Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2002, Síða 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002
DV
REUTERSMYND
Kosiö í Flórída
Engin stórkostleg vandræöi uröu í
kosningunum í Flórída í gær.
Flórídakosning-
arnar gengu vel
Svo virðist sem kosningamar í
Flórída hafi gengið að mestu
snurðulaust í gær, ólíkt því sem
gerðist í forsetakosningunum fyrir
tveimur árum. Þá varð fimm vikna
dráttur á þvi að úrslit réðust endan-
lega vegna klúðurs við framkvæmd-
ina í Flórída.
Að þessu sinni var notast við
snertiskjái í hinum fjölmennu sýsl-
um Miami-Dade og Broward og
gekk það vel.
„Ég held að við séum endanlega
búin að reka af okkur slyðruorðið
og sýnt að við getum efnt til al-
mennilegra kosninga," sagöi Jim
Smith, innanríkisráðherra Flórída.
Fyrirrennari hans í starfi,
Katherine Harris sem varð skúrkur
í augum demókrata en hetja í aug-
um repúblikana fyrir þátt sinn í
endurtalningu atkvæðanna í for-
setakosningunum, bauð sig fram til
fulltrúadeildarinnar og náði kjöri.
Reykeitrun varð
12 að bana í lest
Tólf manns dóu úr reykeitrun eft-
ir að eldur kom upp i hraðlest frá
París til Vínarborgar laust eftir
miðnætti að íslenskum tíma í nótt.
Lestin var þá komin í námunda við
borgina Nancy í austanverðu
Frakklandi. Niu manns slösuðust.
Hinir látnu, sex karlar, fimm kon-
ur og eitt barn, voru útlendingar í
tveimur þýskum svefnvögnum sem
eldurinn kom upp í. Það voru jám-
brautarstarfsmenn í Nancy sem
tóku eftir eldinum þegar lestin fór
þar í gegn. Svo virðist sem skamm-
hlaup í hitakerfi lestarvagnanna
hafi orsakað eldsvoðann, aö sögn
járnbrautarstarfsmanna.
Farþegum lestarinnar var komið
fyrir í leikfimisal á meðan þeir biðu
eftir að geta haldið ferð sinni áfram.
Grunaður tllræðlsmaður.
Balímáliö:
Tveir grunaðir
handteknir
Lögregluyfirvöld í Indónesíu sögð-
ust í gær hafa handtekið tvo menn
grunaða um aðild að sprengjutilræð-
inu á Balí eftir að teiknuðum mynd-
um af þremur grunuðum tilræðis-
mönnum voru birtar i fjölmiðlum um
allt land um helgina.
Að sögn talsmanns lögreglunnar
var annar mannanna handtekinn á
mánudaginn í borginni Medan á
Súmötru þegar hann reyndi að
komast um borð í flugvél til Malasíu
með fölsuð skilríki og hinn í höfuð-
borginni Jakarta í gær. Þriðja
mannsins er nú leitað og sagði lög-
reglan að hringurinn þrengdist.
Repúblikanar ná meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings:
Sögulegur árang-
ur fyrir forsetann
George W. Bush Bandaríkjaforseti
vann sögulegan sigur þegar
Repúblikanaflokkurinn endurheimti
meirihluta sinn í báðum deildum
þingsins í kosningunum í gær.
Frambjóðendur repúblikana sigr-
uðu fráfarandi öldungadeildarþing-
menn demókrata í Georgíu og Mis-
souri og náðu þar með að minnsta
kosti eins sætis meirihluta í öld-
ungadeildinni, þó niðurstaða væri
ekki fengin í Minnesota, Suður-Da-
kóta og Louisiana.
Repúblikanar bættu einnig við
sig tveimur mönnum í fulltrúadeild-
inni og juku þar með meirihluta
sinn þar. Þar með virðist sem ferða-
lög Bush forseta síðustu daga kosn-
ingabaráttunnar hafi skilað sér í at-
kvæðum til repúblikana.
Jeb Bush, yngri bróðir forsetans,
náði endurkjöri sem ríkisstjóri í
Flórída og demókratinn Gray Davis
var endurkjörinn ríkisstjóri Kali-
forníu. Repúblikanar fengu einnig
REUTERSMYND
Lífeyrisþeginn vann
Hinn 78 ára gamli Frank Lauten-
berg, frambjóöandi demókrata i New
York, náöi kjöri til öldungadeildar
Bandaríkjaþings í gær.
rikisstjórann í Maryland, í fyrsta
sinn í 36 ár, og var sá sigur til
marks um mikla velgengni flokks-
ins i kosningunum í gær.
Sigur repúblikana í kosningun-
um hefur mikla þýðingu fyrir Bush
forseta. Hann getur nú reitt sig á
stuðning þingsins við fyrirhuguðum
hernaði gegn írak og hann sér fram
á að íhaldsstefna hans nái fram að
ganga, svo sem tillögur hans í
skattamálum og öryggismálum inn-
anlands. Þá þarf Bush ekki að hafa
miklar áhyggjur af því að þingið
hafni tilnefningum hans í dómara-
stöður sem losna.
Bush varð með fylgisaukningu
repúblikana þriðji forsetinn á einni
öld sem hefur tekist að bæta við sig
sætum í kosningum á miðju kjör-
tímabili forsetans. Demókrötunum
Franklin Roosevelt og Bill Clinton
tókst það á árunum 1934 og 1992.
Að þessu sinni var kosið um öll
435 sætin í fulltrúadeildinni, 34 sæti
í öldungadeildinni og um 36 ríkis-
stjóraembætti.
