Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2002, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2002
Skoðun I
Ekki tukta krakkana
Agaleysi umfram önnur þjóðfélög
Vandamál sem ekki viröist öllum Ijóst. “
Spurning dagsins
Hlakkarðu til þegar snjórinn
kemur?
Já, þaö geri ég svo sannarlega.
Siguröur Sveinbjarnarson:
Ef hann kemur.
Davíö Unnarsson:
Nei, langt frá því.
Birna Oddsdóttir:
Nei, ekkert sérstaklega.
Sigríður Kristín Birnudóttir:
Nei, ég hlakka ekki til aö fá snjóinn.
Þórey Guðjónsdóttir:
Já, þá ætla ég aö leika mér úti.
Geir R. Andersen
blaðamaöur skrifar:
Hvort sem það er alvara Péturs H.
Blöndals alþm. eða ekki að leggja til
að sett verði ákvæði í barnalögin um
að bömum beri að hlýða foreldrum
sínum og hlíta reglum þeirra, þá hef-
ur umræða um bamalögin vakið verð-
uga athygli vegna hugmyndar þing-
mannsins.
Agaleysi það sem einkennir þetta
þjóðfélag i háttum og framgöngu um-
fram önnur þjóðfélög er vandamál
sem ekki virðist öllum augljóst. Því
verður auðvitað ekki snúið við með
beinum lagasetningum. Ýmsar laga-
setningar, einkum á seinni árum,
hafa þó, ásamt flumbruhætti í fram-
vindu uppeldismála hér, átt sinn þátt
i því að veikja þjóðfélagsgerðina, um-
fram það sem viðunandi er. Þannig
var að tilefnislausu, með nýjum lög-
um (líklega árið 1992) fellt úr gildi
lagaákvæði gömlu framfærslulaganna
sem skyldaði börn til að annast fram-
færslu foreldra sinna á elliárum. -
Var það svo óskammfeilið?
Segja má að sú niðurfelling hafi
verð tímanna tákn, og túlki það hver
eftir sínum smekk. Þjóðin er enn að
„sækja fram“ til betri lífskjara og lög-
gjafanum hefur fundist, að það sem
markaði mörgum íslenskum heimil-
um einkenni á árum áður, að hafa
gamalmenni í kör, eða líta til með for-
eldrum, þyrfti að hverfa.
Gamalt fólk á heimilum afkomenda
heyrir nú sögunni til. Vinnan tekur
hug og hjörtu landsmanna og séu for-
eldrar við aldur lítils háttar ógangfær
til sálar eða líkama eru þau umsvifa-
laust send á stofnanir, eða talaðir til
að selja ofan af sér. Allt til að auka
lífsgleði afkomendanna og sóknarfæri
í lausaskuldir.
Börnin njóta ekki lengur gæslu og
Ásmundur Sigurösson
skrifar:
Fimmtudaginn 10. október sl.
sagði 12 ára sonur minn mér að
byrjað væri að sýna þáttinn „That
70’s Show“ sem er krakka- og ung-
lingaþáttur, ansi skemmtilegur. Við
feðgar vorum vanir að horfa á hann
í fyrra og nú skyldi sami háttur
hafður á. Fyrir einhver mistök var
hann settur á dagskrá 15 mínútur
fyrir kl. 23 að kvöldi og á undan var
sett á dagskrána Beðmál í borginni.
Við horfðum á siðustu mínútumar
af „beðmálunum”.
Fyrir þá sem ekki vita fjallar
hann um karlastand fjögurra
kynóðra kvenna í New York. Það
sem við fengum upplýsingar um í
þættinum var að kona númer eitt
brjálaðist í rúminu því að maður-
„Vinnan tekur hug og
hjörtu landsmanna, og séu
foreldrar við aldur lítils
háttar ógangfœr eru þau
umsvifalaust send á stofn-
anir, eða töluð til að selja
ofan af sér. Allt til að auka
lífsgleðina og sóknarfæri i
lausaskuldir. “
uppfræðslu heima, en uppeldið sett
óformlega á námsskrá skólanna. For-
eldrar líta til langþráðs frelsis utan
heimilisins. Æ fleiri húsmæður henda
frá sér skuplu og svuntu og skilja við
„ Við þurfum eins og flestir
á íslandi að vakna kl. 7. /
gœr var svo fimmtudagur
og við slökktum á sjónvarp-
inu. Það voru sem sagt eng-
in mistök að hafa kynóðu
konumar á undan krakka-
og unglingaþættinum!“
inn, sem hún var með, var alltaf að
biðja hana að mæla tippið á sér.
