Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2002, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002
j3-\jr
Fréttir
Prófkjör Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi:
Hefst það í þriðju tilraun?
Breyttar forsendur
Rannveig Guömundsdóttir hefur tvisvar haft Guömund Árna Stefánsson undir í baráttunni um fyrsta sæti
Samfyikingarinnar í nágrannabæjum Reykjavíkur. Nú hafa forsendur breyst, prófkjöriö er lokaö og Hafnfiröingar
langtum atkvæöameiri í flokknum en Kópavogsbúar.
Á laugardaginn kemur takast þau á
í þriöja sinn um forystu fyrir flokk
sinn á Reykjanesi, þau Guðmundur
Ámi Stefánsson og Rannveig Guð-
mundsdóttir. Rannveig hefur tvisvar
sinnum haft Guðmund undir. Núna
eru forsendur hins vegar breyttar.
í fyrsta lagi heyra Suðumes nú sög-
unni til hvað þau varðar; kjördæmið
nær nú aðeins yftr nágrannasveitarfé-
lög Reykjavíkur. í öðm lagi - og það
skiptir líklega meira máli - verður
prófkjör að þessu sinni bundið við þá
sem verða skráðir félagar í Samfylking-
unni fyrir klukkan sex síðdegis í dag,
þremur dögum fyrir kjördag. Áður
hafa jafnan allir mátt kjósa sem skrifa
undir stuðningsyfirlýsingu við flokk-
inn á kjörstað. Núna heitir það
„flokksvaT.
Yfirburöir Hafnarfjarðar
Áður en ljóst varð að þessi aðferð
yrði fyrir valinu töldu margir að at-
kvæði Hafhfirðinga myndu fleyta Guð-
mundi Áma Stefánssyni fram fyrir
Kópavogsbúann Rannveigu Guð-
mundsdóttur í opnu prófkjöri. Þótt
Kópavogsbúar séu talsvert fleiri en
Hafnfirðingar - raunar um 40% allra
íbúa kjördæmisins - er samfylkingar-
fólk fjölmennara í Hafnarfirði. Þannig
fékk flokkurinn 5.550 atkvæði í Hafnar-
firði í síðustu sveitarstjórnarkosning-
um en 3.821 atkvæði í Kópavogi.
Lokað prófkjör styrkir enn stöðu
Guðmundar Áma. Skoðum hvemig
flokksbundnir skiptast eftir bæjarfélög-
um. Samkvæmt upplýsingum sem feng-
ust á skrifstofu Samfylkingarinnar í
gær - og miðast við stöðuna um ný-
liðna helgi - era skráðir félagar í Sam-
fylkingunni um 2.500. Dreifingin er slá-
andi: Meira en helmingur þessa hóps,
eða um 1.300 manns, er í Hafnarfirði.
Helmingi fæiri era skráðir í Kópavogi,
eða um 650. í Garðabæ era þeir um 200
og færri í öðrum bæjarfélögum.
Hafa verður þann fyrirvara við þess-
ar tölur að þær eiga eftir að breytast.
Frambjóðendur munu „smala“ nýjum
félögum í flokkinn allt þar til klukkan
slær sex í kvöld. Sumir búast við að þá
verði félagar orðnir þrjú þúsund, aðrir
segja gögur til fimm þúsund!
Hvað sem því líður er ljóst að fyrir
fram er staða Guðmundar Áma feikn-
arlega sterk.
Fjórða sætið
Flestir telja þess vegna líklegra en
hitt að Rannveig hafni í öðru sæti að
þessu sinni. Spumingin er hverjir
skipa þriðja og fjórða sæti.
Miðað við úrslit síðustu þingkosn-
inga hefði Samfylkingin fengið þrjá
menn kjöma í þessu nýja Suðvestur-
kjördæmi. Þriðja sætið er þess vegna
að heita má öruggt þingsæti. Fjórða
sætið er baráttusæti. Talið er að barátt-
an um þessi tvö sæti standi einkum á
milli þriggja frambjóðenda: Ásgeirs
Friðgeirssonar ritstjóra, Katrínar Júlf-
usdóttur ráðgjafa
og Þórunnar Svein-
bjamardóttur þing-
manns.