„Fólk var orðið þreytt á þrátefl-
inu i þinginu," sagði repúblikaninn
Dennis Hastert, forseti fulltrúa-
deildarinnar, í viðtali við sjónvarps-
stöðina CNN.
REUTERSMYND
Bush-feðgar fagna
George Bush eldri, fyrrum forseti Bandaríkjanna, fagnar hér kosningasigri meö yngri syni sínum, Jeb Bush, sem sigraöi
meö glæsibrag í kosningum til ríkisstjóra í Flórída og er þetta í fyrsta skipti sem repúblikani nær endurkjöri í ríkinu.
Ariel Sharon:
Segist hafa verið nauðbeygður
til þess að boða kosningar
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, boðaði í gær eins og búist
var við til kosninga í landinu þann
28. janúar, um það bil níu mánuðum
áður en ætlað var.
„Þetta var að mínu mati besti
kosturinn í stöðunni,“ sagði Sharon
og bætti við að hann hefði í raun
verið nauðbeygður til þess að boða
til kosninga þar sem hann hefði
ekki getað sætt sig við kröfur sam-
starfsaðilanna fyrir áframhaldandi
rikisstjómarsamstarfl og þar meö
hefðu forsendur fyrir áframhald-
andi stjórnarsetu verið brostnar.
Benjamin Netanyahu, keppinaut-
ur Sharons um leiðtogasætið í Lik-
ud-bandalaginu fyrir komandi kosn-
ingar, samþykkti þar með að gegna
embætti utanríkisráðherra fram að
kosningum, en ætlun Sharons er að
leysa upp þingið og hefur Moshe
Ariel Sharon.
Katsav, forseti landsins, staðfest aö
Sharon hafi farið fram á að það yrði
gert eftir að Netanyahu hafi verið
settur í embætti.
Netanyahu staðfesti í sjónvarps-
viðtali í gær að hann myndi keppa
við Sharon um leiðtogasætið í Lik-
ud-bandalaginu og sagði baráttuna
þar með hafna. „Ég tók að mér emb-
ætti utanríkisráðherra til þess að
forða þjóðinni frá enn meiri vand-
ræðum en orðin eru. Við vitum öll
að ástandið er mjög ótryggt og stríð
gegn írökum er yfirvofandi," sagði
Netanyahu, sem eins og Shaul Mof-
az, nýskipaður varnarmálaráðherra,
vill flytja Yasser Arafat í útlegð.
Þrátt fyrir meiri vinsældir Shar-
ons meðal almennings er Netanya-
hu bjartsýnn á að fella hann úr leið-
togasæti og treystir þar á aukna óá-
nægju innan flokksins.
mmnmm
Bush sendir föstukveðjur
George W. Bush
Bandaríkjaforseti
sendi múslímum f
Bandaríkjunum og
annars staðar f
heiminum kveðjur
sínar í gær í tilefni
upphafs ramadans,
föstumánaðar músl-
íma. Við það tækifæri kallaði forset-
inn íslam friðelskandi trúarbrögð.
Leyft að tala dönsku
Tilraun Hans Enoksens, for-
manns Siumutflokksins á Græn-
landi, til að úthýsa dönsku úr græn-
lenska þinginu virðist dæmd til að
mistakast þar sem allir flokkar hafa
lýst sig andvíga tillögu hans, meira
að segja hans eigin flokksbræður.
Ályktun lögð fram í dag
Búist er við að Bandaríkjamenn
leggi fram endurskoðaða ályktun
sína um írak fram í Öryggisráði SÞ
í dag þar sem Saddam Hussein verð-
ur veittur lokafrestur til að losa sig
við gjöreyðingarvopn sín.
Leit að forsætisráðherra
Leiðtogar hins íslamska Réttlæt-
is- og þróunarflokks, sem sigraði í
þingkosningunum i Tyrklandi um
helgina, ræddu í gær hver eigi að
verða næsti forsætisráðherra.
Muhammad áfram I haldi
John Allen Muhammad, sem
grunaður er um að hafa staðið fyrir
leyniskyttumorðunum í nágrenni
Washington, var í gær úrskurðaður
f gæsluvarðhald þar til ákveðið
verður hvar rétta á yflr honum.
Árásir munu halda áfram
Borís Berezov-
skíj, útlægur rúss-
neskur kaupsýslu-
og stjómmálamað-
ur, sagði í gær að
tsjetsjenskir harð-
línumenn myndu
halda áfram því
sem þeir hófu með
gíslatökunni í Moskvuleikhúsinu á
dögunum nema rússnesk stjórnvöld
semdu um frið við hófsama.
Sæði upp í skuldir
Verkamenn í rúmenskri bílaverk-
smiðju hafa ákveðið að gefa úr sér
sæði til að hægt verði að greiða
skuldir fyrirtækisins með fénu sem
fæst fyrir lífsvökvann.
Berlusconi sloppinn
ítalska þingið
samþykkti loks í
gær, eftir margra
vikna hatrammar
viðræður, frum-
varp sem andstæð-
ingar þess segja að
hafi verið skradd-
arasaumað fyrir
Silvio Berlusconi forsætisráðherra
og vini hans svo ekki verði hægt að
sækja þá til saka fyrir spillingu.
Gamlir drekka líka mikið
Breskir unglingar eru ekki þeir
einu sem skvetta of mikið í sig því
svo virðist sem lífeyrisþegar fái sér
of oft of mikið neðan í því.
Brytinn varaður við
Paul Burrell, fyrrum bryti Díönu
prinsessu sem var sýknaður í síð-
ustu viku af þjófnaðarákæru, segir í
blaðaviðtali í dag að Elísabet drottn-
ing hafi varað sig við ókunnum öfl-
um í landinu.