninni í Jemen en þar átti sér
stað árásin á bandaríska herskipið
Cole sem varð 17 sjóliðum að bana.