Þórann er þrjá-
tíu og sex ára Garð-
bæingur og hefur
setið eitt kjörtfma-
bil á þingi. Sitjandi
þingmaður er ávallt talinn hafa forskot
á aðra, hafi hann ekkert stórkostlegt
gert af sér. Sú skoðun heyrist hins veg-
ar hjá mörgum, bæði innan flokks og
utan, að Þórann eigi ekki víðtækt bak-
land í sínum heimabæ og megi hafa sig
við til að veija stöðu sína.
Ásgeir Friðgeirsson er í þeirri und-
arlegu stöðu að vera eini frambjóðand-
inn sem ekki býr í kjördæminu - er ný-
fluttur til Reykjavíkur. Hann á hins
vegar sterkar rætur í Kópavogi og hef-
ur meðal annars verið formaður Nem-
endafélags MK og formaður aðalstjóm-
ar Breiðabliks. Ásgeir er fjöratíu og
fjögurra ára, er talinn sækja fylgi inn á
miðjuna i flokknum og hefur verið alls
kostar ófeiminn við að gagnrýna
þinglið Samfylkingarinnar fyrir að
klúðra hverju sóknarfærinu á fætur
öðra.
Katrín Júlíusdóttir úr Kópavogi er
tuttugu og sjö ára og því langyngsti
frambjóðandinn. Hún er varaformaður
framkvæmda-
stjómar Sam-
fylkingarinnar
og var áður for-
maður Ungra
jafhaðarmanna.
Margir spá henni
ágætu gengi en
hún sækir fylgi
sitt væntanlega fyrst og fremst til ungs
fólks.
Baráttumenn
Fráleitt væri að afskrifa aðra fram-
bjóðendur. Úr Mosfellsbæ koma fram-
bjóðendur sem sagðir era miklir bar-
áttumenn. Valdimar Leó Friðriksson
er framkvæmdastjóri Aftureldingar og
hefur látið mikið að sér kveða í málefn-
um fatlaðra. Jónas Sigurðsson lager-
stjóri og bæjarfulltrúi er einnig öflug-
ur. Hann var um skeið formaður Al-
þýðubandalagsins i Reykjavík. Þessir
tveir gætu þó tekið atkvæði hvor af
öðrum.
Aðrir era Bragi Jens Sigurvinsson
prófdómari, Bessastaðahreppi, Jón
Kristinn Óskarsson framkvæmdastjóri,
Hafharfirði, Stefán Bergmann dósent,
Seltjamarnesi, og Þorlákur Oddsson
bifreiðarstjóri, Hafnarfirði.
Friösamleg rímma
Svo virðist sem Guðmundur Ámi
gæti ráðið talsvert miklu um úrslitin
kjósi hann að gefa stuðningsmönnum
sínum leiðbeiningar um hvemig þeir
eigi að kjósa. Engar staðfestar fregnir
eru hins vegar um að hann geri það og
sumir hafa ráðlagt honum frá því; telja
slíkt ekki gott veganesti fyrir hann.
Allir viðmælendur DV era sammála
um að baráttan sé friðsamleg og heið-
ai'leg. Frambjóðendur samþykktu ein-
um rómi tilmæli kjörstjómar um að
auglýsa ekkert í fjölmiðlum - og allir
virðast þeir ætla að standa við það.
Barátta Rannveigar og Guðmundar
Áma hefur stundum áður verið harka-
leg, en fullyrt er að ekki sé um að ræða
persónulegt strið að þessu sinni.
Þess er vænst að úrslitin liggi fyrir
um ellefuleytið á laugardagskvöld.
Fyrstu tíðindin verða hins vegar í dag,
þegar frestur til að skrá sig til þátttöku
rennur út.
Olafur Teitur
Guönason
blaöamaður
Fréttaljós
Þingmaður hefur beðið um utandagskrárumræðu:
Sértrúarsöfnuðir
ræddir á Alþingi
„Ég hef beðið um utan-
dagskrárumræðu á Alþingi
til að ræða þá stöðu sem
upp er komin, að geðsjúkir
og bágstaddir séu að lenda 1
klóm þessara safnaða,"
sagði Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, við DV
í gær. Alþingismaðurinn
kvaðst myndu beina spum-
ingum til viðkomandi ráð-
herra, hvernig fyrirhugað væri að
taka á þessari alvarlegu stöðu sem
upp væri komin, þar sem forráða-
menn Geðhjálpar hefðu talið tilefni
til að kæra tiltekin mál, sem vörð-
uðu afskipti sértrúarsafnaða af geð-'
sjúkum, til lögreglunnar.
