Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2002, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002
DV
7
Fréttir
Matvælaiðnaður:
Uppsveifla
Bjartari horfur eru nú I iðnaði
eftir nokkum samdrátt en veltan í
iðnaði hefur dregist saman í ár um
2%, en að raunvirði, þ.e. að frá-
dregnum verðbreytingum, er sam-
drátturinn um 7%. Mestur hefur
samdrátturinn orðið í byggingar-
starfsemi, jarðvinnu og upplýsinga-
tækni en nokkur uppsveifla i mat-
væla- og drykkjariðnaði. Á árinu
hefur fjárfesting iðnfyrirtækja dreg-
ist saman um 15% að raunvirði.
Könnunin var gerð af Samtökum
iðnaðarins og náði til 80 fyrirtækja.
Á næsta ári er gert ráð fyrir að
velta iðnfyrirtækja aukist um 4,5%
og eru horfumar bjartastar I upp-
lýsingatækni og prenti. Áfram verð-
ur lítils háttar samdráttur í bygg-
ingarvinnu og jarðvinnu, en þar er
ekki gert ráö fyrir neinum stórfram-
kvæmdum, eins og t.d. Norðlinga-
ölduvirkjun eða Kárahnjúkavirkj-
un. Mestra fjárfestinga er að vænta
í prentgeiranum en síðan í mat-
væla- og drykkjariðnaði og plast- og
veiöarfæragerð, og er talið að í síð-
astnefndu iðngreininni gæti fjárfest-
ing aukist yflr 40% og um 15% í
málm- og skipasmíðaiðnaði. -GG
Flugleiðir:
Lægstu fargjöldin upp-
seld fram í febrúar
- ríkið hirðir fjórðu hverja krónu af lægstu fargjöldunum
Heimsótti
Sellafield
Siv Friðleifs-
dóttir umhverfls-
ráðherra heim-
sótti í gær kjam-
orkuendur-
vinnslustöðina í
Sellafleld í
Skotlandi í boði
breskra stjórn-
valda. í heim-
Friöleífsdóttir. sókninni í verk-
———........— smiðjuna kynnti
umhverfisráðherra sér sérstaklega
þá starfsemi sem veldur losun
geislavirkra efna út í umhverflð og
berast hingað til lands. íslensk
stjómvöld hafa um skeið þrýst á
bresk stjómvöld að herða kröfur á
hendur verksmiðjunni þannig að
losun frá henni valdi ekki aukinni
geislamengun í Norður-Atlantshafi.
Þó að geislamengun í sjó og sjávarfangi
hér við land sé mjög lítil og langt und-
ir heilsufars-viðmiðunarmörkum þá er
það mjög mikilvægt að halda geisla-
mengun í algjöru lágmarki á Islands-
miðum nú og í framtíðinni. Ekki síst á
það við um markaðssetningu íslenskra
sjávarafurða. -GG
. DVWND GVA
Ut á hafið djúpa
Reykjavikurhöfn skartaði sínu fegursta í haustsólinni í dögunum.
Flugleiðir kynntu nýlega ný lág-
fargjöld, svokallaðan netsmell sem
auglýstur var sem flugsæti á bros-
legu verði. Verð til London og Kaup-
mannahafnar kosta um 19.800 krón-
ur en bóka þarf sæti með 21 dags
fyrirvara, lágmarksdvöl er aðfara-
nótt sunnudags en hámarksdvöl 21
dagur.
Þessi fargjöld eru uppseld fyrir
nokkru út þetta ár.
Kannað var á mánudag, 4. nóvem-
ber, hvenær hjón kæmust út til
Kaupmannahafnar á fostudegi og til
baka á mánudegi og fannst ekkert
laust sæti á þessu fargjaldi fyrr en
fostudaginn 14. febrúar 2003 og til
baka 17. febrúar. Fargjaldið til
Kaupmannahafnar kostar 19.730
krónur og eru skattar af þeirri upp-
hæð 4.830 krónur, eða 24% af far-
gjaldinu! Ríkiskassinn tekur með
öðrun orðum fjórðu hverja krónu af
fargjaldinu sem hjónin þurfa að
greiða til Kaupmannahafnar, sem er
39.460 krónur.
24. janúar voru laus sæti til Kaup-
mannahafnar og til baka fyrir tvo á
24.230 krónur sætið eða nokkru
hærra gjald en um miðjan febrúar.
Töluverð ásókn virðist því vera í
þessi ódýru fargjöld á næstunni en
þess ber að gæta að töluverð aukin
ásókn er i farmiða til og frá íslandi
um jól og áramót. -GG