Kona númer tvö var orðin lesbía.
Kona númer þrjú var frekar venju-
leg og hafði bara samfarir í rúminu
og uppi á borðum og svoleiðis. Sú
fjórða var ekki með neinn karl í tak-
inu en var farin að éta ósköpin öll af
súkkulaðikökum. Var henni sagt að
krakkana í bítið með viðeigandi
kveðju: „Bye, bye, see you later“.
Nú sperrir þjóðin eyrun og spyr
hvað gangi þingmanninum Pétri H.
Blöndal til með innleggi sínu í um-
ræðuna um barnalögin. - Ætli það
verði ekki einfaldlega niðurstaða um-
ræðunnar að Pétur fái sérstakan
stimpil fyrir vikið, og þýðingarmesta
ákvæðið sem tekur gildi í barnalögum
verði það að ekki megi tukta blessuð
börnin, hvorki heima né heiman. -
Það væri í samræmi við varnaðarorð
frúar einnar er á árum áður hélt
vinnukonu, sem lét gamminn geisa
þegar krakkamir á heimilinu völtuðu
yfir hana: „Blótaðu ekki börnunum,
Björg mín, það gæti komið fram á
þeim seinna, helvískum ormunum".
það væri mjög eðlilegt og kæmi í
stað kynlífs.
Nú, klukkan að verða ellefu, byij-
aði svo krakka- og unglingaþáttur-
inn en þá sagði konan að allir ættu
að fara að hátta. Við þurfum eins og
flestir á íslandi að vakna kl. 7. í gær
var svo fimmtudagur og við slökkt-
um á sjónvarpinu. Það voru sem
sagt engin mistök að hafa kynóðu
konurnar á undan krakka- og ung-
lingaþættinum!
Eitt lítið dæmi um niðurröðun
dagskrár í Sjónvarpinu. Ef eitthvað
er bitastætt í dagskrá Sjónvarpsins
er fólk svælt til þess að horfa fyrst á
efni nátthrafna og síðan á fjöl-
skylduefnið. Af siðferðilegum
ástæðum kaupi ég ekki áskrift að
Stöð tvö en Skjár einn hefur oft
bjargað okkur á vetrarkvöldum.
Sjónvarpsdagskrá á hvolfi
Garri
Agalaus lýður
Foreldrum finnst sjálfsagt að bömin hlýði
þeim og beri virðingu fyrir þeim. Foreldrar
vilja ekki að börnin séu óþæg og skeyti engu
um til hvers er ætlast af þeim. En tilveran er
nú einu sinni þannig að böm eru stundum
óhlýðin, sum meira en önnur, og foreldrar eru
misjafnlega í stakk búnir að bregðast við
óhlýðni barna sinna. Þegar í óefni er komið og
örvæntingin alger er kannski talað við lækni
og bamið látið gleypa lyf sem gerir það þæg-
ara og meðfærilegra eða að leitað er til sér-
fræðinga í uppeldismálum sem reyna að segja
foreldrunum hvemig þeir eigi að bregðast við
óþægðinni í ormunum.
Meö lögum skal...
Nýverið kom þingmaður með þá hugmynd
að festa ætti í lög að böm ættu að hlýða for-
eldrum sínum. Með óhlýðni og öðrum vand-
ræðum væri sem sagt ekki nóg að bömin
væru að óhlýðnast foreldrum sínum og brjóta
þar með siðaboðskap Hallgríms Péturssonar
um að bam skuli virða föður sinn og móður
heldur væru þau líka að brjóta landslög sem
kvæðu á um að þau ættu að vera stillt og
prúð. Eins og landslög hefðu eitthvað um það
að segja hvernig börn hegðuðu sér á heimilun-
um. Eins og ráðþrota foreldrar væru liklegir
til að kæra böm sín og í versta falli draga þau
fyrir dómstóla. Kannski að foreldramir fengju
þannig eitthvað af tíköllunum til baka sem
þeir hafa notað í uppeldinu samkvæmt uppeld-
isforskrift sama þingmanns. Garri sér að
þama vaða sjálfskipaðir uppeldissérfræðingar
í villu og svíma því rót vandans liggur ein-
faldlega hjá foreldrunum sem margir eru bæði
ráðþrota og gjaldþrota í uppeldinu.
Agalausir foreldrar
íslendingar eru upp til hópa agalaus lýður
sem ekki vill hlýða einum eða neinum og hafa
aldrei gert. Þar ganga foreldrarnir fremstir í
flokki og börnin í humátt á eftir. Leyfl sér ein-
hver að tala um aga koma sjálfskipaðir betur-
vitrungar fram úr fylgsnum sínum og biðja
guð að forða þjóðinni frá kerfisbundnu ofbeldi
á hendur börnum og unglingum þessa lands.