DV hefur fjallað um samskipti
forráðamanna sértrúarsafnaða og
safnaðarmeðlima að undanfömu.
Málið var opnað með viðtali við
fyrrum safnaðarmeðlim Omega-
safnaðarins sem hafði gefið söfnuð-
inum aleiguna og meira til. í kjöl-
farið streymdi fjöldi kvart-
ana og frásagna á sömu nót-
um til Geðhjálpar. Forráða-
menn þeirra samtaka
brugðust skjótt við og
sendu erindi bæði til land-
læknisembættisins og heil-
brigðisráðherra þar sem
óskað var rannsóknar á því
hvort svokölluð frjáls trúfé-
lög væru að misnota að-
stæður geðsjúks fólks. Jafn-
framt bað Geðhjálp embættin að
kanna hvort og þá hvernig hægt
væri að bregðast við þessu með
lagaheimildum.
Áfram héldu gögnin að hlaðast
upp hjá Geðhjálp og á fundi sínum í
fyrrakvöld ákvað stjórn samtak-
anna að kæra tiltekin mál, sem hún
hefur skjalfest undir höndum, til
lögreglunnar. Stjómin hefur jafn-
framt hvatt þá sem telja sig hafa
beðið skaða af samskiptum sínum
við sértrúarsöfnuði að hafa sam-
band við Geðhjálp. -JSS
Ásta R.
Jóhannesdóttir.
: : AKUREYR|
Sólarlag í kvöld 16.56 16.41
Sólarupprás á morgun 09.29 09.14
Síödegisflób 19.17 23.50
Árdegisflóó á morgun 07.41 12.14
Norðan 13 til 18 metrar á sekúndu
norðvestan til á landinu en breytileg
átt, víða 5-10 annars staðar. Rign-
ing eða slydda, einkum norðan-
lands, en að mestu þurrt á Suð-
austur- og Austurlandi.
Noröan 10 til 18 metrar á sekúndu,
rigning eða slydda á norðanverðu
landinu en skýjað með köflum sunn-
anlands.
Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
til T til 7” til T
Vintiur: Vindur. Vindur:
8-13 m/s 8-13 8-13 <»s
* * *
Dálrtil rigning Dálitil rigning Dálítil rígning
eöa slydda eöa slydda eöa slydda
noröan- og noröan- og noröan- og
austanlands. austanlands. austanlands.
Mildast syöst á Mildast syöst á Mlldast syöst á
landinu. landinu. landinu.
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5.S-7.9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
BŒISI s i
AKUREYRI snjókoma 1
BERGSSTAÐIR rigning 1
BOLUNGARVÍK snjóél 1
EGILSSTAÐIR skýjað 5
KEFLAVÍK hálfskýjað 3
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 4
RAUFARHÖFN rigning og súld 5
REYKJAVÍK rigning 3
STÓRHÖFÐI léttskýjað 4
BERGEN rigning 8
HELSINK! alskýjaö 2
KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 2
ÓSLÓ þokumóða 0
STOKKHÓLMUR 3
ÞÓRSHÖFN hálfskýjað 8
ÞRÁNDHEIMUR rigning 1
ALGARVE heiöskírt 17
AMSTERDAM skýjað 8
BARCELONA skýjað 10
BERLÍN heiðskírt -4
CHICAGO þokumóða 4
DUBLIN skýjað 10
HALIFAX heiðskírt -1
HAMBORG heiöskírt -2
FRANKFURT alskýjaö 4
JAN MAYEN þokumóða 4
LONDON súld 13
LÚXEMBORG þoka 5
MALLORCA léttskýjaö 7
MONTREAL heiöskírt 1
NARSSARSSUAQ alskýjað -3
NEW YORK rigning 9
ORLANDO alskýjað 24
PARÍS skýjað 7
VÍN skýjað -1
WASHINGTON rigning 7
WINNIPEG alskýjaö 1