Eins og að agi og ofbeldi sé sami hluturinn.
Meðan ekki má beita eðlilegum aga og leið-
beina bömunum i frumskógi nútíma tilveru
og meðan upeldissérfræöingar grafa kerfls-
bundið undan sjálfstrausti foreldra með mis-
visandi leiðbeiningum um uppeldi er ekki
nema eðlilegt og sjálfsagt að þingmenn vilji
setja í lög að bömin skulu vera stillt og prúð.
Lögin skilja einu sinni allir þótt fæstir vilji
fara eftir þeim.
CsPvrrl
Trúboð frá Noregi
Guíjjón Snarsson skrifar:
í morgunþætti
Stöðvar 2 sl. mið-
vikudag var viðtal
frá Noregi við Eirík
nokkum Berg-
mann. Hefur Eirík-
ur skrifað talsvert í
blöð hér heima, þ.á
m. í DV og leggur
ávallt allt kapp á að
tylla undir ESB og
hvetja til aðildar ís-
lendinga að banda-
laginu. Eiríkur var
spurður frétta frá Noregi. Hann fór
hægt af stað og sagði allt gott af sér. En
síðan for allt í baklás og hann tók að
gefa Norðmönnum einkunnir um hvað-
eina; þeir væm kreddufullir, reglugerð-
arfargan yfirþyrmandi og ofsatrúar-
hópar í hverju dalverpi. Norskt samfé-
lag væri „vísifingurþjóðfélag" vegna
þess hve iðnir þeir væru að benda sam-
ferðamönnum á allt sem aflaga færi hjá
náunganum. - Og þetta er samfélagið
sem trúboðinn okkar íslenski í Ósló
vill heimfæra til okkar hér!
Vildarkjör fyrir
SAF
PálUónsson skrifar:
Lesa mátti frétt í Mbl. um nýjan
samning um sérstök vildarkjör hjá
Flugfélagi Islands fyrir félagsmenn
Samtaka ferðaþjónustunnar, sem þýðir
að starfsfólk samtakanna fá 25% afslátt
af fullu flugverði, og veitir jafiiframt
forgang á biðlista, afslátt hjá hótelum
og bílaleigum. Margir furða sig á því
hve starfsfólk í ferðaþjónustu virðist
eiga greiðan aðgang að lággjaldaþjón-
ustu hvers konar, jafnvel þótt hluthaf-
ar í viðkomandi fýrirtækjum sjái ekki
grænan eyri með neins konar hætti úr
þessari starfsemi. Nær hefði verið að
bjóða almennum farþegum FÍ 25% af-
slátt en SAF.
Smjörpistill
Siguróur Egill Garðarsson skrifar:
Þar sem umræð-
an um verðlag og
verðskyn almenn-
ings er í algleym-
ingi fmnst mér ekki
tiltökumál þótt
maður kíki vand-
lega eftir verðmerk-
ingum á hinum
ýmsu hlutum í
mörkuðum áður en
þeir enda í körf-
unni. Ég nota smjör
í litlum pakkning-
um, þessi 10 gramma stykki. Þau eru á
verulega misjöfhu verði i búðum, svo
ekki sé dýpra tekið í árina. Dæmi frá
tveimur þekktum „klukkuverslunum”
í borginni: stykkið kostar 16 kr. í 10-11
verslun, en 25 kr. í 11-11 verslun. Mér
• þykir þessi verðmunur mikill.
Eiríkur Berg-
mann Einarsson
stjórnmálafr.
Ótrúverðugur
trúboöi í Ósló?
Ótrúlegur
útdráttur
Þorgerður hringdi:
Ég „spilá’ í Happdrætti Háskólans
eins og það er kallað. Lít því í blöðin
eftir að dregið er og vænti hins besta
eins og ávallt. Hef unnið, þarf því ekk-
ert sérstaklega að kvarta. En stundum
er maður spældur þegar vinningsnúm-
er eru kannski einum staf hærri eða
lægri en hjá manni sjálfum. En síðast
þegar ég leit á útdrátt í vinningaskrá
brá mér þegar ég las tölumar: 8493 (3
milljónir), og 8492 og 8494 (vegna 50
þús. kr. vinninga). Getur verið að
svona raðnúmer komi upp ef um tölvu-
útdrátt er að ræða? Mér datt í hug
hvort gamla aðferðin - lítil stúlka dreg-
ur miða úr tromlu - væri enn í gangi!
mmsm
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíð 24,105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.